Dagur - 17.02.1927, Page 2

Dagur - 17.02.1927, Page 2
26 9AQVB 7. tbl. studd og — að sumu leyti a. m. k. — alveg ósönn ummæli í garð skag- firzks landbúnaðar. Eg er svo gerður, að mér gremst jafnan að heyra þær raddir, er gera lítið úr eða hallmæla þeim atvinnu- vegi, er þjóðin á að þakka varð- veizlu alls þess dýrmætasta og helg- asta, er hún á til í eigu sinni. Og það sárnar mér mest, þegar þær raddir koma frá þeim, er hlaupist hafa brott frá landbúnaðinum, og ekki haft vilja né djörfung til að mæta þeim örðugleikum, er þeir, sem hann stunda, óneitanlega verða við að stríða. II. Bróðurgæla. »Fréttir úr Skagafirðk heitir grein í »ísl.« eftir »Skagfirzkan bónda«. Er lokakafli hennar og sá einn, er eg hefi séð og mér kemur við, i 25. tbl. Er Króksfundurinn þar enn á ferðinni. Er höf. að svara Herði, er reit frásögn af þeim fundi o. fl. í Dag í vor, og minnist í því sambandi á viðureign okkar síra Arnórs í Hvammi á fundinum. Segir þessi stéttarbróðir minn — sem annars talar hlýlega í minn garð og vafalaust er einhver góðkunningja minna — að Herði hafi láðst að geta þess, að eg hafi gefið dálitla á- stæðu til árása síra Arnórs, og bætir síðan við: »Hann« — þ. e. eg undir- ritaður — notaði að aðalvopnum til sóknar á stjórnina marghraktar lyg- ar úr Timanum ...«.* Þarna láist nú þessum háttvirta stéttarbróður mín- um að fara með sannleikann, og ikýs heldur hinn kostinn. Or því að höf. er svo hugrekkis vant, að hann þorir ekki að benda á neinar af þessum »TímaIygum«, er hann kveður mig svo vinsamlega hafa farið með, verð eg líklega að skýra frá hver þau »vopn« voru, er hann kveður mig hafa notað til »sóknar á stjórnina«. Skora eg á hann að sanna með vottorðum tveggja fund- armanna, t. d. síra Sigfúsar kaup- félagsstjóra og Jóns alþm. á Reyni- stað, að eg fari rangt með, eða þegja ella og leggja niður skottið. — Jón á Reynistað er að vísu and- stæðingur minn í stjórnmálum. En hann var sá eini, er svaraði mér af einhverju viti á fundinum, og geri eg því ráð fyrir því, að hann kunni að reka minni til þess sem eg sagði. Hins vegar treysti eg honum full- komlega lil að votta það eitt, er hann veit rétt vera. Getrð skal þess, að er eg fór á þann fræga fund, hafði eg nýlokið við lestur Alþt. 1925, og tók beint upp úr þeim öll þau atriði, er eg mintist á í aðalræðu minni, — en ekki úr Tímanum. En sé það svo, að Tímanum beri að ðllu saman við Alþt., enda þótt lygi sé kallað, það sem hann fer með, þá má hann vissulega vel við una. Ekki er það nákvæml. rétt hjá höf., að eg hefði sókn á hendur stjórninni. Hitt er satt, að ‘eg gerði * Auðk. af »Skagf. bóndac. G. M. gys að íhaldsstjórn og íhaldsmönn- um á' þingi yfirleitt fyrir þrent aðallega: Sparnaðarstefnu þeirra, skattamálatillögur og snúningalip- urð. Til dæmis um sparnaðarstefnu íhaldsstjórnar og -flokks nefndi eg docentsembætti dr. Alexanders, sem ýmsir íhaldsmenn höfðu að vísu áð- ur viljað afnema, auk þess sem fjár- málaráðherra hafði árinu áður viljað leggja heimspekisdeildina að miklu leyti niður. Þá nefndi eg kvenna- skólafrumvarp stjórnarinnar. Þar var farið fram á, að kvennaskóli Rvíkur yrði gerður að ríkisskóla, enda þótt íhaldsmenn séu, samkv. marg-yfirlýstri stefnu sinni, gersam- lega andvígir öllum ríkisrekstri og stofnun nýrra embætta. Enn gat eg um fiskifulltrúaembættið suður á Spáni. Framsókn vildi lögfesta það aðeins um ákvéðið árabil og