Dagur - 27.01.1921, Síða 3
4. tbl.
DAGUR
15
eða sérstök mannúðarverk, er hann
hafi gert, en það er svo sem auðvitað,
að hann geri þau ( kyrþei. Hann er
Hka einn af máttarstólpum félags, sem
hefir það sérstaklega b á stefnuskrá
sinni að gera góðverk, sem enginn sér.
Þessa sannkallaða heiðursmanns verð-
ur alment sárt saknað, þegar drottinn
tekur hann til sín. En vonandi verð-
ur það ekki fyrst um sinn.
Ndungi.
Akureyri.
Jarðarför
Stefáns Stefánssonar, skóiameiotaia
fer fram næstkomandi miðvikudag.
Sjá augl. á i. sfðu.
Þingmálðfund
heldnr þingmaður bæjarins næsta
laugardagskvöid. Sjá augl. á öðium
stað í blaðinu.
Hótel Akureyri
er enn auglý3t til sölu. Umráða-
maður bússins gat þess í sfmtali við
ritstj., að það yrði áreiðanlega rifið
niður og flutt suður að Norðlending-
um frágengnum þessu verði.
Húsnæöi.
Sá, sem kynni að þarfnast hiísnæðis,
hvort heldur hann er einn eða með
eitthvað f eftirdragi, tali við ritstjóra
Dags.
Sterling:
kemur hingað um cða fyrir miðja
næstu viku, að því er sagt er.
Dana.
Fiutningaskip með því nafni hefir
legið lengi hér framan við Oddeyrar-
tangann fermt fiski héðan af staðnum.
Sagt er að skipið geti ekki látið úr
höfn, vegna þess að andvirði fiskjarins
er enn óráðstafað gegnum bankana.
Nú eru farnar að ganga tröilasögur
um skipið. S3gt er að maður hafi
strokið af skipinu með peningana, sem
átti að borga fyrir fiskinn. Ef skipið
verður horfið einhvern morguninn, kemst
orðrómurinn líklega að þeirri niður-
stöðu, að því hafi verið stolið.
Theodor Jakobsson
cand. phil. frá Svalbarðseyri fór
landveg suður í Reykjavik með síð-
asta pósti og ér tekinn við forstöðu
h. f. Kol og Salt. Konan hans, frú
Kristfn Pálsdóttir, fer með Sterling
næst.
Landpósturinn
fer á sunnudaginn kemur á leið til
Reykjavíkur,
Byggingafélag:
með samvinnusniði var stofnað hér
f bænum á fundi í litla sal samkomu-
hússi.ns á mánudagskvöldið var. 20
manns gengu f félagið á fundinum.
Nefnd kosin, til þess að semja lög
fyrir félagið. Verður ef til viíl, síðar
getið ítarlega ym þenna félagsskap.
Steinþór Gu^mundsson
skólastjóri flytur fyrirlestur f Sam-
komuhúsinu næstkomandi sunnudag,
til ágóða fyrir Sjúkrasamlag Akureyr-
ar. ÆHu menn að fjölmenna og styðja
með því þetta ágæta málefni.
Kirkjan.
Messa kl. 2 e h. á sunnudaginn.
Þetta blað
af Degi kemur út tveimur dögum
á undan áætlun, vegna auglýsingar
um jarðarför Stefáns Stefánssonar
skólameistara.
Úr öllum áltum.
Sœsíminn
slitnaði milli í dands og Færeyja á
mánudagskvöidið var.
Úífaþytur
nokkur lætur á sér bæra f kaup
sýslustétt landsins út af landsverzlun,
innflutnir.gshöftum og skömtulagi stjórn-
arinnar á hveiti og sykri. Einkum hefir
kveðið að þessu f Reykjavík. Kyrlát-
ara er hér á Akureyri. Ekki annað á
ferðinni í þessa átt, en undirskrifta
skjal.
Húsvíkingar
hafa nýlega haldið fund um innflutn-
ingshöftin og fleira. Kaupmenn, jafnt
og aðrir, tóku gætilega og skynsam-
lega f málið. Tillaga var samþykt
þess efnis, að fundurinn tieysti þÍDg-
inu til þess að ieggja ekki nein óeðli
leg höft á viðskifti landsmanna.
Gengi gjaldeyris.
Sannar fregnir þykjast menn hafa
um það að erjendur gjaldeyrir hafi nú
lækkað til muna. Dollar o?an í 5 45
og sterlingspd. ofan fyrir 20 kr. En
í útbúum hér láta bankarnir gengið
vera hið sama og var, d. 6 80 og
stp h 24 50 Ú búin hér fá ekki skip-
un um að lækka gengið, hvað sem
veldur.
Olía
hefir lækkað í verði um 20 kr.
fatið. Er nú um 140 kr.
Dánardægur.
Nýlega eru látnir: Friðfinnur Sig-
urðsson bóndi í Árgerði í Éyjafjarðar-
sýslu.
Árni Jónatansson bóndi í Auðbrekku
sömu sýslu.
Hallgrímur ísaksson kornungur mað-
ur. Hann var starfsmaður hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga á Húsavfk.
Kristín Sigurjónsdóttir ökumanns hér
f bæ, kornung stúlka.
Frú K'istensa Stefánsdóltir kona
Stefáns Kristjánssonar skógvarðar,
Vöglum.
Guðrún Ólajsdótdr, Hleiðargarði,
Eyjafjarðarsýslu, háöldruð kona.
