Dagur - 24.04.1929, Page 4
70
DAGUR
17. tbl.
sem væru um 3—4000 ára gamlar.
Á Frakkiandi hafa einnig verið
bygð heil þorp úr inoldsteypu, hús-
in þar eru nú 3—400 ára gömul, og
er búið í þeim ennþá. Fjölskyldur,
sem í þeim hafa búið, hafa ekki vit-
að annað, en að það væru gömui
steinhús. Englendingar og Spán-
verjar hafa einnig reist moldsteypu-
hús, sem nú eru um 200 ára gömul.
Síðan 1920 hafa moldsteypuhús
verið reist með góðum árangri bæði
í Noregi og Svíþjóð. Ræðumaður
benti á, að í Svíþjóð væri frosthark-
an á vetrum eins mikil eða meiri en
hér, og að í Noregi væru úrfelli
engu minni, ef ekki meiri en hér, en
hvorugt hefði skaðað húsin þar og
virtist það benda á að þau gætu átt
vel við íslenzkt veðráttufar, einkum
þar sem þau hefðu reynst mjög hlý
og alveg rakalaus. Þá lýsti hann
ail ítarlega byggingaraðferðinni,
sem gr rnjög einföld og krefur iítinn
útbúnað og mjög einföld verkfæri,
og bar saman kostnað við hana
miðað við steinsteypuveggi. Eftir
reynslu þeirri, er Svíar hafa fengið,
var kostnaðurinn við sjálfa veggina,
sem 1 : 10 miðað við steinsteypu.
Hér er því um sparnað að ræða,
sem ekki er lítilsverður. Að endingu
lét hann þá skoðun j ljósi, að sjálf-
sagt væri fyrir fslendinga að gefa
gaum að reynslu frændþjóðanna í
þessum efnum og sjálfir reyna
þessa byggingaraðferð. Kvað hann
forna reynslu með torfbyggingar
hér á landi einnig benda í þá átt, að
hér væri fundin rétt leið til þess að
leysa úr byggingamálunum, þar að
auki kvaðst hann vilja nefna sem
mikilvæga ástæðu, að Aðalsteinn
Halldórsson í Reykhúsum í Eyja-
firði, þegar hefði gert tilraun með
að byggja úr moldsteypu og heíði
sú tilraun hepnast vel. Hann gat
þess og, að íslenzkir menn nú þeg-
ar hefðu komist í samband við Svía
um þetta mál og reynt að rannsaka
það, og að á síðasta búnaðarþingi
hefðu legið fyrir tvö erindi frá slík-
um mönnum, seni hefðu skorað á
það að taka málið til meðferðar.
Búnaðarþingið hefði tekið málinu
vel og ákveðið að veitt yrði nokkurt
fé tii þess að fá sænskan eða norsk-
an mann hingað til lands, til rann-
sókna og tilrauna, og ef það bæri
góðan árangur væri í ráði að senda
einhvern góðan mann út, til þess að
læra aðferðina til fullnustu og
kenna hana öðrum.
3. fyrirlesturinn hélt Jónas Krist-
jánsson, mjólkursamlagsstjóri, og
var hann um meðferö mjólkur.
Ræðumaður gat þess í upphafi,
að eftir því sem ræktun landsins yk-
ist, mundi sauðfjárræktin minka og
kúabú koma í staðinn; og eftir því
sem kaupstaðirnir stækkuðu, færi
eftirspurn eftir mjólk og mjólkur-
vörum vaxandi. Gat hann þes's að
erlendis hefði mjólkin fyrst orðið
verzlunarvara eftir miðja síðustu
öld, en nú væri hún einnig orðin
verzlunarvara hér. Hann gaf nú
glögt yfirlit yfir sögu mjólkurbú-
anna á Norðurlöndum, vöxt þeirra
og viðgang, mjólkurverð o. s. frv.
Þá talaði hann um meðferð mjólk-
ur hér á landi alt frá fomöld og
fram á síðwstn tima, og að lokum
Jurfapoffar
nýkomnir.
Kaupfél. Eyfirðinga.
sýndi hann fram á, að í mjólkuriðn-
aðinum, sem færi sívaxandi allstað-
ar, værum vér að minsta kosti 40
árum á eftir nágrannaþjóðunum, en
nú gætum vér líka notfært oss alla
þá kunnáttu og reynslu, sem til væri
í þessum inálum. .
