Dagur - 01.06.1928, Blaðsíða 3

Dagur - 01.06.1928, Blaðsíða 3
24. tbl DAGUB 95^ biðjast lausnar áður en ríkisdagur- inn verður settur 12. Júní. 1 Oslo: Verkanrenn við byggingar- iðnab hafa neitað að fallast á launa- lækkun um 12% úrskurðaða af gerðardómi; hófu þeir verkfall í gær, þó að landssamband verka- manna réði þeim frá því og benti þeim á, að verkfallið væri ólöglegt, þar eð skyldugerðardómur væri lög- boðinn. Seyðisfirði 2%. Faxi kominn af hákarlaveiðum með rúmt 100 há- karla og 20 tunnur lifur; skrápur og uggar saltað til útflutnings. Héluð jörð vegna næturfrosta; gróður hægfara. Flugan komin; ferðirnar hefjast eitir mánaðamót; póststjórnin lætur prenta sérstök flugfrímerki. 'Ófrétt um loftskip Nobiles. Norsk- ur flugmaður er á leiðinni til Sval- barða, til þess að leita hans. Þegar til Nobile fréttist síðast, var hann að nálgast Svalbarða aðfaranótt Föstudags í norðvestanstormi. Washington: Senatið hefir frest- að að ræða frumvarp um flotaaukn- ingu. Tokio: jaþansstjórn hefir fallist á ófriðarbannstillögu Bandaríkjanna, ef hún skerði ekki sjálfsvarnarrétt- inn. Anna Borg er ráðin leikari við konunglega leikhúsið. Frá 1. Júní verða sömu póstgjöld milli íslands og Svíþjóðar og milli íslands og Danmerkur og Nöregs. London: Kvenflokkur íþróttafé- lags Reykjavíkur gat sér frægðar- orö á íþróttamótinu í Calais og sömuleiðis fyrir sýningar í London. Fréttir. Hús brann á Siglufirði 25. f. m., nýtt íbúðarhús Alfons Jónssonar lögmanns. Fólkið komst nauðulega úr eldinum um fótaferðatíma, en engu varð bjargað. Talið er að kviðknað hafi frá rafmagni. Þorleifur Jónson alþingismaður og frú hans hafa dvalið hér í bænum um tíma lijá dóttur sinni og tengdasyni, og fara aftur heimleiðis með Lagarfossi nú um helgina. Athugið auglýsinguna: »Fastar bíl- ferðir« í þessu blaði, en sem misprent- aðist í síðasta blaði. Grátlegt slys vildi til hér í bænum síðastl. Föstudagskvöld. Drengur varð undir þúfnabana og dó samstundis. Drengurinn, sem fyrir slysinu varð, hét Sigurður, sonur Jakobs Karlssonar kaupmanns. Hann var 9 ára að aldri, skýr og skemtilegur og hið elskulegasta barn. Lagarfoss kom að austan um síðustu helgi. Með skipinu kom hingað Ingvar Pálmason alþm., til þess að taka við framkvæmdarstjórastöðu sinni við síld- areinkasöluna. Tvser lijónavígslur fóru fram hér í bæ á Laugardaginn var: Rannveig Jóna- tansdóttir og Friðjón Axfjörð bundust hjúskaparböndum, og ennfremur Ingi- björg Eiríksdóttir og Stefán Vilmundar- son. Síra Gunnar Benediktsson gifti. Barnslát. Hjónin Þorsteinn M. Jóns- son bóksali og frú Sigurjóna Jakobs- dóttir hafa orðið fyrir þeirri sorg að missa son sinn á 1. árinu. Fáheyrt slys vildi til vestur í Vatns- dal nýlega. Nokkrir ungir menn voru þar að knattspyrnu, og hljóp einn þeirra s\’o harkalega á leikbróður sinn, að hann varpaðist til jarðar og slasaðist svo geipilega, að hann andaðist eftir sólarhring. Maðurinn, sem fyrir slysinu varð, hét Eggert Jóhannsson frá Gríms- tungu. Þurkar óvenjumiklir og langdregnir hafa verið hér að undanförnu. Hefir þetta mjög hamlað grasvexti, svo að horft hefir til vandræða, ef áfram héldi. Á Þriðjudagsnóttina gerði loks allmikla rigningu og heitan sólskinsdag á eftir. Hefir gróðrarskúr þessi, þó of lítill væri, verið mikils virði. Ritstjóri Tímans, Jónas