Dagur - 29.08.1929, Page 4
144
DAGUR
36. tbl.
Héraðslœknirinn.
Eg vil minna menn á að mig er dag-
lega að hitta í Brekkugötu 7 kl. 1 — 2
(nema á sunnudögum); auk þess er eg
venjulega heima kl. 5 — 6 e. h.
Á sjúkrahúsinu er eg á morgnana kl.
9 - 12.
Ferðir út umChéraðið skiftumst við Bjarni
læknir Bjarnason á að fara og kemur bezt
að fara eftir kl. 2 á daginn, þegar ekki
liggur því meira á.
Akureyri 27. ág. 1929.
Steingrímur Matthíasson.
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu fslands).
Rvík 26, ágúst.
Gotta kom frá Grænlandi í morgun
með 7 sauðnaut.
Rvík 27. ágúst.
Hnattflug Zeppelins greifa gengur
ágætlega; var 79 stundir á leiðinni
frá Tokio til Los Angeles; er nú
á leiðinni til Lakehurst.
Jerúsalem: Stöðugar óeirðir eru
milli Araba og Gyðinga í Palestínu.
í þeim óeirðum hafa 150 Gyðingar
fallið, en ókunnugt um mannfall
Araba. Bretar senda lið til Palestínu.
Orsök deilunnar er sú, að Arabar
óttast, að áhrif þeirra minki, vegna
innflutnings Gyðinga, síðan heims-
styrjöldinni lauk.
Haag: Bandamenn Breta hafa
gert þeim nýtt tilboð um skiftingu
skaðabótanna, en Snowden hefir
hafnað því. Búist er við fundarslit-
um þá og þegar.
Botnvörpungar hér búast nú á
saltfisksveiðar, allmargir.
Reyðarfirði: Prestafundur prófasts-
dæma í Múlasýslum, ásamt héraðs-
fundi, stendur yfir.
Almenn gleði er hér yfir heim-
komu sauðnautaleiðangursmann-
anna. Ráðgert er að hafa dýrin í
girðingu norðan- eða norðaustan-
lands fyrst um sinn, en nánari
ákvarðanir viðvíkjandi kálfunum eru
enn ekki teknar. Leiðangursmenn
urðu að drepa yfir 30 fullorðin dýr,
til þess að ná þessum 7 kálfum.
Gotta lenti í stormi á heimleiðinni
og lá til drifs í 52 stundir. Engar
ístafir.
.....O
Hreindýrarœkt í Canada.
»Heimskringla« (3. júlí s.l.) skýrir
frá því að sambandsstjórn Canada-
fylkjanna hafi í hyggju að koma á fót
mjög mikilli hreindýrarækt hér og þar
á svæðinu frá MacKenziefljótinu og
austur að Hudsonsflóa. Petta á fyrst
og fremst að tryggja Indíánum og
Eskimóum, sem á svæðinu búa, lífs-
viðurværi, en þeim gengur nú oft
erfiðlega að afla sér fæðu. Tveir
danskir vísindamenn, bræðurnir A. E.
og R. T. Porzild, sem bæði eru grasa-
fræðingar og líffræðingar, hafa varið
tveim árum til rannsókna þar norður
frá, og hafa þeir staðfest kenningu
Vilhjálms Stefánssonar, að á þessu
svæði megi ala stórkostlega hreindýra-
hjðrð, um 250,000.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 6.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
AAalatzwti 15.
F r éttir.
„Drotnmgin" kom hingað að sunnan á
laugardaginn var og fór aftur sömu leið
til baka næsta dag. Á leiðinni hingað sigldi
hún gegnum mikinn ís á Húnaflóa, en
þegar skipið fór vestur aftur, var ísinn horf-
inn af flóanum.
Luðvíg Kaaber bankastjóri og frú hans
komu hingað með >Drotningunni< síðast
og hafa dvalið hér í bæ undanfarna daga.
Eldur kom upp í húsinu nr. 3 við Eyr-
arlandsveg seint á sunnudagskvöldið. Hafði
kviknað út frá rafbolta. Tókst fljótt að
slökkva og skemdir ekki miklar.
Hvassfiðri i norðan með stórrigningu
var hér síðastl. föstudag og laugardag og
snjóaði í fjöll í þeirri illviðrishrynu. Siðan
á helgi hefir verið allgóður þurkur, en
fremur kalt.
Erindi flutti frú Guðrún Lárusdóttir hér
i kirkjunni á sunnudaginn var og sagði
þar frá æfistarfi finskrar konu, er helgaði
föngunum líf sitt og var því nefnd »vinur
fanganna*.
Nova kom í fyrradag að austan og frá
útlöndum laust á eftir áætlun.
