Dagur


Dagur - 20.03.1930, Qupperneq 2

Dagur - 20.03.1930, Qupperneq 2
54 DXGUB 14. tbl. mmm'nmmmimm I Fata-tau I frá Klæðaverksmiðjunni »Gefjun« eru hlý og endingargóð. Mikið úrval hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. SliiiiiiftttiiiiiiiiiiiiiftlS Rvík 19. marz. Myndastofan Oránufélagsgötu 22 er opin alla daga frá kl. 10—6. Gaðr. Funch-Rasmussen. þús. kr. fjárveiting til að kaupa fjölsímatæki milli Rvíkur og Akur- eyrar. Kvað fjölsímatæki gera sama gagn og þrjár nýjar línur. Til end- urbóta Hóladómkirkju voru veittar 1000 kr. Sandgræðslustyrkur var hækkaður úr 30 þús. í 40 þús. kr., og framlag til skóggræðslu úr 10 þús. í 16 þús. kr. Styrkur til raf- orkuveitu í almenningsþarfir var hækkaður úr 10 þús. í 16 þús. kr. Af tillögum einstakra þingmanna voru fáar samþyktar. Til Húnavatns- vegar voru samþ. 15 þús. kr., til lofttalsstöðva á Horni og ísafirði 10 þús. kr.; til bryggjugerða og lendingarbóta alls 97 þús. kr., en var áður 20 þús. kr. samkv. frum- varpinu. — Kamban fékk 2000 kr., en Laxness féll. — Feld var tillaga frá þingmönnum Skagfirðinga um 75 þús. kr. styrk til raforkuveitu um Skagafjörð, og felt að hækka stórstúkustyrkinn upp í 15 þús. með 16 atkv. gegn 8. 15. marz. Morgunblaðið í dag birtir yfirlýs- ing frá þingmðnnum Sjálfstæðis- flokksins, þar sem þeir visa á bug öllum aðdróttunum um það, að and- stöðuflokkur núverandi stjórnar hafi átt nokkurn þátt í því, að álit Helga Tómassonar um geðbilun dóms- málaráðharrans kom fram, en telja hinsvegar Helga rétt og skylt að skýra forsætisráðherra eða forseta Sameinaðs þings frá því, ef hann sem sérfræðingur teldi síg hafa rök- studdan grun um, að maður í svo ábyrgðarmikilli stöðu, sem dóms- málaráðherra, væri geðbilaður! — Sig. Eggerz hefir gefið séryfirlýs- ingu, þar sem hann telur sér nægja að lýsa því yfir, að hann telji það móðgun við þjóðina að gefa í skyn, að andstððuflokkur stjórnarinnar eða einstakir þingmenn í flokknum leitist við að fá sérfræðing, til þess að gefadómsmálaráðherrasjúkdóms- vottorð, sem notað sé í pólitískri baráttu. Tíminn í dag birtir ávarp, undir- skrifað af liðlega 3000 manns, að- allega i Reykjavík. Er ávarp þetta traustsyfirlýsing og samúðar til dómsmálaráðherra út af geðveikis- aðdróttuninni. — Dómsmálaráðherra hefir birt þakkargrein í sama blaði. Nýtt frumvarp, um heimild fyrir ríkisstjórnina til að reisa byggingu fyrir Háskóla íslands á árunum 1934—1940, er fram komið. Prumvarp Erlings um útflutn- ingsgjald af síld var rætt í efri deild og að því loknu var því vís- að til stjórnarinnar. Þriðja umræða fjárlaganna hefst á morgun. Innflutt í febrúar fyrir kr. 3.333.215.00. — Ágætur afli síð- ustu viku. — Ægir kom í gær- kvöld með togarann Belgaum, tekinn í landhelgi. — Timburhús- ið Skógar á Skildinganesi brann í nótt. Bjarni Símonarson prófasur á Brjánslæk varð ' nýlega bráð- kvaddur. Póllandsstjórn hefir beðist lausnar. — Sérfræðinganefnd í Ermarsundsgangamáli hefir skil- að skýrslu og leggur til að ráðist verði í verkið. — Kommúnista- flokkurinn rússneski hefir fyrir- skipað að hætta trúarbragðaof- sóknum. — Primo de Rivera, fyr- verandi einvaldsherra á Spáni, er látinn af hjartaslagi í París. ------o----- Fréttir. Leikfélag Akureyrwr er nú búið að sýna »Æfintýrið<c 5 sinnum við sæmi- lega — og vaxandi — aðsókn, húsið fult síðast er sýnt var. Alþýðusýning með niðursettu verði (kr. 1.00 og 1.60) verður haldin á laugardaginn á venju- legum tíma. Bjami Bjama8on læknir ætlar að hafa söngskemtun í Akureyrar-Bíó annað kvöld (föstud. 21. þ. m.). Er Bjarni læknir vinsæll söngmaður og mun óefað marga fýsa að heyra hann á sjálfstæðri söngskemtun. Hafís. Tíðarfarið um þessar mundir hefir þótt benda á, að ís væri nálægur, enda . hefir reyndin orðið sú. Fyrir skömmu sást hafís frá Grímsey. 1 gær var iðulaus stórhríð í eyjunni, en rofaði þó til um stund, og sást þá ísinn kominn fast að eyjunni, en ekki verður um sagt hversu mikil brögð eru að honum. Borgarstjári í Reykjavík hefir verið kosinn Knud Ziemsen með 8 atkvæðum, eða eins atkvæðis meirihluta. i » « t« Aflalaust hefir verið með öllu hér á Eyjafirði um langan tíma. í byrjun þessarar viku kom »Sjöstjarnan« hlaðin fiski vestan frá ísafirði og bætti úr fiskþörfinni í bráðina. Ljós og skuggi. Einn af varafulltrú- um íhaldsins, sem sat á síðasta bæjar- stjórnarfundi, lét í umræðimum þar orð falla um, að »fsl.