Dagur - 24.09.1925, Side 1
DAGUR
kemnr úf á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Ojalddagi fyrlr 1. júlí. tnn-
helmtuna annasi, Árnl
Jóhannsson i Kaupfél. Eyf,
Af g r e i ð slan
er hjá Jónl Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við áramót,
sé komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
39, blaðt
VIII. ár.
Akureyrl, 24. september 1925.
Símalína í Eyjafírði.
Dagur hefir fyrir nokkru minst á
það hvíifk óhæfa það er, að eigi
skuli enn vera lagðar sfmalinur um
Eyjafjörð og Skagafjörð, tvö af þétt-
býlustu og blómlegustu héruðum
landsins.
Á sfmakorti þvf, er nú gildir, er
áætlunarlfna dregin frá Sauðárkróki
að Vfðimýriog sömuleiðis frá Blöndu-
ósi að Bólstaðarhliö. Þegar þær
Ifnur verða lagðar, koma tvær nýjar
stöðvar á póstleið og alfaraleið i
Húnavatnssýslu og Skagafirði.
Þessi viðbót við sfma i Skagafirði
veröur þó allsendis ófullnægjandi.
Landsimalínan liggur þar um útjaðra
héraösins. Aukalina þarf að verða
iögð um héraðið alt með sfmastöðv-
um í öllum sveitahverfum.
Þegar landssíminn var upphaflega
lagður var það álitamál hvora leið
skyldi velja: um Blönduós og þaðan
til Sauðárkróks um Heljardalsheiði
og til Akureyrar eða Blönduós
og þaðan til Bólitaðahlfðar um
Vatnsskarð til Viðimýrar og um
Blönduhlið, Öxnadalsheiði og til
Akureyrar. Ytri leiðin var valin.
Fyrir þvi hefir Skagafjarðarhérað
orðiö að kalla má símalaust. Þó er
svo komiö þessum málum, að sjálf-
sagt þykir að þessi Ifna frá Sauðár-
krók að Viðimýri verði lögð mjög
fljótlega.
Öðru máli gegnir um Eyjafjörð.
Þar er ekki gert ráð fyrir að neinar
sfmalínur verði lagðar út frá aðafsíma.
Landssiminn liggur um Svarfaðar-
dal inn Arskógsströnd um Akureyri
og þaðan yfir Vaðlaheiði. Sjálft
Eyjafjarðarhéraðið sunnan Akureyrar
ásamt Hörgárdal og Öxnadal er
algerlega símalaust.
Svipað háttar til um simann eins
og fieira hér á iandi að rniklu meir
hníga flest mál til aðhlynningar
sjávarþorpum en sveitahéruðum. Nú
mun ekki vera hér á landi neitt
sjávarþorp svo vesæltaðeigi sé þar
simi. En mörg af blómfegum hér-
uðum landsins hafa litil eða engin
not sfmans.
Nú mun það vera flestra manna
mál og einnig þeirra, er fyrir ráða
sfmanum, að það sé eigi nema sann-
girnismál um leið og það er nauð-
synjamál að simi verði lagður um
Eyjafjörðinn, Mundi sú lina þegar
lögð, ef Eyfirðingar væri eigi jafn
lítilþægir, sem raun er á. Þeir hafa
Hjartans þakkir öllum, sem auðsýndu mér hjálp og hluttekningu við
veikindi og fráfall konunnar minnar, Ouðriðar Vilhjálmsdóttur, og heiðruðu
útför hennar með nærveru sinni og minningargjöfum.
Pálmi Loftsson.
ekki enn óskað eftir að fá sima
lagðan um hérað sitt.
I viötali við eitt Reykjavfkutblaðið
hefir Iandsimastjórinn látið þess getið,
að fyrir þvísésími ekki enn lagður
fram í héraðið, að enginn hafi óskað
eftir þvf. Sú lina sé því ekki enn
tekin á áætlun.
Ef til vill hefir ekki Iftilþægð ein
ráðið þvi að Eyfirðingar hafa ekki
enn beöið um þessa samgöngubót.
Má vera að þvi valdi eigi síður
deyfð og óhugkvæmni héraðsbúa.
Eigi hefir Dagur tök á að kynna
sér þingmálafundargerðir héraðsins
svo að hann geti um það sagt, hvort
héraðsbúar hafi falið þingmönnum
sinum að færa fram slíkar kröfur fyrir
sina hönd. Vist er um það að eigi
hafa þær raddir verið háværar eða
þrálátar. Á hinn bóginn er þetta mál
svo augljóst að þingmennirnir ættu
að flytja það óbeðnir.
Á það hefir verið bent fyr hér i
blaöinu að héraðsbúar fá aldrei að
kynnast né heldur njóta til neinnar
hlítar þeirri samgöngubót, sem er
að reglulegum bílaferðum um héruð
landsins bæði til fólks og vöruflutn-
inga fyr en slmi er lagður um hér-
aðið. Til þess að fastar áætlunarferðir
bílanna geti hafist, þurfa að myndast
einskonar afgreiðslustöðvar i hinum
ýmsu sveitarhlutum. Héraðsbúarþurfa
að geta, gegnum sfma, pantað flutn-
inga á vörum sinum frá kaupstaðn-
um á slikar stöðvar. Mundi þá svo
fara hér, svipað og í Þingeyjarsýslu,
að þvf nær allir vöruflutningar
héraðsbúa fari fram á bilum.
