Dagur - 22.06.1922, Qupperneq 2
86
DAOUR
25 tbl.
Hannesi Hafstein. Þá fór fram fyrsta
landskjör og var Heimastjórnar-
flokkurinn f>á svo sterkur, að hann
kom að 3 mönnum af 6 sem kjörnir
voru. Að vísu er aðalmál flokksins
úr sðgunni, en hvað er orðið um
flokkinn? Hann er ailur kominn út
í veöur og vind. Vegna hvers ? Af
því að foringinn J. M. áttl hvorki
þá persónu né heldur neinar hug-
sjónir, til þess að halda flokknum
saman um. Árið 1916 hófust samtök
þau, sem Iýst var í síðasta blaði, um
að byggja upp nýjan stjórnmálaflokk
f landinu, sem ætti sér einhver
stefnumál innanlands, til að lifa og
berjast fyrir. Jónas frá Hriflu var
forsprakki þeirra samtaka. Pá var sá
flokkur ekki til. Nú er hann orðinn
næstum jafnstór og flokkur J. M.
var 1916. Út af þessu má draga
ályktanir um það, hvor þessara
manna er meiri stjórnmálamaður. J.
M. hafir loks hröklast af stjórnmála-
öræfunum, sem blásiö hafa upp
umhverfis hann, í fangið á kaup-
mannavaldinu í Rvík, sem tekur
hann upp af götu sinni. Jónas frá
Hriflu er í fararbroddi vaxandi
þjóðmálaflokks í landinu.
Sókn.
Síðastl. vetur fengu Þingeyingar
tækifæri, til að gera upp á milli
þeirra Jónasar frá Hriflu og Jóns
Magnússohar. Þar voru í kjöri tveir
mætir menn og báðir samvinnu-
menn. Um annan var vitanlegt, að
hann var fylgismaður Jónasar frá
Hriflu, um hinn, að hann var fylg-
ismaður Jóns Magnússonar og gekk
til kosninga með þann misskilning,
að þingeyskir samvinnumenn og
oddborgaravaldið í Rvík ættu póli-
tíska suðu saman í þeim málum,
sem mest greinir á um. Úrslitin
urðu einhver stórkostlegasti kosn-
ingasigur, sem sögur fara af. Fylgis-
maður J. M með stuðning kaup-
manna að baki sér og moldbyl-
inn frá Svalbarði framundan fékk
ekki þriðjung atkvæða. Slíkur var
úrskurður þeirra, sem að dómi Björns
Líndal eru sérstaklega hygnir og
mentaðir kjósendur.
En kosningasókn Þingeyinga er
viöbrugðið. Kjósendur þar þektu
skyldu þá, sem þeim er lögð á herðar
með atkvæðisréttinum. Fáir þeirra
munu hafa hugsað sem svo:«Egfer
ekkert. Það munar ekkert um mitt
atkvæði.* Þannig hugsa þó margir
og er illa farið. Ef menn hugsa
langt, verður ljóst, að eitt atkvæði
getur ráðið úrslitum kosninganna
að fullu og hvert atkv., sem greitt
er gerir það að einhverju leyti. En
úrslit kosninga ráða úrslitum mála
á þingi.
Fylgismenn B-listans mega ekki
sitja heima 8. júlí n. k. hvorki konur
né karlar. Dæmi Þingeyinga er eftir-
breytnisvert. Sæki samvinnumenn og
bændur um alt land kosninguna 8.
júlí eins og Þingeyingar gerðu,
kemur B listinn að tveimur mönn-
um og það er takmarkið.
é
F r é 11 i r.
Dánardœgur. Nýiega hafa íátist f
bænum og grendinni eftirtaldir menn,
Jóil Ouðjónsson bóndi í Kálfsskinni.
Hulda Árnadóitir Stóra Dunhaga,
unglingsstólka. Ragnheiður Lilja, barn,
dóttir Sveinbjörns Oddssonar prent-
ara hér í bænum. Klara Bjarnadóttir,
skipasmiðs, Akureyti, húsfreyja, frá 3
börnum. Anna Björnsdóttir, húsfreyja
á Halllandi, kona Nfelsar bónda þar.
Helga Sigurðardóttir, Halldórsstöðum
í Köldukinn, móðir Sigurðar Búnaðar-
félagsforseta og þeirra systkina.
Sirius kom hingað fyrra þriðjudags-
kvöld. Fjöldi farþega var með skipinu.
Auk fulltrúa á Ársfund Guðspekisnema,
sem taldir eru upp á öðrum stað í
blaðinu, voru meðal farþega próf. Har-
aldur Níelsson, Ingólfur Jónsson stud.
jur. með frú og Sveinn (Bjarman) Árna-
son með frú og Sigurgeir Friðriksson
gjaldkeri og afgreiðslum. Tímans.
