Dagur - 06.03.1924, Page 2
I
34
aura pundið. íslenzka krónan er nú
iítið meira en 50 gullaura virði. Það
sem fyrir striðið. kostaði 9 aura
kostar nú næstum 18 aura vegna
gengisfallsins. Olía er þvi í raun
réttri failin ofan í það verð, sem
hún var í fyrir stríðið. Engin vðru-
tegund hefir failið svipað því eins
mikið. Petta bendir á, að við nú
njótum þeirrar verðiækkunar, sem
orðin er á olíu á heimsmarkaðinum,
eins og iíka er trygt með samningn-
um. Saman dregið yfirlit yfir verð
á olíu hjá Landsverzluninni og H.
I. S. frá þvi í ágúst 1921 þangað
til f ágúst 1922 sýnir, að verð á
»Water White" o!íu miðað við 150
kg. netto hefir faliið úr 129 kr.
(H. I. S. verð) niður í 63 kr. (Lands-
verzlunar verð) Jafnframt sýnir það
yfirlit, að Landsverzlunin hefir alt
af verið frá 6—21 kr. neðar, eða
til jafnaðar. á öllu tímabilinu tæpl.
12 kr. neðan við H. I .S. verð. (Sjá
rit Héðins Valdimarssonar um þetta
efni. Bls. 28)
Eru nokkur líkindi til að hægt
sé að fá olíuna ódýrari? Þær stað-
reyndir, sem hér hefir verið bent á,
gera broslegar þessar fullyrðingar
um að olíuverðið myndi lækka til
stórra muna í frjálsri samkepni.
Meðan Landsverzlunin kepti við H.
I. S. streyttist hið síðarnefnda við
að halda verðinu uppi eins og áður
er sýnt og tók nærri 12 kr. meira
til jafnaðar fyrir hverja tunnu, Á.
P. seldi sína »ódýruM olíu jafndýra
eða þó öilu heldur örlitið dýrari en
Landsverzlun seldi betri olfu. Hin
frjáisa samkepni getur handleikið
þessi sönnunargögn á hvern þann
hátt, er henni sýnist. Þau vitna alt
af gegn henni.
Þá komum við að næsta atriði:
fjárveltu ríkissjóðs í Landsverzlun.
Þegar ríkið rak margbrotna verzlun
með nauðsynjavörur á stríðsárunum
lagði ríkissjóður í hana rúmar 9
milljónir króna alls. Eftir því sem
verzlunin hefir verið dregin saman
og henni græðst fé hefir hún greitt
til baka þennan höfuöstól, svo að
nú er ekki eftir nema sem svarar
>/2—1 millj, Af þessu fé hefir Lands-
verzlunin jafnan greitt ríkissjóði
vexti. Af nokkuð stóru láni, sem
ríkissjóður fékk á sínum tíma til
verzlunarinnar með 4% vöxtum,
hefir verzlunin goldið rikissjóði 6%
Vaxtagróði ríkissjóðs á því fé hefir
því nurnið 2%.
Eins og sést af framangreindu
stendur nú orðið svo iítið eftir af
fé ríkissjóðs í verzíuninni, að það
getur ekki haft nein veruleg áhrif
á gjaldþol ríkissjóðs, hvort sú upp-
hæð greíðist fyr eða seinna. Auk
þess væri auðvelt fyrir ríkið að inn-
heimta þessa upphæð og myndi
Landsverzlun geta gréitt hana með
iitium fyrirvara.
Þá komum við að þessari aðal-
ástæðu andstæðinganna gegn allri
ríkiseinkasölu þeirri, aö öll »einok-
unn sé »kúgun,« »áþjánn og »bölv-
un* að hún sé »heljargreipar“ en
menn, sem við hana búa, verði
»viðskiftaþrælar.“ Og þessi ofuryrði
eru réttlætt með því, að telja einka-
DAOUR 9 tbl.
Jarðarför Lúðvíks Sveinssonar, er andaðist 28. f. m., fer fram
frá Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 8. f>. m. og hefst kl.
1 e. h.
Aðstandendur.
Fréttir.
söhr íslenzka rfkisins samskonar
fyrirburð á verzlunarsviðinu, eins
og verzlunareinokun Dana hér á
landi — »hryllilegasta hungurvofa
þjóðaræfinnar" — var á sinum tíma.
