Dagur - 01.06.1928, Síða 2
94
DAGUR
24. tbl.
\
/
• • • • • • » • • • • • • » »-» ■
•• • • • • ••••••••••••••• •• •• •
Dánardœgur.
g Byggingarvörur
nýkomnar.
Cement á kr. 6.50 pokinn úr húsi.
Kalk. — Steypujárn 7, 10 og 20 m.m.
Rúðugler. — Eldhúsvaskar, skólpleiðslu-
rör, vatnsleiðslurör.'
mi Kaupfél. Eyfirðinga. SI
Myndastoían
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10 — 6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
tryggustu framtíðarskilyröi fyrir
bændur, sem eru einyrkjar, eru þau
að geta framfleytt búum sínum á
ræktuðu landi. — í landlcosta- og
útbeitarsveitunum verður að styðja
bændur til þess að auka bústofn
sinn og hafa meira upp úr sauðfénu.
heldur en þeir gera nú, þegar inn-
legg þeirra er lítið annað en síðbor-
in lömb og misjafnlega þroskuð.
Eigi er ósennilegt að það henti bet-
ur fyrir enska ketmarkaðinn, að láta
tvílembinga og hagalömb verða vet-
urgömul og lóga þeim þá. Mætti
því á sumum stöðum samrýma ket-
framleiðslu fyrir brezka ketmarkað-
inn fráfærum.
Þegar um það er að ræða að
breyta búnaðarháttunum, verður að
samrýma það bezta úr eldri reynslu
og aðferðum þeim nýjungum, sem
álitlegastar þykja; og sérstaklega að
atliaga hverskonar framleiðsuhættir
eiga bezt við á hverjum stað.
-----o----
Á víðávangi.
Kapphlaup við Eimskipafélagið.
»Mörg æfintýri gerast nreð þjóð
vorri«, og verða þó tiltölulega fá
lýðum Ijós. Nýlega var í Reykjavík
óskað tilboða um flutning á 300
smálestum af járni frá Hamborg til
Reykjavíkur fyrir hið nýja sænska
frystihús, sem þar er verið að reisa.
Skráð flutningsgjald Eimskipafé-
lagsins mun vera 55 krónur fyrir
sinálestina af þeirri vöru; hinn
sænski forstöðumaður byggingar-
innar taldi að við þvi yrði ekki litið,
svo að Eimskipafélagið gerði kost á
að flytja þetta fyrir' 45 krónur smá-
lestina. Svíanum þótti það altof
dýrt. Þá mun hafa komið fyrirspurn
frá Hamborg um flutning á járninu
og Eimskipafél. svarað því, að það
tæki hann þá að sér fyrir 35 krónur
smálestina. En þegar þeiqi kostum
var líka hafnað, lét Svíinn þess get-
ið, að boðið hefði verið af öðruin að
flytja þetta fyrir 25 kr. smálestina
og við það sæti; pimskipafélagið
ætlaði þá enn að gefa kost á sama
gjaldi, en kaupandi kvaðst jöfnu
boði bundinn við það fyrra.
Forstjóri Eimskipafél. mun þá
hafa beðið hann að skila þeirri orð-
sendingu til þessara keppenda, sem
talið er að séu kjörnir forsvarsmenn
Eimskipafél., að félagið skyldi flytja
járnið fyrir 20 kr. smálestina, enda
hefði það margar áætlunarferðir frá
Hamborg, en ef þeir herrar vildu
enn halda uppi samkepni við félag-
iö, þá gæti svo farið að Eimskipafé-
lagið gerði kost á flutningnum fyr-
ir ekki neitt. Mun hann þá hafa boð-
að félagsstjórnina á fund um málið.
Málinu lauk á þann hátt, að keppi-
nautarnir hættu niðurboðunum, en
Eimskipafélagið varð að sætta sig
við 20 kr. farmgjald fyrir smálest-
ina. Þessir keppinautar fél. hafa' að
líkindum hugsað sér að leigja
farmsskip frá Hamborg, sem hafði
rúm fyrir járnið auk þeirra eigin
vörufarms; þeim nægir ekki að
leigja sjálfir skip fyrir sínar eigin
vörur, heldur bjóða þeir niður aðra
flutninga fyrir Einrskipafélaginu
með frekju og ofurkappi. — Þetta
er hin föðurlega forsjá þeirra fyrir
óskabarni þjóðfélagsins! Kaup-
mannaumhyggjan er þeim sjálfum
hollust að jafnaði.
