Dagur - 20.09.1928, Síða 3
41. tbl.
DAGUR
lðl
" •-•-•-;• ••« • » •- # ~
deildarhringur hans hafði víkkað
við ,»ferð og flug«. Samkend hans
með þeim, er þjáðust og báru
skarðan hlut frá borði, var og
ekki sízt orsök þess, að lífsskoðun
hans mótaðist í þessa átt. *—
Þegar mér barst fregnin um
hið voveiflega slys og lát þessa
vinar míns, sem eg hitti fyrir
nokkrum árum og bar gæfu til að
kynnast, varð mér innan stundar
eitt ríkast í huga. Það var mynd-
in af eilífðarþrá Matthíasar heit.
eins og eg vissi, að hann átti
hana. Hin öfluga áherzla, sem
nýrri trúarhræringar leggja á
óumræðilegan kærleika Guðs föð-
ur, hreif hann mest. Minníngm
um þá trú hans er svo máttug í
eðli sínu, að hún getur jafnvel
strokið tárin af hvörmum syrgj-
andi og elllibeygðra foreldra og
látið þau finna, að sorgin á líka
sinn frið. í faðm þeirrar elsku
felum vér nú sál hins látna með
bænum vorum.
S. St.
-----o-----—
A við avang-i.
Ketilbilun »Norölings«.
S.krifstofustjórinn í dómsmáia-
ráðuneytinu hefir skýrt frá því,
að þegar skipherrann á Óðni hafi
tilkynt ketilbilunina, hafi skipa-
smíðastöðinni, Flydedokken, jafn-
harðan verið tilkynt þetta. En
»Norðlingur« segir, að dómsmála-
ráðherra hafi »svikist um að til-
kynna bilunina«. Hvorum er nú
betur trúandi, skrifstofustj óranum
eða ritstjóra Nl.? Herra Guðm.
Sveinbjörnsson er ekki kunnur að
því að leika sér að lyginni annan-
hvern dag. En Jón Björnssön?
Annars er það margra manna
mál, að sannleiksketill »Norð-
lings« muni vera illa bilaður.
Spámaðurinn.
Dagur skýrði frá því, að íhald-
ið hefði greitt úr Landhelgissjóði
á hér um bil ll/2 ári upp undir 12
þús. kr. fyrir hey, hesta, veislur,
vín, vínglös, vindla og gullúr. Út
af frásögninni um þetta spáir ritstj.
ísl. því, að núverandi stjórn muni
eyða úr sjóðnum á jafnlöngum
tíma til þessara hluta að minsta
kosti tíunda partinum af ofan-
greindri upphæð. Sýnir spádömur
þessi, að jafnvel ritstj. isl. treyst-
ir Framsóknarstjórninni margfalt
betur til sparnaðar en fhaldinu.
Fjóluspretta/n.
dafnar vel hjá Norðlings-Jóni.
»Alt er gott í bændurnar«, segir
hann nú síðast. Ekki veit »moð-
hausinn« skil á algengustu orða-
beygingum í íslenzku máli.
Leikfélag Akureyrar.
Fyrir skömmu fékk stjórn
Leikfél. Ak. bréf frá félagi einu í
Berlín, er nefnist Atlantic Photo
Co. Félag þetta víðvarpar mynd-
um til blaða víðsvegar um Norð-
urálfuna. Er það hið stærsta fyr-
irtæki í þeirri grein á meginlandi
Evrópu. í bréfinu til Leikfélags
Ak. segir meðal annars: »í þýzk-
um blöðum hafa birtst ýmsar frá-
sagnir af leiksýningum við leik-
hús Leikfél. Ak., sem vakið hafa
athygli vora. Oss væri mjög ljúft
að eignast myndir frá félaginu,
svo sem af leikhúsinu, bæði að
utan og innan, svo og af forkólf-
um félagsins og helstu leikendum
þess, til þess að útvarpa þeim til
evrópiskra blaða«.
Að sjálfsögðu mun stjórn leik-
félagsins verða við þessari bón
og senda myndir úr ýmsum leik-
sýningum. Kynning islands er-
lendis getur orðið mikill ávinn-
ingur að sambandi við þessa
þýzku stofnun.
Leikfél. Ak. hefir í hyggju að
starfa ötullega í vetur. Væntir
það þess að geta byrjað leiksýn-
ingar í Nóvember undir stjórn
Ág. Kvarans. Seinna mun félagið
að líkindum fá að njóta starfs-
krafta og leiðsögn Haralds
Björnssonar.
