Dagur - 24.10.1929, Qupperneq 4
178
DAGI7B
44. tbl.
stórhýsi Var okkur fylgt um húsið og
sýnt alt hið merkasta, er þar var að
sjá.
Tveir fundir voru haldnir dag hvern.
Voru þar erindi flutt og urðu oft
all-hvassar umræður áeftir. F*ví miður
er þess enginn kostur að rekja efni
fyrirlestra þessara í stuttri blaðagrein.
Verð eg að láta roér nægja að drepa
stuttlega á það helzta er fram fór.
Einna minnisstæðast er mér erindi
það, sem Svíinn, Gösta Ekelöf rektor,
hélt um leiðbeiningar um val á lífs-
stöðu.
Ameríkumenn hafa komið á fót
stofnunum, er eiga að kanna og mæla
hæfilegleika manna, a. m. k. til Iíkam-
legra starfa. Fleiri þjóðir hafa nú farið
að dæmi þeirra og hafist handa með
leiðbeiningar þessar. Vísindi þessi
kallast psykoteknik á útlendu máli, og
þykja þau veita mikilsverða hjálp
unglingum, er þeir velja sér lífsstarf.
Á Norðurlöndum eru nú þegar tvær
slíkar stofnanir, önnur í Oslo, hin í
Kaupmannahöfn. Erindi Ekelöfs varð
þess valdandi, að eg skoðaði þær
báðar og þótti mér mikils um vert
Eru þar hin furðulegustu verkfæri og
aðferðir til þess að kanna og mæla
hæfilegleika manna. Forstjóri rannsókn-
arstofunnar í Kaupraannahöfn sagði
mér frá mörgu fáránlegu, er stundum
kæmi í ljós við þessar mælingar. Pað
væri t. d. ekki einsdæmi um þá, er
, gjarnan vildu nema málaraiðn, að þeir
væru litblindir, og margt þessu líkt
væri þar daglegir viðburðir.
Dagana, sem þingið sat að störfum,
átti þingheimur frjálsan aðgang að
Tivoli — og var það óspart notað,
einkum að kveldinu, eftir að dagstörf-
unum var lokið, enda er þar skemtilegt
að koma. *
Laugardaginn 13. júlí var þinginu
lokið. Fórum við þá snemma morguns
með jarnbraut norður til Helsingjaeyrar
til þess að skoða þar Kronborgarkast-
ala, sem — eins og kunnugt er —
er æfagamall og merkilegur í sögu
Norðurlanda á miðöldum. Um kveldið
settumst við að veizlu á skemtistaðnum
Sommariva, og þar var þinginu slitið
með ræðuhöldum, söng og margs
konar gleðskap. Flestir þingmenn hurfu
aftur um nóttina til Hafnar, en við
Emil báðumst þar gistingar um nóttina.
Morguninn eftir tókum við okkur far
með járnbrautarferju yfir Eyrarsund til
Helsingjaborgar og þaðan samdægurs
norður um Svíþjóð til Gautaborgar og
Oslo. Varð Emil þar eftir, en eg hélt
áleiðis til Bergen yfir þveran Noreg
með hinni frægu Björgvinarbraut. Er
hér ekki rúm til að lýsa þessu dásam-
lega ferðalagi svo sem vert væri. Lagt
var af stað í steikjandi sumarhita og
lá leiðin um skrúðgræna skóga og
blómlegar ekrur, en eftir nokkrar
klukkustundir ók lestin yfir öræfin í
hríðarveðri og frosti um hásumar,
milli jökla og fjallstinda, altaf öðru
hvoru í níðamyrkri undir fellum og
ásum. Eru sum jarðgöngin á Ieiðinni
margir km. á lengd, svo sem göngin
undir Gravehalsen á háfjallinu. En strax
þegar niður kemur af fjallinu er aftur
sól og sumar og hvar-vetna skógur og
grónir akrar. Minnist eg ekki að hafa
séð stórbrotnara landslag né fegurra.
í Bergen tók eg mér far út til
Islands.
■ ' —o-..■'■■■■
irritaoir
taka að sér að gera
uppdrætti aðhúsum,
reikna út járnbenta steinSteypu og
veita leiðbeiningar um alt, er að
verkfræði iýtur.
BOLLI * SIGURÐUR IHORODDSEN,
verkfræðingar, Reykjavlk,
Pósthólf 74. Símar 2221, 1935.
3lfur gs.esphoun.revhjavuv]
Kaffibætirinn er iafnaðarletja
rannsakaóur af
herra Trausta Ólafssyni
efnafræftingi rikisins.
'ABYR6Ð FYLGIR HVERJUM PAKKA
Ath. Hverjumpakka FALKA-
kaffibæti fylgir loftblaðra
(ballón).
Radio en gros.
Mit ny Katalog er udkommet og indeholder bl. a. 125
forskellige Radioapparater.
Sendes paa Forlangende til enhver Forhandler af Radio.
Chr. Fode, Kobenhavn. K.
UPPBOÐ.
Miðvikudaginn 6. Nóv. n, k. verður haldið uppboð hjá Kaup-
félagi Verkamanna hér í bæ og þar seldur allskonar búðarvarn-
ingur, svo sem skófatnaður karla, kvenna og unglinga, kvenkáp-
ur, karlmannakápur, drengjafatnaður, kvenvetrarsjöl, kápuklæði,
stormtau, kjólatau margar tegundir, tvisttau, blúndur, borðteppi,
nærfatnaður, kassar til eldsneytis og smíða og margt fleira.
Ákureyri, 19- október 1929.
Elephaní
CIGARETTUR
(Fíllinn)
eru ljúffengar
og kaldar.
Mest reyktu cigarettur
hér á landi.
Kaupfélag Verkamanna.
J0RÐIN
Hjalli í Reykjadal ti Suður-Þingeyjarsýslu fæst til kaups og ábúðar í
næstu fardögum. — Á jörðinni eru: íbúðarhús úr steini, einlyft með
kjallara og porti 14X12 áln. Fjós yfir 5 gripi, hesthús yfir 7 hross og
fjárhús yfir 160 fjár. Tún er í góðri rækt, víðslægar engjar. — Mótak og
torfrista, laxveiði og ágæt aðstaða til rafvirkju. — Lysthafendur snúi sér
til undirritaðs fyrir lok febrúarmánaðar 1930.
Hjalla, 10. október 1929.
HELGrl JÓNSSON.
M U N D L O S-saumavélar
eru B E Z T A R. fást í
Verzlunlnní NORÐURLAND.
ENSKU
REYKTÓBAKS-
TEGUNDIRNAR
Richmond.
Waverley.
Glasgow.
Capstan.
Garrick
eru góðkunnar meðal reykend-
anna um land alt.
í heildsölu hjá
Tóbaksverslun Islands.
INNK0LLUN.
Hér með er skorað á alla þá, sem telja til skulda í dánarbúi
Jóns Sigurðssonar á Hjalla í Reykjadal, að lýsa kröfunum og
sanna þær fyrir undirrituðum innan 4 mánaða frá birtingu þess-
arar auglýsingar.
Hjalla, 10. október 1929.
HEL.GM JÓNSSON.
Sænsk
handverkfæri
Norski vararæðismaðurinn hér á Akur-
eyri hefir tílkynt að samkv. norskum lögum
frá. 14 júní 1929, eigi borgin Þrándheimur
(Trondhjem) í Noregi að heita Niðarós
(Nidaros) frá 1. jan. 1930 að telja.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aðalstræti 15.
Ak. Prentsmiðja Odds Björnssonar. '29.
sm Sænskt stál er bezt.
SAMBAND ISL. SAMINNWFÉLAQA.