Dagur - 20.08.1921, Blaðsíða 2
130
DAQUR
33. tbl.
Auglýsing.
Ljósmóðurumdæmið í Arnarneshreppi er iaust.
Laun 220 kr. Umsækjendur snúi sér til undir-
ritaðs hið fyrsta.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 19. ágúst 1921.
Sfeingrimur Jónssog.
lúðar þakklæti til allra
þeirra, er auðsýndu okk-
ur samúð og hluitekningu við
fráfall og jarðarför fóns sái
Helgasonar i Kristnesi.
19. ágúst 1921.
Aðstandendurnir.
suður, enda ólíklegt að blessað Eim-
skipafélagið — óskabarn landsmanna —
léti þá í greinarleysi suður í Reykja-
v(k um hábjargrseðistfmann. Og suð-
ur komust menn og ferðin gekk á-
gætlega, — að vísu var þröngt, en
ferðin gekk svo fljótt, að engin ástæða
var til að kvarta yfir þrengslum.
En þegar suður var komið og
menn fóru að spyrjast fyrir um far-
kost til baka, fór útlitið að ljókka.
Gullfoss átti að fara daginn eftir
konungskomuna — sama daginn og
sýningarnar yrðu opnaðar, annaðhvort
var þvf fyrir þá, sem farið höfðu
suður, að miklu leyti til að sjá sýn-
ingarnar, að neita sér um það og
missa að miklu leyti þau not, sem
þeir höfðu ætlað sér að hafa af ferð-
inni, eða þá að bfða eftir þvf, að
Sterling færi 2 júlí, í þriðja lagi að
fara landveg. Enginn koaturinn var
góður þar eð önnur skipsferðin féll
of fljótt hin óþarflega seint, og það,
sem verst var Sterling átti að sleikja
hverja höfn á norðurleið. — Nú átti
ekki að létta undir með heimferðina,
hvernig sem á þvf hefir staðið.
Nokkrir tóku þann kostinn, sem
skárstur var, en það var að fara með
Gullfossi og mistu þannig hálb gagn
af förinni. Margir sfmuðu eftir hestum
norður í sýslur, og hefir það orðið
dýrt ferðalag og sluppu þeir þó til-
tölulega vel, en lang flestir biðu eftir
Sterling.
Reyndar voru það neyðarúrræði, því
Sterling átti að koma við á hverri
amávík á norðurleið, en um annað var
ekki að gera og menn sættu sig yfir-
leitt við orðinn hlut. En þá finnur
stjórn Eimskipafélagsins upp á því að
seinka för Sterlings norður um 3 daga
eftir beiðni nokkurra manna, jafnframt
var það látið berast, að skipið hefði
svo lftið að gera á höfnunum að það
mundi ná áætlun til Ákureyrar. Þetta
þóttu ill tfðindi öllum þorra þeirra
manna, sem með skipinu ætluðu, því
þetta var sama og að hafa af þeim
þriggja daga atvinnu um hábjargræðis-
tímann; fanst flcstum sanngjarnlegra,
að skipið hefði farið á áætlunardegi
en þeir, sem nauðsynlega þurftu að
fara seinna úr Reykjavfk færu í Borgar-
nes og þaðan landveg til Borðeyrar,
og tækju Sterling þar.
Niðurl.
Úr öllum áttum.
Síldveiðin gengur ágætlega. Sfð-
ustu daga hefir síldinni verið mokað
upp f mynni Eyjafjarðar og vfðar. Á
fimtud. kom vélskútan Sjöstjarnan inn
með 600 tn. Hjalteyrin með 400.
Kveldúlfs togarainir á Hjalteyri eru
búnir að fá 8000 tn., gætu haugað á
land takmarkalausum birgðum, ef ekki
vantaði fólk. Ásgeir Pétursson er
búinn að fá á land 9 þús. tn. Stella
er hæst skipanna, en blaðinu er ókunn-
ugt um afla hennar.
