Dagur - 07.11.1929, Page 3
46. tbh
DAGUR
188
M °t„.
skínandi fagra,
Eldhúsin hrein og
firnum fáguð, gólf-
in snjóhvít, boröplöt-
ur skínandi, pottarog
pönnur speglandi,
hnífar og gaflar gljáandi.
Lever Brolhers, Ltd.,
Port Sunliflht, England
.A cvt'V
«/V32.
skjótast að segja, að þar hefir honum
farist að sama skapi busalegar en Vai-
tý, sem Vallýr stendur honum framar
að öllu andlegu atgerfi og dugandi
karlmensku. í hverju blaði japlar J. B.
sömu máttlausu fllyrðin um dómsmála-
ráðherrann, tyggur í sífellu upp aftur
og aftur sömu tugguna og hyggur sig
vera að naga sundur æru og mannorð
Jónasar Jónssonar, en þessum tanna-
iðnaði er lítill sem enginn gaumur
gefin. Blaðamaður þessi er sjaidan sem
aldrei virtur svars af nokkrum, honum
er lofað að róa óáreittum fram í gráð-
ið og eiga tal við sjálfan sig.
Af þessum sökum færi vel á því,
að J. B. breytti um nafu á blaði sínu
og nefndi það hér eftir »Eintal sálar-
innar«, mætti líka bæta þar við: »í ó-
gróinni jörð«. Gæfi þá fyrri hlutinn til
kynna, að enginn virti blaðið svars,
en síðari hlutinn að eintal þetta fari
fram í moldarflagi.
Þar sem ritstjóri þessi er mjög hrif-
inn af nafnbreytingu flokks síns, sem
þó er ekkert annað en fals, þá ætti
honum að vera, ljúft að færa nafnið á
blaði sínu til rétts horfs og skíra það
upp þessu heiti, sem hér hefir verið
bent á: »Eintal sálarinnar í ógróinni
jörð«. Er hér með skorað á hann að
koma þessu í verk, um leið og næsta
blað hans kemur út.
SÍÐASTLIÐIÐ HAUST var mér
undirritaðri dregið hvítt hrútiamb
með mínu marki; sneitt aftan, fjöð-
ur framan hægra, sýlt vinstra. Lámb
þetta á eg ekki og getur réttur eig-
andi vitjað andvirði þess til mín,
að frádregnum kostanði.
Jótiina Vigfúsdóttír
Þverá
SvarfaðardaL
Ó SKILAHRY S S A,
rauðstjörnótt, sennilega 3ja vetra
gömul er hjá undirrituðum.
Tryppi þetta verður selt á opin-
beru uppboði, er haldið verður á
þingstað Saurbæjarhrepps Laugard.
30. þ. m. kl. 12 á hádegi, hafi réttur
eigandi ekki vitjað þess og greitt
áfallin kostnað.
Saurbaejarhr. Möðruvöllum 2. nóv. 1Q29
Vald. Pdlsson
hreppstjóri
NÚ í HAUST var mér undirrit-
uðum dreginn hvítur lambhr’útur,
með mínu marki: Miðhlutað, biti
fr. hægra, biti fr. vinstra: lambhrút
þennan á eg ekki og getur eigandi
hans vitjað andvirðisins til mfn.
Akureyri Brekkugötu 25
6. nóvember 1926
Jón Sigurðsson
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu íslands).
Verzlun Péfurs H. Lárussonar.
Sterkir síitskór handa drengjum mikið lækk- aðir. Vinnuskór í miklu úrvali. Brocadeskór. Ennþá aísl. á sokkum. Gólf -dúkur -papp -mottur -dreglar. Leirtau — aðall. gr. og dj. DISKAR, seldir mjög ódýrt. Einnig nokkur sprittsuðuáhöld» pottaskrúbbur lok- spennur o.fl. smávegis
Eins og áður tek eg að mér allt sem að hárbúnaði og
útlitsfegrun lýtur.
Andlitsböð fyrir dömur og herra.
Hjá mér fást einnig hárfléttur o. fl.
Til viðtals daglega kl 2—6 e. h. á heimili nn'nu Hafn-
arstræti 3, (efri hæð) Akureyri. — Sfmi 220. —
Guðriður Norðfjörð.
Rvík 6. nóv-
París: Tardieu hefir fullmyndað
stjórn; Briand fer með utanríkis-
málin. Tardieu bauð þeim radíkölu
6 ráðherrasæti, en þeir höfnuðu
tilboðinu. Tardieustjórnin er mið-
flokkastjórn, sem hallast að hægri
flokkunum.
London: Bæjarstjórnarkosningar
hafa farið fram i 300 enskum bæj-
um. Við kosningar þessar hafa
verkamenn unnið 130 sæti, aðallega
frá ihaldinu.
Washington: Hoover hefir ákveð-
ið, að Peter Norbeck ráðherra i
suður-Dakota verði formaður sendi-
nefndar Bandarikjanna á Alþingis-
hátíðina.
Betlín: Pjóðernissinnar fengu
nægilega margar undirskriftir undir
beiðni um, að þjóðaratkvæði verði
látið skera úr um það, hvort Young-
samþyktin skuli samþykt; hinsvegar
er á það bent, að þjóðernissinnar
fengu 7 miljónir atkvæða við síð-
ustu kosningar, en aðeins 4 miljónir
koma með Goðafossi, í miklu úrvali. Eins og áður: verðið mun
lægra en á öðrum fyrsta flokks orgelum. Söluskilmálar ákjósanlegir.
Gerið kaup strax, greiðið seinna.
Þorst. Þ. Thorlacius.
Tveir mótorbátar
annar 7 tonn, hinn 3 tonn, eru til sölu með
góðum kjörum. Semja ber við
Kaupfélag Eyfirðinga.
undir beiðnina. Vegna beiðninnar
verður stjórnin að leggja lagafrum-
varp fyrir Ríkisþingið um bann
gegn því að samþykkja Youngsam-
þyktina og að dæma ráðherrana,
sem undirskrifuðu hana, í fangelsi.
Ríkisþingið fellir vafalaust frumvarp-
ið, sem þar næst verður lagt undir
þjóðaratkvæði, og fær þar vafalaust
sömu útreið.
Sjálfblekutigur fundirtn.
Uppl. á Eyrarlandsveg 20-
Sími 140.
Undirkonungur Indlands hefir
lýst því yfir, að takmark Bretastjórn-
ar sé, að Indland fái sjálfstjórn sem
breskar »dominions«.
Síðastliðinn miðvikudag fór Eyj-
ólfur Eyjólfsson á Porláksstöðum í
Kjós norður Svínaskarð og kom
ekki fram. Er hann nú fundinn;
hafði hrapað til bana á norðan-
verðu skarðinu.
Bergur Jónsson sýslumaður er
kominn til Reykjavíkur, til þe'ss að
taka jóhannesarmálið fyrir að nýju.
Síra Hafsteinn Pétursson í Kaup-
mannahöfn og Páll Bjarnason lög-
fræðingur frá Steinnesi eru látnir.
Keflavíkurhérað er veitt Sigvalda
lækni Kaldalóns.