Dagur - 11.05.1928, Page 2
32
DAGUR
21. tbl,
Saraínutau Brauns Verzlur).
^llll!llllllllllll!ll!llll
g Máiningarvörur
HM
nýkomnar:
Zinkhvíta, Mislit máining í öilum iitum,
Fernisolía, Purkefni, Emaillering hvít,
Kítti, Oulokkur, Löguð máining í
öllum litum tii heimilisnotkunar.
W* KAUPFÉL. BYFIRÐINGA
mmmmmmmmá
aaníiœ
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-ö.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Borgarafundur
var haldinn hér í samkomuhúsi bæjar-
ins 5. þ. m., að forgöngu stjórnar
»Verkiýðssambands Norðurlands«, til
þess að ræða um bæjarstjórakjör á Ak-
ureyri sem væntanl. fer fram 16. þ. m.
Stóð fundurinn frá kl. 9 s. d. til kl. 3
um nóttina. Formaður »Verklýðssamb.«,
Erlingur Friðjónsson, setti fundinn og
gat þess að bæjarstjóraframbjóðendun-
um væri hér með gefið tækifæri til þess
að lýsa skoðunum sínum og afstöðu til
bæjarmála; tilnefndi hann Halldór Frið-
jónsson fyrir fundarstjóra. Jón Stein-
grímsson bæjarfógetafulltrúi tók því
næst til máls, og flutti skýra og skipu-
lega framboðsræðu. Gerði hann grein
fyrir hlutverkum bæjarfélagsins og
skyldum til þess að skipa málum bæjar-
búa til hagsbóta fyrir heildina.. Lýsti
hann því ákveðið ýfir að hann væri
jafnaðarmaður, og taldi því heppilegast
að haga verkefnum bæjarfélagsins
samkvæmt tillögum og stefnuskrá jafn-
aðarmanna. En eitt grundvallarskilyrði
til þess væri það, að bæjarfél. sjálft
hefði eignarhald á öllum löndum og
lóðum í lögsagnarumdæmi Akureyrar.
Að vísu hefði landeign bæjarins verið
aukin fyrir allmörgum árum, með jörð-
um í nágrenninu; en ýmsar verðmæt-
ustu lóðir bæjarins hefðu gengið honum
úr greipum. Mintist hann í því sam-
bandi sölu Oddeyrarinnar, og taldi að
framkoma núverandi bæjarstjóra hefði
verið mjög slæleg í því máli, þar sem
hann hefði aðeins haft ómerkilegt
»götuviðtak við umboðsmann seljenda
Oddeyrarinnar um það efni, er að vísu
hefði reynst ósvífinn í viðskiftum. Þá
nefndi hann nokkur fleiri dæmi um
mistök bæjarstjóra J. Sv. í forstöðu
bæjarmálanna og samningum fyrir bæ-
inn, þar á meðal í »Uffe«-málinu, er
hann taldi óverjandi. Afgreiðslu bæjar-
stjóra og meiri hluta bæjarstjórnarinn-
ar á byggingarleyfi fyrir olíugeyma á
Oddeyrartanga, taldi hann óforsvaran-
lega og lítið athugaða í upphafi. Um
framtíðarmál bæjarins fór hann nokkr-
um orðum, og kvaðst meðal annars
vilja styðja að aukinni ræktun bæjar-
landsins og stofnun kúabús fyrir bæinn,
til þess að tryggja það að mjólkin yrði
eigi seld of háu verði í bænum; annars
hefði Kaupfél. Eyfirðinga nýskeð fram-
kvæmt þær umbætur á mjólkursölunni,
sem bærinn hefði átt að beitast fyrir.
Ryggingu Leirugarðsins taldi hann eitt
af nauðsynlegustu framfaramálum
bæjarins. — Húsakynni hinna fátækari
bæjarbúa væri ófullnægjandi, þessvegna
þyrfti öruggara eftirlit með leiguíbúð-
urn og auk þess bæta úr húsnæðisskort-
iiium á þann hátt að bærinn léti byggja
yfir þá sem gætu ekki trygt sér viðun-
anlegt húsnæði af sjálfsdáðum. Fyrir
fræðslumál bæjarins taldi hann knýj-
ar.di nauðsyn að byggja nýtt barna-
skólahús hið fyrsta, og ennfremur auka
unglingafræðsluna, af því að breytt
væri um hlutverk Gagnfræðaskólans að
nokkru í því efni. — Ræðan var skipu-
lega hugsuð og vel flutt og bar vott um
ákveðna stefnu frambjóðandans í þeim
málum er hann mintist á.