Á þessari rökvillu hafa kaupmenn-
irnir og vinnumenn þeirra stagast
jafnt og þétt árum saman og reynt
að festa hana i meðvitund manna,
með því að gera orðið »einokun“ að
slagorði, gera það aö einskonar
grýlu.
Jafnvel þó það, við örlitla urnhugs-
un, hljóti að verða Ijóst, að þetta
er augljós rökvilla og að andstæð-
írigarnir hljóta, með litlum undan-
tekningum, að haida henni fram
gegn betri vitund, verður hér enn
í sambandi við önnur atriði máls-
ins að gera örlítinn samanburð á
þessu tvennu.
1. Til einkasölu á steinolíu er
stofnað, til þess að brjðta of lands-
mönnum viðskiftahelsi D. D, P. A.
eða hins airæmda Olíuhrings Stand-
ard Oil. — Til einokunar Dana var
stofnað, til þess að leggja á lands-
menn viðskiftahelsi til hagsmuna
fyrir erlenda menn.
2 Gegn valdi D. D. P. A. stóð
hver maður i landinu magnþrota.
Samkepnistilraunir aðrar en ríkisins
(S. A. P. A., Fiskifélagsins o. fl )
mishepnuðust. Ríkiseinkasalan hefir
snúið sameinuðum kröflum allra Iands-
manna gegn erlendu fjármunavaldi
og orðið vel ágengt. EinokunDana
sundraði kröfium landsmanna og gerði
þá, með svívirðilegum hegningar-
ákvæðum, gersamiega máttiausa gegn
erlendu fjármunavaidi.
3 Rikiseinkasalan bindur verzl-
unarágóðan við iögákveðið takmark
og er honum varið að hálfu í rikis-
sjóð beint en að háifu óbeint með
því að leggja hann í varasjóð verzl-
unarinnar. Þannig er verzlunarágóð-
inn varðveittur í landinu sjálfu til
hagsmuna fyrir almenning. Einokunar-
verzlun Dana sðpaði öllum vetzlunar-
arðinum úr landi tii hagsmuna fyrir
einstaka menn.
Það er mjög örðugt að gera sér
grein fyrir þvf, hversvegna menn
halda þvi fram, að hér sé um sams-
konar hluti að ræða, einkum ef geta
skal góðs tíl. Það er naumast hægt
að trúa öðru en að þeir geri það
yfirleitt á móti betri vitund. Þeir,
sem kunna að gera það i einlægni,
ættu ekki að fást við opinber mál,
vegna vitsmunaskorts.
Vestanpósti Guðm. Ólaíáiayni hlekt-
ist dáiftið á f stórhrfðinni á dögunum.
Hann lagði upp frá Víðimýri seinni
hluta hmtudags. Brast á hann fárviðris
hrfð á Vatasskarði og tapaði hann
einum bestinum og fanst sá hestur
standandi undir húsvegg á Víðimýri
morguninn eftir. Guðm. póstur kom
sfðdegis á föstudag að Skottastöðum
f Svartárdal, með hina hestana, hrakinn
og nokkuð kalinn á andliti og höndum
en ekki til stórskaða. Eigi urðu neinar
skemdir eða skaði á póstflutningi.
Sveifasöngvar.
IV.
í grasamó.
Við göngum á fjallið þá ótta er öll.
í árgljúfrum fossarnir skarta sem
mjöll,
í kyrðinni rómhreinir syngja þeir
söng
og síkvikar lindir i kjarrviðarþröng.
í dalnum er rólegt og reykurinn
blár
í reyfunum sefur og daggblæjan
gljár.
Á heiðunum lóurnar Iíta upp fyrst
þá Ijósgeislinn austræni hefir þær
kyst,
Váð stefnum með nesti og nýbrydda
skó
á náttúrufund, yfir brekkur og mó,
á heiðunum fjarlægu einvöld hún er
og æfintýr fögur í skautinu ber.
Þar biða’ okkar ásar ogviðigil væn
og vallendisflesjur með kjarnstráin
græn,
f dældunum fjallagrös flekkja sig
stór
og fullur af sprekum er sólvarmur
mór.
Mót geislum i skjóli er grasatjald
sett,
þar glampandi lind ferum óþýfðan
blett.