Sildareinkasalan.
íorstöðunefnd einkasölunnar hef-
ir kosiö Erling Friðjónsson fyrii
formann og Steinþór Guðmundsson
ritara nefndarinnar. Framkvæmda-
stjórar eru ráðnir Einar Olgeirsson
kennari, Ingvar Pálmason alþingis-
maður og Pétur Ólafsson konsúll.
Aðalskrifstofa einkasölunnar verðui
á Akureyri og veitir Pétur ólafsson
henni forstöðu; önnur skrifstofa
verður á Siglufirði og mun Ingvar
Páhnason dvelja þar til forsjár fyrst
um sinn; en Einar Olgeirsson mun
einkum dvelja erlendis við sölu
síldarinnar. Hafa þeir Ingvar Guð-
jónsson nýlega ferðast um Svíþjóð
og láta vel yfir undirtektum síldar-
kaupenda þar. Um miðjan þenna
mánuð . höfðu útgerðarm. tilkynt
einkasölustjórninni að þeir ætluðu
að salta um 360 þús. tunnur síldar
samanlagt í sumar. Eru þær áætl-
anir vafalaust miklu hærri en ástæða
er til að búast við.
-------o--------
Stefán Kristjánsson skógarvörð-
ur á Vöglum í Fnjóskadal, lést að
heimili sínu 21. f. m., eftir langa og
erfiða legu. Veiktist hann litlu eftir
nýjár í vetur af meinsemd í höfði,
sem þrýsti að heilanum, og var flutt-
Ui á sjúkrahúsið á Akureyri, lá hann
þar í þrjá inánuði þungt haldinn
með köflum og varð eigi að gert;
en tæpum mánuði áður en hann lézt
vai hann fluttur heim aftur og beið
þar dauðans.
Stefán var rnjög* vel látinn og
merkur maður og starfsmaður mik-
ill. Hann gegndi margskonar trún-
aðarstörfum fyrir sveit sína, og við
fráfall hans er þar stórt skarð fyrir
skildi. Skógræktargæzluna leysti
hann af hendi með frábærri alúð og
samvizkusemi eins og alt annað er
hann hafði með höndum.
Sýslunefndarmaður var hann fyr-
ir Hálshrepp síðustu árin, hafði þar
sveitarstjórnarstörf, deildarstjóra-
starf í Kaupfélagi Svalbarðseyrar o.
fl. Hann var mjög yfirlætislaus og
skýr í hugsun, víðfróður og fastur í
skoðunum, og vann sér óbifanlegt
traust þeirra, er hann kyntist og við
hann skiftu.
Stefán var kvæntur nfaður en
barnlaus, og hafði mist konuna fyr-
ir nokkrum árurn. Hann var korninn
á sextugs aidur.
Sigfús Þór Jónson járnsmiður í
Húsavík, lézt þar nýskeð úr krabba-
meini; hafði hann þjáðst af því í
2 ár. Hann var um þrítugt, hinn
bezti drengur og vel kyntur.
Rvík 25. Maí.
Aþenuborg: Stjornin í Grikklandi
hefir staðfest verðfestingu þrjú
hundruð sjötíu og fjmm drökmur
jafngilda einu sterlingspundi. •
London: Japanski blaðamaðurinn
Araki hefir farið kringum hnöttinn
á 33 dögum. Hafði hann ýmiskonar
farartæki, flugvélar o. fl. Setti hann
met með þesu ferðalagi sínu.
Peking: Norðurherinn flytur frá
öllum vígstöðvunum. Suðurherinn
nálgast Tientsen. Vesturhluti Shang-
tung-héraðs er algerlega hernuminn
af Japönum.
