Dagur - 27.09.1928, Síða 3
42. tbl.
DAGUR
165
Síldveiðinni er nú lokið að þessu
sinni. Alls hafa verið saltaðar og
kryddaðar um 170 þús. tunnur.
Dánardægur. Um miðja síðustu viku
ar.daðist hér á sjúkrahúsinu húsfrú
Unnur Jóhannsdóttir, kona Kristjáns
Skúlasonar bónda á Sigríðarstöðum í
Ljósavatnsskarði. Hún mun hafa verið
nálægt fimtugu að aldri. Berklar urðu
henni að bana.
Jarðarför hennar fer fram frá Sig-
ríðarstöðum kl. 12 á hád. á laugardag-
inn kemur.
Þá er og nýlátinn hér í bæ Jón Jó-
hai.'nsson fyrrum bóndi í Æsustaða-
gerði, en fluttist hingað til bæjarins í
vor. Hann dó úr krabba.
-----o------
A við av'angi.
Fundahöldin á Suöurlandi.
Frá því var skýrt í Degi ný-
lega, að fundahöld, sem íhalds-
menn í Rvík hefðu stofnað til,
stæðu fyrir dyrum austur á Síðu
og í Vík í Mýrdal. Þegar til kom,
urðu fundirnir fjórir, 2 þeirri í
Vestur-Skaftafellssýslu á fyr-
greindum stöðum og 2 í Rangár-
vallasýslu, í Hvammi undir Eyja-
fjöllum og á Stórólfshvoli. Dagur
hefir aflað sér nokkurra upplýs-
inga um .fundi þessa, og eru þær,
sem hér segir, teknar eftir fleiri
en einni heimild:
Frá hendi íhaldsflokksins
mættu á fundunum Jón Þorláks-
son, ólafur Thors og Jón Kjart-
ansson. Auk þeirra var þar stadd-
ur Sig. Eggerz, nema á fyrsta
fundinum, í Múlakoti. Af Fram-
sóknarhálfu voru þar Jónas Jóns-
son ráðherra, Ásgeir Ásgeirsson
og Bjarni Ásgeirsson, og af Jafn-
aðarmönnum Jón Baldvinsson og
Haraldur Guðmundsson. Fundirn-
ir voru allstaðar vel sóttir og fóru
sæmilega fram, þó að sjálfsögðu
væri nokkurt kapp og hiti í um-
ræðunum. í Múlakoti var talið að
Framsóknarmenn hafi verið í,
meirihluta, Á Víkurfundinum
veitti höfðatölu fhaldsins heldur
betur, í Hvammi mátti ekki á
milli sjá um fylgi flokkanna, en
á Stórólfshvoli voru íhaldsmenn í
allsterkum meirihluta. — Jón
Þorláksson talaði einkum um
fjárhag ríkissjóðsins og hældi sér
fyrir »viðreisn« fjárhagsins.
Einnig talaði hann um stefnur
flokkanna í samgöngumálum, en
mjög var stefnuskrá hans í því
efni á reiki eftir viðhorfi og að-
stöðu -á hverjum stað. ólafur
Thors sló mikið um sig, eins og
lians er vandi og höfðu ekki að-
eins flokksmenn hans, heldur og
andstæðingar gaman af honum,
en eftir á fanst mönnum að ræður
hans skilja lítið eftir, nema tóma-
hljóð. Jón Kjartansson var með
smásmuglegt nart í dómsmálaráð-
herra, og voru ræður hans áhrifa-
lausar. Jónas Jónsson hélt sig
fast að stefnumálum og dugði æ
því betur, sem andstæðingamir
hugðust kreppa fastar að honum.
Sýndi hann ljóst fram á, hvaða
verkefni til viðreisnar biðu úr-
lapsnar. Hið sama gerðu þeir Ás-
Athugið
sparnaðarmenn.
Besta og ódýrasta
á-l-n-a-v-a-r-a-n
fæst í stærstu úrvali hjá
Baldvin Ryel.
M LJ N D L O S-saumavélar
eru BESTAR. fást r
Verzluninni NORÐURLAND.
geir og Bjarni. Talaði hinn fym.
meðal annars rækilega um gengis-
málið, en hinn síðartaldi um land-
búnaðinn. Jafnaðarmennirnir áttu
litlu fylgi að mæta við stefnu sína
á fundunum, enda var þeim það
ljóst fyrirfram, en þeir vildu þó
kynna skoðanir sínar út um sveit-
irnar og sýna bændum um leið,
að þeir væru eins og aðrir menn,
en hefðu hvorkj^horn né klaufir.
Sig. Eggerz fór ekki austur fyr
en nokkru á eftir hinum. Áður
hann lágði af stað, sendi hann ól.
Thors skeyti á latínu! Eigi er
víst hvort það hefir átt að vera
»skens« upp á dulmál togaraeig-
enda. Eftir að Eggerz kom á
fundina, átti hann mjög í brösum
við Jafnaðannennina um það,
hvort hann eða þeir væru lystugri
á »danska gullið«.
