Dagur - 31.03.1927, Side 3
13. fbl.
BiQUS
49
Síms keyt i.
Rvík 28. marz.
Björn Þórðarson varði á laugardag-
inn var doktorsritgerð við háskólann,
um refsivist á Islandi frá 1761—1925.
Sérleyfi Titans hefir verið samþykt í
Néðrideild með 19 : 9 atkv. og sent til
Efrideildar. Á móti voru Ben. Sv.,
Árni, Bernh., Héðinn, Möller, Thors,
Ottesen, Tryggvi og Þórarinn. — Jónas
Kristjánsson ber fram tillögu til þings-
ályktunar um að veita stúdentaefnum
frá Akureyri ferðastyrk suður, til þess
að ganga undir próf við Mentaskólann.
ísland heitir nýtt frjálslynt vikublað,
sem farið er að koma út í Reykjavík.
Ritstjóri þess er Guðmundur Benedikts-
son. — Sóttvarnarráðstöfunum hefir
verið létt af.
Frá Oslo er símað að allir hafi verið
sýknaðir í Berges-málinu.
Rvík 29 marz.
Vantraustsyfirlýsing Héðins var rædd
í dag'. Þessi hafa orðið úrslit þingmála:
Frumvarp um iðnaðarnám hefir verið
samþykt. — Frv. um heimild fyrir rík-
isstjórnina að ábyrgjast Landsbanka-
lán hefir verið samþykt. — Frv. .T.
Baid. mn forkaupsrétt kaupstaða á
jörð í nágrannahreppi felt. — Þings-
ályktun M. Kr. um rannsókn á kostnaði
við að bygg'ja fullkomna síldai'verk-
smiðju samþykt.
Óðinn hefir tekið hollenzkan togara
og flutt til Vestmanneyja.
Mikið er rætt hér um nýtízku aðferð-
ir við fiski-iðnað, nýjar verkunarað-
ferðir, flatningsvélar o. s. frv. Er talið
senniiegt að skriður fari að komast hér
á hagnýting nýjustu tækja á þessu sviði.
Rvík 29. marz
Þorleifur, Ti-ygg'vi, Bernhaið, Guðna-
son og Ingólfur bera fram breytingar-
tillögu við vantrauststillögu Héðins svo-
hljóðandi: Neðrideild ályktar að lýsa
yfir, þar sem vitanlegt er að núverandi
stjórn eí' í minnihluta í Neðrideild og
án meirihluta-stuðnings í Sameinuðu
þmg'i, og' að eigi er sjáanlegt að hægt
verði að mynda meirihluta-stjóm á
þessu þingi, en kosningar fara í hönd,
verður að svo stöddu litið svo á, að
stjórnin sé starfandi til bráðabirgðar.
Framhaldsumræður um vantraustið
liefjast kl. 9.
------0------
F r é 11 i r.
— Látin er á öngulsstöðum í Eyja-
firði húsfreyjan Jónína Stefánsdóttir
kona J óns Jónatanssonar bónda þar.
Jarðarför hennar er auglýst á öðrum
stað í blaðinu.
— Geysir söng kl. 5 á sunnudaginn í
samkomuhúsi bæjarins við ágæta að-
sókn. Söngurinn tókst vel og skemtu á-
heyrendur sér ágætlega. Geðblær flokks-
ins virtist léttari og' ánægjulegri en síð-
ast og söngurinn þróttugri. Aðsóknin
sýnir, að engar skemtanir eru mönnum
geðþekkari hér á Akureyri en söngur,
og að Geýsir hefir ekki brugðist von-
um fólksins.
— Bæjarfógetinn á Siglufirði hefir
nýlega höfðað meiðyrðamál gegn séra
Gunnari Benediktssyni í Saurbæ, fyrir
un/mæli í nýjustu bók G. B. »Við þjóð-
veginn«. Telur hann að á ummælin verði
alment litið sem ærumeiðandi dylgjur í
sinn garð. Krefst hann þess að umrnæl-
in verði dæmd dauð og ómerk, höfundin-
um refsað og bókin gerð upptæk. Böðvar
Bjarkan lögmaður ver málið fyrir rit-
höfundinn.
— Taugaveikin hefir stung'ið sér nið-
ur í gamla hótelinu inn í bænum og
liggja tveir sjúklingar. Hafa þeir verið
teknir í einangrun. Eigi veit héraðs-
læknir að svo stöddu hvaðan veikin staf-
ar. Skiftir mikiu að slíkt verði þegar í
byrjun röggsamlega rannsakað svo að
»stemmd verði á að ósi« og komist verði
hjá taugaveikisfaraldri þvílíkum, sem
herjaði Isafjörð og Sauðárkrók.
