Dagur - 04.11.1927, Page 5
46. tbl.
DAGUR
179
0
0
m
m
m
m
m
0
tsi)
(i
0
0
I vetrarkuldanum:
Vetrarfrakkar hlýir, vetrarhúfur, kvenkápur, ungl. og telpu
kápur, ágætt og ódýrt káputau í stærstu úrvali, vetrar herra-
og dömunærföt, ullartreflar afar ódýrir, ullar-undirkjólar,
golftreyjur fyrir fullorðna og börn, herra skinnvesti með og
án erma, sokkar allskonar, peysur, herra-prjónavesti, ullarvetl-
ingar alfóðraðir, príma leðurhanzkar fyrir dömur og hena,
dömu-hlífðarstígvél á 10.75, ullargarn í 30 litum.
BALDUIN RYEL.
(&1
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
og notuðu jafnframt rækilega
tækifærið til þess að skoða hælið.
Luku þar allir lofsorði á og fóru
heim glaðii' og hrifnir af minn-
ingu dagsins. — Lýsing á Heilsu-
hælinu birtist síðar-í blaðinu.
------o-----
/ Kristnesi
1. Nóv. 1927.
Glæst er sýn af Sólarfjalli*
— sumar glaður morgun skín. —
Breiður faðmur blárra hlíða
býður gestum heim til sín.
Hátíðlega á höfði bera
hnjúkar allir drífhvít lm.
Burt var lagt frá blóðgum strönd-
um,
byi'ðing stefnt á ókunn höf.
Hikað éí né horft til baka
hugarþrot ei olli töf.
Famsókn var í formanns ráði.
Farsæld drottins — vöggugjöf.
Sér nú vítt af Sólarfjalli
sá er marki hefm' náð.
Meiri dýrð en augað eygir
alarei var í hug ’ans spáð.
Hér beið akur — hann var fræið
helgri guðs úr mundu sáð.
Er nú fullur aldatugur
yfir runninn sporin hans.
Ennþá bera endurminjar
æfintýra- og hetju-glans.
Því skal bær hans rísa úr rústum
rausnar stærstur norðanlands.
Miklist þjóð af mætum stofnum
muna þarf ’ún hlutverk sín.
Framsækin og fús til starfa
fótviss þar sem gatan dvín.
Röðull frelsis ár og aldir
yfir henni bjartur skín.
*
!! Helgi magri var hinn fyrsta vetur
á Hámundarstöðum fyrir innan
Svarfaðardal. Um vorið ,gekk hann
upp á »Sólarfjall« og' litaðist um og
rnun hafa litist fegurra fram til hér-
aðsins. Eftir það sigldi hann inn
í fjarðarbotninn og reisti bæ sinn í
ICristnesi og bjó þar síðan.
------o------
>Óðinn« kom hingað í morgun.
F r é í t i r.
Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri og
frú hans fóru skjóta ferð til Reykjavík-
ur um síðustu helg’i.
»Esja« kom hér í /yrradag og fór
aftur um miðjan dag i gær austur um
land.
»Goðafoss« kom frá útlöndum, aust-
an um land um hádeg'i í gær. _ Hafði
verið 24 tíma frá Húsavík, og legið á
Grímseyjarsundi í fyrrinótt vegna
dimmviðris. Margt farþega var með
skipinu frá Húsavík; sumir á leið til
Reykjavíkur, meðal þeirra séra Jón
Arason, til þess að leita sér lækninga
við bólgu á hálsi. Hingað komu meðal
annara Sigurður Rjarklind kaupfélags-
stjóri, Páll Sigurðsson simastj. og Sig-
urjón Friðjónsson á Laugum með konu
sína, sem fer á Kristneshæli til dvalar.
Goðafoss fer héðan til Rvíkur á Laug-
ai'dagsmorgun.
Foraðsveður hefir verið síðustu 3
daga hér á Norður- og Austurlandi.
Fyrst norðaustan krapahríð og rigning
með hvassviðri, en svo fór aftur að
hríða og herða frostið. Mun því orðið
mjög ilt til jarðar.
Framsóknarfélag Akureyrai' hafði um-
ræðufund i Samkomuhúsinu á Mánu-
dag'skveldið 31. f. m. — Fundinn sóttu
og nokkrir bændur úr nágrenninu og
var hann allfjölmennur. Ráðherra Jón-
as. Jónsson flutti erindi á fundinum,
sag'ði helztu stjórnmálafréttir og nýj-
ungar í þjóðmálunum, og talaði í tæpar
2 stundir. Þótti fundarmönnum kenna
þar margra grasa, enda bar ýmislegt
nýstárlegt á góma.
Gestir í bænum hafa verið þessa viku
ráðherra Jónas Jónsson, landlæknir
Guðmundur Björnson, húsameistari
Guðjón Samúelsson og' verkfræðinguf
Guðmundur Hlíðdal. Fara þeir suður
með varðskipinu »Óðni«, nú í vikulokin.
Á suðurleið koma þeii' á Kolkuós (og
þaðan til Hóla) svo og Isafjörð og
Patreksfjörð.
