Dagur - 30.05.1930, Síða 4

Dagur - 30.05.1930, Síða 4
114 DAGUR 32. tbl. ••••••••••• • •••••• •••••••••• • um. Má þar til nefna: Eggert Ól- afsson, J. Steestrup og Chr. Grönlund. Sá síðast nefndi hafði þá gefið út fslandsflóru, en lýs- ingar allar voru ónákvæma.r og ritaðar á danska tungu, svo al- þýða manna hér á landi hafði hennar lítil not; þar að auki var þar ekkert sagt um útbreiðslu teg- undanna. Ein grasafræðibók var þó til á íslenzku; hafði Oddur læknir Hjaltalín samið hana; en sú bók var að engu leyti bygð á eigin rannsóknum, heldur upp- tugga úr útlendum ritum og því víða ruglað saman innlendum' og útlendum tegundum. Þegar Stefán hóf gróðurathug- anir sínar, sá hann glögt, hve við- tækt verksvið var fyrir hendi, og hann vissi hvað hann vildi. Hann einsetti sér að hætta ekki fyr en sæmileg þekking væri fengin á háplöntugróðri islands og út- breiðslu tegundanna og aul; þess handbók við alþýðu hæfi með ná- kvæmri lýsingu á hverri plöntu- tegund. Á hverju sumri í 12 ár eða frá 1888—1900 (sumarið 1898 gekk úr) ferðaðist hann nálega um land alt í þessu skyni. En hann gerði meira en að safna. Með skarpskygni vísindamannsins tók hann eftir ýmsum fyrirbærum, er öðrum hafði sést yfir í íslenzku gróðurríki. Hann athugaði blómg- unartíma tegundanna, frævunav- aðferðir, hæð plantna yfir sjó og útbreiðslu þeiri'a og síðast en ekki síst hvernig vi'ssar plöntutegund- ir skipa sér saman í félög (gróðr- arfélög). Á tímabili hugsar Stefán sér að safna drögum að sér-flórum fyrir allar helztu sveitir landsins, og í því skyni dvelur hann heilt sumar í Vatnsdal í Húnavatnssýslu. Var sér-flóra Vatnsdals ásamt ná- kvæmri gróðurlýsingu af sveit- inni prentað í Vidensk. Meddel. 1894. En Stefán sá fljótt að sér mundi ekki endast aldur til slíkra rann- sókna og lét hér við sitja, sem komið var, enda þótt hann sæi, að í framtíð bæri að stefna að þess- háttar rannsóknum. Hann vildi umfram alt ekki bregðast löndum sínum með »flóruna«. Á ferðalögum sínum var hann fundvís á tegundir, sem enginn hafði fundið hér áður; það sýnir, að hann hafði auga vísindamanns- ins. Hann sýndi einnig með rök- um fram á það, að tegundir, sem taldar höfðu áður verið alíslenzk- ar, væru hér alls ekki til, eða rangt nafngreindar. Svo var með tegundina Imperatoria Ostrut- hium, er danski vísindamaðurinn Rostrup hafði ákvarðað. Þegar fer að líða að aldamótun- um 1900, tekur Stefán að undir- búa Flóru íslands; þurfti hann að semja lýsingu af hverri ein- ustu háplöntu og búa til nýtt fræðiorðakerfi, sem hefir ac geyma nokkur hundruð orða. Þetta starf var meira en meðal- manns verk, það var snildarverk afburðamannsins og hefir reist Stefáni óbrotgjarnan minnis- varða. Flóra íslands var svo prentuð árið 1901 og náði hún fyllilega tilgangi höfundarins. • • ••••• •-• • Eftir aldamótin hætti Stefán lengri ferðalögum í þarfir vísind- anna; en altaf leit hann eftir plöntum í nágrenni sínu og fékk plöntur frá nemendum sínum, víðsvegar að af landinu. Árið 1919 var hann búinn að safna saman öllum nýjungum úr gróðurríki fslands frá aldamót- um og lét prenta í skýrslu Nátt- úrufræðifélagsins. Og 2. útgáfu endurbætta af Flóru íslands hafði hann nærri tilbuna, þegar hann dó. Síðustu árin hafði hann enn- fremur í smíðum fullkomna nafnaskrá yfir íslenzkar háplönt- ur. í heild sinni hefir Stefán ekki ritað sérlega mikið; enda er tæp- lega hægt að krefjast þess af þeim manni, er var jafn-miklum störfum hlaðinn og hann var. Auk þess varð heilsa hans aldi’ei trygg eftir hættulegan skurð, er á hon- um var gerður, laust fyrir alda- mótin. Rit Stefáns og helztu ritgerðir eru: 1883 Grasaríkið á Islandi eftir Moriz II. Friðriksson (Þjóðólfur 1883). 