— Konráð Kristjánsson heitir maður
frá Lækjarbakka sunnan Akureyrar.
Hann er einn af þeim, sem lömunar-
veikin heimsótti. Þó hefir hann nú náð
nckkurri heilsu. Konráð er ágætur járn-
smiður. Hann hefir sett upp verkstæði
áustan við verzlunarhús Kf. Eyf. og
'gerir þar listavel að reiðhjólum. Verða
hjólin eins og ný úr höndum hans.
------o-----
Ragnar Lundborg
prófessor, Islandsvinurinn góð-
kunni, hefir nýlega samið dálitla
bók um ísland og er hún gef-
in út sem nr. 114 í sænska
»Barnabókasafnimi Saga«. Bók-
in er 212 bls. í litlu broti og er
einskonar ritgerðasafn um ým-
isleg íslenzk efni, forn og ný. Er þar
víða komið við og margháttaður
fróðleikur saman settur uin landið
og þjóðina. Fjalla þær um landa-
fræði íslands, sögu landsins, stjórn-
mál þjóðarinnar, menningarsögu
hennar, bókmentir fornar og nýjar,
trú og siði og margt fleira. Alt er
þetta ritað af hlýjum velvildárhug til
lands og þjóðar og góðum skilningi
á sögulegum og menningarlegum
efnum. Þó má segja að höfundi vaxi
nokkuð í augum hæfileikar og afrek
Bjarna frá Vogi, sem er hinn eini af
síðustu tíma íslendingum, er höf-
undurinn ritar um sérstaklega.
Bjarni átti að vísu mikinn og góðan
þátt í ýmsum nytjaverkum og stór-
mælum þjóðarinnar. Þó er ekki unt
að benda á neitt stórt og afmarkað
lífsafrek, sem eftir hann liggi. En
slíks mætti vænta um mann, sem er
talinn höfuðskörungur sinnar tíðar,
eins og hér er gert í þessari bók.
Þetta er að vísu dálítill galli á bók-
inni, en ekki bagalegur. Að öðru
Icyti er hún þörf og þakkarverð
kynning íslands og íslenzkra efna
hjá frændþjóðinni, sem um margt er
talin vera líkust okkur af öllum
Norðurlandaþjóðum. Frásagnarhátt-
ur höfundar er hlýr og fullur al-
úðar og skilnings, eins og vænta
mátti frá hendi þess ágæta fræði-
manns og vinar okkar Islendinga,
sem hér hefir veriö að verki.
------o-------
Hús til sölu.
Nýlegt, gott steinhús á bezta stað í bænum,
vandað að öllum frágangi, þægilegt fyrir litla
fjölskyldu.
Allar nánari upplýsingar gefur
Björn frá Múla,
í verzluninni »Norðurland«. Símanúmer 188.
Grammófónplöíur
íslenzkar, eftir Pétur, Skagfeldt, Eggert Stefánsson (sálmar og
önnur nýsungin lög) og Einar Markan, ágætar dansplötur, har-
móníku og orkesterplötur, svo sem Bacelona, Vanencía o. fl.,
svo og útlendar söng- og fiðluplötur, eru nú nýkomnar.
Verð á plötunum hefir lækkað mikið.
Enginn á landinu býður eins góð kaup á þessum vörum og
eg nú. Sannið til.
Plötur sendar út um land gegn póstkröfu, þó minst 5 plötur
í sendingu.
Freymóður jóhannsson,
málari.
I Molskinn I
(gl
sterk og ódýr, fást í
J Brauns Verzlun. |j|
J Sportbuxur^
<§? nýkomnar í (§>
^ Brauns Verzlun. ||
(& /'"\Oi @>
í@) IU o ^
^ a-f-s-l-a-t-t-u-r 0
(§) af enskum húfum í (g)
H Brauns Verzlun. j
Pdll Sigurgeirsson. ^
Smjörlíkið
gó ða, hollenska komið aftur. Kostar nú
aðeins kr. 1.70 KÍlólO.
Jón Guðmann.
Al 1 a r islenzkar bœkur kaupir undirrit-
aður. Fágætar bækur greiddar háu verði.
Hefir til sölu flestar ísienzkar bækur.
JÓNAS SVEINSSOfl
Eyrarlandsveg 3 Akureyri.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.
P i 1 s n e r
Bezt — Ódýrast.
Innlent.
Leður-
sjóstígvél,
íslenzk smíði, fást i
Kaupfélagi
Eyfirðinga.
Guðspekibœkur.
Eg undirritaður hefi fyrst um sinn
til sölu allar þær bækur, sem hafa
komið út á íslenzku um guðspeki-
leg efni. Sömuleiðis flestar danskar
bækur um sama efni.
Akureyri 30. marz 1927,
Sigurgeir Jónsson.