Heiðurssamsæti var dómsmálaráð-
herra Jónasi Jónssyni haldið á Hótel
Gullfoss, Laugardaginn 29. f. m. af
nokkrum flokksmönnum hans. Voru þar
saman komin um 60 manns. Veizlan
hófst kl. 7. s. d. og stóð til kl. 3
um nóttina. Jón Stefánsson stjórnaði
samsætinu og' bauð heiðursgestinn vel-
itÁí
Vetrarhúfur.
16 teg. af karlmanna og drg. vetrarhúfum er úr að velja.
Verð frá Kr. 3.00 til Kr. 37.00.
Brauns Verzluij.
Páll Slgurgeirsson.
kominn í hóp vina og samherja. Yfir
borðum fóru fram fjörug' ræðuhöld.
Skólameistari Sigurður Guðmundsson
flufti aðalræðuna fyrir minni heiðurs-
gestsins, en ráðherrann þakkaði með
langri ræðu, Brynleifur Tobiasson mint-
ist hinna ráðherranna, Tryggva Þór-
hallssonar og Magnúsar Kristjánssonar,
en heiðursgesturinn þakkaði fyrir
þeirra hönd. Þorsteinn M. Jónsson
mælti fyrir minni Framsóknarflokksins,
en Ingimar Eydal fyrir minni íslands.
Að því loknu hófust frjáls ræðuhöld og
var mælt fyrir ýmsum minnum, voru
heiðursgestinum enn fluttar ræður og
kvæði.Skemtu menn sér hið bezta, og
munu þeir lengi minnast þessara á-
nægjulegu stunda með heiðursgestinum.
Kirkjan. Messað verður í Akureyrar-
kirkju á Laugardagskvöldið kl. 8%. Á
Sunnudaginn fellur messa niður, vegna
prestskosningar.
Skemtinefnd Gagnfræðaskólans hélt
fjölmenna samkomu í skólanum, Sunnu-
daginn 30. f. m., til þess að fagna dóms-
og kenslumálaráðherra Jónasi Jónssyni
og flytja honum þakkir fyrir þau rétt-
indi og gjafir, sem hann færði skólan-
um og getið er um á öðrum stað í blað-
inu. Þangað var og boðið ýmsum borg-
urum úr bænum, sem sérstaklega höfðu
stutt með áhuga kröfur Norðlendinga
um mentaskóla á Akureyri, og gestum
þcim úr Reykjavík, er nú dvelja hér í
bænum. — Um 200 manns sátu við
kaffisamdrykkju og ræðuhöld í leik-
fimishúsi skólans frá kl. 9 s. d. til 2 um
nóttina. Verður þess nánar getið síðar.
Dómsmálaráðherra hefir nýleg'a skip-
að svo fyrir, að á ríkissjóðsskipinu
»Esju«, megi ekki flytja drukkna
menn; á skipstjóri að setja slíka menn
á land á næstu höfn, sem komið er á,
eftir að vart verður drykkjuskapar
þeirra.
Erindi flutti ráðherra Jónas Jónsson
í Samkomuhúsi bæjarins Sunnud. 30 f.
m. kl. 4 s. d., fyrir troðfullu húsi. Fjall-
aði erindið um lilutverk Akureyrar í
viöreisn fslahds. Benti hann á ýmsar
minjar og skilyrði þess að Akureyri
hefði verið og' ætti líka framvegis að
vera annar höfuðstaður landsins.
Nefndi hann stefnur og nýjungar, sem
hér hefðu þróast, og síðar orðið mikils
ráðandi í landinu. Talaði ráðherrann
hátt á annan klt. og var bezti rómur
Myndastofan
Gránufélagsgötu 21 er opin aila daga
frá kl: 10-6.
öuðr. Funch-Rasmussen.
Karlm.föt
blá og mislit, sérlega ódýr,
Vetrarstórtreyjur,
þykkar og hlýjar á kr. 24,00
nýkomið í
Brauns Verzlun.
Páll Sigurgeirsson.
Ljósmynd
af gömlu Dómkirkjunni á Hólum í
Hjaltadal óskast send með póstkröfu
til Aage Jamiche Österbrogade 36
Köbenhavn„ helst þrjú eintök; t. d,
Amatör myndir.
gerður að máli hans. Verður síðar skýrt
nánar frá þessu erindi hér í blaðinu.
Ágóða af fyrirlestrinum á að verja til
kaupa á nýtízku íþróttatækjum handa
Gagnfræðaskólanum.
-------O-------
Réttaröryggi.
Jón Þorláksson hefir orð fyrir íhald-
inu í Verði og telur að réttaröryg'gi
muni ekkert verða í landinu undir
stjórn hins nýja dómsmálaráðherra, af
því að hann sé ekki lögfræðingur.
Reyndin mun sýna hvort Jón verður
sannspár að þessu.
En það er strax farið að biydda á
þverrun annars öryggis síðan hinn nýi
dómsmálaráðherra kom til sögunnar.
Þegar þjónarnir á kaffihúsum höf-
uðstaðarins eru beðnir af þurfandi
gestum að sýna þeim samskonar lipurð
í veitingum og áður, hvísla þeir flótta-
lega:
»Vi tör ikke for Jonas«.
Og fleiri eru ekki örug'gir fyrir rétt-
vísinni.
Atkvæðaþjófum líst ekki á blikuna.
Gjaldkerar og' tollheimtumenn eru þessa
dagana dauðhræddir við að stela úr
sjálfs síns hendi.
De tör ikke for Jonas.
(»Skutull«).