Dagur - 06.01.1927, Síða 2
2
DAGUB
1. tbl.
Leikfélag Akureyrar.
A ÚTLEIÐ,
sjónleikur í þremur þáttum, 4 sýningum, eftir Sutton Vane, verður
leikinn í S í Ð A S T A S I N N sunnudaginn 9. janúar kl 8.
Aðgöngumiðar seldir í leikhúsinu sama dag.
STJÓRNIN.
að hún breytist bæði að formi og efni,
eins og þér hafið hér gert, og síðar mun
sýnt verða.
Þá teljið þér, hr. ritstjóri, að leiðrétt-
ing okkar beri vott um, að okkur bresti
ljósan skilning á skipulagi K. E. og
færið það til, að við blöndum saman
jafn fjarskyldum efnum, sem verðlagi
og ábyrgðar skipulagi þess. Við fáum
ekki séð, að nokkur minsta ástæða sé
til þessarar ásökunar yðar, því allir,
sem nokkuð þekkja til verzlunar, munu
okkur sammála um það að vöruverð við
lánsverzlim hlýtur, meðal annnars, að
miðast við það, hvenær varan er greidd
og hvemig tryggingum á útlánum er
fyrirkomið. — Þessvegna teljum við, að
aðstaða Kaupfélags Eyfirðinga til vöru-
verðlags hafi talsvert breytst við hinar
róttæku skipulagsbreytingar, sem gerð-
ar voru í félaginu 1922, þegar ábyrgðin
af útlánum til félagsmanna var yfir-
færð á deildimar; að félagsmenn hafi
alment skilið þetta, sést bezt á því, að
margar deildimar byrjuðu þegar á að
safna sjóðum heima fyrir, til þess að
taka við tapi því, sem þær kynnu að
verða fyrir af viðskiftum deildarmanna.
Ef þér við athugun eigi getið komið
auga á skyldleikan milli þessara skipu-
lagsatriða, virðist það ekki geta stafað
af öðm en því, að yður bresti sjálfan
skilning á þeim skipulagsatriðum þessa
félagsskapar, sem fjárhagslega þýðingu
hafa.
Þá skal nú vikið að deiluatriðinu, sem
er það, hvort tillaga sú, sem við kom-
um fram með á síðasta aðalfundi K. E.
og þér funduð köllun hjá yður til að
gera að blaðamáli, brjóti í bága við
grundvöll félagsins. Tillagan var þann-
ig: »Að tekið skyldi til athugunar,
hvort ekki mundi hagkvæmt, að félagið
taki upp þá reglu, að láta félagsmenn
fá matvöru með kostnaðarverði, gegn
peningaborgun út í hönd.« Um tillöguna
farast yður þannig orð (Dagur 21.
apríl þ. á.):
»Á síðasta aðalfundi kom fram til-
laga frá endurskoðendum um, að félagið
taki upp þann hátt, að selja kornvörur
með kostnaðarverði, gegn peningaborg-
un út í hönd. Var með því raunar lagt
til, að horfið væri að hálfu leyti frá
því, að reka félagið á þeim grundvelli,
sem það var reist á fyrir 20 árum síðan,
og sem hefir orkað vexti sjóðanra og
gefið félaginu þann styrk, sem það hef-
ir öðlast. En tillagan mætti svo megnri
mótspymu, að hún var tekin aftur «
Okkur finst þessi ummæli bygð á
misskilningi eða athugunarleysi, og álit-
um það sprottið af fljótfærni og kæru-
leysi yðar, og sendum yður því »leíð-
réttinguna« í von um, að þér mynduð
átta yður á þessu, en »andsvar< yðar
ber það með sér, að þér eigið erfitt
með að skilja það, sem á milli ber, eða
þá, að þér viljið ekki skilja það.
Þá skal röksemdafærsla yðar um
ágreininginn rakin sundur. Þér segið í
andsvari yðar, að kjarni ágreiningsins
sé það, hvað megi að réttu lagi kallast
grundvöllur sá, sem félagið er rekið á,
og hvort tillaga okkar miði til þess, að
horfið yrði að meira eða minna lcyti
frá því, að reka félagið á þeim grund-
velli. Þér segið enn fremur, að fyrstu
20 árin hafi Kaupfélag Eyfirðinga ver-
ið rekið á grundvelli kostnaðarverðs-
álagningar, en árið 1906 hafi Hallgrím-
ur Kristinsson innleitt hið svonefnda
Rochdale skipulag í félagið og höfuð-
stefna þess hafi þá verið, að selja allar
vörur með gangverði. Þetta segið þér
að sé ljóslega rakið í minningarriti fé-
lagsins, er kom út 19. júní s. 1. Við höf-
um eigi séð þetta merka rit ennþá og
vitum því ekki, hversu saga félagsins
er þar vandlega rakin, en sé hún ekki
þar rakin með ljósari skilningi eða
vandari heimildum en andsvar yðar
gefur tilefni til að vænta, getum við
ekki að órannsökuðu máli talið það
óskeikult heimildarrit. En hvað sem
þessu riti kann að líða, getum við geng-
ið inn á það með yður, að kjarni ágrein-
ingsins byggist á því, hver sé grund-
völlur félagsins, og það líka, að 1906
hafi verið innleitt í félagið hið svo-
nefnda Rochdaleskipulag og þá hafi sú
regla verið tekin upp, sem aðalrcgla að
selja vörur félagsins með gangverði. —
En hvaða ályktanir dragið þér svo af
þessu? Þær hljóða svo:
»Höfuðályktanir mínar um ágrein-
inginn verða þá þessar:
1. Verðsálagningaraðferð hvers fé-
lags er sá starfsgrundvöllur, sem það
er rekið á.
