Dagur - 03.06.1918, Blaðsíða 3

Dagur - 03.06.1918, Blaðsíða 3
DAGUR. 35 Vetrarbrautin. (Eftir Z. Topelius.) Er Ijósið mitt er sloknað um ljúfa, kyrra nótt, þá læðist inn að hvílustokki minninganna gnótt, og æfintýrin þjóta að mjer sem eldingar um geim svo undurþýð og hugljúf, að vikna jeg fyrir þeim. Þá horfa skærar stjörnur úr heiði í næturhyl, svo hýrar eins og dauði á jörð ei lengur væri til. Ef þeirra mál ei skilur, þjer sögu jeg segi þá, er sjálfur las jeg stjörnum í, en viltu hlusta á? Hann bústað fjekk á stjörnu við fagurt kvöldsins skraut^ hún fjærri honum sólu aðra í geimnum byggja hlaut. Og hennar nafn var Salami en Sulamith hjet hann, og segulkraftur elskunnar i þeirra hjörtum brann. F*au áður bygðu foldu og unnust þar í stað, en ávalt myrkur, synd og dauði skildi vinina að. Þeim uxu síðar vængir við dauðans djúpu ró, en dæmd þau voru sitt á hvorri stjörnu að lifa þó. Ei ástir þeirra fyrndust i uppheimssölum há, en óteljandi hnattafjöldi á milli þeirra Iá; já, geimurinn hinn víði með öll sín undra lönd, hið yndislega furðuverk af drottins máttarhönd. En Sulamith þá seint og snemma sótti þráin heim, svo hann ákvað brú af Ijósi að reisa um dimman geim, og Salami þá sendi geisla sínum bústað frá, sem hún vildi Iáta alt að heimskautunum ná. í árþúsundir bygðu þau með þreki, þoli og trú, og þannig skaptist vetrarbrautin glæsilega, sú, er faðmar hæsta himinhvolf og her af stjörnum smá og hnýtir saman strendurnar við úthaf geimsinsblá. Og óttaslegnir englarnir við Alvald sögðu þá: sHvað elskendurnir hafa gjört nú skalt þú drottinn sjá» En Alfaðirinn brosti svo að birti um víðan geim. »Hvað bygt er upp af kærleika, jeg ríf ei fyrir þeim.« En Salami og Sulamith af sínu starfi leyst nú sællar gleði nutu, og þeirra ást var treyst við þúsund ára sorgir, við þúsund ára þrá, við þeirra fund rann skærsta stjarnan hvelfingunni á. En allir þjer sem unnist hjer á æfikaldri leið, en aðskiljist af hleypidómum, myrkri, synd og deyð, ef þrek þið hafið heima á milli háa að reisa brú, þið hitta skuluð ástvinina; það er meira en trú. X. þýddi. Margar fyrirspurnir komatil stjórn- arinnar. Þeirra á mcðal ein frá sr. Sig. Stef. um það, hversvegna ÁI- þingi hefði verið kallað saman 10. apríl. Forsætisráðherra svaraði þeirri fyrirspurn með merklegri ræðu, sem út er komin í þremur blöðum í Reykjavík. Alt í óvissu um hvenær þingi verður slitið. Von á skeyti frá Dan- mörku í þessari viku um samninga milli íslands og Daumerkur. Verslunin. Samningarnir við Breta eru enn ekki birtir og er þeim þó að öllu lokið. Eggert Briem einn úr sendi- nefndinni, kr heiin kominn, en hin- ir tveir komnir til Khafnar. Heyrst* hefir úr Reykjavík, að Englendingar skuldbindi sig ekki til að káupa kjöt okkar og talið lík- legt að þeir leyfi þá útftutning á því til Norðurlanda, ef þeir ekki hirða um að kaupa það sjálfir, Annars eru samningarnir taldir að sumu Ieyti viðunandi fyrir landbúnaðinn. Eftir fregnum að dæma hefir sjáv- arútvegurinn orðið fremur hart úti hvað síldina snertir, búist við að bandanienn vilji ekkert af henni kaupa, en leyfi sölu á aðeins 50 þús. tunnum til Svíþjóðar. Þá er og sagt að Ieyfi hafi fengist fyrir útflutningi á 1000 hestum til Dan- merkur. Samkvæmt samningunum skuld- binda bandamenn sig til þess að selja Islendingum matvöru fyrir á- kveðið verð, er stendur óbreytan- legt þangað til í maí 1919. Ákveðið mun vera að landið taki að sjer innkaup á allri erlendri matvöru að minsta kosti, og ef til vill fleiri nauðsynjavörum. Af því leiðir að starf heildsalanna fellur að mestu eða öllu niður. Mun þetta gert eftir tillögum frá landsverslun- arstjórunum, og standa í sambandi við bresku samningana. Þriggja manna nefnd verður sett, til þess að sjá um útflutning á ís- lenskum afurðum. Verður einn þess- ara nefndarmanna fyrir hönd land- búnaðarins, annar fyrir sjávarútveg- inn og sá þriðji verslunarfróður maður. Landsstjórnin kaupir alla íslenska ull, nema lítinn slatta, sem danska stjórnin á hjer, fyrir ákveðið verð. Ullin verður gerð upptæk, ef á þarf að halda, eða ef hún fæst ekki með öðru móti. Frá útlöndum. Stórorustur eru yfirvofandi á vest- urvígstöðvunum og jafnvel sagt að Þjóðverjar sjeu byrjaðir á harð- vítugri og grimmri sókn á sumum stöðum með góðum árangri. Þjóð- verjar sagðir einráðnir í að draga saman allan þann herafla, er þeir hafa á að skipa og hefja ógurlega sókn og ætlast þeir þá til að til einhverra úrslita dragi. Bandamenn hafa átt um tvo kosta að velja, að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.