Dagur - 21.02.1929, Blaðsíða 3
8. tbl.
DAGUR
31
♦ ■»•••♦ • # •
úr, hvernig nautið er. En hún sést
þegar dætur- þess koma upp. I
Eyjafirði er þess utan tvenns að
gæta við val nautanna frekar en
víða annarstaðar.
Annað er, að þau séu ekki- af
■lausmjólka kyni, sem mjólkar sig
niður. Það, að kýr leki sig, er ým-
ist komið af sérstakri spenabygg-
ingu, eða slæmum mjöltum. Hið
fyrra er arfgengt og komið af ein-
stökum erfðavísir, sem, fái kýrin
hann frá öðru foreldrinu, orsakar
að hún verður lausmjólka, en
komi hann frá báðum foreldrum,
verður hún óumflýjanlega og alt-
af lek — mjólkar sig niður.
Það eru allmargar kýr í Eyja-
firði lausmjólka, og nokkrar lek-
ar, og því þarf að gæta þessa sér-
staklega við val nautanna þar.
Þá er hitt sem aðgæta þarf, að
nautið sé ekki flátta né út af flátt-
um. Flátta er það kallað, þegar
fram og afturspeni í sömu hlið
eru grónir saman. Þetta er líka
arfgengt, en kemur ekki fram,
nema það komi frá báðum for-
eldrum. Ef til vill eru þau naut og
þær kýr, sem hafa fengið erfða-
vísirinn frá öðru foreldri sínu, ná-
spenari en hinar, en það er ekki
rannsakað. Hitt er víst, að eigin-
leikinn getur legið hulinn gegnum
marga ættliði, en komið fram,
þegar leiddar eru saman skepnur,
sem bæði hafa haft hann hulinn.
í Eyjafirði sá eg tiltölulega flest-
ar kýr fláttar á sýningunum 1927,
og eitt naut. Þar þarf því að taka
sérstakt tillit til þessa við val
kynbótanautanna.
Eg hefði hugsað, að Eyfirðingar
gætu myndað eitt allsherjar 'naut-
griparæktarfélag yfir alt svæðið,
sem mjólkursamlagið nær yfir. Pað
stæði saman um eftirlfctsstarfið og
fengi samlagið til að gera feitimæl-
ingarnar. Eftirlitsmenn yrði það að
hafa eftir þörfum, 1—2 — 3 eftir þvi
hve margir bæjir eru í samlaginu.
Innan þess væru svo deildir, sem
stæðu saman um nautin, annað-
hvort deild um hvert naut, eða
deild innan hvers hrepps, og væri
hið síðara betur samrýmanlegt við
lögin um kynbætur nautgripa.
Eg vil biðja Eyfirðinga að athuga
þetta. Peir hafa sérstöðu vegna
samlagsins. Par riðu þeir á vaðið.
Hér hafa að vísu starfað og starfa,
nautgriparæktarfélög, en hér gæti
starfseminn orðið víðtækari og vænt-
anlega líka stefnufastari, en oft hefir
viljað vera í félögum. Svo hér gætu
þeir líka riðið á vaðið.
Loks skal eg geta þess, að naut-
griparæktarfélög fá styrk frá Bún-
aðarfélagi fslands. Stofnstyrkpr hef-
ur verið til að koma upp girðing-
um, til að geyma nautin í að sumr-
inu. Hefur hann numið kr. 300.00
á félag, þó aldrei yfir V< tilkostnaðar.
Eftir næstkomandi Búnaðarþing
má líka vænta, að veittur verði
styrkur til að kaupa góð undan-
eldisnaut.
Árlegan styrk hafa félögin feng-
ið og hefir hann verið 1.50 — 2.00
kr. á hverja kú, sem skýrsla hefir
verið haldin yfir, hafi eftirlitið ver-
ið í lagi. Viða hefur þessi styrkur
gert langdrægt að borga eftirlitið,
og ef svo semdist með bændum,
að samlagið annaðist að einhverju
leiti fitumælingaruar, mundi hann
mikið til hrökkva fyrir árlegum
reksturskostnaðinn við sjálft eftir-
litið.
Loks vil eg geta þess, að Bún-
aðarfélag íslands svarar öllum spurn-
ingum hér að iútandi, eins og öðru
sem að búnaði lítur og það er
spurt um.
Reykjavík, 31. des. 1928.
Páll Zóphóniasson.
-------o------
Leiðrétting.
í 15. tbl. »Verkamannsins«, 16.
