Dagur - 03.12.1921, Síða 3
48. tbl.
ÐAOUR
191
Qott prjónles
kaupi eg undirritaður háu verði.
Guðbjörn Björnsson.
lögreglustjóra í embætti, þar sem
lögrelgustjóri var fyrir og sem ekki
gat orðið vikið úr embastti án undan-
genginnar saksóknar, enda hefði ekki
til sakar unnið. Maður sá er skipaður
var, hefði verið ólöglærður fyrverandi
undinforingi f danska hernum. Eftir
að Alþýðuflokkurinn hefði lýst yfir
hlutleysi sfnu í þessu máli Ólafs
Friðrikssonar, hefði verið sett á stað
hermsskfna uppdubbuð af kaupmanna
og stórbroddalýð Reykjavlkur. Vörður
sleginnum opinberar byggingar, vopnað
lið ætt um götur bæjarins, brotist
inn f hús ekki eioungis Ólafs Friðriks-
sonar heldur fleiri manna, handtekið
hvern mann, sem því sýndist og hnept
f járn, jafnvel unglinga, og varpað í
fangelsi alls 28 manns. Alþbl. heldur
því fram að hór hafi verið farið miklu
lengra en hófsamlegt, varhygðarlegt
og löglegt geti heitið. Málið sé gert
að politisku æsingamáli af kaupmanna-
liði í Reykjavík, sem teygi stjórnina
út í ófæru og noti persónulegt afbrot
eins manns og örfárra æsingjáseggja
til þess að hefja ofsókn á bendur
Alþýðuflokknum.
Lögreglustjórinn f Reykjavfk, Jón
Hermannsson, vildi fara aðra leið f
málinu. Hann vildi stefna þeim, sem
brotlegir urðu um mótþróa gegn lög-
reglunni og láta málið fara fram sem
alment lögreglumál. Þessu fékst ekki
fram gengt, heldur var hóað saman
liði um 400 manna, til þess að hand-
taka Ólaf Friðriksson og um 14
menn, sem staddir voru hjá honum.
Auk þess aðra 14 vfðsvegar í bænum.
Liðið var að nokkru vopnað með
riflum og bareflum og bílarnir, sem
óku föngunum f hegningarhúsið fóru
geist fram og sköðuðu að minstakosti
einn dreng. 200 manns af liðinu tóku
þó ekki þátt í aðförinni, heldur voru
til vara.
Síðan þessir atburðir gerðust hefir
mikið verið um það talað og skiftast
menn mjög í þessu máli. Bændur
sunnan lands kvað vera óánægðir
yfir þessum gauragangi og vopna-
glamri og telja óhæfilega langt farið
og friðnum í landinu' stofnað í hættu,
þó enginn mæli mótþróa og lögbroti
Ólafs Friðrikssonar bót.
Enn hefir heyrst að alþýða manna
f Reykjavfk sé að þoka sér saman
þessa dagana og vilji stofna samvinnu-
verzlanir og opna búðir til og frá um
bæinn. Bitnar óánaégja þeirra mjög á
ksupsýslumönnum borgarinnar, sem
þeir telja að verið hafi pottur og
panna í þessu uppþoti og politiskri
ofsókn á hendur verkalýðnum. Er sagt
að kaupmenn og einkum þeir, sem
framarlega stóðu í bernum, muni bera
úr býtum steina fyrir brauð, fyrir
vasklega framgöngu.
Eftir þeim fregnum, sem borist hafa,
virðist málið liggja svona fyrir: Einn
borgari þjóðfélagsins með aðstoð nokk-
urra manna þrjóskast gegn lögum og
landsrétti og ber lögregluna ofurliði.
Sú niðurstaða var óviðuoanleg og
stjórninni heimilt og skylt, að knýja
þá, sem hlut áttu í, til blýðni. Svo
fer milli mála, hvort skynsamlegasta
aðferðin hafi verið tekin og hvort
stjórnin hafi haft ástæðu til að grfpa
til svo róttækra ráða, eftir að Alþýðu-
flokkurina er búinn að lýsa því yfir
að hann se'hlutlaus í málinu Aðferðin
virðist benda á, að meira hafi átt að
gera, en að knýja til hlýðni fáa of-
stopamenn og láta þá sæta lagaábyrgð.
Málið ber á sér ískyggilegan, poli-
tiskan blæ.
Verður þó enn enginn dómur lagður
á málið hér í blaðinu. Verður það að
lfkindum rannsakað og afleiðingarnar
kotna smátt og smátt f ljós,
Frá útlöndum.
