Dagur - 22.09.1920, Blaðsíða 1

Dagur - 22.09.1920, Blaðsíða 1
DAGUR ki mur út á hverjum miðvikud. Kosiar kr. 4.50 til áramóta. Gjalddagi fyrir 1. ágúst. AFGREIÐSLAN er hjá f ó ni P Pó r Norðurgötu 3. Talsimi 112. Innheimtuna annast ntsljórinn Akureyri, 22. september 1920. 22. blað. III. ár. Innilegt þakklæti vottum við öiium þeim, sem veittu okkur hjálp og sýndu okkur hluttekningu við veik- indi og fráfall okkar ástkæra sonar, bróður og tengdabróður Krisíjáns Kristfánssonar frá Víðigerði* og sem heiðr- uðu ótför hans með nærveru sinni, krönsum og minningar- spjöldum. Ungmennafélagi Akureyrar viljum við sérstaklega þakka fyrir auðsýnda samúð og þá virðingu, er það sýndi sýnuni framliðna félagsbróður. Víðigérði 20. sept. 1920. Aðstandendur hins látna. m Um iðnað. II. Verksmiðjustjóri Jönas Pór lét slðast í Ijós það álit sitt, að kembingarvélar og spunavélar þyrfíu að vera í hverri sýslu landsins, og auk þess tvær stórkostleg- ar ullarverksmiðjur á landinu. Það er sennilegt, að hér sé nærri farið því rétta. Tóvinna almennings kemst ekki í við- unanlegt horf fyr, en vélar afkasta nægri kembingu, og dúkagerðin verður meir og meir undir spunavélum komin. Áhug- inn fyrir þessu er nú óðum að vakna. Nú, þegar brautryðjandinn í þessum efnum, Magnús heitinn Pórarinsson er kominn undir græna torfu, er draumur hans er að rætsst. Hin uppástunga verksmiðjustjórans um tvær stórkostlegar ullarverksmiðjur er einnig sennileg. Stórsmiðja verður senni- lega hlutfallslega ódýrari en fleiri smærri. Sú staðreynd, að við nú á þessu ári eftir öllum líkum að dæma, látum af hendi 50 — 60 ullarreifi fyrir einn vand- aðan fatnað frá útlöndum, ætti að nægja, til þess að skjóta mönnurn skelk í bringu yfir þessu ástandi í þjóðarbúskapnum. Pað er nærri grátlegt, að við flytjum út rnestan hluta af þessu eina svokallaða »hráefni«-, sem við framleiðum því nær verðlaust, en orkan streymir til sjávar ónotuð. Hér er ótvírætt nauðsynjamál fyrir höndum. Viðreisnarmál þessarar þjóðar fyrii löngu tímabært. Efni og orka er fyrir hendi, en vantar fjármagn og fram- tak. Verksmiðjufélagið hér nyrðra á þakkir skyldar fyrir framtak sitt, þrautseigju og dug. í augum Dags er aðeins einn galli á því, sá, að það er ekki sam- vinnufélag, heldur hlutafélag. Ekki sak- ar það, meðan hluttaka er almenn og atkvæði almennings koma til um úrslit mála og framkvæmdir, en sú hættan liggur þó framundan, að hlutir safnist í fárra heudur og félagið snúist upp í okurhritig og gróðafélag, og verði til minni alþjóðarnytja en þyrfti að vera. Hér er mál, sem samvinnuféiögin þurfa nú þegar að taka á dagskrá síria, hvort sem framkvæmd verður á fyr eða seinna. Sambandið getur ekki eðlis síns vegna þolað, að horfa afskiftalaust upp á slík- an skussahátt í búskap bændastéttarinnar. Beinn og óbeinn hagur bændastéttarinn- ar af mikilfenglegri dúka og bandfram- leiðslu úr þeirra eigin framleiðsluvöru í landinu sjálfu yrði öflugur og staðfasi- ur bakfiskur í sjálfum samvinnufélögun- um. Hér er því ekki haldið fram, að Sam- bandið hafi ekki enn sint þessu máli tómlætis vegna, né að því sé innan- handar að hrinda því í framkvæmd, hvenær sem er. Það er öllum samvinnu- mönnum hér á landi vitanlegt, að verk- efni Sambandsins eru mörg og stórkost- leg og alt af langt fram yfir það, sem unt er. að fullnægja á hverju einstöku augnabliki. því er nú betur, að nóg eru verkefniu og stór, sem knýja fram vöxt og atorku. En því skal haldið hér fram, að ullarverksmiðjuiðnaður í landinu er einliver mesta þjóðarnauðsyn, að slík fyrirtæki eiga að vera bygð á samvinnu- félags grundvelli, og að S I. S. á að faka það mál á dagskrá. Frá Kaupfélagi Þingeyinga. Degi hefir borist eitt heftí af »Óféigi« hinu skrifaða málgagni K. F*. Heft'ð er gefið út í aprílmánuði og er í því ítar- leg grein urn verzlunaráslandið og horf- urnsr eins og þær voru þá, eftir for- mann féiagsins hr. Sig. Sigfússon. Pótt greinin sé einkum stíluð til íélagsmauna K. Þ. eru í henni ýmsar skarpar og góðar atbuganir almenns eðlis. Vill Dag- ur leyfa sér að taka upp úr greinirini eftirfarándi kafla: »Línur þessar eru alls ekki skrifaðar, til þess að skjóta kaupfélagsmönnum skelk í bringu um skör fram, heldur ein- ungis til þess að gera þeim Ijóst, hvernig sakirnar standa á viðskifta- svæðinu um þessar mundir, svo