Dagur - 23.12.1918, Page 1
DAGUR
lcemur út tvisvar í mán-
uði og kostar 2 kr. árg.
gjaldd. 1. júlí.
AFGREIÐSLU-
og iiinheinitumaður:
Lárus j. Rist. Talsími 31.
Ráðhússtíg 4.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
I. ár.
Akureyri, 23. des. 1918.
24. blað.
„Friður á jöröu“
Gleðiieg jól!
»Friður á jörðu!« — nú hljómar um lönd og höf.
Hugsjónin fegursta rætast mun að vonum.
Friður á jörð yfir fallinna bræðra gröf!
Friður á jörð yfir lifandi manna sonum!
Rráir friðar fylling
fólk, og sjer í hilling
eining allra þjóða,
ást á hinu góða.
Pá er fullur friður
falli sundrung niður,
sundrung sjálfs vors anda,
sundrung þjóða og landa.
Frið og farsæld byggir
fólk, sem rjettinn tryggir,
tryggir traust á mönnum
trú á guði sönnum.
* *
Jafnt þeim hrausta og háa
hinum veika og smáa,
faðir fullan gjörðu
friðinn pinn á jörðu!
Páll 1. Ardal.
»Minningar margra jóla
mætast í dag — «
hetta stóð á einu brjefspjaldi, sem
mjer var sent um jól. Mjer varð
oftar en einusinni starsýnt á þessar
línur, aðfangadagskvöldið það. Jeg
fór að rifja upp hugsanir mínar og
hvernig mjer hefði liðið ýms und-
anfarin jól. — Jólin geta verið svo
margvísleg. — Stundum höfum við
þá verið veik, eða staðið við sjúkra-
beð eða dánarbeð vina okkar, stund-
um fjarri ættingjum og heimilum
og pínst af heimþrá, stundum verið
í miklu fjölmenni, stundum of ein-
mana, — stundum gloð, stundum
hrygg. -
En altaf höfum við reynt að setja
einhvern jólablæ á umhverfið. Altaf
hafa komið fram á varir okkar þá
daga þessi sömu orð: »Gleðileg
jól!« Hvar, sem menn mætast, er
þetta ávarp á allra vörum. I3að er
skrifað, prentað eða skrautritað á
hvert jólakort. Pað blasir við okkur
í auglýsingum blaðanna.
»GLEÐÍLEG JÓL!«
En finst ykkur það ekki stundum
varhugavert, þegar sumt það besta,
sem mannssálin geymir og fegurstu
orðin sem komið geta fram á var-
ir mannanna, þegar það alt verður
næstum hljómlaust, bragðlaust, and-
laust, — ekkert nema venja. Pað
verður svo oft, — því miður.
»Gleðileg jól!« Aðeins að við gæt-
um altaf sagt þessi orð þannig, að