ákveða launin. En við það var ekki komandi fyrir íhaldinu. Loks mintist eg á frv. um varalögreglu, sem eitt með öðru, sýndi býsna vel sparnaðarhug og -stefnu stjórnarinnar. Af skattamálafrv. varð fyrst fyrir till. um 600 þús. kr. eftirgjöfina ár- ið sem leið (1925). Var að vísu svo ráð fyrir gert, að meginhluti þess fjár kæmi inn í ríkissjóðinn síðar meir. En hver trúir því, að svo og svo hár tekjuskattur hefði lokizt að fullu, þegar svo árar, að engar eru tekjurnar? Til þess að trúa slíku, þarf meira en meðal-einfeldni. — Þá kom röðin að sjúkratryggingarfrv. Þar var svo ráð fyrir gert, að mikl- um hluta af berklavarnakostnaðin- um yrði breytt í nefskatt — jafnt á hvítvoðunga og kararaumingja sem fullvinnandi menn! — Loks mintist eg á frv. um hækkun á prests- og kirkjugjöldum, og fór um það við- eigandi orðum. Til að sanna frábæra mýkt íhalds- manna og Iipurð í öllum snúningum, tók eg nokkur dæmi. Varð þá fyrst fyrir mér engin óæðri persóna en Jó'n Þorláksson sjálfur. Bar eg um- mæli J. Þ. landsverkfræðings sam- an við stefnu og gerðir J. Þ. fjár- málaráðherra, dró af þeim saman- burði ýmsar ályktanir og dáðist að samræminu. Ennfremur nefndi eg háskólamálið, kvennaskólamálið og tóbakseinkasöluna — þenna útburð, sein að engu leyti hafði brugðist vonum föðursins, en sem hann þó, iaf samherjum sínum, var neyddur til að »bera út«, — þessum sömu sam- herjum, er áður höfðu hossað kró- anum hátt, og dátt við hann látið. Þarna eru nú komin »vopnin«, er eg notaði til »sóknar á stjórnina«, Þetta eru höfuðatriði þess, er eg sagði, að undanskildu því, að eg, í byrjun minnar aðalræðu, minti íhaldsmenn óþægilega á það, að sú væri almenn trú, að til væri einhver forsjón, og ef til vill ætti sú forsjón ekki minni þátt en fjármálaráðherra í góðærinu 1925. — Önnur mál, þau er eg mintist á, komu hvorki við stjórn né fhaldsmönnum sem flokks- heild. Vill nú minn elskanlegi herra stéttarbróðir gera svo vel og benda á, hvað af framangreindum ádeilu- atriðum sé »marghraktar lygar úr Tímanum«. Geti hann það ekki, verður hann sennilega að láta sér lynda, að svipað mark verði tekið á orðum hans og þeirra, er ósanninda- menn eru kallaðir. Gisli Magnússon. -----o---- Alþingi. Það var sett 9. þ. m. og voru þá allir þingmenn til þings komnir. Kosning embættismanna fór þannig: Forseti í sameinuðu þingi Magnús Torfason með hlutkesti milli hans og jóhannesar Jóhannessonar. Varafor- seti Tryggvi Þórhallsson, einnig með hlutkesti. Skrifarar Jón Auðunn og Ingólfur Bjarnason. — Til efri deildar kjörinn Einar Jónsson í stað Eggerts sál. Pálssonar. Forseti neðri deildar kosinn Bene- dikt Sveinsson með 14 atkv., 1. varaforseti Þorleifur Jónsson með 14 atkv. og 2. varaforseti Þórarinn Jónsson með 13 atkv. Skrifarar: Magnús Jónsson og Tr. Þórhallsson. Forseti í efri deild kosinn Halldór Steinsen með 8 atkv., 1. varaforseti Jónas Kristjánsson og 2. varaforseti ingibjörg H. Bjarnason. Skrifarar: Jóh. Jósefsson og Einar Árnason. í kosningabandalagi við Fram- sókn voru sjálfstæðismennirnir 3 og báðir jafnaðarmennirnir; náði það einnig til fastra nefnda og voru þær þannig skipaðar: Fjárhagsnefnd: Nd. Kl. Jónss., Halldór Stef., Líndal, Jón Auðunn, Möller. — Ed. Björn Kr., Jóh. Jó- sefss., Jónas Kr., Jónas Jónsson, Jón Bald. Fjárveitinganefnd: Nd. Þorleifur Jónss., Tr. Þórhallsson, Ing. Bjarna- son, Þórarinn Jónss., Jón