S veitarhættir og búskaparlag manna
gerist nú mjög ólikt þvi sem var
fyrrum. Fyrir 1-2 mannsöldrum
siðan bjuggu bændur meira að sínu.
Verztunin var minni og öðruvfsi
háttað. Tvær til þrjár kaupstaðarferðir
voru látnar duga og það jafnvel þó
f nágrend væri við kaupstað. Nú er
öldin önnur, Kaupstaðarferðir gerast
mjög tiðar og þvi kostnaðarsamar.
Ef timinn, sem til slikra ferða gengur,
væri réttilega metinn, mundi ferða-
kostnaður manna við þetta þráláta
ferðanölt i kaupstaðinn nema ótrú-
Iegum upphæðum.
Kynni manna af notkun bila hér
norður frá eru ekki vel fallin, til
þess að glæða trú manna á bag-
kvæmi slikra nota. En þau kynni
gefa rangar hugmyndir um bílana
og nothæfi þeirra. Skilyrði brestatil
þess að hér geti hafist reglubundnar
og ódýrar ferðir bila. Eitt höfuð-
skilyrðið er simi inn i héraöið.
Á næstu árum verður reist heilsu-
hæli í Kristnesi. Rekstur slíkrar stofn-
unar er algerlega óhugsandi án sítna.
Þvi má telja vist að sfmi verði lagöur
til hælisins, eða tíu kilom. inn f
héraðiö.
En um leið og sá sfmi verður
lagður er einsætt að krefjast þess
að simalina verði bygð eigi skemur
en i Saurbæ og að frá þeirri álmu
liggi þverálmur austur yfir ána svo
að allir hlutar héraðsins fái not
sfmans, Til þess að slfk not geti
orðiö viðunandi þurfa að fá síma-
tæki og komast f samband við tal-
sfmakerfi landsins þessir bæir: Krist-
nes, Grund, Saurbær, Kaupangur,
Munkaþverá og Möðruvellir I Eyja-
firöi.
Er hér nú vakiö máls á þessu, til
þess að héraðsbúar geti i tfma hafiö
undirbúning I þessu máli og falið
þingmönnum sinum að sækja
það við landsfmastjórnina þegar á
næsta vetri. Mun nauðsyn málsins
verða mönnum Ijós við umhugsun
og mun það verða auðsótt við
landsfmastjórnina, þvi að nauðsyn
þess er henni þegar ljós. Er það
bert af þvi að iandsimastjóri hefir f
viðtali við menn látiö f Ijós undrun
sína yfir hæglæti Eyfirðinga i þessu
efni.
Dánardægur. Þann 14. þ. m.
andaðist 6 heimili sfnu Gterárgötu 7
hér f bænum ekkjan Sigrfður Jónas-
dóttir 68 ára gömul eftir þunga legu
f krabbamcini.
Til Páls og Svanhildar
i Hrísey.
Helgir dómar ylja okkur
um fram silfur gull og ráf:
broshýr mynd og lftill lokkur,
ljós er auga bauð og gaf.
Rödd, sem hefir unaðsómi
eitt sinn hvfslað, fróar lund.
Eins og draga ilm af blómi
er að koma á þeirra fund.
Æikuvon f augu blæðir,
ávatt þrengist hennár skór.
Eftirsjáin endur-þræðir
einstig þann, er sorgin fór,
Tfbrá sfðar útsýn eflir,
auga hænir fjarðasogn
vel ef skiftir við og teflir
vitá góðan stafa logn,
Við höfum séð f vindi rugga
vona-fley á bylgjusæ,
horft á Ijós f héluglugga,
haldið stefnu og fundið bæ.
Úti á tfmans vfðu völlum
vindar blása úr hverri átt.
Dynja él á háum höllum,
hrista kot, er standa látt.
Enn um stund er vert að vaka,
vinna og hlaða metaskál.
Áður en varir enda taka
okkar spor við flæðarmál.
Æðra og betra auði og vinning
er, þó hvergi sjáist virt,
eyland það, sem endurminning
ávalt lætur blómagirt.
Bjarmar upp af vori og vetri,
valdasviftum, gegnum tár.
Hvarfla auga að sólarsetri,
sýknt og heilagt vorar þrár.
Lækka f verði glys og giaumur, —
gefur sálu betra hljóð,
þegar bæði dáð og dráumur
drýgja vona sparisjóð.
G. F.
(íslendingur).
Skip og pósfar til jafnlengdat
næstu viku eiga að koma og fara
þessir: Vestanpóslar kemur f dag.
Póstbáturlnn og Austanpóstur fara á
morgun kl. g árdegis. Sömuleiðii Jór-
unnarstaða- og Myrkátpðstur og koma
aftur á laugardaginn. Póstbáturinn
kemur á Mánudaginn og AustanpóstiV
á miðvikudaginn. Nova kemur á
morgun á leið vestur um til Rvfkur.