Dagur - 03.06.1918, Page 2
34
DAGUR.
Alþingi.
Frumv. til laga um dýrtídar- og
gróðaskatt hefir verið lagt fyrir
þingið. Auk tekjuskatts þess, er um
ræður í gildandi lögum, skulu þeir,
sem hafa í árstekjur 30 þús. kr.,
greiða 5°/o og fer skatturinn hækk-
andi og er orðinn 15 af hundraði,
þegar tekjurnar eru orðnar 50 þús.
kr. eða meira.
Karl Einarsson flytur frumv. um
bœjarstjórn Vestmannaeyja. Ætlast
til að eyjarnar verði teknar í tölu
kaupstaða, sýslumaðúrinn í Vestm,-
eyjum verði bæjarfógeti og hafi auk
þess öll hin stömu störf á hendi
og sýslumaðurinn nú og sömu laun
úr landssjóði. Bæjarstjórn stýrir mál-
efnum kaupstaðarir.s.
Stjórnin hefir lagt fram frumv.
nm hœkkun á vörutolli. Fjárhags-
nefnd Neðrid. hefir lagt til að frv.
þetta verði samþykt með þeirri
breytingu, að allur vörutollur verði
tvöfaldaður, og gerir ráð fyrir að
sá tekjuauki geti numið 90—100
þús. kr. á þessu ári.
Langt frumv. er fram komið frá
stjórninni um stimpilgjald. Skulu
skjöl ýmist stimpluð með 1% eða
1/2°/o af verðhæð þeirra, eða þá
föstu gjaldi. Gert ráð fyrir 200 —
300 þús. kr. tekjuauka af þessu.
Fjárhagsnefnd segir í áliti sínu
um frumv. þetla, að athugavert sje
að leggja slíkan skatt á viðskiftalíf-
ið^og fellir si'g alls ekki við að
leggja stimpilgjald á farmskírteini,
sem í raun og veru sje eigi annað
en útflutningsgjald af vörum. Ró
hefir það orðið ofan á í nefndinni
að leggja til að frv. yrði samþykt
með nokkrum breytingum og lagt
til að lögin gildi ekki lengur en til
ársloka 1921.
Frumv. til laga um fólksráðninga-
skrifstofu i Rvik og um vatd lands-
stjórnarinnar til að ráðstafa at-
vinnulausu fólki flytúr bjargráða-
nefnd. Stjórninni heimilast að setja
upp ráðningaskrifstofu, eftir sam-
ráði við Búnaðarfjel. íslands og
Fiskiveiðafjelagið, til fyrirgreiðslu
vinnuviðskiftum í landinu. Stjórninni
heimilast og vald til að ráðstafa at-
vinnulausu og bjargarvana fólki,
sem ekki verðúr ráðið á ráðninga-
skrifstofunni, eða með frjálsum sam-
ningum á annan hátt. Petta má þó
því aðeins ske, að stórfeld bjargar-
vandræði verði og að fengnu sam-
þykki viðkomandi sveita- eða bæja-
stjórna. Er hjer aðeins drepið á ein-
slöku ákvæði frumvarps þessa.
Mentamálanefnd flytur frumv. til
laga um veðurathugunarstöð í Rvík.
Var það afgreitt til Efrid. 13. maí.
Athuganastöðin á að rannsaka veð-
ráttu og veðrabrigði að því er ís-
land varðar, svo sem föng eru á,
og gefa daglega út skýrslu um það,
hverra veðra sje von.
í öllum verstöðum landsins, er
hafa hraðskeytasamband, kaupstöð-
um og kauptúnum, skal setja við-
vörunarstöðvar, er birti daglega
veðurskýrslur stöðvarinnar í Rvík
og gefi glögg merki þegar snöggra
veðrabrigða er von.
Stjórn Læknafjelags íslands hefir
farið þess á leit að fá 100% bráða-
birgðahækkun handa hjeraðslæknum
fyrir læknisverk þeirra og ferðir.
Fjárveitinganefnd Neðrid. flytur
frumv. í þessa átt.
Jörundur Brynjólfssoh og Þor-
steinn Jónsson flytja frumv. til laga
um heimild fyrir bœjar- og sveita-
stjörnir til að leggja gjald á kvik-
myndasýningar og aðrar opinberar
myndasýningar, aðrar en málverka-
eða teiknisýningar.
Gjaldið má vera mishátt fyrir
mismunandi sýningar, en aldrei
meira en tuttugu af hundraði af
öllum tekjum, áður en kostnaður
er dreginn frá. Frumvarp þetta er
flutt með vitund og vilja bæjarstjórn-
ár Reykjavíkur.
Frumv. til laga um breyting á
fræðslulögunum er fram komið í
N.d. frá mentamálanefndinni. Var
það afgreitt til E.d. um miðjan síð-
astá mánuð. Ætlast nefndin til, að
launakjör barnakennara verði bætt
að nokkru, en tekur það fram í
greinagerð frumv. að hún hafi ekki
sjeð sjer fært að mæla með því, að
frumv. stjórnarinnar um sama efni
næði fram að ganga.
Minni hluti allsherjarnefndar flyt-
ur tillögur í N.d. um að prófess-
orar við Háskóla íslands hafi að
byrjunarlaunum 5000 kr. á ári, en
launir. hækki á hverjum 3. ára fresti
um 200 upp í 6000 kr., og að
dósentar við sama skóla hafi að
byrjunarlaunum 3600 kr., en launin
hækki á hverjum 3. ára fresti um
200 upp í 4600 jtr.
Meiri hluti nefndarinnar vill aftur
á móti, að þingið fáist ekki við
launamálið að þessu sinni á öðrum
grundvelli en þeim, sem gert hefir
verið með dýrtíðaruppbótinni.
Víðsvegar að berast þinginu nú
málaleitanir frá embættis- og sýsl-
unarmönnum landsins um launa-
bætur.
í N.d. hefir svohljóðandi tillaga
til þingsályktunar frá samgöngu-
málanefnd verið samþ.:
Alþingi ályktar að heimila lands-
stjórninni:
1. að hækka styrk þann, sem ákveð-
inn er í gildandi fjárlögum til
Langanessbáts, um alt að 12
þús. kr. á ári, og gangi 1 eða
2 bátar frá Sauðárkróki til Seyð-
isfjarðar, með viðkomu í Gríms-
ey, en sjeu eigi minni til sam-
ans en 80 smálestir og haldi
uppi ferðum til miðs nóvem-
bers.
2. að lána alt að 90 þús. kr. til
kaupa á Húnaflóabát.
Meiri hluti fjárveitinganefndar er
meðmæltum þessum tillögum.
Tillaga til þingsályktunar um rann-
sókn mómýra frá bjargráðanefnd
Neðrid.:
Alþingi ályktar að feia lands-
stjórninni að láta gera rækilega rann-
sókn á mómýrum, sjerstaklega við
Faxaflóa, til þess að komast fyrir,
hvort móiðnaður með Lavals-að-
ferð væri tiltækilegur, og heimilast
nauðsynlegt fje til rannsóknarinnar.