Jón Sveinsson bæjarstjóri flutti næst
framboðsræðu sína. Kvaðst hann hafa
tekið við þessu starfi í upphafi ókunn-
ugur öllum bæjarmálum. Um fjárhags-
mál bæjarins og gjaldskyldur bæjarbúa
síðustu 10 árin, gerði hann stutt yfirlit.
Þá gat hann um framfarir og umbætur
í bænum á þessu tímabili, og kvaðst
hafa átt mikinn þátt í þeim, þó þær
væru vitanlega ekki að öllu leyti sér að
þakka. Sagði hann að það hefði verið
áhugamál sitt, að bæjarfélagið eignað-
ist .lóðirnar í bænum, en til afsökunar
aðgerðaleysi sínu í Oddeyrarsölumálinu
færði hann þá ástæðu, að sér hefði eigi,
tekist að fá lögmætan fund í bæjar-
stjórninni í tæka tíð, til þess að vita um
vilja hennar í málinu. Þó hafði bæjar-
stjórinn samkvæmt stöðu sinni bæði rétt
og skyldu til þess að undirbúa málið,
leita ákveðinna samningskjara og leggja
síðan málið fyrir bæjarstjórnina. Það
virðist því óskiljanlegt að áhugasamur
bæjarstjóri skýldi láta þetta undir höf-
uð leggjast.
Jón Sveinsson mintist á nokkur fram-
tíðarmál bæjarins, er hann kvaðst vilja
stvðja,og voru sum þeirra sömu málin
og hinn frambjóðandinn gat um; en
eigi skildist hvort hann vildi heldur
reisa kúabú eða gamalmennahæli á
Kjarnamóum. Var hann mjög óviss um
hvað gera skyldi í þeim málum báðum,
og virtist helst kjósa að vita fyrst að
hverju meirihluti bæjarbúa hallaðist.
Að lokum kvaðst hann bjóða sig fram
fyrir alla bæjarbúa, en engan sérstak-
an flokk eða stefnu í bæjarmálum.
Jafnaðarmönnum gæti hann fylgt í því
að mýkja kjör fátæklinganna, en eigi
að öðrum starfsháttum þeirra. Lét hann
mjög drjúglega yfir því, að.hann hefði
fylgi ýmsra verkamanna og töluverðan
styrk af Framsóknarmönnum í bænum;
enda þótt aðaltraust hans virtist hvíla
á íhaldsmönnum. Niðurlag ræðu hans
var blandað mótsögnum, sem stafaði af
því, að hann vildi þar segja sem mest af
því, er gæti fallið í jarðveg allra flokka,
en þó gefið sem minstar upplýsingar
um hans eigin vilja eða stefnu í bæjar-
málum. Gat hann þess meðal annars,
að hann hefði aldi'ei orðið var við póli-
tíska flokkaskiftingu í bæjarstjórn Ak-
ureyrar!
Erlingur Friðjónsson talaði næst og
gerði athugasemdir við skýrslu J. Sv.
um bæjarmálin. Þó lagði hann aðalá-
herzlu á að sanna hversu óheilbrigt það
væri .að hafa bæjarstjóra í ósamræmi
við meirihluta bæjarstjórnar; það væri
sflma og ef landsstjórn hefði minni-
hluta á Alþingi, eða ef framkvæmdastj.
við kaupfélag væri kosinn gegn vilja fé-
lagsstjórnar, sem bæri ábyrgð á stjórn
félagsins. Benti hann á að jafnaðar-
menn og fulltrúi samvinnumanna
myndu verða hér í meirihluta í bæjar-
stjórn eftir næsta nýár, og þá yrði Jón
Sveinsson, ef hann næði kosningu,
gagnslaus í því starfi, eða til tafar
framkvæmdum meirihluta bæjarstjórn-
ar.