Ársfundur Guðspekisfélagsins á
Islandi hefst f Gagnfræðaskólanum
laugardaginn 24, n. k. Fulltrúar *að
sunnan eru þessir : Frú Aðalbjörg Sig-
urðardóttir, ungfrú Helga Jónsdóttir,
ungfrú Helga Þorvaldsdóttir, séra Jakob
Kristinsson. frú Ólafía Hansen, ungfrú
Sigríður Björnsdóttir, herra Sören Sör-
ensen.
Fyrirlestrar. Séra Jakob Kristins-
son flutti fyrirlestur í Samkomuhúsinu
á laugardagskvöldið, sem hann nefndl:
Gestrisna. Fjallaði hann um mótspyrn-
una gegn sannleikanum í heiminum
bæði fyr og sfðar. Rakti hrakninga-
sögu sannleikans bæði í vísindum og
kirkjunni allftarlega. Var fyrirlestur-
inn bæði snjall og mergjaður. Á
sunnudags- og mánudagskvöldið flutti
próf. Har. Nfelsson tvo fyrirlestra um
spiritismann og sýndi fjölda skugga-
mynda í sambandi við þá. Hinn fyrri
var um svokallað fjarfrymi, efni það
er álitið er, að tilraunastjórnendur
andaheimsins dragi úr Ifkama miðl-
anna og annara nærstaddra, sem þeir
svo noti til fyriibrigðanna bæði hreyfi-
fyrirbrigða, hljóðmyndunar og lfkamn-
inga. Sýndi hann fjölda mynda af
þessu tægi og þar á meðal af mjög
fullkomnum líkamningum. Sfðari< fyrir-
lesturinn var um andaljósmyndun og
stóð yfir 2'/2 klukkustund. Hinn fyrri
nokkru skemur. Þessir fyrirlestrar hafa
vakið geysilega aðsókn og athygli f
bænum því málið er stórmerkasta mál-
ið, sem nú er uppi og flutningur pró-
fessorsins snjall, sannfærandi en þó
hæversklegur og að því er virðist
öfgalaus. Nokkrar athugasemdir hefði
þó Dagur viljað gera, en það verður
að bfða sökum rúmleysis.
Landbrjóturinn- Óhug sló á marga
er fréttist, að landbrjóturinn hefði bil-
að skömmu eftir að hann tók til starfa
Bilun þessi var orsökuð af slæmum
írágangi á einu stykki í vélinni og er
því skaðinn, viðgerð og vinnutap á
ábyrgð verksmiðjunnar. Því betur,
tókst með aðstoð Óskars Sigurgeirs-
sonar, smiðs, að gera við vélina aftur,
svo að hún er að nýju tekin til starfa.
Landbrj. hóf vinnu á smáblettum hér
ofan við bæinn en fer síðan suður ,á
Kjarnamóa, þar sem hann á að brjóta
50—100 dagsl. Miklar pantanir í
vinnu landbrjótsins eru þegar komnar
úr nærsveitunum.
íþróltamól U. M. F. A. fór vel
fram og stóð í tvo daga 17. og 18.
þ. m. Ræður fluttu þessir:
Jón Sigurðsson : Samkoman sett.
Ingim Eydal: Minni J Sigurðss. fors,
Stgr. Matthíasson: Minni íslands.
Brynl. Tobiasson: Minni konungs.
Einar J. Reynis: Minni Akureyrar.
Hornaflokkurinn blés lög og karlakór-
inn söng. Frá úrslitum íþróttanna
verður skýrt sfðar. Ágóðinn af sam-
komu þessari, kaffisölunni f sambandi
við hana og fyrirlestri Jakobs Krist-
inssonar, rennur allur í Heilsuhælis-
sjóðinn.
Prófessor Har. JJíelsson prédik-
aði f Akureyrarkirkju sfðastl. sunnud.
og sunnudaginn 2. júlf n. k. predikar
hann f Grundarkirkju og flytur fyrir-
lestur á eftir messu.
Flutt suður. Með Goðafossi síðast
fluttust búferlum suður til Reykjavík-
ur þau hjónin Pálmi Jónsson og Jónína
Jónsdóttir, sem hafa le'ngi búið hér
í bæ að Eyrarlandsvegi 8 (Æsustöðum).
Alþýðufyrirlestur flytur Brynleifur
Tobiasson laugardaginn 24. þ. m. kl.
8V2 í Samkomuhúsinu. Efni: þáttur úr
sögu kaþólsku kirkjunnar.
Símskeyti.
Reykjavík, 21. júní.
Rússar tilkynna að Lenin
hætti stjórnarstörfum sumarlangt
vegna veikinda.
