Dagur - 23.12.1929, Side 1
D AOUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfiró-
inga.
- • •••••••••
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þ4r,
Norðurgötu 3. Talalmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XII. ár.
Akureyri, 23. desember 1929
Jarðarför föður míns, Þorsteins Pálssonar, sem and-
aðist 18. þ. m., er ákveðin að Grund mánudaginn 30. desem-
ber n. k. kl. 11 f. h. Kransar afbeðnir.
Hrafnagili, 22. desember 1929- c
. Hólmgeir Þorsteinsson.
Jól.
Skammdegið hefir setið að völd-
um nú um sinn. Myrkrið hefir
teygt sig æ lengra inn í dagsljósið,
skuggamir náð fastari og fastari
tökum í riki náttúrunnar hér á norð-
urhjara veraldar.
Pegar svo er ástatt í ríki náttúr-
unnar, hætiir myrkrinu einnig við að
setjast að í sálum mannanna.
»Myrkrið er manna fjandi, meiðir
það líf og sáU, segir skáldið. Mann-
legt eðli þráir sólarsýn. Jafnvel hin
spiltasta mannvera biður inst inni
um meira Ijós. Ljósþráin er mönn-
unum ásköpuð. Þrátt fyiir öll mýrk-
raverkin erum við öll Ijóssins börn.
En við vitum, að sigur myrkprs-
ins yfir Ijósinu, er aðeins stundar-
sigur. jþví svartar sem skyggir vor
skammdegisneyð, þvi skærara bros-
ir vor júnísól heið.« Á svartasta
tíma ársins er það þessi vissa, sem
heldur okkur uppréttum og veitir
okkur þrek og þor. Við vitum, að
hverjum vetri fylgir vor, að »vor-
sólin hækkar, hve hægt sem hún
fer«.
Og nú er einmitt komið að tíma
hækkandi sólar. Við þráum þann
náttúruviðburð og fögnum honum.
»Af þvi myrkrið undan snýr,
ofar færist sól,
þv( eru heilög haldin
hverri skepnu jól,<
Einmitt á þessum tímamótum
dvínandi myrkurs og vaxandi ijós-
magns rennur upp hátíð hátíðanna,
jólin.
Við fögnum jólunum sem Ijóss-
ins hátið i tvennum skilningi. Um
leið og skammdeginu tekur að létta
af, tendrast Ijós i hugskotum mann-
anna. Ef hin sýnilegu Ijós eru ekki
ytra tákn þess að birt hafi í hugum
okkar, er jólagleðin uppgerð ein og
einkis virði. Pá væri engin ástæða
til að fagna jólunum. Pýðing þéss-
arar Ijóssins hátiðar er fyrst og
fremst í því fólgin, áð við sýnum
einhverja viðleitni í þá átt að verða
að betri mönnum, brjótum hvass-
asta oddinn af vopni haturs og
hefnigirni og tökum sáttir hver í
annars hönd þrátt fyrir allt, sem á
milli hefir borið. Á þenna hátt bólar
á kærleiks- og friðarhugsunum
manna á meðal á jólunum. Aura-
sálin verður örlítið gjafmildari en
venjulega, harðlyndi maðurinn dá-
Iftið bljúgari í huga, ofstopinn
stillist lftið eitt, hinn geðilli getur
brosað o. s. frv. Pessi veika við-
leitni að losa sig undan skapbrestum
og löstum er, þó skammt nái hjá
flestum, vottur þess, að neisti Krists-
eðlisins í okkur lifir og leitast við
að verða að björtum loga. Hlutverk
lífs okkar er það að leysa eðli þetta
úr læðingi synda og sorga, svo að
það fái notið sínífullum mæli. Pað
gengur flestum erfiðlega að inna
hlutverk þetta af hendi. En agnar
ögn erum við nær því takmarki á
jólunum en endranær.
jólin eru réttnefnd 'ljósanna hátíð.
Pað fer vei á því að þá sé bjart
umhverfis mennina, enda er ekkert
til sparað þeirrar birtu. En hin and-
legu Ijósin eru þó mörgum sinnum
meira verð. Án þeirra fæst engin
sönn jólagleði. Hún er dýrasta eign
mannsins og stendur í sambandi
við þá »lífsins sól,« er upp rann
fyrir 19. öldum. Petta skiljum við
líka og segjum því hver við annan:
Sleðrieg Jól.
.... -O---
Úr heimi samvinnunnar.
Framleiösla á samvinnugrundvelli.
Eins og kunnugt er gengur sam-
vinnufélagshreyfingin stöðugt meira í
þá átt, að framleiðslan sjálf komist
sem mest í hendur samvinnufélaga,
með því móti verður neytandinn sinn
eigin framleiðandi, og arðurinn af
framleiðslunni eins og af verzluninni
rennur til hans sjálfs í staðinn fyrir að
lenda í höndura einstakra gróðafyrir-
tækja og milliliða. — Hér á landi
hefir samvinnufélagshreyfingin «hingað
til aðallega verið á verzlunarsviðinu,
og hefir hún einmitt á því sviði fyrir
löngu fært mönnum heim sanninn um
það, að hún er hið bezta bjargráð
alþýðunnar Ltil efnalegs sjálfstæðis og
með því þá einnig til annara framfara
á öllum sviðum. — Hér á landi er
það margsönnuð og óhrekjandi stað-
reynd, að þær sveitir landsins, sem
lengst hafa komist á þessu sviði og
mestan samvinnuskilning og samvinnu-
þroska hafa fengið, standa öðrum
framar að allskonar framförum. —
Samvinnufélagshreyfingin hér á landi
hefir — eins og reyndar víðast hvar
annarstaðar — átti við raman reip að
draga, hefir orðið að berjast við
margskonar misskilning, ófrægingar og
úreltar skoðanir á fjárhagsmálum og
félagslegum samtðkum; en það er
gleðilegt og gott til þess að vita, að
hún sigrast á þessum torfærum, eykst
og margfaldast, svo að hún einnig
hér á landi fer að sjá sér fært, ekki
einungis að taka að sér vöruskiftin, en
einnig framleiðslu bæði til útflutnings
og ekki síður til notkunar inni f land-
inu sjálfu. — Má í því sambandi
benda á atvik, sem nú er að gerast
einmitt hér, þar sem hið nýja smjör-
líkisgerðarhús Kaupfélags Eyfirðinga
bráðlega er fullgert, svo félagið getur
tekið framleiðslu þessarar vöru í sínar
eigin hendur; væri hægt að benda
á ýmislegt annað þessu líkt, t. d. Niður-
suðuverksmiðju Sláturfélags Suðurlands,
mjólkursamlögin, sem munu verða
fleiri og fleiri með ári hverju hér eftir,
og margt fleira.
