Dagur - 28.01.1926, Síða 3
4. tbl.
DASUR
15
Jaröarför mannsins míns, Sigurðar alþm. Jónssonar fer fram að
Ljósavatni Iaugardaginn 6. febrúar n. k. Húskveðja fer fram daginn áður
á heimili hins látna.
Yztafelli 24. jan. 1926.
Kristbjörg Marteinsdóttir.
IJað hefir kallað unga menn og kon-
ur til samstarfs, þar sem tilraun er
gerð, að blanda alvarleg störf hreinni
gleði. Líf og framtíðarvonir hverrar
þjóðar hvíla ekki á þeim, sem fara
hörfandi til grafar, heldur á þeim, er
stíga hin nýju spor. Dýrasta eign þjóð-
anna er hreinlífur, vinnuglaður æsku-
lýður, sem setur mörkin hátt. Ung-
mennafélögin í landinu áttu glæsilegt
upphaf. Almenn hnignun í andlegum
og siðlegum efnum hefir um skeið
lamað þau nokkuð. En nú tekur að
bjarma yfir morgunbrúnum nýrra og
betri tíma. Meginvon þjóðarinnar er á
því reist að æskulýðurinn haldi skipu-
legum fylkingum viðbúinn til áfram-
halds og nýrra vinninga, þegar byr-
legar blæs og sól stafar seglin að
nýju.
Jónas Þorbergsson.
Héraðsþing U. M. S. E.
verður háð á Akureyri dagana 20..—21.
febr. n. k.
Meðal þeirra mála, sem þar verða
tekin til meðferðar eru þessi:
íþróttamál.
Iðnaðarmál.
Skógræktarmál.
Alþýðuskólamál.
Fyrirlestramál,
Kynningar og samstarfsmál.
Kappskákir.
Héraðsblaðið.
Bindindismál.
Drög til sögu Ungmennafél. íslands.
Far sem þessi mál eru Ungmenna-
félögunum áður kunn er ekki þörf á
að fjölyrða um þau, Flest af þeim
hafa verið rædd meira og minna, á
hverju þingi síðan sambandið var
stofnað. En þar sem sambaiidið hefir
haft yfir litlu fé að ráða og félagarnir
verið auk þess öðrum störfum hlaðnir,
þá hafa framkvæmdirnar víða orðið
minni en skyldi.
Eitt af þeim málum sem héraðssam-
bandið hefir beitt sér fyrir nú síðustu
árin, er bygging Alþýðuskóla í Eyja-
firði. Hefir það gengist fyrir fjársöfnun
í því augnamiði, og reynt að vekja
áhuga fyrir því máli á meðal félaganna.
En þessu hefir miðað hægt áfram,
enda er hér um nokkuð stórt að ræða,
og engin leið til að koma þessu máli
i framkvæmd án opinbers fjárstyrks.
En við treystum svo á dug og fórn-
fýsi eyfirzkrar alþýðu sérstaklega, og
annara góðra manna að ljá þessu
máli lið og fé, að ekki líði mörg ár
áður en þessi skólabygging kemst upp.
Til þess nú meðal annars að vekja
almennan áhuga fyrir þessari hugmynd,
þá hefir héraðsstjórnin ákveðið að
gangast fyrir tveimur námskeiðum
innan þessa héraðs, síðari hluta þessa
vetrar. Mun annað haldið að Þinghúsi
Hrafnagilshrepps, hitt í Þinghúsi Glæsi-
bæjarhrepps.
Fyrirkomulag þessara námskeiða verð-
ur svipað og bændanámskeiðanna.
Verða þar haldnir fyrirlestrar, líklega
10 á hvorum stað, um alþýðleg, fræð-
andi efni, svo og frjáls ræðuhöld á
milli og skemtanir. Svo er ráðgert að
hvert námskeið standi yfir f 4 daga.
— Verði námskeið þessi sótt, sem við
vonum að verði, er enginn efi á því
að þau geta haft góð og vekjandi á-
hrif og glætt félagslífið.
