Dagur - 23.12.1918, Side 3
DAGUR.
99
t
Kristinn Ketilsson.
Hann andaðist að heimili sínu,
Reykhúsum í Eyjafirði, að morgni
hins 16. þ. m., 67 ára að aldri.
Kristinn sál. ól allan sinn aldur
hjer í Eyjafirði og stundaði búskap
lengst æfinnar. Ætíð var hann efna-
lítill, en komst þó vel af.
Á yngri árum var Kristinn fjör-
og gleðimaður, en er hann eltist,
dvínaði fjörið nokkuð vegna heilsu-
brests, en síglaður var hann þó og
skemtinn í viðræðum. Hann hugsaði
mikið um öll framfaramál landsins
til hins síðasta, fylgdist vel með
því sem gerðist á þjóðmálasviðinu
og las blöð og bækur af kostgæfni
og alúð.
Kristinn sál. var kvæntur gæða-
konu, Hólmfríði Pálsdóttur, og lifir
hún mann sinn. Peim hjónum varð
4 sona auðið, er allir hafa rnann-
ast vel og eru nú á besta skeiði
æfinnar. Peir eru þessir: Hallgrim-
ur, framkvæmdarstjóri Sambands-
kaupfjelaganna og forstjóri Lands-
verslunarinnar, nú búsettur í Reykja-
vík, Sigurður, kaupfjelagsstjóri á
Akureyri, Jakob, prestur í Wynyard
Sask. í Kanada og Aðalsteinn, um-
boðssali á Akureyri.
Fyrir fáum árum brá Kristinn
búi, og hafa þau hjón síðan verið
á vegum sona sinna. Nú síðast
mátti Kristinn heita þrotinn að heilsu.
Kvöldið áður en hann andaðist,
fjekk hann slag og vaknaði ekki aft-
ur til þessa lífs.
Allir þeir, er eitthvað kyntust
Kristni sál, minnast hans með
einkar hlýjum hug.
Borgarafundur.
Mánudagskvöldið 16. þ. m. var
almennur borgarafundur haldinn í
samkomuhúsi bæjarins, til þess að
ræða um »bæjarstjóra kosninguna*
(þannig orðað í fundarboðinu). Til
fundarins boðuðu nokkrir borgarar
í Akureyrarbæ, aðallega kaupmenn
og kaupsýslumenn. Til þessa fund-
ar mun hafa verið stofnað af þeim,
sem andstæðir eru því, að bæjar-
stjóri verði settur hjer. Hafa þeir
þá að sjálfsögðu ætlað að hafa á-
hrif á atkvæðagreiðsuna 20. þ. m.
Engin fundarályktun kom fram og
hefði það heldur ekki átt við.
Af andstæðingum bæjarstjórahug-
myndarinnar tóku til máls: Bjarni
Jónsson bankastjóri, Ragnar Ólafs-
son ræðismaður, Júlíus Havsteen
Iögmaður og Björn Jónsson fyrrum
ritstjóri. Engar nýjar ástæður höfðu
þeir fram að færa málstað sínum til
stuðnings. Af hálfu þeirra, sem eru
því meðmæltir, að hjer komi bæjar-
stjóri, tóku til máls bæjarfulltrúarn-
ir Böðvar Bjarkan lögmaður og.
Erlingur Friðjónsson og sýndu Ijós-
lega fram á þörfina á sjerstökum
bæjarstjóra, þó að rök þeirra væru
að vísu ekki ný, því málið hefir
áður verið þrauthugsað og rætt
bæði innan bæjarstjórnar og utan.
Fundurinn fór vel fram og stilli-
lega, en þýðingarlaus var hann og
ekkert á honum að græða.
Atkvæðagreiðslan
um bæjarstjörann.
Henni lauk svo, að 201 alkv.
voru greidd með því að sjerstakur
bæjarstjóri yrði settur hjer, en 168
voru á móti því. 4 atkvæðaseðlar
voru ógildir. Voru þannig alls
greidd 373 atkvæði af rúmum 900,
er á kjörskrá standa, en allmargir
þeirra eru fjarverandi eða dánir.
Má því heita að atkvæðagreiðsla
þessi væri sæmilega sótt, eftir því
sem venja er til.
Nokkurt kapp mun hafa verið
við atkvæðagreiðsluna af beggja
hálfu og þó öllu meira frá hendi
andstæðinga málsins. Pannig flutti
»íslendingur«, er út kom rjett á
undan atkvæðagreiðslunni, Ianga
grein eftir Júlíus Havsteen yfirdóms-
lögmann, þar sem hann reyndi að
telja þeim hughvarf, er vilja fá
sjerstakan bæjarstjóra, en árangur
þeirrar tilraunar hefir annaðhvort
orðið lítill eða enginn; að minsta
kosti ekki nægur, því með atkvæða-
greiðslunni er bæjarstjóramálið fnam
gengið frá hálfu kjósendanna.
Af þessari atkvæðagreiðslu leiðir
það, að kosning fer fram á allri
bæjarstjórninni í janúar n. k., ,og
sjerstakur bæjarstjóri væntanlegur
næsta sumar.
Samtíningur.
— Sjera Porteinn Briem á Hrafna-
gili, er mun flytja suður að Mos-
felli á næsta vori, hefir gefið jörð
sína fala til kaups. Margir keptu
um að ná í Hrafnagil, en hlut-
skarpastur varð Magnús Sigurðsson
kaupm. á Grund, er keypti jörðina
fyrir rúmlega 41 þús. kr., og er
það nífalt verð við það, er lands-
sjóður seldi hana fyrir örfáum árum.
— Ástæðan til þess að gasstöð-
varstjóranum í Rvík var sagt upp
stöðunni er sögð sú, að hann hafi
árið 1914, eftir að Bretar bönnuðu
viðskifti við Pýskaland, snúið sjer
til þýsks verslunarhúss um stykki,
er vantaði í vjel eina á stöðinni,
enda var vjelin frá því verslunar-
húsi. Pað kom honum í samband
við sænska verksmiðju og fjekst
stykkið í vjelina frá henni. — Smá-
smuglegur gerist nú Jón Boli.
— Síða9ti bæjarstjórnarfundur
hafði veitingu bæjargjaldkerastarfs-
ins til meðferðar. Sex sóttu um starf-
anu.jDue Benediktsson lögregluþjónn
hlaut hnossið, níeð því skilyrði þó,
að hann ljeti af lögregluþjónsstarfinu,
þegar bæjarstjórnin krefðist þess.
Allir munu telja gjaldkerastarfið vel
komið í höndum Dúa.