Dagur - 12.11.1921, Side 4
180
DAGUR
45,'tbl.
Hjónaefni. Ungfrú Guðrún Rósin-
karsdóttir og hr. Brynjólfur Sigtryggs-
son birtu trúlofun sína nýlega.
Eftirleit. Maður er nefndur Buae-
dikt Sigurjónsson Guðmundssonar
fyrrum bónda á Grímsstöðum við Mý-
vatn. Benedikt er eftirleitamaður mikill
°g œjög kunnur um Þingeyjarsýslu
fyrir dugnað einkum í hætíulegum
svaðilíörum. Oft hefir hann farið f eftir-
leit og verið tæpt staddur fram í Graíar-
löndum, því kofi Eyvindar er löngu
fallinn. Nú í haust er hann búinn að
fara í tvær eftirleitir. í hinni fyrri
hrepti hann góð veður. Þá fann hann
16 kindur. í seinna skiftið fór hann
fram 1 Grafarlönd fann 20 kindur f
ferðinni, lá 7 nætur úti og fjórar af
þeim í fönn, hinar í sæluhúsi. Jökulsá
Vár ófær þegar hann kom sunnan af
fjöliunum norður að sæluhúsinu, sem
er við veginn milli Reykjahlíðar og
Grímsstaða. Þá var Benedikt þrotinn
að vistum og varð að skera kind rér
til matar. Eitthvað kól bann á fótum
en þó ekki beinkali. Gekk hann þrátt
fyrir kalið frá Grímsstöðum á Fjöllum
og vestur til Mývatnssveitar.
Hefir Benedikt að þessu sinni hrifið
36 kindur úr greipum vetrarins á
fjöllum uppi.
Samv'innuflokHur. Sú staðreynd
að Morgunblaðsliðið hefir gleypt lög-
réttu og Þorstein og að Jón Magn-
ússon forsætisráðherra hefir til fulls
húsað sig hjá því liði hlýtur að faafa
mjög ákveðna og æskilega pólitíska
þýðingu. Dæmið frá síðasta þingi sýu-
ir að ekkert er eins óheilt og óheil-
brigt eins og það að enginn flokkur
sé fyllilega samstæður og að einstak-
lingar hvorki viti með vissu né vilji
kannast við afstöðu sína til stjórnar-
innar eða stefna þeirra sem koma
fram í málum. Meiri hluti þings vildi
ekki lýsa vastrausti á stjórninni og
ekki heldur trausti. A( því ieiðir að
flestir munu þykjast færir um að ak-
ast undan ábyrgð á henni. Sjá allir
hveit slíkt stefnir. Hér eftir geta
samvinnublöðinn ekki stutt neinn hálf-
drætting upp f þingsæti, sem lafir í
frakkalöfnm Jóns Magnússouar en þyk-
ist vera samvinnumaður. Hreinar línur
verða að myndast, ef hér á að geta
þróast heiibrigt pólitfskl Hf og flokka-
skifting. Það skiftir ekki eins miklu, að
samvinnuflokkur verði stór í byrjun eins
og hitt.aðhann verði eindreginn.Mönnum
ferað skiljast að samvinnustefnan er ekki
hagsmunahringur, þar sem öllum al-
menningi er frjáls aðgangur undir
merki hennar. Slíkt getur ekki farið
saman nema í þeim skilningi, að allur
aimenningur þéssarar þjóðar myndi
samtök um eflingu eigin hagsældar.
Samvinnusíefnan er þjððmálastefna.
Hún er ekki einskorðuð við veizlun
eða neina sérstaka þjóðarsiarfsemi,
heldur getur hún sett blæ sinn á öll
þjóðmál og á að gera. Næst verður
barist um það, hvort veltuíéð á að
vera tiltækilegt íyrir almenning og
notað með almenningshag fyrir augum
eða það á að vera undir umráðum
einstakra manna, háð geðþótta þeirra,
áhættugirni þeirra og brasklund og
verða beitt með hagsmunum fárra
E-G-G
daglega keypt í
Sjúkrahúsi Akureyrar.
fyrir augum, Um það verður barist
hvort afurðir landsins eigi að verða
eign einstaklinga og notaðar í áhættu-
braski frjáisrar samkepni eða hvort
almenningur á að bera úr býtum sinn
rétta hlut. Um það verður barist hvort
okurfélögum verður leyft að teygja
klærnar inn f iandíð í íramtiðinni eða
að ríkið taki veizlun á vissum vöru
tegundum, sem helzt yrði okrað á að
öðrum kosti o s. frv. Samvinnumenn
verða ekki í vafa hvorum þeir fylgja
að málum, almenningi eða bröskurun-
um.
