Dagur - 22.10.1918, Síða 4
80
DAGUR.
hefir nýlega verið skipaður lands-
fjehirðir í stað V. Claessen, er sagt
hefir starfanum lausum sökum veik-
inda.
— Jónas Jónsson frá Hriflu hefir
ságt lausu kennarastarfi sínu við
Kennaraskólann í Rvfk, en við tek-
ur í hans stað Ásgeir Ásgeirsson
cand. theol.
— Embættisprófi í læknisfræði
hafa nýléga tekið: Jón Bjarnason frá
Steinnesi í Húnavatnssýslu, Hinrik
Thorarensen frá Ákureyri og Kristján
Arinbjarnarson, allir með góðri I.
einkunn.
— Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
samþykt að byggja rafmagnsstöð
fyrir bæinn með afli úr Elliðaánum.
Til framkvæmda þessu verki ákvað
bæjarstjórnin að taka 2V2 milj. kr.
lán og byrja á verkinu sem allra
fyrst.
— Flugfjelag er verið að reyna
að stofna í Rvík. Á það að hafa
50 þús. kr. höfuðstól til að byrja
með og er ætlast til að einn eða
tveir menn verði sendir út af örk-
inni til þess að læra fluglist og út-
vega flugvjelar.
— Ingibjörg Bjarnadóttir prófasts
I Steinnesi í Húnaþingi og Jónas
læknir Jónasson Rafnar liafa nýlega
birt trúlofun sína.
— Fiskifjelagið hefir sent mann
til Ameríku til að nema fiskverkun-
araðferðir Ameríkumanna og hag-
nýtingu þeirra á fiskiúrgangi.
— Kyndarinn og brytinn á Lag-
arfossi hafa verið sektaðir um 300
kr. hvor þeirra fyrir bannlagabrot.
— Ný útgáfa af ljóðmælum Ror-
steius Erlingssonar er væntanleg á
bókamarkaðinn fyrir næstu jól. Hún
flytur margt áður óprentað.
— Samband íslenskra samvinnu-
fjelaga gengst fyrir þvi, að nám-
skeið fyrir samvinnumenn verði
haldið í Rvik í vetur. Rao hefst 2.
des. og stendur 4 til 5 mánuði.
Sambandið hefir ráðið Jónas Jóns-
son kennara og ritstjóra tímarits
samv.fjelaganna til þess að veita
námsskeiðinu forstöðu.
— Jón Pálsson frá Tungu í Fá-
skrúðsfirði hefir verið skipaður dýra-
læknir á Austfjörðum og á að hafa
aðsetur á Reyðarfirði.
— Barnaskóli Akureyrar var sett-
ur 14. þ. m. og Gagnfræðaskólinn
degi síðar.
Með E/S Sterling
komu í verslun mína: Hlaðnar pat-
rónur nr. 12 á 20 aura stk. Enn-
fremur fuglabyssur, perlur, sela- og
fuglahögl.
Hvergi ódyrara í bænum.
M. H. Lyngdal.
RJÓLTÓBAK
fæst hjá
M. H. Lyngdal.
Hvítur og svartur tvinni, smellur,
kerti, eldspítur, gullbrons b. fl.
fæsi hjá
M. H. Lyngdal.
Hvergi ódýrari skófatnaður, en í
skóverslun M. H.Lyngdals.
Nýr skófatnaður kemur með hverri
skipsferð.
Skóvinnustofan er vel byrg af
öllu efni og afgreiðir eins og að
undanförnu aliar skóviðgerðir fljótt
og vel, smíðar allskonar skófatnað
eftir máli ef óskað er.
Vönduð vinna.
Sanngjarnt verð.
M. H. LYNGDAL.
OSKILAL0MB
í haust voru mjer dregin 2 lömb
með marki konu minnar: hvatt
hœgra, heilrifab vinstra, og 1 lamb
með mfnu marki: Stýft hœgra,
biti aftan vinstra.
Eigendur lambanna gefi sig fram
við undirritaðan og semji um
mörkin.
Stóradal í Eyjafirði 10/“> 1918.
Stefán Jóhannesson.
Ný bók
Um fiskaklak.
Einföld aðferð að búa til fiska-
tjarnir og ala upp fiska.
Með myndum.
Nauðsynleg bók á hverju heimili.
Verð 1 kr, 75 au. 5 eintök
#
borguð fyrirfram 1 kr. 30 au.
Bókin er send, með póstkröfu eða
fyrirfram borgun, út um land.
Útsala hjá Guðm. Davíðsyni
Frakkastíg 12, Reykjavík.
Avfsana-
og
Kvittanabækur
fást í prentsmiðju
Björns jónssonar.
Skilvindur
á kr. 110—250
fást hjá
Pjetri Pjeturssyni.
Kaupendur
Dags mega borga blaðið í versl-
un Kaupfjel. Eyf. á Akureyri, Sölu-
deild Pingeyinga á Húsavík og til
Pórarins Stefánssonar bóksala þar.
Ennfremur til kaupfjelagsstjóra Björns
Kristjánssonar Kópaskeri.
Gjalddagi blaðsins
var
1. J-Ú-L-í.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.