Dagur - 23.12.1929, Qupperneq 2
218
BXBIGB
55. ttt.
• - • -« -• -• ' « - •- t
s:
s:
Allar áburðarpantanir þurfa að vera
komnar til okkar fyrir 20. jan. n. k.
Peir sem ekki hafa pantað fyrir þann
tíma meiga búast við að missa af
áburðinum.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Myndastofan
Oránufélagsgðtu 21 er opin atla daga
frá kli 10-6.
Ouðr, Funch-Rasmussen.
Clemencreaii.
Eins og skýrt hefir verið frá 1
símskeyti hér í blaðinu lézt hinn
frægi franski stjórnmálamaður,
Clemenceau, þ. 24. f. m.
Áhrif þessa manns á sögu
Frakklands og um leið á sögu Ev-
rópu hafa verið geysi mikil. Hon-
um fremur nokkrum öðrum áttu
Frakkar það að þakka, að þeir og
bandamenn þeirra unnnu stríðið.
Var það ættjarðarást hans og
viljaþrek, sem í því áttu mestan
þátt. Hann réði mestu um úrslit
friðarsamninganna í Versölum,
bæði góðu og illu. Var hann heift-
úðugur mjög í garð Þjóðverja, og
virtist þá gæta meira hefndar-
hugsana hans en réttlætis og
skynsemi.
— »Tigiisdýrið«. kölluðu land-
ar hans hann, og að mörgu leyti
líktist hann þessu stolta, einmana
rándýri.
Georges Benjamín Clemenceau
var fæddur 28. september 1841.
Faðir hans var læknir í Vendé-
héraði úti við Atlantshafið, og
læknar höfðu margir forfeður
hans -verið. Sjálfur gekk hann
einnig inn á læknabrautina og
vann sér doktorsnafnbót 1865.
Fór hann þá til Ameríku, giftist
þar og dvaldi í nokkur ár. — Það
mesta gagn, sem hann hafði af
veru sinni í Vesturheimi var að
hann þar lærði til fullnustu enska
tungu, sögu Englands og Ame-
ríku, og fékk mjög víðtæka þekk-
ingu á öllum stjórnmálum þessara
landa.
Hina eiginlegu vígslu til þess
sem átti að verða æfistarf hans
fékk Clemenceau, þegar stríðið
hófst milli Þjóðverja og Frakka
1870. Þá flýtti hann sér heim frá
Ameríku, en kom aðeins heim til
hins mikla ósigurs fyrir frönsku
þjóðina. Kom það til að móta
stjórnmájaferil hans ætíð síðan.
Hann, sem í innri stjórnmálum
var frjálslyndur og róttækur líð-
Veldissinni, trúleysingi og ram-
aukinn óvinur katólsku kirkjunn-
ar, varð öflugasti talsmaður her-
varnanna út á við, og aðaláhuga-
mál hans var þá að hervæðast
gegn hættu þeirri, er harni áleit
að föðurlandi sínu stafaði af upp-
gangi Þjóðverja. Það hefir verið
sagt um hann að fáir af löndum
hans hafi þekt sögu Þjóðverja
betur, og færri dáðst meira að
þýzkri framtakssemi og andlegri
menningu en hann gerði. — En
föðurlandið var guð hans. Og
hann leit svo á að Þýzkaland væri
komið inn í sögulega þróun, sem
hlyti að valda dauða Frakklands,
nema því að eins að frönsku þjóð-
inni tækist að vinna algerðan sig-
ur og í eitt skifti fyrir öll hnekkja
veldi Þjóðverja. Verður þetta höf-
uðlína í allri pólitiskri starfsemi
Clemenceaus frá því fyrsta til
þess síðasta. Að öðru leyti var líf
hans viðburðaríkt. Hann var
læknir og borgarstjóri í París um
skeið, var svo kosin þingmaður,
og gerðist þá all umsvifamikill.
Var hann aðalorsök í falli margra
stjórna, og fékk á þeim árum við-
urnefnið »Tigrisdýrið«. — Árið
1893 féll hann við kosningarnar.
Var það afleiðing af hinu svo
nefnda »Panamahneyksli«, er
stórsvik voru framin í' sambandi
við Panamaskurðinn. Clemenceau,
var ákærður af óvinum sínum,
fyrir að hafa verið samsekur. En
var með öllu hreinsaður af þeim
kæru.
Nú gerðist hann blaðamaður og
ritstjóri og var það upp frá því,
alt þangað til 1917, að hann fékk
æðstu völd ríkisins í sínar hendur,
sem forsætisráðherra.
Dreyfushneykslið, svo nefnda,
kom einmitt þegar hann var ný-
byrjaður á blaðamannsstarfsemi
sinni. Var Clemenceau til að byrja
með algerlega sannfærður um
sekt hins ákærða herforingja, og
leit á dóm herréttarins yfir hon-
um, sem óyggjandi. — Olli þar
talsverðu um, fyrir honum sem
mörgum öðrum, að Dreyfus var
Gyðingur. En er Clemenceau,
sjálfur fór að yfirvega málið
komst hann á gagnstæða skoðun
og barðist nú ásamt rithöfundin-
um, Zola, fyrir að Dreyfus fengi
uppreisn, og áttu þeir tveir mest-
J>átt í að svo varð. —
JSleðileg jól! Farsœlt ár!
