Dagur - 28.01.1926, Síða 2
14
DAOOR
4. tbl.
Árið 1909 í febrúartn.
tekur U. M. F. Akur-
eyrar þegnskylduvinnu-
málið á dagskrá og
skipar sér þá með fundarsamþykt nær
einhuga stuðningsmegin í því máli.
Urðu þau afskifti félagsins og svo
Ungmennafélaganna í landinu yfirleitt
mikil. Pað mun þó ekki hafa verið
samkvæmt óskum félaganna að málinu
var svo bráðlega beint inn á leið
löggjafarinnar og að það fékk þá
meðferð á Alþingi, sem raun varð á
og sem leiddi til þess að hugsjónin
var kveðin niður og fyrirbeitendum
hennar féllust hendur. Á almennum
fundi Ungmennafélaganna hér norðan
lands árið 1916, höldnum að tilhiutun
U. M. F. Akureyrar, er samþykt til-
laga þess e'nis, að þjóðaratkvœöa-
greiðslan í þegnskylduvinnumálinu sé
alls eigi að vilja eða tilhlutun Ung-
mennafélaganna og að þau neiti allri
ábyrgð á þeim alvarlegu afleiðingum,
er slík meðferð svo lítt undirbúins
máls geti haft í för með sér.
Þessi samþykt eins og öll meðferð
Ungmennafélaganna á þegnskylduvinnu-
málinu sýnir, að æskulýðurinn hefir
skilið eðli málsins og uppeldishlið
þess betur en sjálfir löggjafarnir, er
hleyptu því til skipbrots undir brot-
sjóa almenningsfordóma og skilnings-
skorts. Pað mun að vísu hafa verið
ætlun allra, er aðhyltust málið, að
þegnuskylduvinna yrði fyrr eða síðar
leidd í lög. En eins og fyrsta tillaga
U. M. F. Akureyrar viðkomandi mál-
inu sýnir, leit félagið á það eins og
»fagra hugsjón, sem í framtíðinni eigi
að leiða í lög.« Starfsemi félagsins og
annara Ungmennafélaga í þágu málsins
er og í góðu samræmi við þennan
skilning. í meðvitund þeirra og starfs-
tilhögun varð það þegnskaparmál,
sem átti að glæða sjálfsfórnarlöngun
æskumanna til þjóðnýtra starfa fyrir
ættlandið. Mun ekki fjarri til getið,
að þessi skilningur á uppeldisnauðsyn
þessa máls hafi verið vaxin af þeirri
reynslu, er Ungmennafélögin höfðu
snemma af framkvæmd hugsjónarinnar.
Félögin lögleiddu vinnudaga og beittu
með ókeypis vinnuframlögum kröftum
sínum til nytsemdarstarfa að gerð
gróðrarreita, leikvalla, sundstæða, skíða-
brauta, heyskapar o. fl. Hefir það ekki
verið ótítt í sveitum að Ungmennafélög
hafa fjölment heim til þeirra, sem
vegna sjúkdóma hafa verið hindraðir
frá verkum, og slegið fyrir þá á túni
eða engi.
PegnsAraparvinna hlýtur að verða
undanfari þegnsA:j//davinnu. Lög um
þessháttar efni er aðeins form eða
umgerð. Hin siðlega og þegnfélags-
lega kend almennings er hinn eiginlegi
kjarni, allra þeirra mála, sem eru fyrst
og fremst uppeldismál.
Sú byrjunarskipun þessa máls væri
samkvæm aðferð og anda Ungmenna-
félaganna, að sýslu- og bæjarfélögum
væri veitt heimild, til að gera sam-
þyktir um þegnskylduvinnu innan
sinna vébanda. Hafa og sum sveitar-
félög tekið upp þann hátt fyrir bein
og óbein áhrif Ungmennafélaganna.
Eru nú talin helztu afskifti U. M.
F. Akureyrar af hinum stærri þjóð-
Þegnskyldu-
Uppeldismál.
Félagsþroskun.
málum. Skal nú vikið að öðrum flokki
mála. Eru það uppeldismál.
Pess var fyrr getið,
_______________ að starfsemi félagsins
hefði í upphafi verið
beint bæði inn á við og út á við.
Til stórra átaka út á við þurfti sam-
henta menn og öfluga. Megin starfsemi
félagsins beindist því snemma að
félagsþroskun, iþrótlum og frœðslu,
samkvœmum og skemtiferðum. Skal
nú vikið lítið eitt að þessum málum.
Meginstarf allra
félaga, þar sem
ungir hugsjóna-
menn eru saman komnir, verða funda-
höld 'og umrœður. Enda hafa þau
jafnan verið tíð í U. M. F. Akureyrar
og öllum þeim Ungmennafélögum,
sem verið hafa þróttug. og vakandi.
Fundirnir eru ný og ný eldsókn. Par
er brugðið upp ljóskyndlum nýrra
hugsana og verkefna og bjarmanum
varpað út á langvegu hugsjónanna.
