Dagur - 23.12.1918, Side 2
98
DAGUR!
þau væru þrungin af sál, af and-
ríki og af ástúð. Ef friður og há-
tíðablær jólanna fylti hug okkar
allan, ef sál okkar væri á þeim
augnablikum ’lognblíð lá, Ijósanna
föður skuggasjá«, þá gæti hka hjart-
næm ósk um góð og gleðileg jól
risið eins og heit bylgja á hyldýpi
hugans, liðið sem öflugur, hlýr
straumur inn í hugskot vina okkar
bæði nær og fjær.
Það er oft gaman að fá sendi-
brjef, hamingjuósk, símskeyti, loft-
skeyti o. s. frv., en alt er það kalt
og dautt, ef þessar bylgjur hugans
rísa ekki á bak við og gefa því líf.
Áreiðanlega verða þau, hugskeytin,
tryggustu sambandsskeyti framtíðar-
innar, skeytin sem okkur þyrstir
mest eftir. Og áreiðanlega eru það
hræringamar í djúpi hugans, sem
gefa öllu, sem umhverfis okkur er,
sitt gildi. Pað eru þær, þær einar,
sem geta gert jólin gleðileg jól.
Viðhöfnin, skrautið, ljósadýrðin,
jólagjafirnar, söngurinn, gleðskap-
urinn, kræsingarnar, jólasumblið alt,
þessa getum við alls notið í ríkum
mæli, en þó fari jólin framhjá, án
þess að hræra nokkurn viðkvæman
streng f hjörtum okkar, án þess að
vera sönn jól. Sál okkar er samt
ósnortin. Jeg veit það vel, að öll
viðhöfnin og hátíðabrigðin á jólun-
um á að vera vegur til mannshjart-
ans til að leiða þangað sannan jóla-
fögnuð, fagrar jólahugsanir. En
tekst það nú æfinlega? Verður það
ekki stundum vegur fyrir alt aðrar
hugsanir? Vekur það ekki upp ýms
áhyggjuefni, margvíslegt umstang,
sem stundum skilur lítið eftir, nema
þreytu og sljóleika.
Einhver mesti kennimaður þessa
lands byrjaði einu sinni jólaræðu
sína eitthvað á þessa leið: »Ef við
ættum vog, sem við gætum mælt
með fagnaðartitring mannlegs hjarta,
þá fyndum við hversu óumræðan-
legan fögnuð boðskapur jólanna
hefir vakið í brjóstum mannanna,
kynslóð eftir kynslóð, núí 19 aldir.«
Það er þessi fagnaðartitringur
mannlegs hjarta, sem er insti kjarni
jólanna. Rar sem hann býr, þar eru
jól. Hafi hann ekkert snortið okkur
höfum við ekki lifað nein jól. Og
ef þú hefir glatt , einhvern á jólun-
um þá er það þannig, að þjer hef-
ir tekist að leiða þennan fagnaðar-
titring inn í sál hans. Á annan hátt
er ekki hægt að gleðja á jólunum.
»Hvernig hefir þú skemt þjer um
jólin?« spyrja menn venjulega að
aflíðandi jóium. En samviskuspurn-
ing hvers og eins, til sjálfs sín,
ætti að vera eitthvað á þá leið, hvort
fagnaðartitringur mannlegs hjarta
hefði nokkurntíma gagntekið okkur
um jólin. Pað er enginn hjegómi.
Dýpsta nautnin í lífinu, eina nautn-
in er þó sú, að geta orðið snort-
inn, hrifinn.
Jólahaldið í kaupstöðunum, veisl-
urnar, heimboðin, dansinn, spilin
og næturvökurnar á oft svo undar-
lega litið skilt við sanna jólagleði.
Einstaka mönnum tekst þó að halda
fullu jafnvægi, mitt í öllu því
skvaldri. En stundum eru umræðu-
efnin valin svo innihaldslaus, ljett-
úðug og jafnvel spilt og óholl, að
það eins og fennir í hug okkar yf-
ir alt það hlýjasta, besta og næm-
asta, sem við eigum til í eðli okk-
ar. En einmitt það hefði þó átt að
geta sprungið út eins og blóm,
sprungið út við jólaylinn og jóla-
ljósin.
Ef til vill er hátíðahaldið sjálfa
jóladagana í raun og veru vottur
um takmörkun á okkar andlega
þroska. Við ernm þar að fjötra
jólagleðina við vissa daga. En koma
Krists í heiminn ætti að vera minn-
isstæð lengur en þá daga. Við þurf-
um altaf að eiga þau jól í sál okk-
ar.
Og hvenær sem samúðaröldur
frá sálum annara manna snerta okk-
ur, hvenær sein okkur líður vel að
einhverju leyti, — hvenær sem
hugsunin um Krist, og þá, sem
ásamt honum hafa göfgað heiminn,
vek'ur fagnaðartitring í sál okkar,
og einhver glampi af dýrð hinnar
helgu nætur leikur um hugskot
vort, þá eru jól, hvað sem tíma-
talinu líður.
En hve mikill hátíðablær og við-
höfn, sem er í heimahúsum þínum
og alstaðar, ef sál þín er ósnortin,
þá eru engin jól. Ef þú vilt gera
eitthvað vel, þá verður þú að leggja
sál þína inn í það, líka inn í jóla-
gleðina, sem þú veitir sjálfum þjer
og öðrum.
Nú eru jólin að ganga í garð.
íMitiningar margra jóla
mætast í dag.c
Ýmsra jóla, sem hafa auðgað
okkur, og annara, sem hafa skilið
okkur eftir jafn snauð og við vor-
um. Jólahaldið í þetta sinn verður
eigi síður margvísíegt. Kjörin eru
svo margháttuð og hugarþel okkar
svo ólíkt. Víða á landi okkar, eigi
hvað síst í höfuðstaðnum, eru nú
svo mörg opin sár og blæðandi,
sem koma jólanna gerir máske enn
tilfinnanlegri. Rað er svo víða skarð
í vinahópinn, sem enn síður getur
dulist, þegar búið er að tendra
jólaljósin.
Og út í ófriðarlöndunum vitum
við, að jörðin flýtur í blóði og
tárum. Pað er eins og við þorum
varla að trúa því, að jólin geti,
nema í einstöku stað, orðið gleði-
leg jól.
Jú, við vonum að friðarboðskap-
ur jólanna veki hreinna bergmál
og fegurra samræmi í veröldinni
nú, en þessi síðustu ár. Við vonum>
að nú loks sje alheimsfriður í nánd.
Við vonum, að þessi jól geti íanda
og sannleika lýst friði yfir blóði
stokkna jörðina. Þessar friðarvonir
hljóta að snerta hvert mannshjarta
á þessum jólum, fylla okkur þakk-
læti og öruggri trú á nýja tíma.
Prátt fyrir alt það umliðna og
öll ógróin sár, getur það, betur en
öll viðhöfn, gert okkur jólin þessi
gleðlleg jól.
1. B.