Fjárhagur félagsins er nú mjög
örðugur. Til leiksýninga var mjög
vandað síðastl. vetur, og urðu þær
þess vegna nokkuð dýrar. Hins-
vegar er styrkur sá, er félagið
nýtur, mjög lágur, og auk þess á
það í samkepni við tvö kvik-
myndahús í litlum bæ. Styrkur til
félagsins er nú 1000 kr. frá rík-
inu og 500 frá bænum. Til sam-
anburðar má geta þess, að Leik-
félag Rvíkur fær 12 þús. kr. styrk
alls og er þó ólíkri aðstöðu til að
dreifa, þar sem í Rvík er alt að
átta sinnum fleira fólk en á Ak-
ureyri. Leikfélag Akureyrar mun
nú fara fram á aukinn styrk,
bæði frá bæ og ríki. Er ekki mik-
ils af félaginu að vænta, á meðan
fjárhagur þess er jafn þröngur
og nú er. Eigi félagið að eiga
nokkra verulega framtíð fyrir
höndum, er óhjákvæmilegt að það
ráði sér fastan leikhússtjóra, en
til þess hrekkur núverandi styrk-
ur skamt, og ef halli verður á
leiksýningu, verða félagsmenn að
borga úr eigin vasa ofan á þaö
að fá ekkert fyrir vinnu sína.
Er nú þess að vænta, að þeir,
sem fjárveitingavaldið hafa, sjái
sóma sinn í því að styrkja rífleg-
ar en áður þetta félag, sem þrátt
fyrir alla örðugleika hefir vakið
athygli á íslenzkri leiklist í hinu
mikla menningarlandi, Þýzka-
landi, þar sem talað er um
»nyrsta leikhús heimsins«, þegar
minst er á Leikfélag Akureyrar.
-------o-------
Líkbrensla. Lík Ragnars heitins Ól-
afssonar var brent í fyrradag á lík-
brenslustöð í Kaupmannahöfn. Á sama
tíma fór fram minningarathöfn hér í
kirkjunni. Flutti sóknarpresturinn þar
ræðu og sunginn sálmur á undan og
e'ftir. Við þessa athöfn var kirkjan
þéttskipuð fólki.
Bæjarstjórnarfundur átti að vera á
þriðjudaginn var, en honum var frestað
vegna minningarathafnar þeirrar, er
fór hér fram í kirkjunni þann dag.
Allskonar
Aumur blaðamaður.
Jón Björnsson,. sem sumir
fyndnir menn kalla rithöfund,
hefir, einS og kunnugt er, lengi
unnið við danska Mogga. Síðustu
árin hefir hann verið undirtylla
Valtýs við »Morgunvel-kin« frægu,
sem áttu að ryðja Jónasi frá
Hriflu úr vegi þeirra manna, sem
hugsa mest um eigin pyngju, svo
að lýsing Jóns Þorlákssonar á í-
haldinu sé viðhöfð. En J. B. virð-
ist hafa verið latur og ónýtur
verkamaður í jurtagarði herra
síns, því að enn hefir Valtýr ekki
getað tekið til »fyrri starfa«
vegna, »morguntafanna«. En
hvort sem Valtýr hefir ekki getað
notað Jón lengur, eða aðrar á-
stæður valdið, þá hröklaðist hann
frá Morgunblaðinu, þótt hann
væri elsti átarfsmaðurinn við
blaðið.
í eymd sinni tók þessi einskis-
nýti blaðamaður það ráð, að
reyna að fleyta lífinu hér á Ak-
ureyri, með von um að geta bolað
burtu samherja, sem þrátt fyrir
auðvirðilega þjónsstöðu í þágu ills
rnálstaðar, er heiðvirðari og
greindari maður en Jón.
En eftir starfið í sumar stend-
ur J. B. afhjúpaður, sem blaða-
maður, frammi fyrir þeim, er
hafa lesið þenna snepil, sem hann
hefir birt skoðanir sínar í. Og
niðurstaðan verður sú, að mót-
stöðumenn hans líta á hann sem
auðvirðilegan andstæðing, en þeir,
sem leigt hafa þenna mann, ættu
heldur að stinga einhverju upp í
hann, svo að hann þegði.
Það hefir aldrei sést eins glögt
og síðan J. B. valt úr hreiðri Mbl.
livað hann er bráðónýtur jafnvel
til hinna auðvirðilegustu verka:
rógburðarstarfsemi íhaldsins.