Verndun skógarleifanna í Leyningshól-
um hefir sambandið haft á stefnuskrá
sinni frá því fyrsta, og er nú svo kom-
ið að óhætt er að fullyrða, að ung-
mennafélögin í Eyjafirði fá nú þegar
á þessu ári umráðarétt yfir þeim. Ætti
þá skógarleifum þessum að vera borg-
ið úr því. Og er það vel farið.
Héraðssainbandið hefir altaf leitast
við að halda uppi áhuga félaganna
fyrir íþróttaiðkunum, heimilisiðnaði og
fleiri málum sem til þjóðþrifa horfa.
Hefir það fengið menn til að flytja
fyrirlestra og leiðbeina félögunum er
þau hafa óskað þess. Hver árangurinn
hefir orðið af því, má vafalaust deila
um. Ungmennafélögin hafa upphaflega
sett sér markið hátt, og ekki eðlilegt
að það náist nema með löngum tírna.
Vélrituðu blaði hefir sambandið hald-
ið út nú síðustu árin, en því hefir of-
lítill sómi verið sýndur af félögunum,
og þar af leiðandi liefir árangurinn
ekki orðið sá, sem ætlast var til.
Ungmennafélögin íslenzku eiga sér
ekki langa sögu enn sem kornið er.
En hún er því merkilegri. Það er
nokkurskonar landnámssaga. Og þeir
þættir mega ekki gleymast. Tess vegna
hefir verið vakið máls á, og reynt að
stefna að því, að safna saman í eina
lieild öllu því, sem lýtur að myndun
og þroskun þessa félagsskapar frá því
fyrsta.
Væri vel þess vert ef hægt yrði að
gefa út minningarrit á 25 ára afmæli
félagsskaparins, sem verður árið 1931.
En þá ættum við og að sýna, að næstu
fimm árin verði veruleg þroska- og
blómaár hjá félögunum, því það erum
við, sem nú erum á æskuskeiði og
starfandi ungmennafélagar, sein leggj-
um til síðasta þáttinn í það rit. Og
okkur má ekki standa á sama, hverju
sá þáttur skýrir frá.
Héraðsstjórn U. M. S. E.
20 ára minning.
f’etta blað af Degi er eingöngu helg-
að 20 ára afmæli U. M. F. Akureyr-
ar. Við samningu minningargreinar-
innar hefir blaðið notið upplýsinga
frumherja félagsins, Fórhalls Bjarnar-
sonar prentara og núverandi formanns
félagsins, Jakobs Frímannssonar.
JMýkomið í Braffahlið:
Kaffi, Export, Melís, Strausykur, rauður Kandfs, Hveiti,
Gerhveiti, Hafragrjón, Rísgrjón, Sagogrjón, Bankabygg,
Maís, Hænsabygg, Kartöflumjöl og ýmsar smávörur til
matar. — Purkaðir og niðursoðnir Ávextir, Rúsínur,
Sveskjur, Caco, Súkkulaði, The og m. m. fl. Sann-
griamt vem, — Altaf best að kaupa MATVÖRUR í
versl. Brattahlíð.
Brot
úr bréfi í ársbyrjun 1925.
». . . Af því, sem hér er sagt, sést,
að félagsskapurinn er all-víðtækur, og
svo fjölmennur er hann, að innan U.
M. F. í. eru um 3500 félagsmenn. Ef
þetta er borið saman við nágranna-
þjóðina, Norðmenn, sein telur um 60
þúsundir ungmennafélaga, — en Nor-
egur er fósturland þessarar hreyfingar,
verður útkoman sú, að félögin eru
hlutfallslega fjölmennari hér en þar. Fó
er ungmennafélags-hreyfingin norska
fullra 40 ára, en hin íslenzka tæpra 20
ára. Norska hreyfingin hefir ennfremur
haft miklu betri aðstöðu, þar eð norska
ríkið og ýmsir mætir menn hafa rétt
henni vinarhönd og stutt hana með
ráðum og dáð, bæði í verklegum og
fjárhagslegum efnum. Nú er ungmenna-
sambandið norska stutt ríflega af ríkis-
sjóði til ýmiskonar starfsemi. En ung-
mennafélagshreyfinginj íslenzka hefir að-
eins notið sárlítils styrks frá löggjafar-
valdinu. Og sé þess ennfremur gætt,
að í félagsskap þessum er að mestu
ungt og óreynt fólk, sem á lítið af
fjármunum og minna af lífsreynslu, og
hefir aldrei haft ráð á því, fjármun-
anna ■ vegna, að eiga óskift lið eins
manns, til þess að vinna fyrir áhuga-
mál sín, samræma störfin og koma
þeim í skipulegt horf, má það næstum
undarlegt heita, hve félagsskapur þessi
er víðtækur og fjölmennur og hefir
komið miklu til leiðar. Skal hér getið
með örfáum orðum eigna og hins hag-
nýta starfs félagsskaparins:
1. Félögin eiga land um 300 þúsund
fermetra. Nota þau land þetta til
skógræktar, matjurtaræktunar og
grasræktar.