4. fyrirlesturinn hélt Pálmi Hann-
esson kennari, var hann um mold-
ina qg lífsorku hennar. Ræðumaður
mintist fyrst á það, hversu mögu-
leikar moldarinnar til að framfleyta
lifi gerðu hana dýrmæta. Því næst
skýrði hann nijög vel frá myndun
moldarinnar, lýsti efnasainböndum
hennar og öllu ástandi. — íslenzku
jörðina kvað hann ennþá gefa lítið
af sér fyrir mikið erfiði, en henni
þy^rfti að konia í það horf,að hún
gæti gefið það mest mögulega af
sér fyrir minst mögulegt erfiði.
Kl. 8 um kvöldið hófst umræðu-
fundur, voru þar lagðar fyrir ýmsar
spurningar viðvíkjandi þeim málum,
sem hreyft hafði verið í fyrirlestr-
unum. Svöruðu þeir Sigurður Sig-
urðsson og Ólafur Jónsson öllum
siíkum fyfirspurnum. Að lokum
urðu talsverðar umræður um mold-
sleypuna milli þeirra Bergsteins
bónda á Leifsstöðum og Ólafs Jóns-
sonar. Frímann B. Arngrímsson
hafði einnig orðið og sýndi ræki-
lega frani á, hver nauðsyn væri á að
steintegundir og önnur verðmæt
efni, sem findust í íslenzkri náttúru,
væru rannsökuð, svo að þau gætu
komið landsbúum að notum.
Sigurður búnaðarmálastjóri fór
að lokum nokkrum orðum um þetta
námsskeið og þakkaði mönnum fyr-
ir komuna; og var svo námsskeið-
inu slitið af varafundarstjóra, Ingi-
mar Eydal.
í fundarlokin kom Frímann B.
Arngrímsson með eftirfarandi yfir-
lýsingu, sem hann bað um áð yrði
bókuð í fundargerðinni:
»Háttvirtu herrar á búnaðarnáms-
skeiði höldnu á Akureyri!
Af því að reynsla hefir sýnt, að
tilraunir mínar til að safna stein-
tegundum og rannsaka þær, hafa
ckki mætt þeim stuðningi á Alþingi,
sem mér hefði verið nauðsynlegur,
gef eg yður hér með til kynna, að
nema því aðeins að þetta Alþingi
veiti nauðsynlegan fjárstyrk, get eg
ekki haldið nefndum tilraunum á-
fram.
Akureyri 10, apríl 1929.
Frímann B. Arngrímsson«.
Var svo þessu bændanámsskeiði
lokið. Því miður var það ekki svo
fjölsótt sem skyldi. En ekki verður
annað sagt, en að það væri bæði
fjölbreytt, fróðlegt og skemtilegt.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundason Brekkan.
AAalstrasti 16,
l 1 nrlirrifpir^ir taka aö sér að sera teiknin^ar
I l\J I í í I LuU! I aQ húsum, úireikning d járnbendri
steinsteypu og veita leiöbeiningar um önnur verkfrœðisstörf.
Bolli og Sigurður Thoroddsen,
verkfrœðingar.
P. O. Box 74, Reykjavík. Símar: 1935, 2221.
Eldiviður handa
Sjúkrahúsinu .Guðmanns Minni*.
Peir sem vilja selja sjúkrahúsinu eldivið (koks, kol og mó),
geta gert tilboð fyrir komandi dr frd 1. júli að telja.
Einnig óskast tilboð i heimjlutning eldiviðarins.
Tilboðin sendist héraðslækni í lokuðu umslagi jyrir 14. júni
nœstkomandi.
Sjúkrahússtjórnin.
Tilbúinn fatnaður.
Karlmarinafatnaður. Rykfrákkar kvenna og karla.
Peysufatakápur. — Mikið úrval. —
Kaupfélag Eyfirðniga.
Sænsk
handverkæfri
Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl
rS§§§ Sænskt stál ©r bezt.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA.
ENSKU
REYKTÓBAKS-
TEOUNDIRN A^R
Richmond.
Wáverley.
Glasgow.
Capstan.
Qarrick
eru góðkunnar meðal reykénd-
anna um land alt.
( heildsölu hjá
Tóbaksverslun Islands.
Pilsner
Sezí. — Ódýrast. >
Innlent. ]
•V
PrentemiÖja Odda Bjönunonar.