1888: Um kartöflur (Búnaðar- rit 1888). 1890: Stutt yfirlit yfir gróður- fræðilegar rannsóknir á fslandi og rit um íslenzkar plöntur. (Skýrsla hins ísl. Náttúrufr.félags 1890— 1891). 1890: Á grasaferð (Þjóðólfur 1890). 1890—’97: Fra Islands Væxt- rige I, II, II (Vidensk. Meddel.). 1891: Um hina kynslegu æxlun blómplantnanna (Tímarit Bókm.- félagsins 12. ár). 1893: För til Héðinsfjarðar og Hvanndala sumarið 1890 (And- vari 18. árg.). 1895: Frá Möðruvöllum heim að Hólum (Andvari 20. árg.). 1895: Bemærkninger til Chr. Grönlund. Tillæg til Islands Kryp- togamflora (Bot. Tidskr. 20.). 1897: Um íslenzka fóðurjurta- Hæði (ísaf. 24. árg.). 1901: Flóra íslands (2. útgáfa, endurbætt, 1924). 1902—’IO: Um ísl. fóður- og beitijurtir (Búnaðarrit 16., 17., 18. og 24. árg. — Með H. G. Sö- derbaum: Islandske foder och betesváxter (Meddel. fra kgl. Landtbr uksakad. Experimental fált. 1902 og 1904). 1913: Plönturnar (2. útgáfa 1920). 1914: öspin í Fnjóskadalnum (Náttúrufr.fj. 25 ára). 1919: Flóruaukar (Skýrsla Náttúrufr.félagsins). Þegar tekið er tillit til þess, hversu skammvint grasafræðinám Stefáns var við háskólann, þá er það aðdáunarvert, hve langt hann hefir komist 1 þeirri fræðigrein. Sumir hafa haldið því fram að Stefán hafi rist fremur grunt í vísindamensku sinni; en þar skjcplast þeim. 1-Iann gat beitt við sig strangvísindalegum aga; en hitt er rétt að hann reyndx sem mest að gera vísindi sín hagnýt, og opna augu nemenda sinna á sem allra einfaldastan hátt fyrir dásemdum náttúrunnar. »Eftir vörðum skal leið vísa, en ekki benda á hvern smástein«, á hann að hafa sagt eitt sinn, er rætt var um kens'lu. Þessi aðferð hans hefir komið mönnum til að halda, að hér væri um grunnfærni að ræða; en það er aðeins kennarinn Stefán, sem lagt hefir þar hömlur á hárná- kvæmni vísindamannsins. Sem kennara man eg Stefán vel, meðan eg lifi. f 3 vetur var eg undir stjórn hans og sem nemandi í þeim kenslugreinum, er hann lengstum kendi, en það voru landafræði og náttúrufræði. Eg hefi ekki heyrt einn einasta af nemendum Stefáns segja annað en hrósyrði urn kenslu hans. Sem skólastjóri var hann einnig elsk- aður og virtur af kennurum og nemendum og hélt þó uppi aga í skólanum, svo ekki var að fundið. Samvinnuþýður og frjálslynd- ur var hann, glæsimenni mikið og bar af flestum um snyrtimensku í klæðaburði. En það var önnur snyrti- og glæsimenska, sem tók fastari tökum hvern þann, er sam- vistir áttu með honum. Hvert orð, sem hann reit eða mælti af munni fram, var sem fágaður gimsteinn; enda var hann þjóðkunnur fyrir það, hve orðhagur hann var. Hann var ekki í tölu þeirra lærðu manna, sem láta sér nægja að rita vansalaust, en gera móðurmál sitt að skrípi' í daglegum samræðum og á mannfundum. Stefán gerði sér aldrei stakkaskifti um málfar. Hverri setningu, er hann mælti til okkar nemendanna í kenslustund, mætti líkja við hlýja gróðrarskúr, er svalar þyrstum gróðri. En orð innantóm megna ekki mikils, þó fögur sé. En engum tókst betur en Stefáni að fá nem- cndur til að gefa gaum að orðum sínum. Og í grasafræði var hann mestur snillingur í þeim efnum. Eg er enn að furða mig á því, að honum skyldi takast að fá suma nemendur sína til að gera sjálf- stæðar gróðurathuganir í sumar- leyfinu — nemendur, sem mér fundust í byrjun gersneyddir