Tokio: Japanska herstjórnin hefir
skipað svo fyrir, að her Japana í
Kína skuli hætta öllum hernaðarað-
gerðum, þar sem ástandið sé nú
viöunandi en vænta iná íhlutunar
þeirra, ef Suðurherinn ræðst inn í
Mansjúríu, eins og útlit er fyrir.
Rómaborg: ítalska þingið hefir
samþykt ný kosningalög um breyt-
ingar á skipun þingsins, en mót-
spyrnan var óvenjulega mikil; töldu
margir þingmenn að frumvarpið
mundi svifta ítölsku þjóðina kjör-
frelsi.
Tokio: Blöðin í Japan aðvara
stjórnina um, að ef herlið Japana
hafi langvarandi dvöl í Shangtung,
þá kunni það að vekja tortrygni í
Bandaríkjunum; ráðleggja þau
stjórninni að kalla herinn heim það-
an. — Stjórnin í Japan hefir til-
Jarðarför
litla drengsins okkar, sem andaðist
30. Maí, hefst frá heimili okkar n.
k. Miðvikudag (6. Júní) kl. 1 e. md.
Hafnarstræti 37, Akureyri.
» v
Sigurjóna Jakobsdóttir.
Þorsteinn M. Jónsson.
Öllum þeim, sem auðsýndu mér
hjálp og samúð við fráfall og jarðarför
mannsins míns, Pálma Magnussonar,
votta eg hérmeð innilegt þakklæti mitt
og barnanna okkar og bið algóðan
guð að launa þeim.
Elin Indriðadóttir.
kynt stjórnarvöldum í Kína, að Jap-
anir séu staðráðnir í að hindra það,
að Kínverska borgarstríöið berist
til Mansjúríu.
Rvík 26. Maí.
París: Ýms bloð Frakka telja, að
þýzku kosningarnar sé mikill sigur
fyrir sáttastefnu Stresemanns, en
önnur blöð haida því fram, að
Frakkar verði að vera varkárir, því
að Vinstriflokkurinn í Þýzkalandi
vilji einnig breyta landamærunum.
New York: 82 námumenn fórust
við nánrusprengingu í Pennsyl-
vaniu, og 115 mQnn inniluktir í
námunni; lítil von um, að hægt verði
að bjarga þeim.
Detroit: Evrópuflugi Lindbergs er
frestað til haustsins.
Oslo: ítalski flugmaðurinn Nobile,
lagði upp frá Svalbarða í pólflug
23. Maí. Flaug yfir pólinn næstu
nótt.
Berlín: Forstjóri Opelverksmiðj-
anna fór reynsluferð í gær með
rakettubifreið að viðstöddum ráð-
herrúm, vísindamönnum og blaða-
mönnum, og hepnaðist honum ferða-
lagið vel; sagði hann bifreiðina
byrjunarskref til áður umgetinna
rakettuflugvéla; tilætlunin væri að
senda fyrst rakettuvélar með dýr í
þeim tilgangi að rannsaka áhrif
hærri loftslaga á líffærin og síðan
yrðu gerðar rakettuflugvélar handa
mönnum. Álítur hann að rakettu-
flugvél geti náð 30 km. hæð yfir
jörð og farið í kring um hnöttinn á
einum sólarhring.
Rvík 31. Maí.
Kingsbay 25/5.: Nobile dvaldi 2
stundir yfir pólnum, en lenti ekki;
kastaði niður ítalíufána með páfa-
krossi.
Vestmannaeyjar: Þór tók enskan
togara í landhelgi; fékk hann 12500
kr. sekt. Ennfremur hefir varðskipið
tekið þýzkan togara.
Berlín: Woldemaras hefir tekið sér
einræði í Litauen og tilkynnir að
Vilna sé höfuðborg landsins.
London: Suðurherinn hefir næst-
u m umkringt Peking.
2%. Ekkert radiosamband hefir
verið við skip Nobile síðan kl. 9 í
gærmorgun; afstaða skipsins ókunn;
benzinforðinn þrýtur í kvöld.
Berlín: Ríkisstjórnin ætlar að
Símskeyti.