Pó erum vér hér aðeins á byrjunar-
stigi. — Aðrar þjóðir sem oss eru
ríkari og fjölmennari eru af eðlilegum
ástæðum komnar lengra áleiðis. í
Danmörku, sem er það land, þar sem
samvinnufélagshreyfingin hefir náð
föstustum tökum og fest dýpstar rætur
ekki sízt meðal bænda í sveitum, er
keppt að því marki, að samvinnufélögin
sjálf framleiði sem allra mest af vörum,
sem notaðar eru; eiga þau nú einnig
verksmiðjur, sem framleiða flestar eða
allar helztu vörur, sem notaðar eru í
landinu. SÖmu sögu væri hægt að
segja frá fleiri löndum. — Ekki alls
fyrir löngu var hér í blaðinu skýrt
frá hvernig sænskir samvinnumenn
losuðu sig undan oki smjörlíkisgerðar-
hringsins, sem ætlaði að bjóða þeim
afarkosti, með því að koraa sjálfir á
fót smjörlíkisgerð, og voru svo fram-
sýnir, að þeir létu ekki tælast af, þótt
keppinautarnir byðu lægra verð, til
þess að koma fyrirtækinu fyrir kattar-
nef. — Nú nýlega hefir Samband
norskra samvinnufélaga reist myndar-
lega verksmiðju til smjörlíkisgerðár við
Oslo. — Er það all vegleg bygging,
sem liggur þannig, að þaðan er hið
fegursta útsýni yfir bæinn ogfjörðinn.
Fyrir utan smjörlíki er gert ráð fyrir
að þar verði einnig framleiddar ýmsar
aðrar vörur, eins og t. d. ávaxtasaft,
ávaxtasulta og kryddvörur,
Upphaflega var gért ráð fyrir að
verksmiðjan mundi kosta um hálfa
aðra miljón króna, en er hún var reist,
sýndi það sig, að hún kostaði tæpa
1 miljón; og með því vélmagni, sem
hún hefir nú, verður ársframleiðslan
4 milj. kg. smjörlikis. En rúm er þó
svo mikið afgangs, að það verður
hægt að setja inn vélamagn, sem aukið
getur framteiðsluna svo hún verðl 10
milj. kg. um árið.
Samband norskra samvinnufélaga
rekur aðra smjörlíkisverksmiðju í Björg-
vin — og ennfremur hefir sambandið
á þessu ári komið sér upp skófatnað-
arverksmiðju og stórri mjölverksmiðju,
svo á því er hægt að sjá, að fram-
leiðsian er á góðum vegi hjá norskum
samvinnumönnum.
Pessi dæmi, sem hér hafa verið
nefnd, sýna hvernig hugsjónir sam-
vinnumanna rætast í heiminum, og
sömuleiðis hver máttur samvinnufélags-
hreyfingin er. Andstæðingum hennar
ætti smám saman að fara að skiljast
það, að baráttan gegn henni er fyrir-
fram dæmd til ósigurs, því að hún
er barátta gegn félagslegri framþróun,
sem byggir á einni af máttugustu hug-
sjónum mannlegs anda, hugsjón þeirri,
er býður mönnunum að þjóna hverjir
öðrum og hjálpast að, í staðinn fyrir
að troða hverjir aðra undir fótum í
hinni harðvítugu samkeppni einstakl-
ingshyggjunnar. — Pað sem skilur
samvinnumanninn frá samkeppnismann-
inum er fyrst og fremst þetta: Um
leið og samvinnumaðurinn gagnar
sjálfum sér, gagnar hann einnig öðrum,
arður fyrirtækjanna dreifist og velmeg-
unin vex hjá hverjum einstökum, sem
er með í hreyfingunni — þannig
verður það að minsta kosti, þegar til
lengdar lætur.
Hinn þar á móti þjónar peningun-
um, og þvf raeiri peningar sem safnast
saman í höndum einstaklinga, því
minni verður velmegunin fyrir fjöld-
ann.
í þeirn átökum, sem sumir álfta að
séu óumflýjanleg um þjóðfélagsskipulag-
ið ínánustu framtíð, ættu hugsjónir sam-
vinnumanna að vera líklegastar sigurs.
-------O--------
Messur um Jólin:
Aðfangadagskvöld: Akureyri kl. 6.
Jóladag: Akureyri kl. 11 f. h.
Lögmannshlíð kl. 2 e. h.
Akureyri kl. 5 e. h.
Annan í Jólum: Sjúkrahúsið og
Kristneshæli.