Hvað er að frétta?
í íyrra flalti Dagur greinarstúf með
þessari yfirskrift. Hann kvartaði þá
um pennaleti aðstandends sinna og
annara, sem akyldu þýðingu þess fyrir
blöðin, að fá fréttakafia úr sveitum
landsins. Án slfkiar aðstoðar ná blöð-
in ekki þeim tiigangi sínum að verða
fræðandi fyrir alla alþýðu um innan-
lands atburði og máleíni. Þau geta
aldrei án þess vltað hvernig þjóðinni
vegnar í raun og veru. í sveitunum
býr kjarni þjóðarinnar. Þar hreyfast
þær undiröldur, þar er sá aflvaki, sem
hryndir stórum málum upp á yfitboið-
ið. Þar vsxa upp margir þeir menn
sem sfðar taka mál þjóðarinnar f sfnar
hendur.
Það er þvf ekki þýðingailaust að
blöðin og lesendur þeirra fái að vita
hvað fólkið f sveitunum hugsar og
gerir. Viðfangs- og umhugsunarefni
alþýðunnar eru þær rætur, sem næra
allar greinar þjóðmálameiðsins. Alþýð-
an í sveitunum fær 'fróðlegt yfiriit og
samanburð á kjörum, hugsunum og
viðleitni manna víðsvegar að.
í fyrra tóku nokkrir menn vel í
þessa málaleitun Drgs og sendu hon-
um fréttapistla, en þvf miður varð
ekkert áframhald á því. Hann er því,
eftir sem áður, jafnilla staddur, hvað
þetta snetir. Þessir góðu menn, sem
Dagur er þakklátur fytir þeirra góða
viðvik, mættu þó ætla, að honum dugi
ekki einn skamtur á ári af þessnm
rétti eða minna en það.
Nú eru það enn að nýju einlæg og
mjög ákveðin tilmæli blaðsins, að les-
endur þess víðsvegar sendi því frétta-
bréf. í þeim btéfum má tína til hið
helzta um veðuráttufar, heyfeng, beit-
jörð, búfjárhöld, aflabrögð, nýjungar
og framfarir í búskap, félagsskap, f-
þróttir og hverskonar menningarvið-
leitni, slysfarir, dauðsföll, giftingar,
trúloíanir 0. fl. 0. fl.
Æskilegt væri að þeir, sem tækju
að sér fréttaritun fyrir blaðið, temdu
sér stutta, samanþjappaða frásögn, én
skýra. Gæti það um leið orðið þeim
hinum sömu, æfing nokkurs verð. Og
blaðið endurtekur spurninguna:
Hvað er að frétta?
fSf
Príma Karlmannaskinnhúfur á kr. 9.75
og Prima Drengjaskinnhúfur á kr. 8.50
nýkomnar til j§j
| Baldv. Ryel. jg
Samband Isl.
Sam vinnufélagi
útvegar beint frá verksmiðjunni
hið viðurkenda, ágæta
Hross í öskiium.
i
Bleikur foli, ómarkaður, með stjörnu í enni tveggja til þriggja vetra
gamall er f óskilum í Tungu á Svalbarðsströnd.
Réttur eigandi gefi sig fram við undirritaðan fyrir 15. des. n. k., sanni
eignarrétt sinn og borgi áfallinn kostnað.
Tungu, Svalbarðsströnd io. nóv. 1921.
Jón baxdal.
N
O
X3
o
t~
Z3
< >
txO
o
cd U
O I Fi.dj
>-■
o.
zí
s ^
CQ
X3 'cí
~~ i-,
52
cð
tn
cxS xO
-2 =• O M
jgöö S g
CO 3 .5
~ 73 w
©
x>
03
jrO
<cn
W
U-
Leiríau
nýkomið í
Kaupfélag
Eyfirðinga.
Góð Kýr
til sölu.
Ritstj. vísar á.
F j á r m a r K
undirritaðs er:
Blaðstýft framan hægra,
fjöður aftan vinstra.
Borgarhóli 10. nóv. 1921.
Kristján Jónsson.
Feikna
afsláffur
á allri
smr álnavöru ~m
og mörgum fleiri eldri vörum.
NB. Prjónasaumur tekinn móti
vörum.
Verzlunin
’BRATTAHLÍÐ."
Ritstjóri: JÓNAS ÞORBÉRGSSÖjTS
Prentari: Oddur Björnssojv ^