Skrif hans mora af ógeðslegu háði
um sjálfan hann og flokkinn, sem
á líftóruna í honum, svo að blind-
ustu og sjálfselskustu íhaldssál-
um hlýtur að ofbjóða. Ritháttur-
inn er fádæma klaufalegur (sbr.
»undirferlisjálkinn«) og skin
gáfnaleysið og gæfuleysið út úr
hverri línu. J. B. hefir ekki ennþá
reynt í blaði sínu, að ræða nokk-
urt mál af viti. Auðvitað getur
hann það ekki, sem íhaldsblaða-
maður. Hefir hann ekkert til að
bera annað en viljann til að sví-
virða beztu menn þjóðarinnar.
Þótt eg geri ekki háar kröfur
til íhaldsmanna, margra, hvað
snertir andlegan þroska' þá þykir
mér ólíklegt, að þeir uni því til
álnavörur
Stór stofa til leigu rétt hjá Qagn-
fræðaskólanum. Hentug fyrir nemendur.
Upplýsingar í verzlun E. Möller.
lengdar, að láta J. B. básúna
gáfnafar sitt á þeirra kostnáð, og
láti því heldur máltól hans fá
andlát hordauðans. En þar sem
J. B. hefir slitið sér í þjónustu í-
haldsins, þá væri illa gert að kasta
honum á gaddinn. Það ætti því að
setja upp »guðskistur« fyrir J. B.,
þar sem breyskir íhaldsmenn gætu
gefið fyrir sálu sinni, og unnið
tvöfalt góðverk: losað þjóðina við
þá háðung, að hugsanir .J. B. sjá-
ist á prenti, og haldið lífinu í
manni, sem er lítt fær að bjarga
sér.
Þórir Þorvarðsson
frá Skriðu.
-------o--------
F réttir.
Stofnun hestamannafélags. Eins og
áður var auglýst, var fundur haldinn
hér í bæ, til þess að ræða um stofnun
hestamannafélags.
Á fundinum mættu rúmlega 20 manns.
Sig. Hlíðar dýralæknir setti fundinn og
skýrði í stuttri ræðu frá tilgangi hans.
Síðan tóku til máls: Þorsteinn Þor-
steinsson, Jón Geirsson, Pálmi Hannes-
son, Sigurður Guðmundsson og Jón
Steingrímsson. Lutu ræðumar að því
verkefni, er fyrir fjelaginu lægi, svo
sem að koma upp skeiðvelli, fá gerða
reiðvegi, útvega haga og geymslu fyrir
hesta á sumrin, hús, hirðing og þjálfun
á vetrum, gangast fyrir kappreiðum
hér og þátttöku í kappreiðum á Þing-
völlum 1930.
Siðan var leitað atkvæða um hvort
stofna skyldi félagið, og var/ það sam-
þykt með öllum atkvæðum.
Þá voru kosnir 5 menn í nefnd, til
þess-að semja frumv. til laga fyrir fé-
lagið^ og hlutu kosningu: Pálmi Hann-
esson, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón
Geirsson, Jón Steingrímsson og Sig-
urður Guðmundsson.
Dánardægur. Fyrra sunnudag and-
aðist hér í bæ barnung stúlka, Agnes
Sigurgeirsdóttir söngkennara Jónsson-
ar. Jarðarför hennar fór fram í fyrrad.
Síldarmatreiðslunámsskeið, undir
stjórn ungfrú Bjargar Sigurðardóttur,
stendur yfir hér í bæ. Er þar kent að
búa til 20 rétti úr síld. Af gæðum rétt-
anna er það að segja, að þeir, sem
naumast geta smakkað síld, eins og hún
er venjulega tilreidd, neyta þeirra með
beztu lyst. Síld er einhver sú hollasta,
næringarmesta og ódýrasta fæða, sem
völ er á, og væri það ekki lítil framför,
ef hægt væri að kenna íslendingum átið.
eru nú á boðstólum hjá Ryel i gríðarstóru úrvali, og seljast
með mjög lágu verði. Athugið hið fjölbreytta úrval af allskonar
silkitauum, silkisvuntuefnum, blússutauum, morgunkjólatauum,
tvisttauum, flóneli, gardínutauum, flaueli, léreflum, boldangi,
fyrirtaks teg. dún- og lakaléreftum, lasting, fatatauum i herra
og drengja föt, nýmóðins káputauum og fl. og þið munið sann-
færast um, að beztu, fallegustu og ódýrusiu vörurnar eru hjá
Baldvin Ryel.
♦
v