Lækkun forvaxía. Nd. Aiþ. sam-
þykti svofelda þingsályktun á sfðasta
þingi (þingskjal 681): >Neðri deild
Alþingis ályktar að skora á landsstjórn-
ina að hlutast til um það, að bank-
arnir hér lækki forvexti í samræmi
við vaxtalækkun erlendis.* Englands-
banki, sem talið er að hafi forystuna
um hækkun og lækkun vaxta á pen-
inga markaði heimsins, hefir nú lækk-
að vexti ofan í 5V20/o. Bankar allra
Norðurlanda koma á eftir. Landsbank-
inn hefir lækkað vexti ofan f 7% og
er það lítil lækkun. Enginn veit með
vissu hvort hún er komin fram fyrir
tilhlutun stjórnarinnar. Hitt er víst að
stjórnin mun ekki hafa veitt íslands-
banka mikinn ágang f þessu efni, þvf
hann heldur vöxtum sfnum enn f há-
marki þ. e. 8%. Það má heita að
vera í góðu samræmi við aðra hlut-
semi þings og stjórnar um háttsemi
bankans, að leyfa honum að taka
hæztu okurvexti af ótrygðum seðlum,
sem eru ógjaldgengir erlendis og því
hálf ónýlir, þrátt fyrir það að vextir
hafa nú mjög mikið iækkað f um-
heiminum. Hversu lengi skyldi þessi
auma þjóð þola ágang erlends pen-
ingavalds f skjóli fslenzkrar rfkis-
stjórnar?
Ttðarfar’lð hefir alt að þessu verið
mjög stirt. Sffeldar þurkleysur og rign-
ingar næstum daglega. Sunnan lands
og vestan og norðan, alt austur að
Eyjaíjarðarsýslu, hafa verið ágæt-
ir þurkar. í Þingeyjarsýslu eru töður
manna enn yfirleitt óhirtar.
Jarðarför frú Margrétar Sigurjóns-
dóttur Rist, fór fram á þriðjudaginn
var að viðstöddu fjölmenni. Séra Björn
f Laufási flutti húskveðju, en séra Geir
Hkræðuna.
Vesfan um haf. í byrjun júnímán-
aðar s. 1. lét. Gunnl. Tr. Jónsson af
ritstjórn Heimskringlu, og flutti alfar-
inn heim til íslands. Gunnlaugur
Tryggvi er ættaður af Akureyri. Hann
fór vestur um haf fyrir 13 árum síð-
an ungur og umkomulítill eins og
margir, sem vestur hafa flutt. Hann
gerðist fljótt, meðritstjóri Heimskringlu
og síðan einkaritsjóri hennar, þegar
Baldvin Baidvinsson hætti. Nokkru
síðar lét hann ðf ritstjórninni og hvarf
að öðru en tók við henni aftur nokkr-
um árum síðar. Eitt aðal frægðarverk
Tryggva í blaðamenskunni var árás
hans á leirskáldsmúginn vestra. Hún
var þörf og hin skarpasta, en ekki að
sama skapi vinsæl af þeim, sem hlut
áttu að máli. Var sú viðureign eftir-
minnileg. Það var eins og hann hefði
stjakað við býflugnabúi og stóðu á
honum vopn hvaðanæva. En Tryggvi
varðist drengilega f þeirri iðandi kös.
Yfir höfuð gat Tryggvi sér góðan
orðstýr og hlaut vinsældir vestra.
Honum voru haldin 3 samsæti að
skilnaði og hann sæmdur gjöfum.
Tryggvi er nú komin til Akureyrar,
en mun ætla að hverfa til Reykjavfk-
ur til dvalar.
Dagur býður hann velkominn.
Við ritstjórn Heimskringlu tóku
Björn Pétursson og Stefán Einarsson
og virðist blaðið bera þess vott, að
vel sé séð fyrir ritstjórninni.
Samskotin til sjúkrahússins á Ak-
ureyri hafa haldið áfram vestan hafs.
Árangurinn af Þorrablótinu, sem getið
var um áður hér f blaðinu, varð lítill,
vegna þess að óveSur spilti fyrir sam-
komunni. En Vestur-íslendingar undu
ekki þeim úrslitum málsins. Þeir hófu
samskot um allar bygðir. Þann 6. júlf
s. 1. var upphæðin orðin 2029 dollar-
ar og þó ekki öll kurl komin til graf-
ar, en samskotafrestur útrunninn.
Margir hafa gefið rausnarlega. Þó
hefir' þar skarað fram úr L. H. J.