Víst er talið, að fundir þessir
hafi engan árangur borið í þá átt
að breyta afstöðu manna tii flokk-
anna.
Morgunbl. hefir gefið lýsingu
af fundum þessum. Um þá lýsingu
hefir þjóðkunnur utanflokkamað-
ur sagt, að hana hefði alveg eins
vel getað gefið maður, sem ekki
hefði eitt einasta orð heyrt af
fundunum sagt. Má af því marka
áreiðanleik hennar.
•»Bændurnar« og »fæturnar«.
Jón, sem gefur út Norðling, ját-
ar’ það, að hann kunni ekki að
skrifa íslenzku skammlaust. En
honum þykir það hótfyndni af
Degi að vera að hafa orð á þessu
og afsakar sig með því, að >>hin
mörgu og þungu rök« sín bæti
upp málvillurnar og ambögubósa-
háttinn. Er þetta hið naprasta
sjálfsháð, sem sést hefir á prenti.
önnur afsökun lá þó nær og
hefði átt betur við. Um söma
mundir og Jón er að ræða um
»bændurnar«, er frásögn í Morg-
unblaðinu um »fallegar fætur« og
»fallegu fæturnar«. Afsökun Jóns
hefði því átt að vera á þessa leið:
úr því að fyrverandi húsbændur
rnínir á Morgunblaðsheimilinu
verða sér til minkunar vegna
kunnáttuleysis í móðurmálinu, þá
getur enginn vænst þess, að eg,
fyrv. ónýtur þjónn þeirra, sem
þeir gátu ekki notað, komist hjá
að verða mér til skammar fyrir
aulahátt við ritstörf.
Sanngjörn krafa.
íslendingur fer fram á það, að
þegar blaðið minnist á fjáreyðslu
fhaldsstjórnarinnar sálugu, þá
geri menn svo vel að tífalda upp-
hæðirnar, sem nefndar eru. Dag-
ur mælir með þessari sanngjömu
kröfu.
*
Nú eru á boðstólum um 600
karlm., ungl. og drg. föt og frakkar,
sem ég síðastl. sumar lét sauma úr bezta efni með vand-
aðasta fóðri og frágangi. Par sem vörur þessar eru
keyptar gegn peningum út í hönd og frá fyrsta flokks
verksmiðjum, bið eg heiðraða viðskiftamenn að athuga, að
nú eins og að undanförnu er það hvers marins hagnaður að
kaupa ALLSKONAR FATNAÐ hjá
Baldvin Ryel.
Skósm íðaverkstæðið
í Aðalstræti 10
er nú fyrir alvöru tekið til starfa — Leður- og gúmmískófatn-
aður tekinn til aðgerða. — Vatnsleðurstígvél smíðuð eftir máli.—
Verð á aðgerðum og nýsmíði er það lægsta fáanlega, miðað
við vandað efni og góða vinnu.
Virðingarfylst.
GUNNAR S. HAFDAL.
Ka upi
GÆRUR,
saltaðar og þertar.
Óska eftir tilboðum.
pr. Otto Erhard, Hamborg.
’'f Ak. 20/9 28.
JÞorv. Sigurðsson.
KenslU veitir undirritaður, eins
og að undanförnu, i orgel- og
pianoleik. Byrja nú þegar.
Akureyri 26. Sept. 1928 (Spítalaveg 15).
Sigurgeir Jónsson.
Athugið
I verzlun Önnu Magnúsdóttur
kom með síðustu skipum mjög
fjölbreytt úrval af góðum og
ódýrum kápuefnum, kjólatauum,
gardínum og bróderuðum dúk-
um. Tilbúnar kápur og kjólar
væntanlegar með næstu skipum.
Anna og Freyja
Tapaður hestur.
Hestur hvarf úr girðingu í Ás-
hildarholti við Sauðárkrók 9. Sept.,
rauður reiðhestur, stjörnóttur, gló-
bjartur á fax og tagl, 10 — 11 vetra
gamaíl, stór, hér um bil 54 þuml.
á hæð, klárgengur, viljugur, aljárn-
aður, yfirmark ekkert, undirmark 2
bitar. — Verði nokkur var við
nefndan hest, er hann vinsamlega
beðinn að gera undirrituðum aðvart.
Kristján Gíslason, Sauðárkróki.
Axel Kristjánsson, Akureyri.
Gúmmískór, unglinga,
kven og karla. — Striga-
skórnir ódýru með
gúmmíbotnum, nýkomn-
ir.
Kaupfél. Eyfirðinga.
M a 11 ö 1
Bajersktöl
P i 1 s n e r
£ezt. — Ódýrast.
Innlent.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 6. Sími 182.
Ereatsmiðja Odds Björaseonar. Ak. *28.