Þorbergsson, hefir verið veill á heilsu að undanförnu. Fór hann að Vífilsstaðahæli fyrir nokkru sér til hressingar. Hefir dvöl hans þar borið þann árangur, að nú hefir hann fulla fótavist og horfur með framtíðarheilsu hans hinar beztu. Þó býst hann við að dvelja enn um sinn á hælinu sér til frekari tryggingar og hvíldar. Kvöldskemtun fór fram í samkomu- húsinu 2. í hvítasunnu, til ágóða fyrir- hugaðs gamalmennahælis hér í bæ. Var þar margt á boðstólum. Pálmi Hannes- son kennari flutti erindi um öræfi Is- lands, og var aðalþáttur erindisins glögg frásögn um villuför Kristins Jónsonar suður um öræfin haustið 1898, sem hann varð frægur fyrir. Eiríkur Kristjánson kaupmaður söng einsöng og frú Soffía Kvaran las upp þrjú kvæði. Ennfremur fór fram eintalsleik- ur, sem ungfrú Þuríður Stefánsdóttir lék, 8 manna karlakór léttilsín heyra og Jón Norðfjörð söng gamanvísur. Hús- ið Var troðfult af áheyrendum og gast fólki vel að skemtiatriðunum, enda voru þau vel af hendi leyst, ekki síst upp- lestur frú Kvaran. Hreinasta unun var að heyra meðferð hennar á Sigrúnar- ljóðum Bjarna Thorarensens. Kvenfél. »Framtíðin« gekstfyrirskemt- un þessari, ásamt merkjasölu þenna dag og kaffisölu í barnaskólanum, alt til eflingar gamalmennahælissjóðnum. Samkomudagur Rauðakross-deildar- innar þ. 20. f. m. fór vel fram. Merki voru seld á götunum; og um kveldið var fjölbreytt skemtun í samkomuhúsinu en veitingar seldar í barnaskólanum og nýjum félagsmönnum safnað í deildina. Á samkomunni flutti Steingrímur Matt- . híasson ræðu; 8 manna kór söng nokk- ur lög og þótti mikið til þeirra koma. Frú Sigurlina Sigtryggsdóttir flutti stutt erindi. Frú Soffía Kvaran las upp 3 kvæði af mikilli list, og hefði næstum mátt heyra flugu anda í húsinu á með- an, þó það væri troðfult af fólki; Jón Norðfjörð söng gamanvísur, en dansað var á eftir. Áskell Snorrason hélt einsöng sama dag í Akureyrar-Bóí, en samkoman var fásótt. Söngvarinn fór með ýms góö lög einkum lögin eftir Steingrim Hall, og 3 lög söng hann eftir sjálfan sig. Dagur kemur framvegis út á FIMTU- DÖGUM. Brúarfoss kom hingað í gærmorgun frá Rvík að vestan og fór aftur sömu leið til baka. Með skipinu tóku sér far til Rvíkur Oddur Bjömsson, Sigtryggur Þorsteinson og Bjarni Arason. Drotning Alexandrlna kom í gær- kvöldi. Með henni komu hingað séra Friðrik Rafnar með fjölskyldu sína, sóra Sigurður Stefánsson, hinn nývígði Möðruvallaprestur, Hallgrímur Hall- giímssdn magister, Hans Einarsson kennari frá Isafirði og ýmsir fleiri. Með skipinu var einnig^ Guðmundur Tlioroddsen prófessor, sem varð eftir á Húsavík, en er væntanlegur hingað á næstu dögum. Þá var og Jón Þorbergsson með skip- inu til Húsavíkur; er hann að flytja sig, fjölskyldu sína og búslóð á eignar- jörð sína Laxamýri. —------0------- öjafir til Heilsuhœlisins. Þegar samskotalisti yfir gjafir til Heilsuhælis Norðurlands var birtur í fylgiblöðum Dags, kom fram tilkynn- ing til gjaldkera Heilsuhælisstjórnar- innar um gjafafé það, sem hér er birtur listi yfir og gleymst hafði hjá mönnum, er veittu samskotunum viðtöku á sínum tíma. Gjaldkerinn hafði gert ráð fyrir að svo gæti verið, og ef hann fær fleiri slíkar tilkynningar þá verður birt skrá yfir það hér í blaðinu. Biður hann þess getið, að gefendur séu beðnir að líta