Og hlóð eru reist, þar sem hentugast
er,
hvern hlut inn í svefntjaldið grasafólk
ber.
Hve Ijúft er að kveldi að Ieita þar
að,
sem Iiðið sér valdi til gistingarstað.
Við eidinn er matast og laugast í
lind,
öll íeiðindi hverfa’ út í heiðríkju’ og
vind.
Ef grasafólk hretbylji hreppir í mó,
er heima í tjaldi af skemtunum nóg:
Við gátur og þulur og sögur og
söng
finst sagnelsku fólkinu tíðin ei löng.
Áf hlaðinu skygnist um húsfreyjan
glöð,
þá hestar af fjallinu koma í röð
með steintroðna poka og stúlku og
svein.
Að starfinu loknu er gleðin svo hrein.
* *
*
Þú finnur það æska, hvað ættjörðin
þér
af auðiegð og hollustu býður hjá
sér,
ef vilji og atorka er þér i hug
og efinn um landið ei sváftir þig
dug.
Veikindin í bœnum. influenzan
er nú í rénun, þó eru margir en
veikir og lasnir. Veikin hefir reynst
mjög væg og afieins örfá mjög væg
lungnabólgu tilfelli komið frarn. Nú
er influenzan að breiðast út um nær-
sveitirnar og er þar yfirleitt væg en
þó nokkuð misjöfn. Taugaveikin hefir
tekið alla 9 manns, 5 hér f bænum,
2 f Bárðardal, sem smituðuot hér á
matsöluhúainu og 2 vestur f Fljótum,
sem smituðust á sama hátt. Tveir
hafa dáið, eins og áður er frá skýit.
Nú telja læknarnir tekið fyrir útbreiðslu
veikinnar cg hættuna liðna hjá.
Alþlngi. Tryggvi Þórhallsson ber
fram frumv. um að leggja niður sendi-
herraembættið f Khöfn. Stjórnin legg-
ur fram frv. um afnáin löggildingar-
stofuonar og frv. um sameining lands-
bókavarðar- og landsskjalavarðarem-
bætta. Þrír þm. úr íhaldsflokknum
leggja fram frv. um lækkun á dag-
peningum þingm. ofán f 12 kr. og
um að lögákveða hámark þingfarar-
kaups 400 kr. en lágmark 40 kr.
Stjórnin hefir lagt fram ýms menta-
málafrv. bygð á tillögum milliþinga-
nefndarinnar á mentamálum, frv. um
vatnsorkuleyfi, frv. til hjúalaga o. fl.
Bjarni frá Vogi ber aftur fram frumv.
sitt um mannanöfn. — Kjöttollsmálið
hefir verið til umræðu á þrem lokuð-
um fundum. Eigi er kunnugt hváð þar
gerist, en þungar horfur eru taldar f
málinu og að íhaldsmenn fari sér
hægt f því að beita sér fyrir bjarg-
ráðum landbúnaðarins. — Talað er
um að hækka laun Sigurðar Nordal
um 2 — 3000 krónur, til þess að fá
hann til að sitja kyrran í embætti
sínu, en hafna boði Norðmanna um
kennáraembætti f norrænum fræðum
við Kristjanfuháskóla. — Enn situr
við sama þófið um stjórnarmyndun.
Jón Þorláksson, sem hefir verið talinn
vera á oddinum í liði íhaldsmanna,
getur ekki fengið stærri flokk en 20
menn. Lfkur eru taldar vera tii þess
að Jón Magnússon gæti fengið tveim-
ur fieiri (Hjört og Bjarna) en meginlið
íhaldaflokksins kýs fremur J. Þorl.
Væntanlega verður nú eigi langt að
bíða úrslitafregna. Lausafregnir um
samningatilraunir Framsóknarfl. við
Sjálfstæðisbrotið og bændadeild íhalds-
flokksins eru rakalausar. Framsókn
heldur sér hlutlausri um stjórnar-
myndun. Núverandi landsstjórn f þann
veginn að segja af sér. Jón Þorl.
flytur frv. um breytingu og samfærslu
á háskólanum, þannig að hann sé
framvegis aðeins 3 deildir, guðfræði-
deild, læknadeiid og laga- og heim-
spekideild saman. Þór. Jónsson og
Jörundur flytja frv. um afnám heima-
kosninga. Stjórnarfrv. til hjúalaga er
fallið.