Dagur - 30.07.1918, Síða 8
56
DAGUR.
Samtíningur.
— Fyrra laugardagskvöld las rit-
höfundur Einar Kvaran tvo kafla úr
»Sambýlinu,« í samkomuhúsinu hjer.
Að því búnu flutti prófessor Har-
aldur Níelsson erindi um dularfull
fyrirbrigði úr eiginni reynslu.
Sagði hann þar frá sumu því
merkasta, sem fyrir hann hefir kom-
ið við rannsóknir hans hjer á landi
og í Er.glandi. Húsfyllir var þetta
kvöld, og að sögulestrinum og er-
indinu var gerður hinn besti rómur.
Þessir tveir gestir hjer í bænum,
skáldið og prófessorinn, fóru fyrir
rúmri viku alfarnir hjeðan landveg
austur um sveitir, og má fullyrða
að hugheilar árnaðaróskir Akureyr-
inga og annara Norðlendinga fylgi
þeim, með þakklæti fyrir komuna.
— Gert er ráð fyrir að Alþingi
komi saman í september næstk. til
þess að leggja smiðshöggið á sam-
bandslögin. Að því búnu fer fram
þjóðaratkæði.
— Sambandskaupfjelögin halda
þessa árs aðalfund sinn á Akureyri
12 n. m. í tilefni af því er Hall-
gríms Kristinssouar von hingað með
Sterling næst.
— Síldveiðin er nú byrjuð og
skipin farin að leggja upp afla sinn
hjer við fjörðinn og á Siglufirði.
— Ari Arnalds hefir fengið Seyð-
isfjörð og Kristján Linnet Skaga-
fjörð. Dr. Sigurður Nordal er skip-
aður prófessor í hið auða sæti
Björns Olsens.
—Alþingismennirnir Einar Árna-
son, Pjetur Jónsson og Sigurjón
Friðjónsson komu hingað til bæjar-
ins landveg sunnan úr Rvík á þrið-
judagskvöldið var.
Gjalddagi blaðsins
var 1. júlí.
Áskrifendur mega skrifa andvirði
blaðsins inn í reikning þess í
Kaupfjeiagi Eyfirðinga.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
útlítandi
Niðursoðin matvæli,
svo sem
MJÓLK, ÁVEXTIR o. fl.
alt af fyrirliggjandi í
KjÖTBÚÐINNl.
Kaupfjelag Eyfirðinga
hefir nú fengið talsverðar birgðir af
amboðum, amboðaefnum, ljáum,
Ijáblöðum, brýnum og klöppuhausum.
Gleraugu
og
Reykjarpípur
fást í
Kaupfjelagi Eyfirðinga.