að þeir verði færari um að gera sínar áætianir og taka ákvarðanir um afstöðu sína til þessara mála í samræmi við ástandið. K. I3. eða réltara sagt félagsmenn í K. Þ. eiga nú svo mikið tjármagn f verzl- unarveltu Iandsins að um munar. Að því leyti er K. Þ. mjög vel statt, og hefir lítið að< óttast fjárhagsiega. En þeirri góðu aðstöðu fylgir líka ábyrgð- arhluti gagnvart allri þjóðinni og sér- staklega bönkunum, að fara nú vel og hyggilega með fjármagn sitt, gera eng- ar óþarfar eða hjákvætnilegar fjárreiðslu- kröfur eða kippa stórum fjárhæðum út úr hinni sameigiulegu veltu þjóðarinnar og þó sérstaklega sambauds kaupfélag- anna. K. F*. hefir áður komist í hann krappann vegna óvæntra verzlunarbylt- inga og þá verið ver við búið en nú. En það hefir jafnan sigrað þær fjármála- þrautir, sem fyrir það hafa verið iagðar. Og með hverju? Hvert var vopnið, sem sigurinn veitti? Samvinna, samtök, sam- hjálp! F’að cr dýrðlegt vopn og góð- um mönnum samboðið. Vér höfum unnið sjálfum oss sigur með því að standa saman innbyrðis. Sýnum nú að vér einnig viljum samtök við alla þjóð vora. Stígum ekkert það spor að nauð- synjalausu, sem orðið geti almennings- heill til meins, en hjálpum sem reyndir og góðtr hásetar að stýra fjárhagsfleyi þjóðar vorrar í höfn úr ólgusjó þeirrar viðskiftaóaldar sem nú geysar um heim allan.*)* Eað er eftirtektarvert, að samtímis því, sem heita mátti að kaupmenn lands- ins gerðu uppþot út af skipun viðskifta- nefndarinnar, komu fram frá kaupfélög- um og ssmvinnuvinum slíkar hvatning- ar, ttl að gæta hófs og varúðar í kaup- um, og að gæta hagsmuna þjóðarinnar sem sinna eigin. »Ófeigur« hefir verið félags blað K. J3. um mörg ár og hefir átt drjúgan þátt í, að aukn skilning og samvinnu þioska manna og giöggva þeim sýn frar;. í hugsjónaland samvinntrstefnunnar. Slík þroskunarviðleitni þarf að eiga sér stað í liverju samvinnufélagi á landinu. Samvinnufélagsskapurinn krefst þesssam- kvæmt eðli sínu, að eiga í samvinnu og samúðarþroska hvers einstaklingsríku- lega vörn, þegar óhöpp og misfeilur bera að höndum. Einstaklingarnir þurfa að verðaekkiein- ’) Leturbreytingin mín. Ritstj. göngu lífandi greinar á grænum meið þessa mikla málefnis, heldur og nýir sprotar sprotnir frá rót í íslenzkum jarð- vegi. „Skynsamleg vogun“ eða vítaverð fífldirfska. Ritað i tilefni af »Hugleiðingum« Þorsteins Qíslasonar. Niðurl. »FIeiri voga en bændur,« segír P. G. F*að er satt, hér hafa einmitt verið sýnd dæmi hjá öðrum en bændum um atriði hliðstæð því, sem hann kallar »skynsam- lega vogun»: vogun spilafíflsins og vog- un F’orbjarnar í sögunni »Gull« eftir E. H. Kvaran, og vænti eg að góðum mönnum og vitrum þyki hvorugt eftir- breytnisvert. Dæmið, sem F*. G. tekur um starfsmenn landsins, er aftur fjarri því að vera sambærilegt, og sýnilega aðeins tekið, til'að þóknast lítilsigldasta flokki lesenda, þeim mönnum, er telja eftir hvern eyri, sem fer til launa opin- berra starfsmanna, vilja þó sumir hverjir hafa einbættis- og sýslunartnenn »á annari hverri þúfu«, en sníða laun- in svo, að Ingt sé í »skynsamlega vogun« um það, hvort þeir geti dreg- ið fram lífið á þeim. Annars er höf. svo óheþpinn í tilraunum sínum til að hnífla landsstarfsmennina, að »eins og Bíleams bölvun forðum blessunar varð það ait að orðum.« Hann segir sem sé, að sumir þeirra »vogi kannske tekjum sínum í nautn forboðínna epla til velfarnaðar og heið- urs landi og þjóð« *) Mér væri þökk á, að fá að vita hve- þe«si foiboðnu epli eru, þvi að . f éi e é' þá er þar áreiðanlega um skyn»amle.a vogun að ræða, og hana gæsalappa lausa, og vildi eg gjarnan »voga« ein- hverju af tekjum mínum í svona góð- um tilgangi. En hitt er raunar sennilegra, að öfugmæli sé, eins og margt annað greininni, eða ófimleg fyndni-tilraun, á borð við það »að kaldhamra járnískýj- um uppi,« sem er eitt af hnyttiyrðum þessa óviðjafnanlega rithöfundar. Engin ráð sér höf. framkvæmanleg til tryggingar gegn fóðurskorli nema helzt, að bændur fengju »dýrtíðaruppbót í út- lendu skepnufóðri.* Ráðið er jafn vit- urlegt og búast mátti við eftir öðru í greininni. Samanburðurinn við starfs- menn landsins hefir sýnilega vakið þessa flónsku í hug höfundarins, er auðvitað sér það ekki né skilur, a ð *) Auðkent af mér S. J,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.