Einkum mun í upphafi hafa kveðið
mikið að fjöri og eldmóði félagsins,
þegar það í morgunsári þessa fram-
sóknartímabils reis upp til landvinninga
í lítt nuimnni víðáttu íslenzkra þjóð-
þrifamála. Þarf eigi um það að fjölyrða,
því að það mun flestum kunnugt, að
á félagsfundum er beitt sameinuðum
öflum til úrslita og til framgangs mál-
um. í sambandi við fundina hefir fé-
lagið halt einkablað, sem hefir verið
lesið upp á félagsfundum. Á þann
hátt urðu fundirnir og blaðið æfinga-
skóli til ræðuhalda og ritmensku.
Störf fundanna hafa og vitanlega verið
tvíþátta, þar sem hefir verið leitast
við að sameina gagn og gleði í al
varlegum umræðum og skemtimálum.
Fundirnir eru því sífeldar tilraunir og
æfingar íélagsmanna, að beita einstak-
lingshæfileikura og að sameina til ein-
beitingar sundurleita krafta.
Pað mun hafa verið
ætlun félagsins í upp-
hafi að hefja. íþróttir til
aukins vegs. Var og viðleitni þess í
þá átt snemma mikil. Er landskunn-
ugt hvílíkan fjörkipp tók okkar forna
og þjóðlega íþrótt glíman. Lífið og
sálin í íþróttamálum félagsins var í
upphafi /óhannes Jósefsson. Var hann
og einn af fremstu mönnum félagsins
um hverskonar starfsemi. Nú er hann,
sem kunnugt er, einn af frægustu
íþróttamönnum veraldarinnar. Einbeitni
sína og frægð mun hann að miklu
mega þakka þessari æskuvakningu.
Pjóðrækni og æskuhugur hefir orðið
hðnum drjúgt vegarnesti. Ungmenna-
félagshreyfingin veitti honum merki-
legt uppeldi og bjó hann úr garði
ættlandsins í hina löngu frægðarför.
Á fyrstu árum félagsins efldust fleiri
íþróttir en glíman. Má nefna sund,
leikfimi, knattspark o. fl. Á þeim
árum vinnur félagið að byggingu
leikvangs og sundþróar. Var hvort-
tveggja unnið að miklu með þegn-
skaparvinnu.
Heitstrengingar nokkurra hugsjóna-
manna á ársfagnaði félagsins í jan.
1907 áttu veruiegan þátt í að efla
íþróttaáhugann. Lárus Rist heitstrengdi
að synda yfir Eyjafjörð og afklæða
sig á sundinu. Þórhallur Bjarnarson
heitstrengdi að fá því til leiðar komið,
íþróttir.
að íslendingar tækju þátt í næstu
Olympisku leikjum. Báðum þeim heit-
strengingum varð fullnægt. Enn heit-
strengdi Magnús Matthíasson að ganga
upp á Kerlingu; Mun það hafa ýtt
undir skemtigöngur og skögarferðir,
sem hvorttveggja var óþekt áður í
þeirri mynd, sem það hefir tíðkast í
félaginu.
Skiða- og skautagöngur munu lítið
hafa tíðkast í félaginu. Bó hefir það
staðið fyrir nokkrum skiðamótum. Um
íþróttirnar má yfirleitt segja, að von
bráðar dofnaði yfir sumum greinum
þeirra. Vafalaust má færa rök að því,
að hnignun giímunnar á rót sína að
rekja til þessa tímabils. Fjörkippur
hennar varð að fjörbrotum. Kröfurnar,
sem til hennar voru gerðar, munu
ekki hafa verið reistar á gerskoðun
eða skilningi á eðli hennar og sögu.
Getur það efni el^ki orðið tekið til
nánari meðferðar í þessari ritgerð.
Stofnun /þróttasambands Islands
varð og orsök þess, að Ungmenna-
félögin yfirleitt slógu fremur slöku við
íþróttir. Gekk þeim um leið að miklu
úr höndum annar meginþáttur í sjálfs-
þroskunarstarfi æskumanna. Hefir þetta
drjúgum komið niður á U. M. F.
Akureyrar, svo að það hefir í því efni
kvikað mest frá stefnuskránni og komist
þar skemst á leið að upphaflegu
marki.
Fræðslustarfsemi félags-
ins hefir verið tvenskonar.
Pað heíir haldið uppi
fyrirlesirum og tréskurðarnámsskeiðum.
Til marks um athafnir félagsins má
benda á, að árið 1910 eru haldnir
fyrir þess atbeina 10 opinberir fyrir-
lestrar. Yfir þessari starfsemi dofnaði
þó, er á leið. Áftur á móti hefir fél-
agið á síðustu árum haldið uppi tré-
skurðarnámsskeiðum við mikla aðsókn
og góðan árangur. Nú síðast auglýsir
það Mullersæfingaskóla. Er þar að fá
einskonar heilbrigðisfræðslu.
Auk hinna sjálfsögðu
félagsfunda hefir U. M*
F. Akureyrar staðið
fyrir stærri samkvæmum.