2. Kaupfélag Eyfirðinga hefir síðustu
20 árin verið rekið á grundvelli gang-
verðsálagningar, og höfuðstefna þess
er sú, að selja allar vörur með ágóða.
3. Tillaga, sem fer fram á það, að
félagið taki að selja meginvörumagn
sitt með kostnaðarverði, er tillaga um
að raskað sé verulega þeim grundvelli,
sem félagið var reist á, fyrir 20 árum
síðan, og sem hefir orkað styrkleika
þess og vexti sjóðanna.«
Þessar höfuðályktanir yðar skulu nú
athugaðar og hvert atriði þeirra útaf
fyrir sig.
1. Að grundvöllur kaupfélaga sé
álagningaraðferð sú, sem þau viðhafa, er
ný kenning og næsta fáránleg; svo er
hún fráleit, að við teljum eigi þörf á,
að fara um hana mörgum orðum. Verð-
lagsgrundvöllur kaupfélaga hér á landi
er ekki nema einn, einn og sá sami í
öllum kaupfélögum landsins, og sá
grundvöllur er sjálf kaupfélagshugsjón-
in, eins og hún birtist forystumönnum
þessarar þjóðhollu hreyfingar hér á
landi í öndverðu, að skapa þjóðinni
réttlátt og heilbrigt viðskiftalíf. Hvaða
aðferð félögin hlýta um verðlag er ein-
ungis formsatriði, er fer eftir því,
sem bezt þykir henta á hverjum
stað og hverjum tíma. Jafnvel þó
deila megi um það, hver aðferð sé
handhægust í þessu efni, mun enginn
ágreiningur um það að ekki verði rétt-
látari og heilbrigðari verðlagsaðferð
fundin en sú, að félagsmenn fái vörur
sínar með þvi verði, sem þær raunveru-
lega kosta.
2. Þó það sé réttilega tekið fram hjá
yður, að Rochdale skipulag væri tekið
upp í K. E. 1906 og þá tekin upp sú
aðalregla að selja vörur félagsins með
gangverði, þá er það ekki rétt hjá yður,
að það hafi verið rekið á þeim grund-
velli sl. 20 ár. Þér virðist alveg gleyma
þeim stóra atburði, sem gerðist í Kaup-
félagi Eyfirðinga 1922, er það sagði
skilið við hinn útlenda grundvöll, sem
kendur hefir verið við Rochdale, en hall-
aði sér að hinu innlenda skipulagi, sem
kent er við Þingeyinga. Þessi gleymska
yðar er því undarlegri, þegar þess er
gætt, að fáir voru brokkgengari í þessu
skilnaðarmáli, eða harðari í garð þeirra
fáu manna í félaginu, sem þá vildu
halda félaginu áfram á þeim grundvelli,
sem það var reist á 1906, heldur en
einmitt þér, hr. ritstjóri?
3. Tillaga um að félagið taki að selja
»meginvörumag-n« sitt með kostnaðar-
verði, hefir engin komið frá okkur.
Það eru því blekkingar frá yðar hendi
að segja slíkt í þessu sambandi, því
ekki viljum við að óreyndu ætla yður
svo fávísan um verzlunarhætti K. E., að
þér eftir að hafa fengið allaglega fjár-
hæð til að kynna yður sögu þess og
verzlunarhætti þau 40 ár, sem það hef-
ir starfað, að þér vitið ekki, að korn-
vöruverzlun félagsins er verulegur
minni hluti af umsetningu þess, svo til-
laga um að félagsmenn fái það af
komvöru með kostnaðarverði, er þeir
greiða í peningum við móttöku, nær alls
ekki til megin vörumagns félagsins.
Ályktanir okkar um ágreiningsefnið
verða þá þessar:
1. Að grundvallarhugsjón Iíaupfélags
Eyfirðinga í útlendri vöruverzlun sé sú,
að útvega félagsmönnum góðar og
ódýrar vörur.
2. Að Kaupfélag Eyfirðinga 1922, er
það breytti grundvallarskipulagi sínu,
yfirfærði ábyrgðina af vanskilum fé-
lagsmanna af félaginu í deildirnar,
heimilaði pöntunarstarfsemi o. s. frv.,
hafi þá opnað kostnaðarverðsaðferðinni
leið hvenær sem henta þætti.