Hallærið í Rússlandi Fyrir þremur
mánuðum sfðan flaug sú fregn um
heim allan, að hungursneyð og svelti-
dauði stæði fyrir dyrum 30 milljóna
manna austur f Rússlandi. í vfðáttu-
miklum héruðum meðfram ánni Volga
brást uppskeran þvf nær gersamlega
vegna óslitinna þurka. Héruð þessi
eru beggja megin árinnar frá Kaspia-
hafi og norður undir íshaf. Þau eru
að jafnaði einhver frjósömustu hveiti-
héruðin f Rússlandi.
Því var þegar *páð að þessi at-
burður mundi velta rússnesku stjórn-
inni úr völdum. Ekkert hefir þó komið
á daginn, sem bendir á, að svo muni
verða. Enda hefir stjórnin að sögn lagt
sig mjög fram, til þess að draga úr
neyðinni bæði af eigin rammleik, með
þvf að flytja fólk f buitu úr þessum
héruðum og flytja þangað matvæli og
með tilstyrk annara rfkja, sem mörg
hafa brugðið við drengilega til hjálpar.
Bandaríkin hafa lagt fram stórfé og
er Standard Oil Co. stærsti lánveit-
andinn. Hafa Rússar orðið að ganga
að ýmsum -samningum um veitingu
sérréttinda o. s. frv. til þess að tryggja
hjálp og aðstoð annara þjóða. Ýmsar
þjóðir hafa gefið stórmikið af mat-
vælum, til þess að draga úr neyðinni.
Verkamannasamböndin vfða- um lönd
hafa sömuleiðis unnið að þessari
hjálparstarfsemi.
Þrátt fyrir alt, sem gert hefir verið,
til þess að forða fólkinu frá hungur-
dauðanum, er neyðin afskapleg að
sögn og búist við að fjöldi manna
deyi einkum er á vetur Ifður.
Alþjóðasambandsráðið kaus Friðþjóf
Nansen til þess að rannsaka ástandið
f neyðarhéruðunum og koma fram
með tillögur um á hvern hátt hjálp
yrði bezt komið við. Nansen gaf skýrslu
um rannsókn sfna á íulltrúaþingi
alþjóða^ambandsins í Genf 9 sept.
Á þinginu flutti hann ræðu, sem vakti
mikla athygli. Hann hélt þvf fram, að
hungursneyðin f Rússlandi væri hörmu-
legasta áfallið, sem Evrópa hefði orðið
fyrir. Meðal annars fórust honum svo
orð: »Evrópa getur ekki án Rússlands
verið og það væri því sjálfsmorðsæði,
að bjálpa ekki Rússlandi. Alþjóð manna
getur hjálpað. Nóg er til af matvælum.
Til dæmis eiga Norðmenn milljónir
smálesta af saltfiski, sem enginn vill
kaupa. Amerfkumenn milljónif smá-
lesta af korni, sem ekki er hægt að
senda frá sér, því hvergi er matkaður.
Það er einnig hægt að flytja matvælin.
N' g er til af skipura, sem ekkert hafa
að gera. Og sömuleiðis er hægt að
flytja vörurnar inn í landið.«
Eftir þeirri reynslu, sem hann hafði
fengið við heimflutning herfanga úr
Rússlandi, fullyrti hann, að rússneska
stjórnin væri vel fær um að annast
flutninga á þvf, sem sent yrði til
landsins. Hann fullyrti að stjórnin
hefði aldrei rofið gefin loforð við sig.
Utbýting matvæla til erlendra herfanga
f Rússlandi hefði jafnan farið sarfl-
vizkusamlega fram og væri eigi ástæða
til að ætla, að óiáðvandlegar yrði
að farið, ef Rússar sjálfir ættu í hlut.
Hann gat þess, að atjórnir Svfa,
Norðmanna, Dana, Letta, Eistlendinga
og Lithanenbúa hefðu veitt Rússum
gjaldírest og lauk máli sfnu með þvf
að hvetja menn til að forðast hleypi-
dóma, til þess að afsýra voðanum,
Ræðu Nansens var tekið vel af
ötlum nema fulitrúum Breta og Frakka.
Þessar þjóðir hafa verið vlðvikaseinar
og tortrygnar gagnvart Rússum. Þótti
þeim Nansen ekki hafa búið vel um
bnúta til tryggingar þvf að hjálpin
kæmi réttlátlega niður o. s. frv. Enn-
fremur settu þeir ýms skilyrði fyrir
hjálpinni, sem Rússar höfnuðu og
töldu móðgun við þjóð, sem væri að
látast úr sutli. Alþjóðasambandið hefir
rifist um formsatriði. Bandamenn
heimta tryggingar eins og ekkert
liggji á. Geldur sveltandi lýðurinn
austur við Voiga þess, að valdhafar
hans fylgja annari þjóðíélagssteínu,
heldur en bandamenn. Svo mjög hafa
þjóðir þessar aímetnast og fylst eigin-
girni við sigurvinningar sínar að hungur-
óp milljóna manna megnar ekki að
hræra þær til viðbragðs og hjálpar.
