Dagur - 23.12.1918, Síða 4
100
DAGUR.
Frá útlöndum.
Wilson Bandaríkjaforseti er kom-
inn til Parísar, til þess að vera þar
á friðarráðstefnu. Mælt er að for-
setinn verði þar þó ekki nema
skamman tíma og ætli að Parísar-
dvölinniendaðri að heimsækja bresku
sijórnina í London.
í þaufi gengur með Vilhjálm
Pýskalandskeisara. Pessi voldugi
þjóðhöfðingi, sem áður var, er nú
nokkurs konar útlagi í Hollandi og
mun bandamönnum hugleikið að
hafa hendur í hári hans eins og
getið var um í síðasta blaði, en
Hollendingar ófúsir að selja hann
í hendur óvinum hans. t*ó segja
síðustu fregnir, að stjórninni í Hol-
landi sje ekki orðið um veru hans
ar og hafi æskt þess, að hann færi
burt úr landinu, en að keisarinn hafi
tekið því mjög fjarri. Má víst með
sanni segja að æfi háns sje ekki
orðin öfundsverð, enda hefir sú fregn
flogið fyrir, að hann hafi leitast
við að ráða sig af dögum, en verið
hindraður í því; er að vísu ekki
mikið hendandi reiður á slíkuin sög-
um, en margur hefir gripið til ör-
þrifaráða fyrir minni sakir.
Portúgalsforseti var myrtur fyrir
fáum dögum, og er fullyrt að ýms-
ir æðri stjórnmálamenn í Lissabon
sjeu riðnir við glæpinn. Illa hlýtur
sú þjóð að vera farin, sem elur slíka
stjórnmálamenn í skauti sínu.
Norðurlönd, Noregur, Danmörk
og Svíþjóð, hafa ásamt Póllandi
slitið viðskiftasambandi við Rúss-
land. Er líklegt að það sje gert að
undirlagi bandamanna, en því kyn-
legra er það, að í sömu andránni
stöðva Brelar allan kolaflutning til
Norðurlanda, og er ókunnugt um
hver nauðsyn hefir rekið til þessar-
ar ráðstöfunar, ef sú nauðsyn hefir
nokkur til verið.
Inflúensan er alstaðar í rjenum.
Haft'er eftir stórblaðinu Times, að
hún hafi drepið 6 miljónir manna
á þrem mánuðum, eða jafnmarga
og talið er að fallið hafi í stríðinu
Messur um hátíðarnar.
Aðfangadag: Akureyri kl. 6' e. h.
Jóladag: Akureyri kl 12 á h.
2. í jólum: Lögmannshlíð kl. 12 á h.
Gamlársdag: Akureyri kl. 6 e. h.
Nýjársdag: Akureyri kl. lO’/a f. h.
S. d.: Lögmannshlíð kl. 1 e. h.
Sunnudaginn milli jóla og nýjárs
verður haldin Guðsþjónusta í barna-
skólahúsinu í Glerárþorpinu.
Við kvöldsönginn á Gamlárskvöld
stígur cand. theol. Steinþór Guðmunds-
son í stólinn.
HJÁLPRÆÐISHERINN
hjer á Akureyri ætlar að halda jóla-
hátíð fyrir 200 börn í Goodtemplara-
húsinu á annan dag jóla; og auk
þess ætlar hann að hafa jólahátíðir
í samkomusal sínum, fyrir 75 gam-
almenni og 75 börn.
Veitingar verða af ýmsu tægi. —
Styrkið þetta fyrirtæki, með gjöfum
í »JóIapottana«.
Reykt sauðalæri, rúllupilsur, saltkjöt, smjör,
niðursoðnir ávextir o. fl. o. fl.
vörukönnunar verð-
ur sölubúð KAUPFJELAGS EYFIRÐING
lokuð 1. til 17. janúar 1919.
Engin afgreiðsla fer fram þann tíma.
Fjelagsstjórnin.
Skilvindur
á kr. 110—250
fást hjá
Pjetri P/eturssynL
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
og orðið örkumla af völdum þess
þrjú fyrstu ófriðarárin.
Látln
er húsfrú Guðrún Jónsdóttir að
Grund í Eyjafirði, kona Magnúsar
kaupmanns þar, eftir þungbæra
legu.