Má þar fyrst telja,
ársfagnaði og afmœlishátlðir. Þá hefir
það ár eftir ár staðið fyrir héraðs-
ogfjórðungsmótum, Til þessarar starfs-
greinar mega og teljast göngufarir
félagsins og vinnudagar að því leyti
sem slíkir dagar voru sannur fagnaður
þeim, er nutu.
Pó fljótt hafi verið farið yfir sögu,
hefir nú verið drepið niður á helztu
stöðum í starfssögu félagsins í upp-
eldismálum. Verður nú að lokum vikið
að þeim málum, sem mega einkum
teljast framkvœmdamál. Starf félagsins
til framgangs þeim miðast þá einkum
við fjársöfnun. Má fyrst telja heilsu-
hælismálið. Fjárvelta
félagsins var upphaflega
og lengi fram eftir mjög
lítil. Árið 1912 er árs-
reikningurinn 200 krónur að upphæð.
Er þetta athugunarvert, þar sem á aðra
hönd er víst, að félagið hafði fyrstu
árin ýms mál með höndura, er kröfð-
ust fjáreyðslu. Sýnir það hversu ein-
staklingum hafa verið aurar lausir f
höndum, er þeirra var þörf í þágu
hugsjónarinnar. Pegar fram í sækir
Heilsuhælis
málið.
Samkvœmi-
og skemti-
ferðir.
setur félagið sér verkefni og markmið,
er krefjast mikils fjár. Eykst þá fjár-
veltan jafnsnemma. Árið 1922 verður
hún 8000 kr, Er þá félagið tekið að
leggja fé í Heilsuhælissjóðinn. En
fyrsta tillag sitt lagði það 1919. Tillag
félagsins í þarfir þessa máls er nú að
vöxtum meðtöldum orðið rúmar 13
þús kr.
„„ , . I Jafnframt fjársöfnun í
e ags ius. I f-{e]-isuhælíssjóðlnn safn-
aði félagið í Hússbygg-
ingarsjóð. Var svo hús félagsins reist
á síðastliðnu ári og vígt á nýársdag
s.l. En templarar eiga það að hálfu á
móti félaginu.
Framanskráðar línur gefa aðeins ófull-
komna hugmynd um æfi félagsins og
starf. Svo margbrotið efni verður ekki
rakið í stuttri grein öðruvísi en lauslega.
Söguleg tildrög félagsins, menningar-
kjarninn i lífi þess og starfi, áhrif þess
á félagsmennina, þáttur þess í sögu
bæjarins, vexti allra Ungmennafélaga í
landinu o. fl. er enn alt óskoðað.
Skömmu eftir aldamótin síðustu fór
gegnum okkur Islendinga mikill áhrifa-
straumur austan um sjá, frá frændum
okkar Norðmönnum. Með snöggum
hætti og sem elnn maður brutust þeir
undan erlendu drottinvaldi og vald-
boðum annarar þjóðar. Við hrifumst
með úr vanamóki og hversdagsdeyfð.
Stjórnarfarsbarátta okkar færist í aukana,
athafnahugur einstakra manna og stétta
vex, ný öfl koma í hreyfingu. Er því
líkast, sem hvert skip, það er legið
liefir í nausti og haffært er eða her-
fært sé dregið á flot undir morgun og
sigling hafin til nýrra vinninga úti í
framtíðinni, þar sem birtir yfir nýjum
vonum.
Glæsilegasta siglingu í þeim flota
áttu Ungmennafélögin. Ungmennafélag
Akureyrar var þar í fararbroddi. Saga
þess er smámynd af sögu þjóðarinnar
á þessum árum, örlög þess samþátta
örlögum hennar.
Siglingin, sem var hafin með svo
glæstum ljóma, er tafin undir Svörtu-
loftum dapurlegra tálmana. Andviðri
heimsstyrjaldarinnar hafa tekið vind úr
seglum flotans.
Ekkert hefir reynt á krafta manna
síðustu árin eins [og það, að halda
hlut sinum í viðskiftum. Átökin um
lífsviðurværið hafa stórum harðnað og
hugur þjóðarinnar hefir krepst við fjár-
hyggju. Þessi örlög hafa vitanlega
komið niður á U. M. F. Akureyrar.
Upphaflegur hugsjónamáttur þess er að
miklu þorrinn. Íþróttalífið er orðið
svipur hjá sjón. Afskifti þess til vernd-
unar og eflingar þjóðernismálum eru
mjög þrotin. Starfshættir þess, eins og
þjóðarinnar, hafa, eftir því sem tímar
liðu, orðið meira hagnýtir, — snúist
beint að framkvæmdum ákveðinna
mála með fjársöfnun og verkmann-
legum átökum.
Pó eru enn sumir þættir í líftaug
félagsins lítt eða ekki skertir. Enn er
það í mikilsverðum efnum í samræmi
við upphaflega ákvörðun. Enn er það
bezta félag þessa bæjar, eins og það
hefir verið síðustu 20 árin. Pað hefir
verið einskonar skáli bygður um þvera
braut á freistingaleið gjálífrar æsku.