Dagur - 23.04.1921, Side 4
DAOUR
1?. tbl.
68
Erfðafestúland
er til sölu, vel girt og að nokkru leyti ræktað. Stærð 8 vallar-
dagsláttur. Upplýsingar gefnar á bæjarstjóraskrifstofunni.
Uppboð
verður að forfallalausu haldið að Végeirsstöðum í Fnjóskadal,
priðjudaginn 10. maí n. k., kl. 12 á hádegi.
Selt verður ef viðunanleg boð fást: 30—40 kindur, 2 kýr,
ennfremur ýmsir búshlutir, svo sem: Kerra, skilvinda, sleði, ofn,
eldavél og margt fleira.
Langijr gialdfrestur.
Végeirsstððum, 18. Apríl 1921.
Steingrimur Þorsteinsson.
þar ræðir um. Honum er sömuieiðis
kunnugt um, að þessi yfirlýsing er
þannig úr garði gerð, að hún er betri
til frásagnar en til sýnis, fyrir póst-
meistarann. Að maðurinn spurði ekki
eftir ábyrgðar eða peningabréfi er
skrítin sönnun fyrir þvf, að ekki hafi
átt að afhenda honum peningabréf,
sem hann átti þar, enda var það að
lokum gert. Þar sem Dagur sagði'áð
ósannað væri, hvort póstafgreiðslan
væri betri en áður, telur Einar að
blaðið gefi f skyn, að hún hafi ekki
verið góð áður. Lfklega gæti hvert
fermingarbarn rekið Einar á stampinn
f þvf að beygja lýsingarorð. Ef Einar
kýs ekki að þegja, getur Dagur gefið
nákvæmar upplýsingar um áðurnefnda
yfirlýsingu, hvernig hún er tilkomin
og hvernig hún er vaxin. Fleira gæti
þá komið til greina. Mundi þá póst-
meistara verða tvísýnn hagur að nuddi
Einars. Og sennilega gæti póstmeist-
ari fengið fimari og jaínhollan máls-
vara sem Einar á Stokkahlöðum.
»Smá saxast á limina
hans Björns míns.«
Eins 21. tbl. ísl. sýnir, tekur
Björn Lfndal það ráð, að jaínhraðan
sem ein brú er brotin fyrir honum,
tyllir hann saman nýju hrófatildri, til
þess að klöngrast á yfir ófærurnar,
sem hann hefir anað út f. í stað þess
að svara spurningum Dags íer hann
að bjarga sér á þvf, að sýna lesendum
fram á, að Dagur álfti öll hlutafélög
stofnuð með það fyrir augum, ef illa
fari, að fyrra sig tapi á kostnað ann-
ara með fjárdrætti og svikum. Það
hefir engin áhrif á málstað Björns,
hvað Dagur álítur um þetta. Hitt væri
Birni nær, að gera grein fyrir, hvers
vegna hann hefir ráðlagt samvinnu-
mönnum að breyta félögum sínum f
hlutafélög einmitt með þetta fyrir aug-
um. Hann segir: Félagsmenn í sam-
vinnufélagi geta orðið öreigar félags•
skaparins vegna, og vill fýrirbyggja
þá hættu, með þvf að breyta sam-
vinnufélögum í hlutafélög, þar sem
ábyrgðin takmarkast við hlutaféð. Því
svðrar Björn ekki þeirri spurningu
Dags, hverjir eigi að borga það, sem
fram yfir er hlutafé, hvort tapið, et
til gjaldþrota kemur, komi niður á
réttum aðilum.
Það er leitt, heilskygnra lesenda
vegna, að þurfa að endurtaka sömu
spurningarnar, en vegna þeirra manna,
sem dæma frammistöðu f ritdeilum
eftir slórum orðum og feitu letri, er
þetta nauðsynlegt.
Það er líka leitt að þurfa fást við
þann mann, sem fer krabbagang á
sn'ð við merg málsins, en vegna stór-
mensku hans er nauðsynlegt að ríg-
binda hann við tjóðurhæl hans eigin
orða.