þ. m. stendur í grein, sem heitir
»Skólastjóramálið«, svohljóðandi
klausa:
».....Á meðan málið var hjá
skólanefnd, bárust henni kvartan-
ir frá tveimur mönhum í bænum
yfir framkomu skólastjóra við
börn þeirra. Þótt þessar kvartanir
yrðu að kæniatriðum á hendur
skólastjóra, í höndum formanns
skólanefndar, var það alls ekki til-
ætlun þessara manna, heldur að
skólanefnd ræddi þessi atriði við
skólastj. til að fyrirbyggja slíkt í
framtíðinnk.
Þessir tveir menn, sem hér um
ræðir, geta ekki verið aðrir en
þeir feðgar, Sigurgeir Jónsson
organleikari og Páll Sigurgeirsson
verzlunarstjóri. — Greinarhöf.
þessi gefur í skjm, að eg hafi orð-
ið þess valdandi, að kvartanir
urðu að kæruatriðum. Mér er
ekki ljóst, hvernig á að skilja
þetta, og til þess að skýra málið
fyrir almenningi, tel eg rétt að
birta erindi það, sem Sigurgeir
Jónsson sendi skólanefnd, en það
hljóðar svo:
»Háttvirta skólanefnd Akureyrar!
Eg finn mig knúðann til að senda yð-
ur eftirfarandi umkvartanir:
Með þvi að drengurinn minn, sem er
í sjötta bekk barnaskólans — Hörður
að nafni — hefir orðið fyrir ótilhlýði-
legri meðferð af skólastjóra — hárreit-
ing, þannig, að höfuðið var sárt nokkra
daga á eftir, svo hann t. d. þoldi illa að
hvíla höfuðið á koddanum nema á ann-
,an vangann. Þetta var um viku fyrir
jól síðastliðin. — Sömuleiðis kvarta báð-
ir drengirnir mínir, sem eru í sama
bekk skólans, um sífelt eyrnaklip og
eyrnatog hjá skólastjóranum. Og þar
sem jeg veit ekki til að drengirnir mín-
ir hegði sér á nokkurn hátt ósæmilega,
heldur þvert á móti, séu prúðir í alla
staði, þá er mér dulið, hversvegna þeir
þurfa að sæta slíkri meðferð hjá skóla-
stjóranum.
Eg get því ekki að athuguðu máli átt
á hættu, að drengirnir mínir haldi á-
fram í skólanum, nema að geta verið
öruggur fyrir því, að þeir sæti ekki á
neinn hátt særandi meðferð, slíkri sem
hér er lýst.
Eg vænti þess að háttvirt skólanefnd
gangi svo frá þessu máli, að vér for-
eldrar, sem eigum böm í barnaskólan-
um, megum vel við una.
Akureyri 19. janúar 1929.
Sigurgeir Jónsson
(organleikari)«.
Þetta erindi Sigurgeirs lagði eg
fram á fundi skólanefndar 19. f.
m., ásamt erindi Sig. Ein. Hlíðar,
og eru þau bæði nefnd »kærur« í
fundarbók skólanefndar, og hafði
engin nefndarinanna neitt að at-
huga við þá bókun. —
Páll Sigurgeirsson kom auðvit-
að algerlega ótilkvaddur af mér á
minn fund, til þess að skýra mér
frá meðferð skólastjóra á stjúp-
svni sínum, í því skyni, að skóla-
nefnd fengi að vita um hana. Var
ástæðan fyrir því, að ýiann fór nú
með mál þetta fyrir skólanefnd
aðallega sú, að ýmsar missagnir
gengu um þetta í bænum, í sam-
bandi við nýframkomnar kærur á
hendur skólastjóra. Kaus hann
(o: Páll) því heldur að skólanefnd
fengi sannar upplýsingar um mál-
ið. —
Mér getur ekki skilist, að til-
gangur greinarhöf. með hinu ein-
kennilega orðalagi sé annar en sá
að reyna að gera mig. tortryggi-
legan í augum almennings, en til-
raunin mishepnast algerlega, eins
og við er að búast. Eg tók við
kæru Sigurgeirs og lagði hana
fyrir skólanefnd, og eg skýrði
nefndinni munnlega frá því, sem
Páll hafði sagt mér, eins og hann
ætlaðist til, og staðfesti hann
þessa frásögn síðar fyrir nefnd-
inni.
Eg gerði því skyldu mína í
þessu efni og annað ekki.
Akureyri, 18. febr. 1929.
Brynleifur Tobiasson.
-------o------
S ims keyti.
(Frá Fréttastofu fslands).
Rvík. 19. febr.
ALÞINGI. I gær var kjörbrjef
Jóns í Stóradal tekið gilt.
Forseti Sameinaðs þings var
kosinn Magnús Torfason með 18
atkv. Jóhannes fékk 15 atkv.
