Dagur - 29.08.1929, Side 2
142
DAGUR
36. tbl.
gffffffffffffffffffffffff
w
margeftirspurðu eru komnar aftur í
stærðum %, 1, l1^ og 2 kg. Byrgið
yður upp fyrir sláturtíðina.
Kaupfélag Eyfirðinga.
liiiiiiiiiiiililiiiiiiiis
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen,
burði með samúð og hlýju. »En
þeir voru háværari og fjölorðari,
hinir, sem um þenna mentaskóla-
vísi ræddu opinberlega af algerðu
skiiningsleysi, reykvískum rig og
fjandskap í garð nústýrandi stjórnar.
Var fátt sparað til ófrægingar ráð-
herranum, er réttindin veitti til að
brautskrá stúdenta, og gerði slíkt
bæði djarfmannlega og skjótt*.
Hin ræðan er flutt við skólaslit
á síðasta vori og nefnist »Misskiln-
ingurinn mikli«. Er það erindi merki-
legt og fjallar um þá lífsskoðun,
að eigingirnin og sjálfselskan komi
mestu góðu til leiðar, »að menn
geri alt bezt fyrir sjálfa sig.« Sýnt
er fram á í löngu máli, að þessi
lífsskoðun er röng, að hið gagn-
stæða sé einmitt sannleikur. „Alt hið
bezta, sem mennirnir hafa skapað,
hafa þeir aldrei fyrir peninga gert“.
— »KærIeiksverk er, samkvæmt eðli
þess og hugtaki, aldrei unnið fyrir
fé né lof, heldur af ósjálfráðri sam-
úð og brjóstgæðum, af þörf á að
lina þrautir og Ieysa annara manna
vandræði. Kristur væri ekki Kristur,
ef hann hefði flutt kenningar sínar
og unnið verk sín sökum þeirra
launa, sem mölur og ryð fá grandað.*
Pá er og f skýrslu þessari kafli
einn, er hefir að yfirskrift »Land-
vinningur*; er þar greint frá því,
er bæjarstjórn Akureyrar gaf ríkinu,
til handa Qagnfræðaskólanum, lóð-
ir og lendur, um 3*/2 hektara að
stærð, og lýst undirbúningi þess
máls. Er það Akureyrabæ til sóma,
hversu vel var brugðist við mála-
leitun þessari, sem kenslumálaráð-
herrann átti frumkvæði að. Til sam-
anburðar má geta þess, að síðast-
liðinn vetur fór landsstjórnin þess
á leit, að Reykjavíkurbær gæfi Menta-
skólanum lóð fyrir leikvöll og báta-
hús suður við Fossvog. íhalds-
meirihlutinn í bæjarstjórn Rvíkur
þverrifeitaði öllum landgjöfum til
Mentaskólans.
Ennfremur er skýrt frá skemti-
og náttúrufræðiför 5. og 6. bekkjar
Oagnfræðaskólans til Hornafjarðar
í júlímánuði síðastliðnum. Er slíkt
ferðalag einsdæmi í íslenzkri skóla-
sögu. Var Pálmi Hannesson nátt-
úrufræðikennari leiðtogi í för þess-
ari, og hefir hann ritað ferðasög-
una. Að gefnu tilefni skal þess get-
ið, að skólameistari bætir við ferða-
söguna er hér greinir:
»Við þessa ferðasögu Pálma
Hannessonar má bæta þökk til
höfðingja þeirra Austur-Skaftfell-
inga, hr. alþm, Porleifs Jónssonar
í Hólum, fyrir ágæta liðveizlu hans
i útvegun fylgdarmanns og hesta.
Pakka ber og honum mikla gest-
risni, bæði við nemendur og kenn-
ara héðan að norðan, enda er heim-
ili hans hið mesta gestrisnisheimili,
sem kunnugt er víða um land.
Verður seinþökkuð öll sú alúð, er
Lónsmenn og Hornfirðingar létu
oss ferðalöngum að norðan í té.«
Loks skal þess getið, að í byrj-
un skólaársins eignaðist skólinn á-
gæt radió-tæki, sem komið var fyrir
í salnum. Hafði Pálmi Hannesson
forgöngu fyrir útvegun þeirra og
hafði yfirumsjón með þeim í skól-
anum. Nokkrar umbætur, auk venju-
legs viðhalds, voru gerðar á skól-
anum bæði innan húss og utan.
Að öllu er skólaskýrsla þessi
prýðilega úr garði gerð og ber það
með sér, að stofnunin er í góðra
manna höndum.
— ■ o------
Sauðnautin
Á öðrum stað hér í blaðinu er
símskeyti, sem skýrir frá að sauð-
nautaleiðangursmennirnirséu komnir
heim aftur frá Orænlandi. Eftir því
sem hægt er að ráða af skeytinu,
mun för þeirra þykja hin frækileg-
asta og fögnuður vera mikill yfir
því hversu vel hún hafi tekist. En
þegar litið er á árangurinn, virðist
þó ekki vera af miklu að láta — 7
kálfa höfu þeir heim með sér, og
t raun og veru var ekki við meiru
að búast. En til þess að ná þessum
7 kálfum urðu þeir að drepa 34
fullorðin dýr, eftir því sem skeytið og
blöðin segja. Er það alvegóheyrilegt
og manni verður ósjálfrátt að spyrja,
hvað þessi 34 dýr hafi unnið til
saka. — Pað er ilt til þess að vita
að dýr skuli enn vera svo réttlaus,
að hverjum sem er geti iiðist að
flana af stað og strádrepa niður
sjaldgæfar tegundir meinlausra dýra,
án þess að verða að sæta ábyrgð
Myrir. — Hingað til hafa íslendingar
látið sér nægja að eyðileggja dýrin
heima fyrir og hafa ekki gert út
Með síðustu skipum
kom gríðarmikið úrval af golftreyjum, barna-
peysum, herrapeysum, sokkum fyrir börn [og
fullorðna. Herraföt blá og misl., sportföt og
matrósaföt í öllum siœrðum, drengjafrakkar,
herra-vetrarfrakkar mjög fallegt úrval, rykfrakk-
ar, regnkápur, dömu, herra og barna, kasmír-
sjöl, kampgarnssjöl, alklœði tvœr teg., flauel
allsk., silkisvuntuefni og slifsaefni. Metravara
í mjög fjölbreyttu úrvali.
