Dagur - 22.10.1921, Side 3
42 tbl.
DAGUR
167
haldið til á Skjáifandafióa nálægt Húsa-
vík og var þar af sýslumanni Þingeyjar-
sýslu Júlíusi Havsteen staðinn að
veiðum þann 8. þ. m. Sýslumaður tók
eiðfest vitni að númeri skipsins, en
fékk ekki aðgert að öðru leyti. Þegar
varðskipið tók togarann, var hann ekki
að veiðum en hafði vörpuna ekki í
búlka, svo sem lögin ákveða. Áður
hafði þessi sami togari orðið fyrir
hnjátu. Hann var af varðsk. Fylla
tekinn við Horn með vörpuna á þil-
fari og þá sannaðist eins og nú, að
hann hafði áður veitt í landhelgi náiægt
Aðalvík. Hann var þá dregin fyrir
lögreglurétt á ísafirði og gekk inn á
að greiða 17 þús. kr. sekt, ef hann
mætti halda veiðarfærum og afla og
varð sá endir þess máls.
Hér var um ítrekað brot að ræða
og skiþstjórinn fallinn undir þyngstu
hegningar ákvæði laganna. í fyrra
skiftið hafði hann þó sloppið við
dóm og leit Iögreglustjórinn Steingr.
Jónsson, sem dæmdi f máiinu, svo á,
að skipstjórinn ætti að sleppa við
fangelsi, en hinsvegar sæta þeim
sektum, sem lög frekast leyfa. Var
hann því dæmdur f 20 þús. kr. sekt
og veiðafæri og afli gert upptækt.
Skipstj. fór fram á að fá keytan aflann
fyrir 6000 kr. En lögin Ieyfa ekki
jafnvel þá eftirlátssemi. Var flskur
allskonar seldur við opinbert uppboð
á fímtudaginn og föstudaginn, en mun
ekki hafa selst gegn þvflíkri upphæð.
Mannsljvarflð. Ekki hefir manns
þess, klæðskera H. Bebensee, sem getið
var um f síðasta blaði orðið vart. Eru
menn nú úrkula vonar um, að hann
sé á lffi. Sagt er að hann hafi aldrei
náð fullri heilsu síðan eftir inflúenzu
síðastl. sumar.
BarnaveiHÍn. Síðan seinast hefir
aðeins eitt barn veikst og eru þau
nú þrjú á sóttvarnarhúsinu. Héraðs-
læknirinn telur veikina ekki svæsna
og gerir sér vonir um að unninn verði
bugur á útbreiðslu hennar. Hann gaf
blaðinu þær upplýsingar ennfrcmur
að jafnskjótt hefði brugðið tii bata
við innspýtingu »Serums<, þeim tveim-
ur börnum, sem hún var reynd við.
Slátrun á sláturhúsi K. E. var
lokið á þriðjudaginn.
Fjárljagsáætlun bæjarins var til
sfðari umræðu á þriðjudaginn og voru
ekki gerðar á henni neinar verulegar
breytingar. Niðurjöfnun eftir efnum
og ástæðum hækkaði úr 81.000 krón-
um upp f 81.750 kr. en var í fyrra
yfir 109.000 kr. Tillögur fjárhags-
nefndar um að leggja niður nætur-
varðarstöðuna og aðra lögregluþjóns-
stöðuna voru samþyktar. Sömuleiðis
tillögur hennar um, að steypa saman
skrifstofum bæjarins og láta allar
stjórnarframkvæmdir fara fram á einum
stað. Yfir höfuð verður að segja, að
hófsamleg og skynsamleg íheldni hafi
ráðið gerðum fjárhagnefndar og sam-
þyktum bæjarstjórnar.
Námskeið í byggingafræði auglýsir
Sveinbjörn Jónsson byggingafræðingur
hér f blaðinu. Þegar úr raknar fjár-
kreppunni og rfkisveðbankinn tekur
til starfa rennur upp ný byggingaöld
f landinu. En okkur skortir mjög til-
finnanlega kunnáttu f þessu og veldur
það miklum útgjöldum. Er þvf vonandi
að námskeið þetta og fleiri slfk geti
komið að góðu liði.
Skipafregnir. hland fór írá Kaup-
mannahöfn í gær. Kemur við í Leith,
Rvík, ísafirði og er von hingað 6 n.
m., fer héðan til Seyðisfjarðar og
þaðan til Leith og Khafnar. Slerling
kom í fyrra kvöld, fór aftur f gær-
kvöld austur um. Goðafoss var á Seyð-
isfirði í gær og Lagarfoss á Blönduósi.