Laxdal, Milwaukie, Oregon. Hann gaf
150 doll. og lætur svo um mælt, að
hann gefi þá til minningar um for-
eldra sfna.
Verður væntanlega hægt sfðar, að
gera grein fyrir endanlegri niðurstöðu
samskotanna. En heila þökk er skylt
að flytja Vestur-íslendingum íyrst og
seinast fyrir bróðurhug þeirra og
drengskap.
Mjög merkileg málafcrli hafa staðið
yfir í Winnipeg milli safnaðarbrota
Tjaldbúðarsafnaðir út af kirkjuei^n-
inni. Hefir þar endurtekið sig það sem
gerðist fyr f Dakota, að eignarréttur-
inn véltur á trúarjátningum. Grunur
leikur á að málaferlum þessum hafi
verið hrundið af stað með undirróðri
Kirkjufélagsmanna hinna lútersku f
þeim tilgangi að svæla undir sig
Tjaldbúðarkirkju. Enda er það niður-
staða málsin3. Verður ef til vill síðar,
ef hentugleikar leyfa, nánar minst á
það mál.
Leiðrétting. í greininni »Sku!d-
irnar beygja* í 4fðasta blaði stendur
nálægt niðurlagi greinarinnar: >Og
molað til nýrra gróðabragða.c Á
auðvitað að vera: notað til nýrra
gróðabragða.
Inílúenzan er nú að rjúka af hér
á Akureyri. En nú er hún um allar
sveitir hér norðan lands og tfnir upp
einn og einn bæ. Kvarta bændur
mjög undan henni, sem von er. Sum-
staðar hefir pestin orðið talsvert
svæsin. Á einum bæ sunnan lands
andaðist húsbóndinn, en alt heimilis-
fólkið, nema tveir, fengu lungnabólgu
og var býlið fjölment. Meðal þeirra
sem látist hafa má nefna tvo hrepps-
stjóra:. Magn. Sigurðsson, Hvammi
undir Eyjafjöllum og Gunnar Andrés-
son, Hólmum f Landeyjum.
Vigfús Guðbrandssoij
klæðskerameistari
í Reykavik
kemur hingað á morgun og dvelur
hér (býr á Hótel Oddeyri), þangað
til Goðafoss fer suður. Gefst Akur-
eyratbúum nú kostur þess, að nota
sér tækifærið, til að tryggja sér við-
skifti við áreiðanlegan og góðan
klæðskera.
Símskeyti.
Reykjavík, 19. ágúst.
Samningarnir milli Englend-
inga og íra eru strandaðir. Val-
era tilkynnir að írska þjóðin
víki ekki frá kröfunni um full-
an sjálfstæðisrétt. Ótti um það
að írland verði notað til ófrið-
ar gegn Englandi, ef skilnaður
verði, sé ástæðulaus. Hann Iegg-
ur til að Bretar og írar skipi
nefnd til pess að ákveða um
pátttöku íra í ríkisheildinni og
skipi Harding forseti oddamann
í nefndina. Hann mótmælir því
að stofnað sé ping fyrir Ulster.
Lloyd Oeorge svarar að Eng-
Iand viðurkenni ekki rétt Irlands
til skilnaðar. Það sé Iandfræð-
islega óaðskiljanlegt. Enskt pjóð-
erni í norðurhluta Irlands megi
ekki kúga. Útlendingar megi
ekki hlutast til um úrskurð
deilumálsins. Tilboð .stjórnar-
innar sé einlægt friðarboð og
lengra verði ekki farið. Alrnenn-
ingsálitið í Englandi er með
Lloyd George. Væntanlegt ping-
rof par í landi.
Allsherjarfundur svertingja í
New York krefst Afríku fyrir
Afríkumenn. Spáir kynpátta
styrjöld, par sem Asíu- og
Afrfkupjóðir berjist gegn hvít-
um.
Pétur konungur Suður-SIava
er dáinn.
Pingið í Belgrad leysir upp
flokk kommunista og ákveður
dauðarefsingu við bolsévíkaund-
irróðri.
Slesíumálin verða lögð í dóm
Alþjóðabandalagsins á morgun.
Fréttaritari Dags.