Forseti Búnaðarfélagsins
Sig Sigurðsson er staddur hér í
bænum. Hann kom landveg vestan af
Sauðárkrók og mun ferð hans heitið
austur f Þing'yjarsýslu.
Tíðarfariö
hefir vérið gott þessa síðustu daga.
Lítii frost og bjartviðri.
Símskeyti
koma engin tit blaðsins vegna sæ-
símaslitsins,
• Bréfkafli
úr S.-Þingeyjarsýsla 22. jan. '21.
Hér hefir mátt kalla harða tíð sfðan
á miðri jólaföstu. En þangað til var
tíðin afbrigðilega góð frá göngum,
svo að nærri þvf má dæmalaust telja.
Reyndar man eg eftir jafngóðum haust-
um, örfáum. En íyrstu 6 vikur vetrar-
ins vóru svo góðar, að enga vetrar-
byrjun svo langa hefi eg lifað jafn
góða og man eg þó fjörutfu vetrar-
upphöf. — Góðan róm fær rjúpna-
íriðun stjórnar vorrar. En íyrri átti að
friðlýsa rjúpunni, var drepin í haust,
sem ekki mátti, af þvf að svo afar
fátt var um rjúpuna núna. Hún hefir
stráfallið um ait land s. 1. vetur,
vafalaust. Fiskur hefir verið á Húsa-
víkurmiðum alt til jóla, venju framar,
en ógæftir hamlað sjósókn, enda eigi
lotið að svo litlu nú sem fyrrum var,
þegar eg var ungur og gott þótti
bæði á landi og sjó að vinna fyrir
mat sínum. En nú er öldin önnur, þó
vinna bændur alment eigi fyrir meira
en mat sfnum við fjárhirðingu að
vetrinum, ef rétt væri reiknað, né
vinnu hjú. En þau eru nú svo fá, að
varla er á þau að minnast. Iúa lízt
okkur bændum nú á framtíðarhorfurn-
ar, bæði utanland3 og innan og væri
betur að fram úr rættist.
Japan smíðar kajbála.
Frá Tokio er símað til London, að
J ipanar smíði feiknin öll af kaíbátum
og að reistur verði skóli, til þess að
kenna fyrirliðum og hásetum á kaíbát-
um.
Áður hefir komið fregn um hinar
miklu her kipasmfðar Bandaríkjanna,
svo að þessi flotaaukning Japana kem-
ur þá því síður á óvart. Munurinn er
aðeins sá, að Bandaríkin byggja aðal-
von sína á »dreadnougtum«, en Jap-
anar munu hugsa sér að gerast þeim
skeinuhættir, þótt þeir kosti ekki
öðru eins fé til.
(Morgunblaðið).
Kosningahiti
stórmikill er nú í Reykjavík. Sagt er
fylgi A listans (Jón Þorláksson & Co.)
fari minkandi. 30 stúdentar héldu póli-
tískan fund með konum til stuðnings
verkamannalistanum. Á aðra hönd
stendur slagur um þá Magnús dosent
og Þórð frá Kleppi. Sagt að Þórður
vinni heldur á.
eir, sem við jarðarför Stefáns
skólameistara Stefánssonar
kynnu að vilja gefa minn-
ingargjafir i stað kransa, sem
eru afbeðnir, geta afhent undir-
rituðum þær gjafir og fengið
minningarspjöld,
Gjafir pessar renna í sjóð
pann, sem ráðgert er að stofna
til minningar um pann Iátna.
Sömuleiðis taka undirritaðir
við minningargjöfum framvegis.
Akureyri 26/i 1921.
Pétur Pétursson,
kaupmaður.
Einar /. Reynis,
framkvæmdarstj.
lærisveinar og mey-
jar Stefáns Stefáns-
sonar skólameistára
aðrir en þeir,
sem nú eru f skólanum, eru vinsam-
lega beðnir að mæta á fundi í Sam-
komuhúsi bæjarins sunnudaginn 30.
þ. m., stundvíslega kl. 1V2 e. h.
Nokkrir gamlir lærisveinar.
SKVRSLA
yfir starfsemi »HjúkrunarféIagsins HIÍf«
árið 1920.
ÚTGJÖLD.
Hjukrun frá félaginu fyrir kr. 1969.97
Mjólkur og peningagjafir — 1402.00
Jólaglaðning sjúklinga sjúkra-
hússins á Akureyri — 176.70
Samtals . . . kr. 3548.67
Gjafir til félagsins.
Frá Filipfu Hjálmarsen kr. 20.00
— Hallgrími Kóstjánssyni
og konu hans — 50.00
— Margrétu Schiöth — 2.80
— Guðrúnu Hiíðaí — 0.90
— dánarbúi Magnúsar
Jónssonar frá Garði — 50.00
— N. N — xo 00
Áheit frá Unni Ánsdóttur — 10.00
Samtals ... kr. 143 70
Innilega þökkum við ölium þeim,
sem á þessu ári hafa stutt félagið
með peningagjöfum, eða á annan hátt.
Akuréyri 20. jan. 1921.
Fyrir hönd »Hjúkrunarfélagsins Hllf*.
Annd Magnúsdótlir.
Soffía Sigurjónsdóitir.
Kristbjörg fónatansdóttir.
*
* *
Ath
Eins og menn sjá, hafa gjafir til
félagsins verið sára litlar f hlutfalli við
upphæðina, sem það hefir varið til
hjúkrunar og góðgerða. Það er betra
að standa f þeirri fylkingunni, sem
hlífir, en hinni sem hrjáir. »H!íf« er
gott nafn og gæfulegt.
Riístj.