2. Þau eiga 30 fundahús, sem oft eru
notuð til ýmsrar starfsemi fyrir sveitir
og hreppsfélög á félagssvæðinu, svo
sem við skólahald og almenna mann-
fundi.
3. t*au eiga 12 fullgerða og velgirta
leikvelli.
4. Þau eiga 25 sundlaugar. Hafa þau
orðið að verja allmiklu fé, til þess
að gera laugar þessar nothæfar.
5. 1 bókasöfnum félaganna eru um
4500 bindi.
Hér er þó ótalið alt það starf, sem
félögin hafa lagt fram, bæði beint og
óbeint, við t. d. sjúkrasamlög (U. M.
F. Akureyrar eitt hefir gefið Heilsu-
hælissjóði Norðurlands 10 þúsund
krónur), til þess að styðja fátæka og
heilsubilaða menn, vegagerðir. En mest
mun þó kveða að því fé og þeirri
Taða,
30—40 hestar eru til sölu.
Upplýsingar gefur.
Jósef Jónsson,
ökumaður.
vinnu, sem ungmennafélögin hafa afl-
að lýðskóla- og unglingaskólastarfsem-
inni í Iandinu.
Pað, sem hér hefir verið talið, mega
þó aðeins heita hjáverk ungmennafé-
laganna. Aðalverk þeirra er fólgið í því
að vinna að andlegu uppeldi æskulýðs-
ins, eða búa menn undir það starf,
sem þeir eiga að vinna fyrir þjóð sína
á þroskaárum æfinnar. Gera þau það
með málfundum sínum, námskeiðum,
fyrirlestrar-starfsemi, handrituðum blöð-
um einstakra félaga, og þó einkanlega
með riti sínu Skinfaxa.
t*að markmið félaganna að vinna
fyrir íslenzkt þjóðerni, íslenzka tungu
og íslenzka heimaiðju. Pví eru félög
þessi nauðsynlegur allsherjarskóli, bæði
í þorpum en þó einkum í strjálbygð-
um sveitum. Vegna þessa óháða alls-
herjarskóla gefst æskulýð landsins færi
á því að beina starfskröftum sínum í
rétta átt og koma í veg fyrir, að efni-
Iegir æskumenn lendi í óreglu og
auðnuleysi. Erfiðir starfstímar félaganna
hafa sannað, að félögin eru vaxin upp
af þjóðarþörf. Það er því heilög skylda
allra þeirra, sem óska þess, að íslenzka
þjóðin verði þróttmikil, sjálfstæð og
starfsöm, að styðja ungmennafélög.«
Adalfundur U. Mr F.^A.
var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Fór
þar fram stjórnarkosning meðal annars
og skipa nú stjórn féiagsins: Jakob
fulltrúi Frímannsson, formaður, Svan-
björn bankaritari Frímannsson, ritari og
Lorsteinn verksmiðjustjóri Davíðsson
meðstjórnandi. — Sú breyting var
gerð á fyrirkomulagi stjórnarinnar að
féhirðir er nú kjörinn utan stjórnar og
var til þess starfa valinn Agnar verzl-
unarmaður Guðlaugsson.
Kristján Karlsson lét nýlega af for-
mensku U. M. F. Akureyrar, eftir að
hafa verið formaður þess í 6 ár og átt
sæti í stjórninni í 8 ár samfleytt. Hann
hefir jafnan verið óveill og ótrauður
starfsmaður félagsins.