Sig., P. Ottesen, Magn. Torfason. — Ed. Jóhannes, Ingibjörg, Einar Jónsson, Einar Árnason, Guðm. ólafsson. Samgöngumálanefnd: Nd. Klem- ens, Sveinn, Hákon, Jón Ólafsson, Pétur Þórðarson. — Ed. Björn Kr., Einar Jónsson, Jónas Kr., Magnús Kr., Einar Árnason. Landbúnaðarnefnd: Nd. Halldór Stef., Jörundur, Pétur Þ., Árni Jóns- on, Hákon. — Ed. Jónas Kr., Einar Jónsson, Ingvar. Sjávarútvegsnefnd: Nd. Ólafur Thors, Sigurjón, Sveinn, Bernharð, Héðinn. Ed. Björn Kr., Jóh. Jósefss., Jón Bald. Mentamálanefnd: Nd. Ásgeir, Magn. Jónss., Jón Guðnason, Klem- ens, Jón Kjartansson. — Ed. Ingi- björg, Jóhannes, Jónas Jónsson. Allsherjarnefnd: Nd. Jón Kjart- anss., Jón Guðnason, Hjeðinn, Árni, Jörundur. — Ed. Jóhannes, Guðm. Ól., Jóhann Jósefss. Stjórnarfrumvörpin, sem lögð hafa verið fyrir þingið, eru þessi: Frv. til laga um sveitastjórn, — um Landsbanka íslands, — um iðnaðar- nám, — um iðnað og iðju, — um rétt erlendra manna til að stunda at- vinnu á íslandi, — um viðauka við námulög, — um uppkvaðningu dóma, — um breytingu á skipun prestakalla, — um laun skipherra og skipverja á varðeimskipum rík- isins, — um afstöðu foreldra til ó- skilgetinna barna, — um gjald af innlendum vörutegundum,— um við- auka við lög um atvinnu við sigling- ar, — til fátækralaga, — um sam- skóla Rvíkur, — um heimild handa atvinnumálaráðherra til að veita sér- leyfi til járnbrautarlagningar milli Rvíkur og Þjórsár og til að virkja Þjórsá, — um útrýming kláða, — um heimavistir Mentaskólans, — til fjárlaga fyrir 1928, — til fjárauka- laga fyrir árið 1926, — um samþykt á landsreikningnum 1926, — um breyting á stjórnarskránni. Von á fleiri stjórnarfrv. síðar. Áætlaðar tekjur á fjárl. frumv. kr. 10,494,600,00, en gjöldin kr. 10,391,508,33. Frv. til stjórnarskrárbr. fer fram á þinghald annað hvert ár og að fjárhagstímabilið verði tvö ár. Kjör- tímabil landskjörinna verði 6 ár. Samskólafrumv. fer fram á sain- steypu gagnfr.,- verzlunar,- iðn- og vélstjóraskólanna, og síðar stýri- manna og kennaraskólans. S í m s k e y t i. Rvík 12. febr. Formaður Búnaðarfélags íslands tilnefndi 5 manna nefnd til þess að rannsaka áburðarmálið. Nefndina skipa: Halldór Vilhjálmsson, Páll Zóphóníasson, Benedikt Blöndal, Björn Hallsson og Jakob Líndal. Fjármálaræða Jóns Þorlákssonar í neðri deild var ítarleg og fróðleg. Taldi hann tekjur og gjöld ríkissjóðs árið 1926 sem næst standast á; tekjunar reynst 12% miljón og farið 2J/2 miljón fram úr áætlun. Tóbaks- tollurinn hafi farið 658 þús. fram úr áætlun fjárlaganna, er stafi af breyttri löggjöf, en þar sem niður falli tekjur tóbakseinkasölu, fari raunverulegar tóbakstekjur 410 þús. fram úr áætlun. Verðtollur hafi far- ið 492 þús. fram úr áætlun fjárlag- anna 1926. Tekjuhalli hafi verið á- ætlaður 473 þús., en tekist að af- stýra honum; ennfremur hafi verið unt að greiða kæliskipsframlagið af tekjum ársins. í gjöldum ársins væri innifalin einnar miljónar afborgun af skuldum. Ráðherran sagði, að þótt fjárhagsafkoma ríkissjóðs væri eftir öllum vonum, þá fæli hún í sér ýms- ar átninningar um að fara gætilega í fjármálunum. Gengi krónunnar hefði verið stöðugt alt árið, 81,6%. Til 5. febr. voru veitt úr 5. og 6. flokki veðdeildarinnar 487 lán, að upphæð 3,544,700 kr.; eftirspurnin hefir verið mikil og langt frá því að lokið sé að fullnægja henni. Rækt- unarsjóður veitti á árinu 281 lán, að

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.