Dagur - 27.08.1918, Side 3
DAGUR.
63
Vorlönd þín bíða
vanangurs hlíða,
háar heilagar stundir.
Perlur kærleikans,
kristal sannleikans,
demant viskunnar dýran
ljós-sál þín hlýtur,
himin þú lítur
lífsins skínandi skíran.
Stafar stjörnu brá
stilt við loftin blá,
sigur samherja boðar.
Vökum og vökum,
voldugum rökum
sál þín samhug vorn stoðar.
Tjörnesnáman.
Herra »Ö« hefir þótt ástæða til,
að fræða almenning um það í 11.
tbl. »Dags«, að ‘lítið gagn virðist
vera að stjórn hr. Alfr. Olsons í
Tjörnesnámunni, og að mikið minna
hafi verið tekið upp áf kolum síð-
an hann fór að láta vinna með sínu
sænska vinnulagi en áður meðan
JónasPorsteinsson var einn um verk-
stjórn. — Það er nokkuð fljótfærnis-
legt, og þarf meir en litla framhleypni
til, að fella slíkan dóm eftir 14 daga
reynslu, og það af manni, sem alls
ekkert skynbragð ber á þann verkn-
að, sem hjer er um að ræða. Til
mála gat komið að »0« hefði get-
að sagt orð af viti um þetta, ef hann
hefði kynt sjer lrverju jeg hefi þó
til vegar komið á þremur mánuð-
um, þó skynbragð hans á þessum
efnum sje ærið takmarkað.
Breytingarnar, sem jeg hefi kom-
ið á við námunaýeru þessar: Vögn-
unum hefir verið gerbreytt og þeir
smíðaðir um; sporvegunum breytt,
og bryggjunni til útskipunar, verk-
færi og ljós erualt önnur en áður,
og yfir höfuð gengur öll vinnan nú
eftir öðrum reglum en áður var.—
Pó að hr. Jónas Porsteinsson
kunni við og við að henda sú ó-
gæfa— sem alla verkstjóra getur hent
— að ráða til vinnunnar menn, sem
hvorki geta unnið nje vilja vinna
eftir skynsamlegri stjórn, jafnvel
kunna ekki að aka hjólbörum, þá
get jeg ekki borið ábyrgð á því;
siíkir menn ættu heldur að leita sjer
atvinnu á skrifstofum en í kolanám-
um. Að vinnan hlautað gangaseinna,
meðan verkamennirnir voru að læra
alveg nýjar vinnuaðferðir, því kem-
ur »Ö« ekki í sitt ferkantaða höfuð,
en er auðsjáanlega nógu framhleyp-
inn til þess, að fella skilningslausa
sleggjudóma um verk annara manna,
sem hann ekkert vit hefir á. Hann
segir að minni kol komi nú úrnám-
unni en áður, en hann getur ekki
um hve mikið verkmönnum hefir
verið fækkað. Ef hann hefði viljað
skýra rjett frá, þá hefði hann átt að
taka fram; hversu mörg kíló kola
fengjust eftir hvert dagsverk. Pað er
ekki ætlun mín að gefa hjer neina
skýrslu um þetta, en jeg tel að nú
sje náman rekin á »praktiskan« hátt,
með góðum verkmönnum, og er
það lán fyrir námuna, að hún er
laus við »Ö« og slíka menn. Pað
er líka álit mitt, að þrátt fyrir það
að kolalögin eru óhægtil vinslu, þá
muni þó vera mögulegt með hent-
ugum aðferðum, góðri stjórn og
góðum verkmönnum, að láta rekst-
ur námunnar bera sig.
Tvo fyrstu mánuðina, sem jeg
var við námuna (maí og júní) með-
an ekki komst lag á vinnuna, Ios-
aðist ekki tonn á mann um vikuna,
en í júlí, eftir að »akkorðs«-vinnu
varð á komið, og betri aðferðir
voru orðnar verkamönnum tamar,
þá fást meira en 3 tonn eftir mann
um vikuna, og það sýnist mjer vera
góður árangur í hlutfalli við gæði
námunnar. —
Væri mjer Jjett að rita íslenska
tungu, myndi jeg hafa ritað meira
um þetta efni í dagblöðin, og sýnt
»Ö« betur fram á, að hann hefir
flónskað sjálfan sig með þessari til-
raun sinni til þess að sverta mann-
orð mitt. Alfred Olson.
Samtíningur.
— Aðalsteinn Sigmundsson kenn-
ari í Árbót í Pingeyjarsýslu hefir
gefið út boðsbrjef að tímariti um
uppeldi og mannrækt, sem ráðgert
er að út komi á Akureyri á næst-
komandi hausti eða vetri. Eiga að
koma af því tvö hefti á ári og kost-
ar árg. 2,00 kr. »Riiinu er ætlað
að flytja fræðslugreinar og hvatn-
ingar um uppeldis- og skólamál, og
verður reynt að afla þeirra frá fær-
ustu mönnum um þau efni,« segir
í boðsbrjefinu.
Fylsta þörf er á svona tímariti og
ættu allir mentavinir að styðja að
því að það gæti fæðst og þrifist.
— Brynleifur Tobíasson stúdent
verður íslenskukennari við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri í vetur.
— Hallgrímur Kristinsson lands-
verslunarforstjóri, sem dvalið hefir
hjer fyrir norðan um tíma, lagði af
stað Iandveg suður til Rvíkur á
fimtudaginn var. Fór hann Sprengi-
sand og fjekk Ingólf bónda í Fjósa-
tungu sjer til fylgdar. Frú Hallgr.
og börn hans fara alflutt til Rvíkur
með Sterling.
— Landsstjórnin hefir keypt síld
þá, sem Bretar eiga hjer á landi
frá fyrra ári, 39 þús. tunnur, fyrir
15 kr. hverja tunnu. Samningar hafa
verið gerðir við S. Goos verk-
smiðjustjóra á Siglufirði um bræðslu
á nokkru af síldinni, sem nemur
300 smálestum af síldarmjöli, og
verður verðið á því 35 kr. tunnan
á Siglufirði. Síldin og síldarmjölið
verður svo til sölu bæja- ogsveita-
stjórnum til skepnufóðurs næsta vetur.
— Guðmundur Hlíðdal verkfræð-
ingur kom hingað til Akureyrar í
síðustu viku, og fjekk rafmagns-
nefndin hann til þess að fara upp
að Glerá og leggja ráð á um raf-
veitu-undirbúning. Benti G. H. á
Porkel Porkelsson kennara til þess
að gera nauðsynlegar mælingar á
ákveðnu svæði. Hefir Porkell tekið
þetta starf að sjer og er nú byrjað-
ur á mælíngunum.