á- huga á grasafræði. Hvað var það, sem gerði Stefán að þessum afburða kennara? Eg efast um að því verði nokkurn- tíma svarað að fullu. Því sá sem er kennari »af Guðs náð«, eins og réttilega var sagt um Stefán, hann teygar ósjálfrátt af sömu uppsprettunni og plantan á auðn- inni, er á var minst í upphafi þessarar greinar. Stefán flutti altaf með sér sól- skin inn í kenslustofurnar. »Við verðum að treina okkur ylinn og ljósið þangað til vorið kemur aft- ur með: Sól í fangi og blóm við barm«, sagði hann eitt sinn í skólasetningarræðu. Hann átti þessa djúpu glaðværð, sem aldrei bregst. í brjósti hans brann sí- vakandi æskueldur, hugsjónaafl- vakinn mikli, er knúði kynslóðina ungu til að skygnast inn í æfin- týraheim náttúrunnar. Það var ekki skyldustarf hans sem kennara, er framkallaði þessa lífrænu eðliskosti, heldur gaf hann nemendum sínum af innri þorf og með réttum skilningi á eðli þeirra og móttökuhæfileika. í sambandi við kenslu Stefáns hefir mér oft dottið í hug það, sem rósaviðui'inn er látinn segja í æfintýrinu alkunna: »SnígiIlÍnn og rósaviðurinn«, eftir H. C. An- dersen: ...... Eg blómgaðist í gleöi, því eg gat ekki annað. Sólin blessuð var svo hlý og loftið svo hress- andi.... Eg fann til sælu, sem alt af var ný og altaf mikil og þess vegna varð eg að blómgast; það var lífið mitt, eg gat ekki ann- að....« Stefán gerði sitt ýtrasta til þess að laða nemendur að sveitalífinu og vara þá við líkamsleti. »Skól- inn á að veita ykkur svo mikinn andlegan þroska, að þið getið unnið hvaða verk sem er með meiri hagsýni en áður«. Sagði hann í skólasetningarræðu sinni haustið 1910. Fjöldi nemenda hans urðu líka dugandi bændur og ötulir forystu- menn margskyns verklegra fram- kvæmda. Þessum nemendum hefir Stefán áreiðanlega gefið brot at sjálfum sér í veganesti. Það er háttur mikilmenna. Stefán unni skólanum af heil- um hug og gerði sitt bezta til að auka vöxt hans og viðgang. Og þegar ganga átti á rétt skólans, þá var Stefáni að mæta. Hann var orðinn svo samgróinn skólanum, að hvorugur mátti á annars vera. Eitt af síðustu áhugamálum . Stefáns var að gera skólann að fullkomnum mentaskóla, og hann vissi að svo mundi verða áður en langt um liði'. Og nú hefir þessi hugsjón Stefáns rætst, enda þótt honum entist ekki líf til að leiða það mál fram til sigurs. Þegar Stefán hóf náttúrufræði- kenslu sína á Möðruvöllum, var þekking og skilningur alþýðu á þeim fræðum á mjög lágu stigi, og það sem verra var: Menta- menn þjóðarinnar voru engu betri og sýndu margir þeii'ra náttúru- vísindum fullkomna fyrirlitningu. Átti því Stefán fyrst lengi vel í höggi við frámunalegt skilnings- leysi almennings, en i'ann að lok- um glæsilegan sigur. Hann ruddi náttúruvísindunum braut og opn- aði augu manna fyrir dásemdum gróðurríkisins. Framkoma hans öll, mælska hans og frábærir kennarahæfileikar gerðu harin að áirúnaðargoði fjöldans, og á einkum er um nátt- úruvísindi var að ræða. Því mun það ekki of mælt, þó sagt sé, að enginn maður hafi unnið íslenzku þjóðinni meira gagn í grasafræði- legu tilliti en Stefán; enda mun nafn hans geymast ófölskvað á meðal íslenzkra blómavina um aldir. Að síðustu þakka eg Stefáni skólameistara í nafni hins norð- lenzka mentaskóla og þjóðarinnar í heild sinni fyrir mikil og vel unnin störf. > Ingimar óskarsson. Ritstjórar: Ingimar Eydal. Gilsbakkaveg 6. Friðrik Ásmundsson Brekkan. Aðalstræti 15. Prentsmiðja Odds Bjömtsonar. 1930,

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.