Dagur - 03.06.1918, Blaðsíða 4

Dagur - 03.06.1918, Blaðsíða 4
36 DAGUR. fá nú þegar dálílinn herafla frá Ame- ríku til varhar í bráðina, eða bíða hins að þeir fengju fullkominn og öflugan her síðar og hafa þeir tekið þann síðari kostinn, bendir það á, að þeir þykist ekki mjög varbúnir að vörnum gegn óvinum- sínum. Pó segja fregnirnar að bandamenn geri sjer það ljóst að svo geti vel farið, að þeir verði að láta undan síga ofureflinu og leggi því alt sitt kapp á að liafa varalið sitt sem best vígbúið til að hefja gagnáhlaup svo skjótt, er eitthvað dregur úr sókninni hjá Pjóðverjum. Má nú búast við stórviðburðum á vestur- vígstöðvunum á hverri stundu. Boðorðið. Menn hafa víst alls ekki átt þess von, að hefjast mundu samninga- umleitanir um samband íslands og Danmerkur svo fljótt, sem nú eru horfur á. Eins og kunnugt er, neitaði konungur að verða við ósk Alþingis um sjerstakan verslunarfána íslendingum til handa. í þess stað mun r.ú ráðið, að Danir sendi nefnd manna hingað til lands til þess að semja um sambandið í heild. Er það í samræmi við orð konungs í ríkisráðinu 22. nóv. síðastl. Zahle, forsætisráðherra Dana, hefir símað Jóni Magnússyni forsætisráðherra, að þegar ríkisþingið hefjist 28. maí, þá verði ákvörðun tekin um það, hvernig Danmörk muni æskja að skipa fulltrúa til slíkra samningaum- leitana. Af þvf, sem hjer er sagt, er það Ijóst, að Danir eiga upptökin að þessum nýju samningatilraunum, og munu fulltrúar þeirra koma fram með ákveðnar tillögur, og hafa þá íslendingar um tvo kosti að velja, annaðhvort að fallast á þær eða hafna þeim. Hvorn kostinn beri að taka, verður vitanlega ekkert um sagt, á meðan boð Dana eru ekki kunn orðin. Fyrri samningatilraunir milli Dana og íslendinga hafa gefist illa og orðið þess valdandi, að íslenska þjóðin hefir skiftst í andvíga og ill- víga flokka, sem dregið hefir huga manna frá umbótaframkvæmdum í Iandinu og tafið þjóðina á framsókn- arbraut sinni. Nú voru nokkrar horfur á, að það sár færi að gróa, sem af deilum gömlu flokkanna stafaði. Til óbætanlegs tjóns yrði það fyrir þjóðina, ef það sár ýfð- ist upp að nýju við þær samninga- tilraunir, sem nú eru fyrir dyrum. Undanfarin reynsla ætti að vera okk- ur til leiðbeiningar um það, að vill- ast ekki á nýjan leik út á þá óheilla- braut að standa sundraðir frammi fyrir Dönum. Rað væri óafmáan- leg smán, ef sílk afglöp hentu okk- ur enn, og allra síst ætti það við á þessum alvöruþrungnu tfmum. í þessu máli á okkur að eins að vera eilt boðorð gefið og fleiri ekki. Boðorðið er þetta: Allir eiít. Rokum okkur saman, þá er sig- urinn vís. Samtíningur. — Árni Helgason bóndi í Skálpa- gerði í Kaupangssveit er nýlega lát- inn. — Cand. theol. Erlendur Pórð- arson frá Svartárkoti er löglega kos- inn prestur í Odda. — Færeyingar hafa gert út sendi- menn til Reykjavíkur, til þess að semja við stjórn landsins um vöru- kaup frá Ameríku. Er nú svo kom- ið,' að Danir geta ekki orðið þeim að liði með lífsnauðsynjar. Hafa samningarnir milli færeysku sendi- mannanna og stjórnarinnar gengið greiðlega, enda gleðiefni fyrir Jslend- inga að geta orðið þeim að liði. — Með meira móti er nú unn- ið að garðrækt hjer og mun Iangt komið að setja niður í garðana. — Formaður Rjóðvinafjelagsins er kosinn Benedikt Sveinsson alþm. í stað Tryggva sál. Gunrrarssonar. — Björn Ólsen prófessor hefir beðist undan að verða kosinn for- seti Bókmentafjelagsins í sumar. Ber við heilsulasleik. Talið líklegt að hann biðji um lausn frá prófessors- embættinu af sömu ástæðu. — Votkolun er sænska móvinslu- aðferðin kölluð, sem áður hefir ver- ið getið hjer í blaðinu í sambandi við Rorkel Þ. Clementz. Höfundur hennar er hugvitsmaðurinn De La- val, sem Alfa —Laval skilvindan er kend við. Er aðferðin því líka köll- uð Lavalsaðferðin, Nú er í ráði á Alþingi að setja á fót votkolunarverksmiðju hjer á landi eftir tillögum Rorkels. En áður en það er ráðið, þarf rann- sókn fram að fara á mólandi, til þess að komast að raun um hvort skilyrði fyrir votkolunarverksmiðju sjeu hjer fyrir hendi. Gert ráð fyrir að verksmiðjan framleiði 5— 10 þús smálestir á ári, en nú er mælt að slík verksmiðja kosti 400 þús. kr, og skýtur það nokkuð skökku við það verð, sem áður hef- ir verið um getið. Ritstj. þessa blaðs hefir verið sendur dálitill moli af af votkoluðum sænskum mó. Er þessa getið, ef einhverjir hefðu gaman af að sjá, hvernig hann lítur út. — Nokkrar konur í Rvík, sem eru í stjórn Landsspítalasjóðsins, hafa birt áskorun til íslenskra kvenna þess efnis, að þær af alhug vinni að því, að 19 júní verði framveg- is hátíðiegur haldinn sem víðast á landinu, sem minningardagur rjett- arbóta kvenna og fjársöfnunardag- ur til Landsspítalasjóðs íslands. Vilja ekki konur á Akureyri verða við þessari áskorun? — Einar H. Kvaran hefir í Rvík lesið upp kafla úr hinni nýju skáld- sögu sinni: »Sambýlið« og Ijúka sunnanblöðin miklu lofsyrði á hana. — Sr. Bjarni Rorsteinsson á Siglu- firði sendi um hvítasunnuleytið þing- mönnum Eyfirðinga þakkarskeyti f nafni hreppsnefndar og hreppsbúa fyrir ötula framgöngu í áhugamál- um Siglfirðinga, Prenlsmiðja Björns Jónssonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.