Sannanir Björns fyrir því, að hluta-
félög séu ekki stofnuð með það sama
íyrir augum, sem hann blitt áfram
bygði á iillögu slna um skipulags-
breylingar samvinnufélaga, eru þær, að
telja upp hlutafélög og menn, sem f
þeim eru (raunar menn, sem Björn
hefir ekki að þessu haft rnikið álit á).
Það er málafærslumaðurinn talar.
Björn segir, að það sé kunnugt, að
Sambandið hafi keypt hluti í hlutafé-
laginu Norðri fyrir 30 þús. kr. Ekki
hefir Birni verið kunnugt um þetta,
þá hefði hann ekki farið hér rangt
með. Það er raunalegt að vita til þess,
að Björn skuli leggja hlustirnar vjð
öllum slúðursögum og þvættingi og
taka svo ábyrgð á þeim í opinberura
blöðum. Hann drekkur þetta í sig,
eins og þur svampur drekkur f sig
vatn.
Björn gefur fyllilega í skyn, í 21.
tbl. ísl, að Ingimar Eydal muni eiga
einhvern þátt f skrifunum í Degi.
Bætir hann þar einni ágizkun við það,
sem áður var komið. Af því að hann
hefir aldrei sótt gull f greipar Ingi-
mar, heldur hann að enginn geti tek-
ið ofan f lurginn á sér, nema hann.
En Björn hefir ekki verið meira en
meðalmanns meðfæri f þessari viður-
eign.
Verðlagsnefndin hefir ákveðið hámarksverð á
Akureyri, þannig:
a. I heildsölu per kgr. höggvinn sykur 1 kr. 55
aur., steyttur 1 kr. 40 aur.
b. I smásölu per kgr. 1 kr. 75 aur. höggvinn, 1
kr. 60 aur. steyttur, kaffi- 2 kr. 40 aur.
Þetta tilkynnist hlutaðeigendum til eftirbreytni.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 19. apríl 1921.
Steingrímur Jónsson.
Samband Isl.
Sam vinnufélaga
útvegar beint frá verksmiðjunni
hið viðurkenda, ágæta
Mc. Dougall’s
BAÐLYF.
UPPBOÐ.
Priðjudag 17. maí n. k., verður haldið opin-
bert uppboð að Pétursborg í Glæsibæjarhreppi,
og þar selt, ef viðunandi boð fást, ýmsir bús-
hlutir, trjáviður, 20 til 30 kindur, 3 hross, 1 til 2
vorbærar kýr.
Pétursborg 14. apríl 1920.
Aðalmundur Guðmundsson.
Kynbótahestur.
Ongulsstaðahrepps, sá er keyptur var sfðastliðið ár og notaður þá til kynbóta
er nú orðin víða kunnur að fegurð og gæðum. Hann er mósóttur að lit,
55 þuml. á hæð. Hesturinn verður nú á þessu vori lánaður mönnum utan-
hrepps sem innan. Heststollurinn er kr. 10.00 og greiðist um leið til Helga
Stefánssonar, Þórustöðum, sem hefir hestinn til umsjónar.
Syðra-Hóli, 18. apríl 1921.
Sigurður Sigurgeirsson.
Síðastliðið hsust, var mér und-
irrituðum dregin hvít lamb-
gimbur, með mínu marki:
sýlt hægra, tvfstíft fr. biti a.
vinstra. Lambið á eg ekki. Réttur
eigandi gefi sig fram.
Ólafsgerði f Kelduhverfi 7. jan. 1921.
Erlendur Stefánsson.
7. maí verður að Hofi haldið uppboð á:
kú, ungri, nýlega borinni, 4 vetra, kyn-
góðu reiðhestsefni, 30—40 ám, 2 hrútum
fallegum, hús og búsmunum, rúmfatnaði,
bókum o. m. fl. — Byrjar kl. 12 á hád.
Hannes Davíðsson.
Ritstjóri: JÓNAS ÞORBERCSSOjf’N
Prentari: OPÍUR BjÖRNSSON r*
í