« væri ekki orðinn ann- að en skuggi — líklega þá »Eintalsins« sem sumir nefna »NorðL« — Að sögn er þó skin þessa mikla ljóss farið að verða stopult. — íhaldsmenn verða því að sætta sig við að vera í »skugganum«. Sakamálarami8Ókn hefir verið hafin gegn Olaf Olsen, þeim er sat í gæzlu- varðhaldi fyiir skömmu vegna hús- brunans í Hrísey. -----o----- * íí „Oeysir . Það hefir verið fremur hljótt um söngflokkinn »Geysir« nú langa hríð, og það svo, að jafnvel þó hann hafi látið eitthvað til sín heyra, hefir þess naumast verið getið að neinu opinbei'lega, og get- ur það varla talist réttmætt, þar sem það þó er viðurkent, að ekki sé völ á betri eða meira göfgandi skemtun, hér í bæ, en einmitt söng hans. Nú síðast söng »Geysir« á laug- ardaginn var í Samkomuhúsinu og á mánudaginn í Nýja-Bíó. — Þótt leiðinlegt sé, bæjarbúa vegna, að verða að viðurkenna það, þá verður maður þó að játa, að að- sóknin var langt frá því sem skyldi — á mánudagskvöldið naumast meira en hálft hús. Gæti það bent á að háttvirtir bæjarbú- ar mettu annað meira en fagrar listir, þótt í boði séu. Er það illa farið, ef vér gerum það, sem í voru valdi stendur, til þess að af- sanna það hrós, sem vér sjálfir — og reyndar aðrir líka — hafa stundum borið á oss fyrir tiltölu- lega hátt menningar- og menta- stig, sem þjóðin ætti að standa á. Tilvera söngflokks sem er svo vel æfður, og framkvæmir hlut- verk sitt svo vel sem »Geysir«, ber oss góðan vitnisburð um menn- ingu. En oss má ekki gleymast það, að tilvera slíks söngflokks einnig og aðallega byggist á á- huga almennings fyrir starfsemi hans. Eins og vænta mátti fór söngur »Geysis« mæta vel í þetta sinn — já, svo vel, að sem heild má kalla það ágætt, enda hafði hann á söngskrá sinni sum meðal áhrifa- mestu og fegurstu laga, sem á Norðurlöndum hafa verið samin, eins og t. d. Griegs »Sjá þann hinn mikla flokk« (Den store SJáLFBLERUHfi týndi eg nýlega. Sigrídur Baldvinsdóttir, Strandgötu i. hvide flok), og Stenhammars »Sverige« — af íslenzkum lögum voru einnig mörg ágætis-lög og alt vel með farið. Áhi'ifamest var vafalaust lagið: »Sjá þann hinn mikla flokk« — en þó skorti nokk- uð á þann hátíðlega fjálgleik, sem í laginu felst og á innri hita (tem- perament) í meðferðinni; ef til vill getur það legið nokkuð í sjálf- um textanum, sem engan veginn nær frumkvæðinu einmitt í þess- um afar-áríðandi atriðum frá list- rænu sjónarmiði séð — en auðvit- að getur slíkt aftur haft sín áhrif á meðferð textans í söng —; annars er það einmitt »tempera- ment«, sem oftast vantar í ís- lenzka list. — Um hið hrífandi fagra og karlmannlega lag Sten- hammars við þjóðsöng Svía er það að segja, að meðferðin mistókst nokkuð sökum framburðarvillu í fyrstu línu. Það getur nú verið að einhver brosi að þessu og finnist það fremur smásmuglegt að fara að setja út á framburðarvillu í þessu sambandi, en sannleikurinn er sá, að þar sem lagið er svo hnitmiðað einmitt til þess að nota hvert hljóð í textanum, eins og hér á sér stað, þá má engu hljóði sleppa, engu bæta við, til þess að lagið veiklist ekki í meðferðinni og áhrifin tapi sér. Um hin lögin er ekkert nema gott að segja. — Griegs »Non*öna folket« er kempulegt lag og ein- söngurinn vel og rösklega sunginn af Bjarna Bjarnasyni lækni. Sö- dermans »1 bröllopsgárden« hefir flokkurinn sungið áður og jafnau farið vel með það, þó líklega aldrei betur en nú. Sama má segja um ýms önnur lög, en eg vil í þetta sinn láta mér nægja að benda á »Móðurmálið« eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem var snildar- lega sungið. _ Að lokum vil eg taka það fram, að það sem hér hefir verið sagt ber ekki að skilja sem neinskonar ádeilu, heldur sem vinsamlegar athugasemdir og auðmjúkar bend- ingar, sem réttir hlutaðeigendur þó kannske gætu haft ofurlítið gagn af að taka til íhugunar. Þökk fyrir sönginn »Geysir«. B. Æfisaga Snœbiarnar i Hergilsey, fyrri parturinn er nýlega út kominn hjá Bóka- verzlun Þorsteins M. Jónssonar. Er hér um mjög merka bók að ræða fyrir margra hluta takir, sem vonlegt er, þar eð höf- undur hennar er maður spakur og einn tneðal merkustu núlifandi alþýðumanna. Bókar þessarar verður nánar gétið innan skams. Carbolineum, Koltjara, Þaklakk fæst hjá TÓMASI BJÖRNSSYNI.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.