Dagur - 16.03.1928, Qupperneq 3
12,;tbl.
/
DAQUR
49
nánari athugun en hingað til hefir ver-
ið gert.
Eins og kunnugt er, er Holtshrepp-
ur yzti hreppurinn í Skagafjarðarsýslu.
Skerst sem stór dalur inn í hinn mikla
fjallgarð, sem gengur frarn milli Eyja-
fjarðar og Skagafjarðar. Þar er því
vetrarríki allmikið, en landkostir sér-
lega góðir. Einlembingsdilkar skerast
þar vanalega nú orðið með 20—25 kg.
kjöts; enda leggja bændur þar mjög
milda áherzlu á að bæta fjárkyn sitt.
Mjög er þar sumarfagurt; engjar
rennisléttar og grösugar.
Fjöllin vaxin grasi og lyngi upp á
efstu brúnir að heita má, en vötnin
spegilslétt og blikandi hið neðra. Ekki
eru bændur þar alment efnaðir, en þeir
hafa flestir snotur bú, eiga samkvæmt
síðustu skattskrá frá 3—22 þúsund
skuldfrítt; flestir eru þeir sjálfseignar-
hændur.
Fyrir nokkru fann eg g'jaldkera
hreppsins að máli, og spurði hann um
fjárhagsástæður hreppsins, kvað hann
þær mega heita góðar, skuldir væru
litlar og þarfir mundu minka að minsta
kosti um Y5 eða máske meir á þessu ári.
Tvö ungmennafélög eru starfandi í
hreppnum, annað í Stíflu en hitt í Nið-
ur-Fljótunum.
Þau eru nýlega búin að halda aðal-
fund sinn fyrir árið 1927 og jeg var
svo lánssamur að fá tækifæri til að
sitja á fundi hjá báðum félögunum, og
get eg ekki látið hjá líða, að minnast
þeirra nokkuð nánar. Ungmennafélagið
»Von« í Stíflu hélt aðalfund sinn 8.
Janúar. Þar voru 60 boðsgestir við-
staddir — það hefir verið vani þessara
félaga undanfarin ár, að bjóða vinum
og kunningjum að sitja aðalfundi sína
— Fundurinn var hinn ánægjulegasti,
var þar gefið yfirlit yfir starfsemi fé-
lagsins á liðna árinu fjárhag þess og
framtíðarhugsjónir. Að afloknum fundi
var sest að drykkju, var drukkið bæði
kaífi og súkkulaði.
Til skemtunar voru ræðuhöld og dans.
Félagið er nú 10 ára. Það hefir jafn-
an haft fáum meðlimum á að skipa.
Vorið 1926 byrjaði það á að koma sér
upp heimili. Það er bygt úr steinsteypu.
Nokkur hluti þess er notaður fyrir
barnaskóla handa börnum úr Stíflunni.
Áætlað er að húsið muni koma upp á
ca. 6000 kr., þegar það er fullgert.
Peninga til þessarar byggingar hefir
félagið fengið að mestu leyti fyrir hey,
sem það hefir heyjað að sumrinu og
selt aftur að vetrinum. Bændur í Stíflu
hjálpuðu félaginu líka nokkuð með
fjárframlögum og vinnu.
Ennfremur hefir félagið lagt út c. 500
krónur til vegagerðar í hreppnum.
Hitt félagið, »Ungmennafélag Holts-
hrepps«, hélt aðalfund sinn 22. Janúar
síðastl. Boðsgestir voru 80.'
Fundurinn fór að öllu leyti fram
eins og hjá hinu félaginu og veitingar
á sama hátt, kaffi og súkkulaði. Þar
var til skemtunar meðal annars: Ræðu-
höld, upplestur, söngur og dans. Var
skémtunin að öllu hin prýðilegasta og
til stórsóma fyrir félagið. Félagið er
nú 9 ára, stofnað 1919. 1926 byrjaði
það á að reisa sér heimili. Það stendur
á mjög fögrum stað nálægt Miklavatni.
Það er bygt úr steinsteypu og mun
rerða hið prýðilegasta þegar það er
fullgert. Áætlað er að það muni koma
upp á 6—7000 kr.
Það er ætlun félagsins að hflsið verði
einnig í framtíðinni barnaskólahús fyr-
ir Niður-Fljótin. Sundkenslu hefir fé-
lagið látið starfrækja síðan það var
stofnað.
Margar prýðilegar skemtanir hafa
félögin haft nú á síðari árum. Eina
sameiginlega samkomu hafa félögin á
hverju sumri. Er þar margt til skemt-
unar, svo sem knattspyrna, hlaup, stökk
og' sund. Er þá alt á ferð og flugi í
héraðinu því samkomur þessar eru sér-
lega vel sóttar. Mætti til dæmis taka,
að á síðastliðnu sumri voru saman kom-
in rúm þrjú hundruð manns í húsi ung-
mc-nnafélags Holtshrepps, að horfa á í-
þróttir sem þar voru framdar. Méðal
annara sem héldu þar ræður voru þeir
Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi
og Kristinn Stefánsson guðfræðisnemi.