Hræðileg eymd í Austurríki
Bandamenn lána 50 millj. franka
til bráðabirgða.
Forvextir Englandsbanka Iækka
ofan í 3'/2°/o.
Stjórn Kvenréttindafélags Is-
lands hefir opinberlega lýst yfir,
að allri samvinnu félagsins við
kosninganefnd kvennalistans, sé
slitið.
Mbl. hefirfengið ákúrur miklar
hjá kaupmönnum í Rvík fyrir
að taka aftur og biðja fyrirgefn-
ingar á illmælinu um S. I. S.
Þorsteinn Gíslason afsakar sig.
Fréttaritari Dags.
Ritfregnir.
jón Helgason biskup:
Islands Kirke fra
Reformationen til vorf:
Dage.
Bók þessi er aðalávöxtur þeirra til-
rauna, sem á síðustu árum hafa gerðar
verið til aukinna kynna og samvinnu
meðal kirkjunnar manna á íslandi og
í Danmörku. Eftir að samkomulag
náðist um stjórnarfarslegt samband
þessara landa, tók brátt að bóla á
ýmsum tilraunum til að efla samhug
og samvinnu meðal þjóðanna. Mun sá
áhugi f íyrstu vakinn at dönskum
Dömu reiðhattar
— vatnsheldir og léttir —
ódýrastir hjá 1
Baldvin Ryel.
Hið margeftirspuröa
Príma boldang
er komið aftur til
Baldvin Ryel.
mönnum, er hlýjan hug báru til ís-
lenzku þjóðarinnar, en allmargir ís-
lendingar virðast fljótt hafa tekið
þessum tilraunum opnum örmum. Hin
helztu félagsbundnu samtök, sem af
stað er hrundið, er >Dansk-fslandsk
Samfund* og Dansk íslandsk Kirke-
udvalg. Hið síðarnefnda er félagsskap-
ur, eða öllu fremur nefnd manna, með
Sjálandsbiskupinn H. Ostenfeld f*
broddi fylkingár og að öðru Ieyti
skipuð allmörgum starfsmönnum hinnar
dönsku kirkju og eru sumir þeirra
íslendingar að ætt og uppruna. Presta-
stefna íslands svaraði þessari viðleitni
danskra kennimanna með því að kjósa
aðra nefnd, undir forystu Jóns Helga- '
sonar biskups. Þessar tvær nefndir
vinna svo í sameiningu að þvf að
auka kynni og efla samvinnu milii
kirkjuiegra starfsmánna beggja megin
hafsins.
Hér skal ekki út f það farið, að
skýra frá störfum þessara nefnda,
hverrar um sig. Aðeins skal minst á
einn þáttinn f starfi hinnar dönsku
nefndar, sem sé útgáfu rita á dönsku,
til að fræða danska lesendur um hag
og starf kirkjunnar á íslandi. Árið
1919 var þegar gefln út þriggja. arka
bók eftir ritara félagsins, Þórð Tómas-
son sóknarprest í Horsens. Bókin
nefnist: >lslands Kirke og den danske
Menighed.« Er þar Ijóst og skipulega
skýrt frá hag kirkjunnar á íslandi og
þvf safnaðarlffi, sem hér á sér stað.
Ennfremur er bent á nauðsyn og
möguleika kirkjulegrar samvinnu milli
landanna og sagt frá upptökum þeirrar
samvinnu, sem þegar er hafin. Um
bók þessa er ekki annað að segja en
það, að hún er þrungin af velvild í
garð íslendinga og ber vott um
glöggan skilning höfundarins á þeim
mikla mun staðhátta og lffsskiiyrða,
sem taka verður tillit til, ef samvinna
á að geta orðið með Dönum og ís-
lendingum. Síðan hefir nefndin gefið
út kirkjuleg smárit. >Meddelser fra
Dansk-fslandsk Kirkeudvalg* og
>Dansk-íslandsk Kirkesag* og nú síð-
ast aðalritið, sögu fslenzku kirkjunnar
frá siðaskiftum til vorra daga, eftir
núverandi biskup landsins.
Bók þessi er stór, fullar 16 arkir I
stóru broti, myndum skreytt pg prýði-
leg mjög að ytra útliti, enda hefir
kirkjunefndin notið styrks til útgáf-
unnar úr háskóiasjóðnum danska. Eng-
um blandast hugur um, að Jón biskup
HelgaBon er með lærðustu guðfræð-
ingum þessa lands og sérstaklega vel
að sér f kirkjusögu. Hitt mun heldur
hafa verið dregið í efa, hvort hann
hafi það vald yfir máli og stfi, sem
til þess þarf *ð skrifa bækur, svo að