Dagur - 27.08.1918, Blaðsíða 4
64
DAGUR.
— Fyrri miðvikudagsnótt varð
Gústaf Grönvold útgerðarmaður frá
Rvík bráðkvaddur í skipinu Wille-
moes. Iijartaslag varð honum að
bana. Gústaf heitinn var vel gefinn
maður á besta aldri.
— Blaðið Njörður á ísafirði er
sagður mótfalfinn sambandslaga-
frumvarpinu. Öll hin íslensku blöð-
in munu vera því fylgjandi.
— Ritstjóri Vísis fór þess á leit
skömmu fyrir þinglausnir, að al-
þingi leyfði sjer að stefna forsætis-
ráðherra fyrir »ærumeiðandi« orð
um sig í þingræðu. Kom erindi
þetta til umræðu og atkvæða í neðri
deild. Enginn þingmaður gerðist
til að flytja máiið, svo óvænlega
horfði fyrir íitstjóranum. Kom hon-
um þá hjálp úr óvæntri átt, því
sjálfur forsætisráðherrann síóð þá
upp og æskti þess mikillega, að
deildin leyfði þessa málshöfðun.
Varð þá deildin við beiðni forsæt-
isráðherra.
— Landsverslunarútbú á að setja
á stofn í þremur kaupstöðum lands-
ins: Akurcyri, Isafirði og Seyðis-
firði; er svo ti! ætlast að vörur
verði framvegis fiuttar beint til út-
búanna frá Ameríku að svo miklu
leyti sem við verður komið, og að
vöruverðið s sje hið sama og í Rvík.
— Jón Guðmundsson bóndi í
Litlubrekku í Arnarneshreppi er'ný-
lega andaður. Greindur maður og
grandvar.
— Alþingi kemur saman næst-
komandi mánudag, til þess að gera
út um sambandslaga-uppkastið.
— Magnús Kristjánsson alþm.
kom hingað með Willemoes síðast
og hefir dvalið hjer í bænum síð-
an. Hann fer affur til Rvíkur nú
með Sterling.
— Ungfrú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir kenslukona hefir sagt lausu
starfi sínu við barnaskólann hjer og
flytur alfarin til Rvíkur nú með
Sterling.
Fóðurbætir.
Með því að fóðurbætir verður ekki fáan-
legur fyrir veturinn, nema pantaður sje af
sveita- og bæjarstjórnum, verða bæjarbúar
að senda skriflegar pantanir sínar á síld og
fóðurmjöli fyrir 30 þ. m. til okkar. Verðið
er: Síldartunnan 15. kr., fóðurmjöl 100 kg.
35 kr. á Siglufirði.
Dýrtíðarnefndin.
Fjármörk.
Peir, sem vilja koma fjármörkum í viðbætir við marka-
skrá Eyfirðinga, sendi þau til undirritaðs fyrir 31. okt. n.
k. og 35 aura með marki og 15 aura með brennimarki.
Hálsi, 22. ágúst 1918.
Bened. Jzinarsson.
Upplag
Dags hefir orðið að stækka
á miðju ári vegna vaxandi
kaupendafjölda. Síðari helm-
ingur árgangsins kostar 1 kr.,
er borgist fyrir 1. desember
þ. á. Auk þeirra, sem bein-
línis hafa pantað blaðið, er
það sent nokkrum mönnum
víðsvegar um land. Ef þeir
ekki æskja að gerast fastir
kaupendur, eru þeir beðnir áð
endursenda það.
Gert er ráð fyrir að blaðið
stækki að miklum mun um
næstu áramót.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Skilvindur
á kr. 110—250 .
fást hjá
Pjetri Pjeturssyni.
Kaupendur
Dags mega borga blaðið í versl-
un Kaupfjel. Eyf. á Akureyri, Sölu-
deild Ringeyinga á Húsavík og til
Rórarins Stefánssonar bóksala þar.
Ennfremur til kaupfjelagsstjóra Björns
Kristjánssonar Kópaskeri.
Gjalddagi blaðsins
var
1. J-Ú-L-í.