Eg vona nú að hafa brugðið upp svo
slcýru ljósi yfir efnahag, mentun og
menningu Holtshrepps, að menn sjái
að ástandið er alt annað en menn hafa
heyrt talað um. Eða hvernig ættu tvö
ungmpnnafélög að þrífast í sveit, sem
elcki hefir nema 34 búendur, ef þeir
væru ófélagslyndir og menningarsnauð-
ir, og hvernig ættu tvö fátæk félög að
hafa bygt sér 2 liús, sem bæði til sam-
ans munu kosta uppkomin 13—14000
krónur, ef menn væru ekki duglegir og
framtakssamir? Og það merkilegasta er
að félögin skulda sama og ekkert þrátt
fyrir allan þennan kostnað.
25. Jan. 1928.
Hannes Hannesson.
-------O--------
G j a1d s kr á
fyrir nokkur algengustu læknisstörf.
71. Aðgerð á liðhlaupi og fyrstu um-
búðir: a) kjálkaliður kr. 1.00. b) axlar-
liður kr. 2.00. c) augnakarlar kr. 4.00.
d) ölnbogaliður, hnjáliður, öklaliður
eða úlfliður kr. 3.00. e) fingurliður, tá-
liður kr. 1.00.
72. Ef liðhlaup er gamalt, er gjaldið
tvöfalt á við það, sem til er tekið í 71.
lið.
73. Hinar meiri sköpulagsaðgerðir:
gert augnalok, nef, vör eða gómur; gert
við margbrotið skarð í vör kr. 10.00.
74. Gert við einfait skarð í vör kr.
6.00.
75. Að stífa af tungunni eða tunguna
af kr. 8.00.
76. Að opna barkakýlið eða barkann
kr. 8.00.
77. Að skera stykki úr barkakýlinu
kr. 15.00.
78. Að opna kokið eða vælindið kr.
15.00.
79. ' Að skera til graftar í lungna-
sekknum kr. 8.00.
80. Að opna þarfagang þvaggang eða
leggang, ef luktir eru að utan kr. 3.00.
81. Að opna, ef lukt er inni fyrir í
þarfagangi, þvaggangi, laggangi eða
legopi kr. 7.00.
82. Aðgerð á innýflum í kviðarholi,
skorin út æxli, sullir skornir úr kviðar-
holi eða brjóstholi kr. 20.00.
83. Að ýta inn hræranlegu kviðsliti
eða þarfagangssigi kr. 2.00.
84. Að þrýsta kviðsliti úr sjálfheldu
kr. 6.00.
85. Aðgerð á sjálfheldu kviðsliti,
gerður þarfagangur, eða lokað skökk-
um þarfagangi (anus præternat) kr.
15.00.
86. Aðgerð á þarfagangsfistli, eða
þarfagangssigi, eða gylliniæð kr. 6.00.
87. Tekinn út þarfagangurinn kr.
15.00.
88. Tekið þvag af manni kr. 2.00.
89. Tekið þvag af konu kr. 1.00.
90. Ef aðgerðir þær, er um getur í
88. og 89. lið, eru iðkaðar um langan
tíma, þá er fult gjald í fyrsta skifti
en hálft úr því.
/
91. Skorin »phimosis« eða »paraphi-
mosis« kr. 3.00.
92. Löguð »paraphimosis« án skurð-
ar kr. 1.00.
93. Þvaggangsskurður kr. 6.00.
94. Aðgerð á þvaggangsfistli kr. 6.00.
95. Að taka »penis« af kr. 6.00.
96. Að spegla blöðruna, það eitt kr.
5.00.
97. Að skola blöðruna, það eitt kr.
1.00.
98. Að skera.til steins, eða mylja
stein (í einni eða fleiri lotum) kr. 20.00.
99. Aðgerð á æðahaulvi (varicocoele)
kr. 5.00.
100. Að vefja heftiplástri um eista
kr. 1,00.
101. Að skera í vatnshaul kr. 6.00.
102. Að taka úr annað eða bæði eistu
kr. 8.00.
103. Blóðgjöf (transfusio) kr. 8.00.
104. Skift umbúðum eftir hinar
7
meiri aðgerðir, þar sem þörf er á fullri
sóttkveikjuvarúð kr. 2.00.
105. Sama eftir hinar minni aðgerð-
ir kr. 1.00.
106. Ef oft er skift umbúðum eftir
sömu aðgerð, þá er fult gjald fyrir 3
fyrstu skiftin, en hálft úr því.
-------O--------
Á vidavangi.
Bæjarstjóra-kosningunni
á Akureyri hefir verið frestað.