Varaforseti kosinn Ásgeir Ás-
geirsson með 17 atkv.
Forseti Efri deildar kosinn Guð-
mundur ólafsson með 8 atkv.
Halldór Steinsson fékk 6 atkv.
Varaforseti kosinn Jón Baldvins-
son.
Forseti Neðri deildar var kos-
inn Benedikt Sveinsson með 18
atkv. og varaforseti Þorleifur
Jónsson.
25 stjórnarfrumvörpum hefir
verið úthlutað og kosið í fasta-
nefndir í dag. —
Innflutt í janúar fyrir
4,476,314,00 kr.; þar af til Rvík-
ur 3,238,000.00 kr.
Síra Jón Magnússon fyrrum
prestur á Ríp, er nýlátinn hér.
Frá ísafirði er símað, að ágæt
isafli sé á Vestfjörðum; hæstir
hlutir yfir 6 vikur 1000 kr.
Seint á laugardagskvöld strand-
aði vélbáturinn Höskuldur við Ak-
urey í blíðskaparveðri. Magni náði
honum á flot.
Sáttasemjari ríkisins hélt í gær-
kveldi fund með fulltrúum út-
gerðarmanna og sjómanna; til-
kynti hann í fundarlok, að hann
hefði í hyggju að bera fram nýja
sáttatillögu. Á fimtudaginn verða
atkvæði greidd um hana af félög-
um útgerðarmanna og sjómanna.
Bergur Jónsson sýslumaður hef-
ir dæmt Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeta í 15 daga einfalt
fangelsi skilyrðisbundnum dómi
út af meðferð hans á fé dánar- og
þrotabúa. Jóhannes áfrýjaði þeg-
ar til hæstaréttar.
Brezkur botnvörpungur, Jasper
frá Kingston,strandaði við Steins-
mýrarfjörur þ. 16. þ. m. Hafði
farið frá Hull þ. 13. Skipstjóri,
sem er íslenzkur, og skipverjar,
14 að tölu, björguðust ómeiddir í
land á línu. Skipið liggur úti í
brimgarðinum, og óvíst er talið
hvort hægt verður að bjarga
nokkru úr því.
------o------
Þórunn Friðjónsdóttir
f. 22. apr. 1884 — d. 11. jan. 1929.
Til þín kom engill sá, er flytur friðinn
farmanni þreyttum eftir veður hörð.
Hann gekk með þér í gegnum þöglu
hliðin,
er greina framlífsheim og vora jörð.
Hann gekk með þér, frá gróðurleysi og
klaka,
um grafarlönd og skuggabjargadal;
til sólarvangs, þar sér ei hjarn né jaka,
en sífrjó lífsvötn streyma um bjarkasal.
Þar kallar blær og birta sumardaga,
af blundi hvíldar þig til starfs á ný.
Þar snýst í fögnuð jarðlífs sorgarsaga,
sem fyrir geislum hjaðni morgunský.
Eg græt þig ei, eg gleðst af frelsi þínu.
Þú góða kona! Þökk fyrir líf og starf.
Sem dýrsta perla skal í minni mínu
sú minning geymd, er lætur þú í arf.
F. H. Berg.
-------O-------
Fréttir.
Frmnkvæmdastjórar síldareinkasöl-
unnar, þeir Einar Olgeirsson og Pétur
Ólafsson, eru báðir á leið til útlanda
með Drotningunni. Er för þeirra heitið
til Svíþjóðar til undirbúnings síldarsölu
þar, en þaðan ætlar síðan Pétur alla
leið til Ameríku í sömu erindum.
Inflúenza breiðist óðfluga út í Reykja-
vík og liggur fólk þar í hrönnum. Hefir
skólum verið lokað vegna veikinnar.
Fremur er hún sögð væg en afar smit-
andi.
Dánardægur. Nýlega er látin á Odd-
eyri Helga Jóhannesdóttir, ekkja á sex-
tugsaldri.
Á sunnudaginn var andaðist hér á
sjúkrahúsinu Soffía Þorsteinsdóttir frá
Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Hún var
aðeins hálf þrftug að aldri.
Þá eru og fyrir skömmu látnar tvær
konur í Skagafirði: Sigrún Jónsdóttir
að Hólum í Hjaltadal, móðir Steingríms
skólastjóra þar, og Rósa Daníelsdóttir
frá Skáldstöðum í Eyjafirði, lcona Pét-
urs Sighvatssonar símastjóra á Sauðár-
krók.
Um síðustu mánaðaniót andaðist í
Vestmannaeyjum óli J. Kristjjánsson,