Eldingu laust niður snemma í. þessum
mánuði suður í Meðallandi og eyðilagði
gaddavírsgirðingu á 30 faðma svæði. Tveim-
ur dögum seinna laust niður annari eld-
ingu svo nálægt bæ, að hann hristist mjög
mikið.
Bœkur Sögufélagsins eru komnar út.
Eru það.10 arkir af þjóðsögum Jóns Árna-
sonar, Blanda og auk þess landsyfirréttar-
og hæstaréttardómar og eitt hefti af Al-
þingisbókum tslands.
Á hljómleik Kurt Haesers á fimtudag-
inn var komu altof fáir bæjarbúar, en það
er skjótast af honum að segja, 'að Haeser
lék af óvenjulegri snild og á óvenjulega
gott hljóðfæri. Óþarfi er að fara að telja
upp hin einstöku lög, sem hann lék, enda
erfitt að gera upp á milli þeirra, er snild-
arbragur var á öllu — mest hrífandi var
þó líklega »Tannháusermarsch<, sem var
lokanúmer. — Aðdáanlegast af öllu sam-
an er þó máske trygð hr. Haesers við
Akureyri, — að hann skuli vilja koma
hingað og spila fyrir tómum bekkjum.
Fyrirlestur Norðmannsins, hr. Liengs,
var svo vel sóttur að allir sem vildu gátu ekki
komist inn í bæjarstjórnarsalinn. Sýnir það
að menn hafa áhuga fyrir nýmæli því á
byggingasviðinu, sem hann hafði að flytja.
Er það og eitt hið eítirtektarverðasta og
getur orðið þjóðinni til mjög mikils gagns,
ef vel reynist. Lieng og frú hans fóru
héðan með »Drottningunni< og vér þökk-
um honum fyrir komuna og gerðir sínar
hér. Fyrirlesturinn verður ekki rakinn í
þessu sambandi, en blaðið mun síðar flytja
hugleiðingar um byggingamál sveitanna og
verður þar lítillega skýrt frá reynslu, sem
fengin er með jarðsteypu-aðferðina.
Ddnardœgur. Hinn 22. þ. m. andaðist
á Húsavík frú Ásta ^Pórarinsdóttir, ekkja
síra Benedikts Kristjánssonar prófasts á
Grenjaðarstað. Hún var 70 ára að aldri,
merk kona og mikilhæf.
Saga, missirisritið ameríska, fyrra hefti
þ. á., hefir Degi verið sent. Ritið er fjöl-
breytt að vanda og læsilegt.
-------o-------
Eldsneyti
Iíé sjúkrahiísinii Gudm. Minni.
Sjúkrahúsið vantar 50 smálestir af koksi og 30 smálestir kola
í lok september.
Hver vill seljavörur þessar beztar og með sanngjörnustu verði?
Og hvað kostar aksturinn heim?
Akureyri 27. ág. 1929.
Sjúkrahússtjórnin.
Frá Landssimanum.
Pessar landssímastöðvar hafa verið stofnsettar:
*
Silfrastaðir, Miklibœr, Réttarholt og Ytrikot í
Akrahreppi og Veilir í Seiluhreppi.
Reykjavík 25. ágúst 1929.
LANDSSÍMASTJÓRINN.
Reynið hinn' endurbœtta
íslenzka FÁLKA-kaffibœti
með þessu MERKI
(í bláum
umbúðum)
og þér munið aldrei nota annan kaffibæti; því gæðin eru
óviðjafnanleg. — Ábyrgð tekin á gæðum hvers pakka.
Ath. Hverjum pakka af F ÁLK A-kaffibæti fylgir
loftblaðra (ballón).
H.f. Eimskipafélag Islands.
Aukaskip
félagsins, e s. Baltic, fer frá Hamborg 8. Sept., um Hull til
Reykjavíkur, þaðan til Vestur-, Norður- og Austurlandsins og til
útlanda.
Akureyri, 20. Ágúst 1929.
Afgreiðsla Hf. Eimskipafél. íslands.
Duglegur maður
getur fengið atvinnu við Krist-
neshæli frá 15. sept. n. k. til 14.
maí 1930. — Umsóknir, ásamt
kaupkröfu, sendist undirrituðum
fyrir 10. sept. n. k.
Eiríkur Brynjólfsson.
taka að sér að gera
uppdrætti aðhúsum,
reikna út járnbenta steinsteypu og
veita leiðbeiningar um alt, er að
verkfræði lýtur.
BOLLI & SIGURÐUR THORODDSEH
verkfræðingar, Reykjavik,
Pósthólf 74. Simar 2221, 1935.
Prentsmiöja Odds Bjömssonar,