Þeir koma báðir laust eftir helgina, ef
veður hamla ekki.
H. D. segir í ísl. í gær, að það
sem Dagur hafi sagt um steinolfusölu
Höepfnersverzlunar sé illgirnislegur
uppspuni og auðsær atvinnurógur.
Upplýsingarnar um olfuverðið hafði
blaðið beint frá verziuninni gegnum
símann um leið og greinin var skrif-
uð. Ilt er ef þaðan stafar ililgirnisleg-
ur uppspuni um verzlunina. — Sé það
atvinnurógur, að æskja upplýsinga um,
hvers vegna olfuverðið steig úr kr.
0.68 upp í kr. 1.00, með fárra daga
millibili, er hér með skorað á forstj.
sverzlunarinnar að leita réttar sfns,
mætti þá svo fara, að þær skýringar
kæmu f ljós, sem ekki virðist vera
hægt að fá á annan hátt.
Stutt athugasemd.
í 37. tbl. Tímans er ritdómur eftir
h. h. um setningafræði Jak. Smára.
Lýkur ritdómarinn lofsorði á bókina
sem verðugt er. Eina aðfinslu kemur
hann þó með: Hann finnur að þvf, að
Smári varar við notkun eignarfalls
tilvfsunarfornafna með nafnyrðum í
sömu setningu, t. d. þetta er ágætur
maður, sem jeg er vinur, heldur verði
að mynda samsfða aðalsetningu f stað
slfkrar tilvfsunarsetningar, t. d. þetta
er ágætur maður, og eg er vinur hans
(bls. 129).
Þetta þykir h. h. óþörf viðvörun og
segir fremur þörf á að kenna notkun
þessa eignarfalls en vara við þvf.
Segir hann, að hún tfðkist f alþýðu-
talmáli, svo sem: >Er hér ekki kona,
sem systir hennar býr fyrir norðan?<
»Hét hann ekki Guðmundur, maður-
inn, sem þú ert dóttir hans?< svona
segir hann, að alþýðan tali hiklaust,
hvenær sem hugsuni* krefjist þess og
hjá þessu verði stundum alls ekki
komist.
Eg er að sönnu ekki þeirrar skoð-
unar, að hugsunin krefjist þess nokk-
urntfma að á þenna veg sé talað eða
ritað, og því sé vel hægt hjá því að
komast, en því aðeins krefst hugsun-
in þess, að ekki sé hægt að segja
þetta fullskýrt á annan hátt, og að
mínsta kosti benda ekki tilgreindar
setningar f þá átt, heldur þvert á
móti. Það er ofur auðvelt að segja:
Er hjer ekki kona, sem á systur fyr-
ir norðan? Hét ekki faðir þinn Guð-
mundur? En hvað sem því iíður, þá
þori eg að fullyrða, að eg hefi aldrei
heyrt tilvfsunarfornafn notað á þenna
hátt, enda lætur það f eyrum mfnum
Jarðir til sölu.
Fyrir eigin hönd og í umboöi
annara, hefi eg undirritaður til sölu
eftirnefndar jarðir í Sléttuhlíð og
Fljótum.
Þverá-
Klón.
Hálfir Gelrmundarhóiar.
Steinavellir.
briðjungur Stóra Grindils.
Bjarnargil.
Jarðirnar geta flestar eða allar
verið lausar til ábúðar i næstkom-
andi fardögum. Allar upplýsingar
fúslega látnar í té af undirrituðum.
Sdoald JfLöller,
Haganesvík.
sem versta málskrípi, og út yfir alt
tekur að klessa persónufornafni f end-
ann á eða inn f þessar tilvfsunar-
setningar; það finst mjer koma f
bága við eðli tungunnar, eins og hún
er nú.
Það væri fróðlegt að heyra álit
glöggra íslenzkufræðinga um þetta
atriði, svo og hvar á landinu tilvís-
unarfornafn væri notað á þá leið,
sem hér hefir verið vikið að.
Alþýðumaður.
Úr öllum áttum.