BALD. R V E L.
drápsleiðangra í önnur lönd — en
framfarirnar vaxa.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
-----o-....
Ásmundur Sveinsson.
Haustið 1919, kom eg frá íslandi
til Hafnar og kyntist þá meira og
minna heilum hóp íslenzkra listamanna-
efna. Nöfn sumra þeirra eru nú þekt
af mörgum hér á landi og nokkur
verk þeirra hafa orðið til þess að auka
hróður vorn meðal framandi þjóða.
Einn meðal þessara ungu byrjenda
á listabrautinni var Ásmundur Sveins-
son. Eg skal láta það ósagt, hvort
Ásmundur þá vissi sjálfur, hvað í hon-
um bjó, til þess kyntist eg honum of
lítið. Og erfitt var að spá nokkru um
framtíð hans þá; en það man eg, að
hann hafði einhverja merkilega trú á
því, að framtíð sín kæmi undir því,
hvort hann kæmist til Stokkhólms eða
ekki, þar þóttist hann vita, að sá rétti
skóli biði sín. Pað var ekki laust við
að sumir okkar brostu að þessari trölla-
trú hans. — Hann var jafn ókunnugur
í Stokkhólmi og i nokkrum öðrum bæ
og þekti ekki meira háttu og lyndisfar
Svía en nokkurar annarar þjóðar. En
hann hefir fundið sálrænan skyldleika
milli listadrauma sinna og þeirrar svensku
listar, sem hann hafði séð, og það
dró hann.
Það ber vott um mjög næma til-
finningu og glöggan skilning á hæfi-
leikum sjálfs sín þegar frá fyrstu byrj-
un, að hann skyldi hafa eins rétt fyrir
sér hér eins og raun varð á síðar.
Honum var vel tekið i Stokkhólmi, og
sjálfur vildi hann láta draum sinn ræt-
ast. Hann komst að á listaskólanum
og eftir að hafa stundað nám þar í
nokkur ár, var hann sæmdur verðlauna-
peningi (Áresmedalje) fyrir verk sín,
jafnframt, (hefir mér verið skýrt frá)
hafði hann atvinnu við að búa til
myndir í ýmsar byggingar og vann
þannig fyrir?sér á meðan hann dvaldi
í Stokkhólmi. 1926 hóf hann »suður-
göngu« fór til Ítalíu og settist þá að
í París, og þar hefir hann dvalið síðan.
Á haustsýningunni í Paris í fyrra
(»Salon d’Automme«) vann Ásmundur
einhvern hinn frægasta sigur og þá
beztu viðurkenningu listdómara, sem
fallið getur ungum listamanni í skaut.
— Mynd er hann sýndi þar »Sæmund-
ur fróði á Selnum« vakti eftirtekt ekki
einungis á honum, en einnig á hinum
merkilega söguheimi íslands. Lista-
mannablaðið »Les artistes d’aujourd
’hui«, gefur fyrst yfirlit yfir söguna
um heimferð Sæmundar úr Svartaskóla
og lýsir einkum því augnabliki sem
myndin sýnir, þegar þessi »íslenzki
Faust«, sem blaðið kallar hann, sendir
Kölska niður til heimkynna hans með
höggi af Saltaranum. »Verk Ásmund-
ar Sveinssonar sýnir Sæmund fróða,
sem reiðir Saltarann báðum höndum
yfir höfuð selnum. — Maðurinn legg-
ur alla krafta sína í höggið og hin
varnarlauaa ófreskja sér höggið ríða að
og veit að hún fær ekki staðist. Pað
er virkileg mynd af baráttunni milli
góðs og ills — það er eins og steinn-
inn hristist af átökunum.
Pað er egypzk og forngrísk list, sem
auðsjáanlega hefir fengið mest áhrif á
listasmekk Á. S. En með þessari byrj-
un hefír hann getið sér orðstír og gert
nafn sitt þekt hér í voru Iandi.«
(Niðurl.).
-----o-----
Á viðavangi.
Afturhvarf ihaldsmanna.
Flestir munu minnast þess, að svo
ógiftulega tókst til með smíði á varð-
skipinu Óðni undir handleiðslu íhalds-
stjórnarinnar sælu, að skipið reyndist
í fyrstu hættulegur manndrápsbolli, og
var mildi að varð ekki slys að. Ur
þessu var að vísu bætt síðar, svo að
Óðinn varð sæmilegt sjóskip. — Nú
hefir njýja varðskipinu, Ægi, sem
MID TIDUTfKI
er nú sem áður hagkvœmast að kaupa hjá
Có/nasi Qjömssifni,
AKUREYRI.