Dagur - 27.09.1928, Síða 2
164
DAGUR
42. tbl.
• ••••••••• • •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
'-♦-•-• • • • • •■■•■• • •
TILB&im
karlmannafatnaður
m —j—ö—g ó—d —ý—r
Vetrarfrakkar
nýkomið
KAUPFÉLAO EYFIRÐINOA.
1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII8I
Myndastoían
♦ <>
XJlýkomnar vörur-l
i í
f Kven og telpu Vetrarkápur, nýjasta tíska. Kven og telpu #
| kjólar, nýjasta tíska. Golftreyjur, kven, frá kr. 7.00. Ullár-
♦
♦ vetlingar á börn og fullorðna. Borðteppi frá kr. 4.50, stórt »
▼
S úrval. Dívanteppi frá kr. 9.50, stórt' úrval. Ljósadúkar og $
! löberar, fallegir og ódýrir. Undirlök, misl. frá kr. 2.00. ♦
| Undirlök, hvít frá kr. 3.00. Rúmteppi, hvít frá kr. 4.75. |
Rúmteppi, misb frá kr. 5.75. Silkihálstreflar, stórt úrval, frá %
kr. 1.25. Khakiskyrtur 5.50. Ljósar milliskyrtur frá kr 3.65 *
og ótal margt fleira. I
<>
♦
♦
Ath. Braun býður beztar vörur fyrir bezt verð.
Brauns Verzlun.
Páll Sigurgeirsson.
♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦»♦»»»»♦»»»»♦♦»♦♦♦»»»»»♦»♦»»♦»♦♦»»♦»♦♦»»»♦♦»
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá klt 10-6.
Guðr, Funch-Rasmussen.
lega sigla einhverntíma í kjölfar-
ið. Og hvað yrði líklegra, til að
efla vinsældir félagsins, ef ekki
einmitt bækur Vilhjálms Stefáns-
sonar.
Þriðja fylgiritið heitir »Ger-
manía«, eftir Tacitus, rómverskan
mann (uppi 55—120 e. Kr.), og^
fjailar úm forn-germanska þjóð-
flokka, staðhætti þeirra og lífs-
hætti. Bók, sem lesa verður, aðeins
til fróðleiks en ekki til eftir
breytni, því að hún er mjög vafa-
samur siðalærdómur fyrir nútím-
ann, þó að margt sé eftirtektar-
vert.-----
Geta menn nú séð, að Þjóðvina-
félagið hefir all-fjölbreytt útgáfu-
starf með höndum, og stendur það
alls -ekki að baki Bókmentafélag-
inu og Sögufélaginu, sem þó eru,
hvort á sína vísu, merk útgáfu-
félög.
31. Júlí 1928.
Swuröur Kr. Sigtryggsson.
------o-----—
Góð hjón.
Það berast fáar sögur af hjón-
um, sem ala aldur sinn á kyrlátu
sveitaheimili. Blöð eða tímarit
geta sjaldan nafna þeirra né af-
reka. Þó vinna þau einatt fyrir
verðlaunum, sem meira gildi hafa
en heiðursmerkin, sem heimurinn
útbýtir.
í sumar heimsótti eg æskuvini
mína, Belgsár-hjónin, Guðrúnu
Guðmundsdóttur og Indriða Árna-
son. Eftir 29 ár finn eg þau ó-
breytt. Að vísu hefir hrukkunum
á andlitum þeirra fj ölgað og þreytu-
merki eftir erfiði æfidagsins eru
auðsærri en áður var. En mann-
gæskan og hýran ljómar af svip
þeirra, eins og í fyrri daga. Líf
þeirra er auðugt af því, sem göfg-
ast er og mestan þroska veitir:
vinnu, góðverkum, sorgum. Með
þessum þrem orðum er æfisaga
þeirra sögð. Þau hafa aldrei verið
rík, eftir þessa heims mælikvarða.
En af gnægð góðs hjarta hafa
þau óspart veitt. Þeim hefir ekki
orðið barna auðið. En fósturbörn
hafa þau alið upp. Tvær fóstur-
dætur þeirra og systir Guðrúnar,
sem að miklu leyti ólst upp á
heimili þeirra hjóna, dóu allar í
blóma lífsins. Allar hinar mann-
vænlegustu lconur. Einn fósturson
eiga þau. Mörg gamalmenni, sem
enga áttu að, dvöldu langvistum á
heimili þeirra og nutu umönnunar
þeirra til hinstu stundar. Um
langt skeið fékst Indriði við lækn-
ingar. Leituðu margir til hans í
þeim erindum. Nú er hann oi'ðinn
mjög sjóndapur. En þó að líkams-
sjónin depiúst, er honum opin sýn
inn á önnur svið tilverunnar, sem
flestum eru dulin.
Fimta október í haust er gull-
brúðkaup þeii-ra hjóna.
Þó að eg og aðrir vinir þeirra
óskum þeim blessunar Guðs, ger-
ist þess ekki þörf. Þau hafa sjálf
áunnið sér hana með breytni
sinni.
Ef á hvei'ju heimili réðu húsum
rnaður og kona með skapgei'ð
þeirra Belgsárhjóna, væri bjart
umhorfs, hvert sem litið væri.
Guðrún Jóhannsdóttir,
Ásláksstöðum.
------0-------
S íms key ti.
(Frá Fréttastofu íslands).
Rvík 26. sept.
Madrid: Stæi'sta leikhúsið í
Madrid brann nýlega; 80 lík hafa
fundist í rústunum, en vafalaust
hafa fleiri fai'ist, og fjöldi meidd-
ist.