Steinolíuverzlunin. Þær fregnir
hafa borist, að fulltrúi frá stærsta
steinolíufélagi í Bretaveldi hafi komið
til Reykjavíkur fyrir skömmu, til þess
að semja við Landsverzlunina um
steinolfuverzlun. Menn gera sér vonir
um, að af því geti orðið góður árang-
ur fyrir þjóðina og væri f sambandi
við slfka samninga sjálfsagt að taka
einkasölu á olfunni. Hinn alræmdi
ameríski steinolíuhringur hefir umspent
þetta land eins og mörg önnur. Úr
þeirri átt er ekki annars að vænta
en ftrustu knffni f viðskiftum. Hugsan-
legt væri, að »hringurinn< tæki það
ráð, til þess að útiloka samkepni að
selja olfuna ágóða*rust eða jafnvel
uudir kostnaðarverði. Slfk ráð hafa
þessir >hringir< notað, til þess að
verða einráðir. En það er skammgóður
vermir fyrir kaupendurna. Féflettingin
verður því átakanlegri, þegar yfirráðin
eru trygð. Nú er hugsanlegt að »hring-
urinn< tæki þetta ráð. Það er leyfi-
legt verzlunarbragð f hinni frjálsu sam-
kepni. Ekkert getur brotið þetta vald
á bak aftur nema Landsverzlun, sem
ætti samninga við þau félög, er bæði
hefðu vilja og orku, til þess að brjóta
»hringinn<. Raunar gæti það félag orðið
engu betra en »hringurinn<. Þessvegna
þarf að fara varlega f samningum og
halda opinni leið fyrir hagkvæmust
verzlunarkjör í þessari grein gegnum
þá stofnun, sem bæri hag landsins
fyrir brjósti. Skiftir þá litlu hvaðan
olfan kemur.
Landsverzlunarforstjórinn Magn-
ús J. Kristjánsson alþm. er sigldur
til útlanda, til þess að undirbúa
tóbaksverzlun landsins.
Nýft þrossaKef,
af 7 vetra gömlum, spikfeitum hesti,
er til sölu hjá
Jónasi Sveinssyni,
Uppsölum.
jST
Askorun.
Hérmeð er skorað á alla þá, sem
enn skulda iðgjöld til Bruna-
bótafélags íslands í Akureyrar-
umboði, að greiða hann í siðasta
lagi innan viku. EUa verða gjöldin
krafin inn á heimili greiðenda að
viðbættum 5% innheimtulaunum,
eða innheimt með lögtaki á kostn-
að þeirra sjálfra.
Böðvar Bjarkan,
umboðsmaður félagsins.
Nýtt í bókaverzlun
Sig. Sigurðssonar.
Einar Benediktss.: Vogar (Ijóðmæli)
inb. 15.00
Sig. Heiðdal: Hraunaslóð (smásög-
ur) 7.00
G. Friðjónsson: Sólhvörf. Sex sögur
6.00
Sami: Uppsprettulindin fyrirlestrar
4.00
Jakob J. Smári: ísl. setningafræði 18.00
Handbók almennings (íslenzkur
ríkisborgari) 5.00
Laxdæla og Grettissaga á 5.00 og 5.50
Skólasöngbók 1.25
Jack London: Á Blossa 4.00
Sami Æfintýri 6.00
Sami Síðasta ráðið 4.00
Charles Garvice: Einþykka stúlkan
5.00
Seeliger: Miljónaþjófurinn Pétur
Voss 400
Olfert Richard: Hlýir straumar 5.00
Hlín V. ár. 1.00
Ludv. Schmidt: Lærebog í Historie
I—II. fyrir gagnfræðanemendur.
Sömuleiðis, stórt Evrópukort með
nýjustu landaskipun fyrir barna og
unglingaskóla.
Frá útlöndum.
Palestina. »Landið helgac er á
ný að verða heimkynni hinnar »út-
völdu þjóðar.< Með friðarsamningunum
var ákveðið að þar skyldi stofna sjálf-
stætt Gyðingarfki. Nú kemur Gyðing-
um f góðar þarfir sá mikli auður, sem
þeir hafa safnað, þvf þeir eru orðlagðir
fjármálamenn og orðlagðir refir í við-
skiftum. Rothschild baron hefir stofnað
félag til þess að reisa kornmyllur f
landinu. Ennfremur er hann að kóma
þar upp ilmvatnsgerð. Annar rfkur
Gyðingur er að stofna eimskipafélag
til að annast siglingar fyrir ríkið og
hefir þegar keypt 16 skip af Eng-
lendingum f þvf augnamiði og eiga
skipin að sigla til Balkansskaga,
Svartahafshafna og Egiftalands.