Hvert vafningsorð kostar mannslíf
austur f Rússlandi.
Dómsíóll Alþjóðasambandsins. í
alþjóðasambandinu eru nú 48 þjóðir.
S. 1. haust var dómstóll sambandsíns
settur á laggirnar. Skipa hann 11
menn frá ýmsum þjóðum. Eru 7 þeirra
Evrópumenn, 3 Amerfkumenn og 1
Japani. Einn Norðurlandabúi situr í
dómnum, Nyholm frá Danmörku, fyrr-
um dómari f Egyptalandi og síðast
varaforseti yfirdómstólsins í Cario.
Þe3si æðsti dómstóll þeasara 48 þjóða
á að hafa aðsetur sitt f Haag og vera
föst stofnun. Verða dómendurnir bú-
settir í borginni og ætíð til taks, að
leggja úrslitadóm á deiliimál þjöðanna.
Því miður bendir margt á að dóm-
stóll þessi verði til lítils gagns og
að málin verði hér eftir sem hingað
til úlkljáð á vopnaþingi.
Helgoiand. Eltt af ákvæðum friðar-
samninganna f Versölum var það að
rífa skyldi til grunna öll vfgi Þjóð-
verja á eynni Helgoland og að aldrei
framar mætti reisa þar vígi. Þarna
áttu Þjóðverjar ein hin ramgerðustu
sjóvfgi. Nú er búið að rffa þau niður.
Verkfræðingar frá bandamönnum hafa
séð um framkvæmd verksins; Þetta
fræga sjóvfgi er nú •orðið að sjávar-
þorpi, baðstað og hafrannsóknastöð.
Herskipahöfnin hefir verið gerð óskip-
geng, brynmúrarnir rifnir niður, 2400
fallbyssur ónýttar og þar á meðal
margar 30 og 21 sentimetra byssur.
Byssurnar og brynhetturnar yfir þeim
hafa verið skornar sundur með log-
skurðar verkfæium og voru brynhett-
urnar sumar úr 3 feta þykku stáli.
Skotfærabyrgðirnar hafa ýmist verið
sprengdar í loft upp eða sökt í sjó.
Hafnargarðarnir rifnir niður. Ein her-
búð hefir verið skilin eftir uppistand-
andi, sem notuð verður framvegis
fyrir heilsuhæli handa börnum. Skipa-
lega er þar og eftir fyrir eitt skip,
sem notað verður til hafrannsókna.
Heyrst hefir að í ráði sé að gera eyna
að baðstað og skemtiborg. Eru það
Ameríkumenn og Þjóðverjar, sem ætla
að standa fyrir þessu fyrirtæki. Enn-
fremur sé áformað að koma þar á
fót spilabanka lfkum þeim, sem er á
Monte Carlo og að halda þar uppi
kappsiglingamótum.
Þingeyingar!
Greiðið andvirði blaðsins til kaup-
félagsstjóra Sig. Sigfússonar Bjarklind
f Húsavík eða kaupfélagsstj. Ingólfs
Bjarnasonar, Fjósatungu. Grýtubakka-
hreppsbúar greiði áskriftargjöld sín
til Kaupfélags Eyfirðinga, Akureyri.
SkagfirBingar!
Greiðið alt sem þér skuldið fyrir
blaðið og áskriftargjöldin framvegis
til kaupfélagsstjóra Sigfúsar Jónssonar,
Sauðárkróki eða kaupfélagsstjóra Guðm.
Ólafssonar, Stórholti f Fljótum.
Úr öllum áttum.
í bæjarstjórn á ísafirði var nýlega
kosinn Finnur Jónsson póstmeistari
með 69 atkv. meiri hluta. Finnur var
studdur af verkamönnum.
Brúarmálið. Vegamálastjórnin hefir
enn að nýju tilkynt, að möl verði
ekið á brúarstaðinn f vetur og standa
yfir samningar um verkið. Jafnframt
þvf er búist við að eitthvað verði
unnið að brúarsmfðinni næsta sumar,
en um það er ekki enn fengin full
vissa.
Leiðréftingar. Eftir því sem blaðið
hefir komist næst, mun það vera mis-
hermt í sfðasta blaði, að Ólafur Frið-
riksson hafi, þegar lögreglan kom til
að sækja drenginn, lýst þvf yfir, að
honum yrði ekki slept, nema hann
yrði sóitur af erlendu hervaldi. Sömu-
leiðis er ekki allskostar rétt frá skýrt
»
þar sem sagt er, að tveir menn hafi
farið á fund stjórnarinnar, til þess að
leita mm sættir. Eftir að lögreglunni