Dagur - 03.10.1929, Side 4
ÐAGTJK
41. tbl.
166
Danska blaðið »B. T.«, sem er
fylgiblað »Berlinske Tidende«,
skýrir nýlega frá viðtali við land-
könnuð einn danskan, er Peter-
sen heitir. Er hann nýkominn frá
Austur-Grænlandi og hefir verið
að rannsaka þar, með styrk frá
Carlsbergs-sjóðnum, hið mikla
fjarðarsvæði í grend við Scores-
bysund. Eru þar 400 km. frá yztu
nesjum inn í insta fjarðarbotn.
Inn af firði þessum er feikna
mikið sléttlendi, afar blómlegt og
með fjölskrúðugu jurta- og dýra-
lífi. Þar er afar mikið víðikjarr
og aragrúi af hinum fegurstu
blómjurtum. Landsvæði þetta úir
og grúir af sauðnautaflokkum,
hjerum og úlfum. F'uglamergðin
er afskapleg, þar á meðal svanir
og ógurlegur fjöldi spörfugla. í
fjarðarbotninum, sem er fullur af
hafís, er gotstaður bæði hvíta-
bjarna og sela. Skilyrði lil dýra-
veiða eru þama hin allra bestu.
Til sannindamerkis kom mag.
Petersen heim með 800 fuglshami
og 200 spendýraskinn og auðgar
náttúrugripasafnið með því.
Þá má því við bæta, að þarna
eru miklar kolanámur, og efstu
kolalögin eru rétt á yfirborði
landsins.
Merkur fslendingur, sem stadd-
ur er í Kaupmannahöfn skrifar
Degi á þessa leið um mál þetta:
»Það land, sem hér er talað um,
er hér um bil 2—3 dagleiðir norð-
ur af Eyjafirði, vegalengdin
styttri en til Reykjavíkur, en auð-
vitað getur för þangað verið tor-
veld mikinn hluta árs vegna íss,
en er þó framkvæmanleg seinni
hluta sumars og jafnvel mikinn
hluta sumars sum árin. — Eru
ekki ungir, röskir menn meðal
Norðlendinga, sem hefðu löngun
til að gera veiðiferðir norður
þangað og jafnvel athuga, hvort
kolanámurekstur ekki borgaði sig.
Ef þetta borgar sig ekki fyrir
Eyfirðinga, eða aðra röska menn
af íslandi, þá borgar það sig ekki
fyrir neina.
Það land, sem hér um ræðir, er
óháð einokuninni og einkis manus
eign, en með þessari ferð hefir
þessi magister Petersen helgað
það danska ríkinu.
Norðlendingar hafa nógan
skipakost og röska menn — og
byrjun slíks leiðangurs undir
stjórn dugandi manns, gæti orðið
til mikils hagnaðar fyrir landið
síðar meir«.
f sambandi við þetta skal þess
getið, að vel má vera, að danska
blaðið geri ekki minna úr land-
kostum þarna norður frá en sann.
leikanum er samkvæmt. Síðan
Danir stofnuðu nýlendu í Scores-
bysund, hafa íhaldsblöðin lagt alt
kapp á að gylla landið sem allra
mest og gera það sem girnilegast.
Má vel vera, að Eyfirðingum
reyndist fengsælt norður þar, en
öðru munu þeir þó kunnari en
kolanámi og munu bera betra
skyn á margt annað en möguleika
tU þess,
Síðari ijalddayi úisvara
var 1. Sept. s. 1. Vextir af ógreidd-
um fyrri helmingi útsvara fara
hækkandi með hverjum mánuði.
Vextir af síðari helmingi bráðum
skollnir á.
Bœjargjaldkeri.
Vandlátar húsmæður
nota eingðngu
VAN HOUTENS
heimsfræga SUÐUSÚKKULAÐI.
t
Hulda lónsdóttir.
Ddin 23. júli.
Kveðja.
I.
Mig dreymdi að eg heyrði svani syngja
svo sorgblítt og unaðsmilt,
sem hefðu þeir eilífa ódáinshljóma
við alveldishörpu stilt.
Lffið er hlátur og harmar,
hamingja, þrautir og sár,
yfir er unaðsleg birta,
en undir er myrkur og tár.
Himininn hulinn er skýum,
helkuldi lamaði rós.
Harmadöggvarnar hylja
himinsins bjarta Ijós.
Guð hefir gefið oss tárin
að gráta burt angur og sorg.
Og hann hefir, Ijúfa, leitt þig
í ljósanna eilífu borg.
Loks ertu leyst frá þrautum,
liðin til sólheima burt.
í fjarskann hugirnir horfa
harmandi, spyrjandi, hvurt?
EnGuð —vér þvf trúum —mun græða
hvert gapandi hjartasár;
við andblæ hans eilífa kærleiks
eyðast vor heitustu tár.
Pað er heitur klökkvi yfir hópnum,
sera fylgir
hinzta til hvfluranns.
En hugirnir lyftast í viðkvæmri von,
á vængjunum kærleikans.
II.
Þrestir í Vatnshlíð vaka,
á vatninu svanir kvaka.
Alt er kyrt og hljótt,
alt er heilagt og rótt,
og kvöldblærinn andar svo angurmótt.
Og áin niðar, en engið sefur,
er um það glitblæju döggin vefur.
Og Reykjadalsbrekkur brosa í draum
við blikskæran árinnar straum.
Þær kveðja hljóðar sitt hjartans barn,
sem er horfið úr lífsins glaura.
Sigfrlður Jónsdóttir.
......O' " ■.
S k r á
yfir aukaniðurjöfnun útsvara í Akureyrarbæ fyrir árið 1929,
liggur frammi — almenningi til sýnis — á skrifstofu bæjarins,
dagana frá 1—14. Okt. þ. á. að báðum dögum meðtöldum.
Kærum yfir niðurjöfnuninni sé skilað til formanns niðurjöfnunar-
nefndar innan loka framlagningarfrestsins.
Akureyri, 30. Sept. 1929.
Bœjarstjórinn.
Sænsk
handverkfæri
Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl.
Sænskt stál er bezt, xssr
SAMBAND ISL. SAMINNVUFÉLAGA.
KENSLU
piano- og Harmoniumleik veiti eg í
vetur. Til viðtals í sfma 151.
Gunnar Sigurgeirsson,
Brekkugötu 11.
jmtHíjjr taka að sér að gera
IIIIIUUII uppdrætti að húsum,
reikna út járnbenta steinsteypu og
veita leiðbeiningar um alt, er að
verkfræði iýtur.
BOLLI 8 SIGURÐUR THORODDSEN
verkfræðingar, Reykjavik,
Pósthólf 74. Síntar 2221, 1935.
INSOLrUR QS.ESPHOLIN.RCYKJAVin.
Kaffibætirinn er jafnaðarlefla
rannsakaöur af
herra Trausta Olafssyni
efnafræMngi rikisins.
'ABYRGÐ FYLGIR HVERJUM PAKKi
Ath. Hverjumpakka FALKA-
kaffibæti fylgir loftblaðra
(ballón).
ENSKU
REYKTÓBAKS-
TEOUNDIRNAR
Richmond.
Waverley.
Glasgow.
Capstan.
Garrick
£ru góðkunnar meðal reykend-
anna um land alt.
f heildsölu hjá
Tóbaksverslun Islands.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal-
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundsson Brekkao.
Aftfidstrsatí 15,
Ákuyeyri, Qdda Bjömaaoaftf,