3. Að Kaupfélag Eyfirðinga hafi
fylgt þeirri reglu undanfarandi ár, að
selja ýmsar vörutegundir ágóðalaust og
að sú verzlun hafi farið vaxandi á síð-
ustu árum, og er það sönnun þess, að
framkvæmdastjóri og stjórn félagsins
sé okkur samdóma um það, að slíkt sé í
samræmi við grundvöll, lög og anda fé-
lagsins.
4. Að tillaga um, að selja félagsmönn-
um matvöru gegn peningum ágóðalaust,
sé brot á grundvelli félagsins eða starf-
semi þess, er ekkert annað en misskiln-
ingur.
Þessu næst skal vikið að nokkrum at-
riðum í »andsvari« yðar.
Þér virðist ásaka okkur fyrir það, að
geta þess, að félagið hafi selt á undan-
förnum árum ýmsar vörur ágóðalaust,
og' að víð höfum eigi fært önnur rök
fyrir því, en þau að vísa yður í reikn-
inga félagsins; að þetta sé ámælisvert
fáum við ekki skilið, þar sem frá þessu
er skýrt á hverjum aðalfundi og vitan-
legt hverjum félagsmanni. Við höfum
því ekkert að afsaka í þessu efni, en
viljum nú benda yður á, að ef yður er
mjög erfitt um skilning á reiknings-
færslu, að spyrja einhvern af starfs-
mönnum félagsins, sem þér trúið, hvort
það sé ekki satt, sem endurskoðendur
segja, að félagið hafi að undanförnu
selt ýmsar vörutegundir ágóðalaust.
Þá segið þér í »Andsvark yðar: »þess-
ar ýmsu vörur, sem þér talið um, eru nú
sem stendur innlendar vörur, og af er-
lendum vörum að eins timbur og se-
ment«. Ekki vitum við, hvað þessi stað-
hæfing yðar á að þýða, því þótt hún
væri sönn, sem ekki er nú, ósannar hún
ekkert það, sem við höfum sagt í þessu
efni, því það, sem við höfum sagt um
starfsemi félagsins, nær eigi nema til
síðustu áramóta. En — segið þér okk-
ur, hr. ritstjóri: Hvaðan hafið þér þann
vísdóm, að á yfirstandandi ári séu ekki
seldar í Kaupfélegi Eyfirðinga nema
tvær erlendar vörutegundir? Og segið
okkur annað: Hver er stefnu- (prin-
cips) -munur á því fyrir félagið að
selja trjávið og sement ágóðalaust eða
t. d. rúgmjöl og hveiti?
Einu atriði sláið þér fram í »and-
svari« yðar, sem þýðingu hefir, ef satt
væri. Þér segið að reynsla sé fengin
fyrir því, að þau félög, sem beita kostn-
aðarverðsaðferðinni, eigi erfiðara með
starfsemi sína og að auka sjóðina, en
gangverðsfélögin, en ekki hafið þér svo
mikið við, að finna þessum orðum yðar
stað. Við teljum æskilegt að þér færðuð
rök fjrrir þessari fullyrðingu yðar, t. d.
hver hefði safnað þessari reynslu og
hvar skýrslu um þá reynslu væri að
finna. Við sjáum ekki í svipinn, að aðr-
ir hafi haft aðstöðu til að safna slíkri
reynslu, en Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga. Það ætti að hafa feng'ið
nokkra reynslu í þessu efni, en ekki er
okkur kunnugt um, að sambandið hafi
gefið nokkra skýrslu snertandi þetta at-
riði, en eftir því sem okkur hefir skil-
ist, eiga gangverðsfélögin engu léttara
með sína starfsemi en kostnaðarverðs-
félögin nú á þessum síðustu og verstu
tímum, og hagskýrsla sú, sem lá fyrir
síðasta aðalfundi S. í. S. og sýndi sjóð-
eignir félagsmanna í sambandinu bar
það með sér, að Kaupfélag Svalbarðs-
eyrar var hæst á blaði með sjóðeignir,
samanborið við umsetnngu, og hefir þó
það félag aldrei látið úti vörur með
öðru verði en kostnaðarverði.
Illa er yður við að viðurkenna, að við
ineð þessari tillögu höfum verið að
styðja stefnu H. Kristinssonar, en við-
urkennið þó, að hans hugsjón hafi ver-
ið að vinna bug á skuldaverzluninni. En
þér segið: »Pöntun og kostnaðarverðs-
afhending er hvorki óhjákvæmilegt né
óbrigðult skilyrði fyrir því að hönd selji
hendi«. Þetta er öldungis rétt hjá yður.
En að selja gegn peningum út í hönd,
eins og tillaga okkar fór fram á, er al-
gerlega óbrigðult ráð til þess að hönd
selji hendi.