Steinþór Guðmundsson lýsti ólíkri
aðstöðu frambjóðendanna. Jón Stein-
grímsson hefði orðið að gegna kyrlátu
skrifstofustarfi, en eig'i fengið tækifæri
tii þess að hafa opinber afskifti af
bæjarmálum, og sér væri kunnugt um
að hann rækti hin daglegu störf sín
með nákvæmni og alúð, en reynslan af
9 ára bæjarstjórastarfi J. Sv. væri sú
að hann þætti verkasmár og oft eigi til-
tækur á skrifstofu bæjarins þegar hann
ætti þar erindum að svara; enda van-
r'ækti hann undirbúning mála í bæjar-
stjórninni, og hefði oftar mistekist að
ha'da á rétti bæjarfélagsins í samn-
ingamálum við aðra aðila. Lítið gerði
hann úr fylgi Jóns Sveinss. meðal
verkamanna, enda þótt undirmenn
hans við bæjarstörfin berðust fyrir að
afla honum fylgis. Framboð Jóns Stein-
grímssonar væri stutt af verklýðsfélög-
unum í bænum; og þó að tekist hefði
að smala allmörgum undirskriftum í
vetur til áskorana á bæjarstjórnina,
þegar augljóst varð að hún myndi ekki
endurkjósa Jón, Sveinsson, ef til kæmi,
— þá hefðu þær flestar verið sprottnar
af því, að ýmsir vildu votta honum sam-
úð við burtför hans fi'á starfinu og á
þann hátt mýkja úr því; en fáum hefði
dottið í hug að bæjarstjórnin mundi
gera nokkuð með slíkar áskoranir.
Frambjóðendurnir fluttu aftur svar-
ræður; þurfti J. Sv. sérstaklega að
að leita margskonar varna, gegn ræð-
um Erlings og Steinþórs, og urðu orða-
skiftin milli hans og Steinþ. nokkuð
persónuleg, þótti sumum Ihaldsmönnum
ástæða til að láta fögnuð sinn í ljósi
með lófaklappi, þegar Jón Sv. gat þess,
að Steinþór myndi líka þykja vand-
kvæðamaður í sínu starfi, eins og hann
sjálfur. Annars voru afsakanir hans og
varnir gegn ákúrum og aðfínslum út af
bæjarstjórastarfi hans lítils virði eink-
um í »Uffe«-málinu.
Sigurður E. Hlíðar studdi J. Sv. að
málum og lýsti trausti sínu á honum;
var ræða hans flutt af fjöri og miklum
vandlætingatón til bæjarfulltrúanna,
sem væru hér að deila á bæjarstjórann.
Taldi hann að hefndirnar í bæjarstjórn-
inní ættu aðalsök á misfellum í undir-
búningi mála; en honum láðist að geta
þess, að bæjarstjórinn er formaður
flestra nefnda þar. Honum fanst ekkert
óeðlilegra að bæjarstjórinn væri í ósam-
ræmi við meirihluta bæjarstjórnar,
heldur en þó einhver bæjarfulltrúi væri
þar í minnihluta, og virtist ekki skilja
að bæjarstjóri er aðeins framkvæmdar-
stjóri bæjarstjórnarinnar. Þessi ræða
var einkennilega »ólogisk« og léttvæg.
En til sönnunar því hvað lófaklappið
var marklaust á þessum fundi, má geta
þess, að mest var klappað fyrir þessari
ræðu. Verkamenn tóku varla þátt í því,
en sátu fundinn athugulir til loka.
Eilingur Ih'iðjónsson talaði af mestum
kunnugleik og rökfestu um bæjarmálin.
Talaði hann þrisvar og fylgdi máli sínu
því fastar sem lengra leið á fundinn;
benti hann á mótsagnir í ræðum J. Sv.
og S. Hlíðar, og vítti mjög fljótfærni
Ihaldsmeirihl. bæjarstjórnar í Shell-
málinu og hvað andstæðinga þeirra
mundu bæta eitthvað úr því á næsta
bæjarstjórnarfundi. Þótti honum und-
arlegt að J. Sv. skyldi sækja um að
starfa undir stjórn jafnaðarmanna,
sem hann væri nú andvígur, og taldi að
þessi kosning ætti að fara eftir mál-
efnum og stefnum; og ef J. Sv. fengi
meirihluta atkvæða við þessa kosningu,
þá myndi það sprottið af meðaumkvun
almennings, en eigi trausti til hans, og
þá væri illa farið. — Um afstöðu sína
til Jóns Steingr. gat hann þess, að þó
VEGGFÓÐUR
— afar mikið úrval. —
MÁLVIVGAVÖRUR
— allskonar. — Penslar — smáir og stórir — fæst hjá
Tómasi Björnssyni.