Oslo: Sjötti noi'ræni verslunar-
fundur nýskeð haldinn. Forstjóri
Noi-egsbanka sagði í fyrirlestri,
að nauðsynlegt væri að Noi'ður-
landaþjóðir hefji samningatilraun
um nýjan myntsamning, en álítur
að best sé að halda skiftimynt-
inni utan við samninginn eins og
sakir standa.
Sofia: Undanfarna mánuði
hafa ítalir sent geysilegar birgðir
vopna^og skotfærajtil Albaníu, að
sögn 300,000 rifla, 18—20000 vél-
byssur, 3—400 hernaðarbifreiðar
og ‘bi'ynreiðar. Ætla nágranna-
þjóðir Albana, að ítalir ætli að
nota landið fyrir vopnabúr í Balk-
anófriði.
Róm: Venizelos og Mussolini
hafa undirskrifað grísk-ítalskan
vináttusamning.
Berlín: Majotowitch, fyrv. ut-
anríkisráðherra Jugoslafíu spáir í
blaðinu Pi'avda Balkanófriði fyr
en varir, vegna atbui'ðanna í Al-
baníu; kveður hann ítali og Al-
bani hafa gert leynisamning um,
að Mussolini viðurkenni Zagu
konung Albana, en hann lofar
hinsvegar að styrkja öll ítölsk
fyrirtæki á Balkanskaga. í samn-
ingnum kvað vera getið um mögu-
leika fyrir stofnun nýs Rómaríkis,
sem nái yfir ítalíu og Balkan-
skaga.
1
Norðtungu: Landskjálfta all-
tíðra varð vai't í uppsveitum
Borgarfjarðar í fyi'rahaust, og nú
hafa þeir byrjað á sama tíma.
Héldust þeir til nýjárs í fyrra, og
voru sumir kippirnir all-harðir.
Aðfaranótt 24. þ. m. kom snarp-
ur kippur, svo alt lék á reiði-
skjálfi á bænum örnólfsdal. Land-
skjáftar hafa verið alveg óvenju-
legir á þessum slóðum. Þegar
landskjálftarnir gengu 1896,
hristist einnig í Borgarfirði, en
virtist ganga jafnt yfir.
Bifreiðarsiys varð á Hafnar-
fjarðarveginum í gær. Vegar-
brúnin sprakk undir lokaðri bif-
reið með 7 mönnum í . Bifreiðin
valt út af veginum, án þess hún
skemdist, eða mennina sakaði,
en rétt þegar þeir voru komnir
út úr henni, kviknáði í henni. Eld-
urinn varð slöktur, en bifreiðin er
ekki notkunarfær.
Mjólkurbúið í Flóanum á að
vera komið upp 1. júní 1929; á-
ætlaður kostnaður alls 120 þús-
und kr. V
Moskva: Ráðstjórnin gerir
ýmsar ráðstafanir til þess að út-
rýma áfengisnautn úr landinu;
ráðgerir hún að koma á algerðu
banni á 5 árum.
Stokkhólmi: Fullnaðarúrslit
kosninganna eru þannig: Hægri
73 þingsæti; bændur 27; líberalir
4; frjálslyndir 28; socialistar 90;
kommunistar 8.
Moskva: Krassin hættir leit-
inni að loftskipaflokkníím í byrj-
un október og fer þá heim.
Fjögra ára drengur í Rvík
brendist nýlega svo hættulega, að
hann andaðist daginn eftir. Datt
drengurinn ofan í bala með sjóð-
heitu vatni í.
Á fundinum um járnbrautar-
rnálið, sem haldinn var í Rvík á
laugardaginn var, voru engar á-
lyktanir gerðar, voru skoðanir
manna mjög skiftar í málinu.
Fjárhagsnefnd Rvíkur áætlar,
að bærinn þurfi að taka miljónar
lán á næstunni til verklegra fram-
kvæmda. Af þessu fé eru 400 þús.
ætlaðar til barnaskólabyggingar-
innar, 100 þús. til sundhallarinn-
ar, 100 þús. til vatnsleiðslu úr
laugunum og 100 þús. til gatna-
gerða.
----:—o----—
F réttir.
Sveinbjörn Oddsson prentari fór al-
fluttur með fjölskyldu sína héöan úr
bæ til Rvíkur með Dr. Alexandrine,
síðustu ferð.
E.s. Norman fór héðan síðustu laug-
ardagsnótt, fe'rmt sykursaltaðri síld, er
einkasalan hefir selt til Finnlands.
Fjármálaráðherra, Maghús Kristjáns-
son fór með Brúarfossi til Rvíkur.
Hafði heilsa hans tekið miklum fram-
förum við hvíldina hór.
Síðasti bxjarstjómarfundur samþykti
þá tillögu hafnarnefndar að kaupa eign
\\ athne á Oddeyrartanga, ef hún feng-
ist fyrir 25 þús. kr.
Slátrun sauðfjár í hinu nýja slátrun-
arhúsi K. E. á Oddeyrartanga byrjaði
á föstudaginn var. Er þar nú daglega
slátrað 1000 fjár.
Davíð Stefánsson skáld kom hingað
með Drotningunni fyrir síðustu helgi.
Ennfremur kom með sama skipi Einar
Jónsson magister, hinn nýi kennari við
Gagnfræðaskólann hér, ásamt frú sinni.
Misprentast hefir í grein um Leik-
■>
fél. Akureyrar í síðasta blaði leiðsögn
fyrir leiðsögu.