Þess var áður getið hér í blaðinu,
að kosningin færi fram 6. þ. m.,
samkvæmt ákvörðun bæjarstjórn-
ar. Hafði hún auglýst að kosning-
in færi fram samkvæmt lögum nr.
65, 14. Nóv. 1917, þar sem ákveð-
ið er að bæjarstjórnin skuli kjósa
bæjarstjórann, og voru umsækj-
endur tveir — Jón Sveinsson og
Jón Steingrímsson. — En örfáum
dögum áður en kosning skyldi
fram fara, kemur upp ágreining-
ur meðal lögfræðinga hér í bæn-
um» eftir hvaða lögum ætti að
kjósa bæjarstjórann. Lögfræðing-
ur utan bæjarstjórnar benti á að
um þessa kosningu yrði að fara
eftir lögum nr. 48, 1926, sem
gengu í gildi um síðastliðið nýjár,
og þar væri ætlast til að kaup-
staðarborgararnir yfirleitt kysu
bæjarstjórann með venjulegri
kosningaaðferð, en ekki bæjar-
stjórnin. Eftir mikið stapp ákvað
kjörstjórnin að leita fyrir fram
úrskurðar frá Atvinnumálaráðu-
neytinú, um eftir hvaða lögum
ætti að kjósa hæjarstjórann, áður
en bæjarstjórnin legði dóm á það
eða ákvæði um það í annað sinn.
Ráðuneytið varð við þeirri ósk
og úrskurðaði, að bæjarstjórann
ætti að kjósa samkvæmt nýrri
lögunum, af ölluml borgurum bæj-
arins. Bæ j arstj órnarf ulltrúarnir
og bæjafstjórinn voru því heldur
t
Kristján Jónsson.
Kristján Jónsson óðalsbóndi að
Glæsibæ við Eyjafjörð létst að
heimili sínu Laugardaginn 10.
Marz s. 1. Hann var tæpra 70 ára,
fæddur 12. Apríl 1858. — Krist-
ján sál. var merkur maður á
marga lund. Hann var skarp-
greindur, gleðimaður og kappsam-
ur fram á síðustu ár flestum
mönnum framar, þeirra sem við
erfið lífskjör eiga að búa. Hann
var ör í lund og hreinskilinn og
orðlagður dugnaðarmaður, að
hverju sem hann gekk. Framsæk-
inn var hann og áhugasamur um
félagsmiál, og lét sveitar- og hér-
aðsmál mikið til sín taka. Hann
var um skeið sýslunefndarmaður
fyrir Glæsibæjarhrepp. Ábúðar-
jörð sína hefir hann stórbætt,
bygt þar öll hús, og vandað til.
Sjálfur var hann hagur.
Kristján var kvæntur- Guðrúnu
Oddsdóttur frá Dagverðareyri.
Hún létst fyrir rúmum tveim ár-
um. Þau hjónin eignuðust 9 börn
og eru 6 þeira á lífi.
Kristján var hinn mesti styrkt-
armaður bindindismálsins. Söng-
maður var hann góður og héít
rödd sinni til hins síðasta.
Sjúkdóms þess, er varð bana-
mein hans, kendi hann fyrst á
síðastliðnu vori.
niðurlútir á bæjarstjórnarfundin-
um á Þriðjudaginn, þegar það
kom í Ijós að stofnað hafði verið
til kosningarinnar af misskilningi
og að kjörrétturinn var fallinn úr
greipum þeirra! — En þeir girtu
sig aftur í^nýja brók, og ákváðu
að auglýsa bæjarstjórastarfið á
nýjan leik og undirbúa aðra kosn-
ingu samkvæmt nýju lögunum,
sem að líkindum fer þó eigi fram
fyr en í Maí n. k.
-----o----
Simskeyti.
Rvík. 10. Marz.
útför sjómannanna, sem fórust
af »Forsetanum, er hin fjölmenn-
asta, sem verið hefir hér á landi,
sennilega 8—10 þúsund manns.
Stjórnin hefir afhent 5000 kr.
til úthlutunar meðal bágstaddra
ættingja þeirra sem druknuðu.
Tveir menn duttu út af vélbátn-
um »Braga« við Vestmannaeyjar
í gær og druknuðu; hétu þeir Sig-
urður Böðvarsson og Guðjón
Jónsson, báðir úr Mýrdalnum. —•
Fundur var haldinn í Reykjavík
í gærkveldi um síldarmlálin. Voru
þar mættir 151 útgerðarmenn, eða
umboðsmenn fyrir 151 síldveiða-
skip og 21 síldarsöltunarmenn.
Eftir miklar umræður var samþ.
svohljóðandi tillaga frá óskari
Halldórssyni: a) Fundurinn mót-
mælir ríkiseinkasölu á síld í hvaða
mynd sem er, meðan útgerðar-
menn hafa ekki aðgang að full-
komnum síldai*verksmiðjum.
b) Ennfremlur skorar fundur-