Þakka viðskiftin á liðna árinu.
Baldvin Ryel.
Þegar stríðið mikla hófst, varð
Clemenceau í blaði sínu óþreyt-
andi herlúður, sem altaf hljómaði
til hvatningar þjóðinni, að gera
sitt ýtrasta og standast eldraun-
ina; og þegar hinn gamli maður
tók við stjórn ríkisins 1917 var
það vilji mikils hluta þjóðarinnar,
sem þar réði. Og nú kom til hans
kasta að frelsa föðurlandið. Hon-
um tókst það — og við það verður
að kannast, að nú sýndi hann sig
sem mikilmenni. Hann var sjálf-
ur úti á vígvöllunum og í skot-
gröfunum, og hinir óbrotnu her-
menn tignuðu hann og trúðu á
hann.
En eftir að stríðið var unnið er
eins og hann minki. — Það hefir
verið sagt um hann, áð hann end-
aði sem smámenni. — Hvað sem
kann að vera hæft í því verður
ekki dæmt hér. En svo mikið er
víst, að þegar til friðarsamning-
anna kom, lítur helzt út fyrir að
hefndarhugurinn til Þjóðverja
hafi gert myrkt í huga þessa
skýrt hugsandi manns. — »Frið-
urinn er áframhald stríðins með
öðrum vopnum«, sagði hann, og
hann, sem hafði dáðst að erfðaó-
vininum í austri og afdrei mælt öf-
ugt orð 1 hans garð, jafnvel þegar
barist var upp á líf og dauða, var
nú, þegar markinu var náð og
sigurinn unninn, fullur hatui’s, og
hatri hans tókst líka að skapa
friðarsamninga, sem svo voru ó-
hagstæðir hinum yfirunnu, að á-
standið varð óþolandi, og stafar
af því stöðug ný stríðshætta. —
Frakkland hafði honum tekist að
frelsa, en eftir það varð hann ó-
happamaður fyrir friðinn í álf-
unni. — Hér endaði lífsstarf
Clemenceaus, hann var orðinn
gamall bæði að árum og anda. Nú
er saga hans öll, en hún er og
verður kapituli í sögu Frakklands
og Evrópu.
* B.
o
^ILIUX^
Hand
SÁPA
Þessi ágæta nýja sápa er
þrungin þeim unaðslega ilm,
sem dýrustu sápur einar hafa,
en er þó seld sama verði og
almenn sápa.
Um allan hinn mentaða
heim, er það einróma álit allra
kvenna, að LUX handsápan
beri langt af öðrum sápum,
bæði að ilmgæðum og mýkt-
aráhrifum á hörundið.
lever Brothers, Ltd., Port
Sunlight, England. F
Vj)w.LTS I4-I29A. C/
Jóhannes jónasson, verkstjóri.
Vilhjálmur Ouðjónsson, verkamaður.
Jónas Pór, verksmiðjustjóri.
Júníus Jónsson, bæjarverkstjóri.
Hallgrímur Traustason, verzlunarm.
Þorsteinn M. Jónsson, bóksali.
Sigtryggur Porsteinsson, yfirmatsm.
Vissa er fyrir tveimur listum i
viðbót. Heyrst hefir að á öðrum
þeirra verði þessi nöfn efstá blaði:
Sig. Ein. Hlíðar, Hallgrímur Davíðs-
son, Ólafur Jónsson, Tómas Björns-
son, Oísli R. Magnússon, Páll
Einarsson.
Ekki hefir enn heyrst svo hafandi
sé eftir um niðurröðun á lista Jafn-
aðarmanna.
Símskeyt L
(Frá Fréttastofu Islandw).
Framsóknarlistinn við næstu bæj-
arstjórnarkosningu hér í bæ er nú
fullgerður og mönnum skipaður i
þessa leið:
Ingimar Eydal, skólastjóri.
Brynleifur Tobiasson, kennari.
Jón Guðlaugsson, bæjargjaldkeri.
Böðvar Bjarkan, lögmaður.
Rvík 20. dei.
London: Verkamannastjórnin í
hættu stödd út af kolanámufrum-
varpi sfnu. Hafa íhaldsmenn sam-
þykt að greiða atkvæði gegn frum-
varpinu og frjálslyndir sömuleiðis,
nema stjórnin breyti því. Atkvæða-
greiðsla fer fram f þinginu i dag
og er ófyrirsjáanlegt hvernig fara
muni, en undir úrslitum hennar er
komið, hvort stjórnin verður áfram
við völd.
Smíðatól
fjölbreytt úrval^hjá
Tómasi Björnssyni.