eftir nöfnum sínum í gjafaskránni og gera athugasemdir ef gjafir séu rangt tilfærðar eða nöfn gefenda vanti. Þess skal getið, að í gjafaskránni eru aðeins tekin upp nöfn þeirra, er gefið hafa til Heilsuhælisfélags Norðurlands, sem stofnað var í Febrúar 1925. Það sem áður hafði safnast í Heilsuhælissjóð Norðurlands, undir stjórn Sambands norðlenzkra kvenna, er tilfært í gjafa- ski-ánni með einni upphæð, »Berkla- varnarsjóður kr. 68992.14«, enda hafði gjaldkeri Heilsuhælisfélagsins enga skrá yfir þá gefendur. En nöfn þeirra höfðu á sínum tíma verið auglýst í blöðum, jafnóðum og það fé safnaðist. Akureyri. Kr. Adolf Kristjánsson 5.00 Agnar Guðlaugsson 5.00 Albína Helgadóttir 2.00 Anna Friðriksdóttir 6.00 Anna Hallgrímsdóttir 2.00 Anria ólafsdóttir 12.00 Anna Sigurðardóttir 5.00 Árdal Álfheiður 100.00 Árdal Fríða 5.00 Árdal Karl 10.00 Árdal Páll J. 5.00 Árdal Steinþór 5.00 Árni Sigurðsson 10.00 Ásta Sigurjónsdóttir 10.00 Axel Vilhelmsson 15.00 Baldur Guðlaugsson 2.00 Björg Isaksdóttir 5.00 Bogi Ágústsson 10.00 Borghildur Jónsdóttir _ 5.00 Brynhildur Bogadóttir 2.00 Elísabet ólafsdóttir 10.00 Ester Guðlaugsdóttir 5.00 Friðrik Magnússon 5.00 Geir Geirmundsson 2.00 Gerða Halldórsdóttir 5.00 Guðlaugur Pálsson 5.00 Flyt kr. 242.00 Fluttar kr. 242.00 Guðný Jóhannsdóttir 2.00 Guðný Jónsdóttir 5.00 Guðrún Jónasdóttir 2.00 Guðrún Jónsdóttir 2.00 Guðrún Tryggvadóttir 3.00 Gunnlaugur Guðjónsson 10.00 Hafdal Anna 10.00 Hafdal Gunnar 10.00 Halldór Jakobsson 2.00 Halldór Jónsson • 5.00 Hallgrímur Helgason 5.00 Hallgrimur Þorvaldsson 5.00 Hannes Jóhannsson, Nýjabæ 10.00 Helga Hallgrímsdóttir 2.00 Hjalti ‘Espholin 50.00 Ingilína Jónasdóttir 5.00 Jakob Jakobsson , 3.00 Jens Evertsen 2.00 Jóhanna Benediktsdóttir 2.00 Jóhanna Sveinsdóttir 6.00 Jóhannes Þórðarson,Fáskrúðsf. 5.00 Jón Arngrímsson, Fáskrúðsf. 5.00 Jón J. Sigurðsson 5.00 Jón Jóakimsson, Fáskrúðsfirði 5.00 Jón O. Finnbogason 5.00 Jón Sigurðsson 2.00 Jón Þoi-valdsson ' 10.00 Jónas Fr. Jóhannsson 5.00 Jónina Bóasdóttir 5.00 Jónína Pálsdóttir 5.00 Karl Ásgeirsson ' 10.00 Karl Sigurjónsson 5.00 Kristbjörg Jónatansdóttir 50.00 Kristín Jóakimsdóttir 5.00 Kristján Geirmundsson 2.00 Kristján Tryggvason 5.00 Kristveig Hallgrímsdóttir 2.00 Margrét Guðmundsdóttir - 2.00 Margrét Karsdóttir 15.00 María Daníelsdóttir 10.00 María Guðmundsdóttir 10.00 María Jónsdóttir 2.00 Matthildur Grímsdóttir 2.00 Pálína Bjarnadóttir 5.00 Ragnar K. Karlsson 10.00 Ragnheiður Söebeck 5.00 Rannveig Jónsdóttir 5.00 Rósa Björnsdóttir 2.00 Salome Hóseasdóttir 5.00 Sigríður Bjarnadóttir 2.00 Sigurður Jónsson 2.00 Sigurður Jónsson 2.00 Sigríður Zakaríasdóttir 2.00 Sigrún Sigurðardóttir ’ / 6.00 Sigtryggur Jónsson 25.00 Sigurbjörg Jónsdóttir 2.00 Sigurður Jónatansson 10.00 Sigurlaug Jónsdóttir 10.00 Sæbjörg Bóasdóttir 2.00 Torfhildur Jakobsdóttir 3.00 Valdemar Bjarnason, FáskrúðsF. 5.00 Valdemar Sveinbjömsson 5.00 Valgerður Friðriksdóttir 5.00 Þorgerður Helgadóttir 3.00 Þórhallur Hallgrímsson 5.00 Friðgeir Kristjánsson Þóroddstað 100.00 Skriðu (Skriðuhr.). Steinunn Jónsdóttir 25.00 Steinberg Friðfinsson 5.00 Adolf Friðfinnsson 5.00 Pálína Friðfinnsdóttir 5.00 Páll Guðmundsson 5.00 Guðrún Kristjánsdóttir 5.00 Samtals kr. 837.00 Auglýsið i DEGI.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.