Dagur - 06.11.1930, Side 3
60. tbl.
DAGUR
215
fyrirhyggju. Eitt aðalatriðið í sam-
bandi við skipulagið var flutningur
mannfjöldans til Pingvalla og þaðan
aftur til Reykjavíkur. Annað höfuð-
atriði var lögreglueftirlitið meðan
hátfðin stóð.
Um fyrra atriðið er það að segja,
að íslenzkir ökumenn — bifreiða-
stjórar — eru hinir færustu, og
mega menn öruggir aka á flugbjargs-
brún ef íslenzkur »bílstjóri er við
stýrið! Og til verðugs lofs íslénzk-
um ökumönnum, og lögreglueftirlits-
mönnum, er vert að geta þess, að
þrátt fyrir mjóa og tæpa; vegi, sem
notaðir voru af bifreiðum og gang-
andi fólki, gat ekki talist að nokk-
urstaðar yrði slys.
Lögregluþjónum hafði verið fjöig-
að að miklum mun, og sérstakur
lögregluumsjónarmaður ráðinn frá
Chicago. Hann mun hafa búistvið
erfiðara starfi en raun varð á. F*ví
að undanskildu því, að leiðbeina
vegfarendum og halda umferð í
réttri rás var starf lögreglumann-
anna næsta auðvelt og fábreytt, og
ástæðan var sú, að jafnvel þó að
Reykjavík, dagana fyrir hátíðina, væri
yfirfull af útlendum gestum, og
fjölda sjómanna frá ýmsum þjóðum
og íslendingum viðsvegar af landinu,
þá bar hvergi á neinni óreglu, og
eins var það á Pingvöllum meðan
hátíðin stóð.
Pað er ekki rétt, að tala um há-
tíðahöldin sem eingöngu bundin
við Pingvelli, því í tvær vikur áður
en hin formlega hátíð hófst á Þing-
völlum hafði Reykjavík verið í veizlu
klæðum. Forleikurinn að hátíðahöld-
unum voru komur Amerisku skip-
anna og móttökur þeirra gesta er
þau fluttu.
Pegar skipin nálguðust land, komu
sendimenn frá hátíðanefndinni um
borð; sömuleiðis frá bæjarstjórn
Rvíkur, og gestunum var þá strax
fagnað með söng og ræðuhöldum.
Pannig var það er fyrra skipið —
Antonia - kom, og nákvæmlega
eins er hið síðara — Montcalm —
kom að landi.
Að sigla inn til Reykjavíkur um
vorbjarta nótt, var líkara dásamleg-
um draumi, en vöku virkileikans.
Pað var laust fyrir kl. 9 að landið
sté fram úr rakri móðuslæðu, og
birtu var ekki farið að bregða. Kl.
10 komu varðskipin á móti oss, öll
fánum prýdd. Tíminn líður, kl. verð-
ur hálfellefu, - ellefu, og hún
verður hálftólf og enn er eins bjart
og um hádag. Skipið siglir inn á
höfnina, fjöldi af bátum hlaðnir fólki
koma út að skipinu og öigla í kring-
um það og bjóða það velkomið
með söngvum og húrra hrópum og
niðri í borðsal skipsins skemtir úr-
vals söngflokkur og aliir eru sem
heillaðir af söngnum og birtunni og
allir hugsa það sama: Er það
draumur?
Næsta morgun á fætur kl 5, og
þann dag halda móttökurnar, söng-
urinn og ræðuhöldin áfram. Hvort
það hafi ekki orðið einhæf skemtun,
spyr einhver. Nei! Pví frá öllum
þessum móttökum andaði þvílíkur
hlýleikur til frændanna að vestan,
að ekki gleymist, og af að hlusta
á söng Isl. karlakóra þreytist enginn.
Útsýnið meðfram veginum frá
Reykjavik, til Pingvalla er ekki
fagurt. Leiðin liggur yfir giýtta og
hrjóstuga heiði, sem svarar 30 míl-
um enskum; en svo alt í einu breytist
allt í einni svipan þegar ekið er
niður í Almannagjá, og eftir henni
bugðast vegurinn niður á vellina.
Myndir hafði eg séð af Almanna-
gjá, og mér höfðu virst hamrarnir
kaldir og grettir. Eg var því ekki
undir það búin að skoða og skynja
þá miklu gnægð fagurra lita, sem
slær á hamravegginn og bergsyllur
hans, eða gróðurinn sem angar og
ilmar víðsvegar um gjána, niðinn
í Öxarárfossinum, eða fegurð ár-
innar þar sem hún streymir milli
grænna bakka niður um vellina og
út í vatnið.
Um þetta útsýni er nú hefir ver-
ið lýst, sagði Hon. W. J. Major
dómsmálaráðgjafi Manitoba:
»Er maður horfir yfir þetta land,
sem var vagga lýðstjórnar og lög-
gjafar, þá liggur við að maður öf-
undi þá sem geta kallað þetta sitt
land.c
Margt var tij skemtunar á Ping-
völlum. Ræður voru að vísu marg-
ar og merkilegar; en þar að auki
veðreiðar, glímur, hljómleikar og
fagrar íþrótta sýningar, þjóðdanzar
og söngur oft langt fram á nótt.
Já, hinum björtu, heillandi sumar
nóttum gleymir enginn, þær voru
dýrmætari en nokkur svefn. —
Uppi við Öxarárfoss, og á há-
bakka gjárinnar, eftir gjánni sjálfri,
og niðri á völlunum og í hlíðunum
gengu menn í hægðum sinum i
smá fjokkum, eða tveir og tveir
saman, vinir og elskendur, eða ein-
stakir hugsandi menn og nutu dýrð-
ar bjartrar nætur. En niðri hjá tjöld-
um, hópuðust menn og sungu, eins
og aðeins ungir íslendingar geta
sungið. Nei, þá laugardagsnótt var
ekki.sofið mikið á Pingvöllum.----
Einhver sælasta sál á Pingvöllum
var Oddur, því konungurinn gekk
í veg fyrir hann ög talaði við hann,
og þeir voru myndaðir saman.
Oddur er alþektur í Reykjavík, og
ekki álitinn »normal«. Oddur lét hár
og skegg vaxa um nokkra hríð,
áður hátíðin fór fram. Hann vildi
sýna sig í víkingsgerfi, og það gerði
hann, vinir hans sáu um það. Líkur
löngu horfnum víkingi, sem um
stundarsakir vitjar fornra stöðva,
hvarflaði hann um völluna, ýmist
gangandi eða ríðandi á gráum.
Aðhátíðarhöldunum liðnum.hurfu
gestirnir á brott, og líf þjóðarinnar
og straumar daglegra athafna féllu
í sína fornu farvegi. En þeir sem
viðstaddir voru hátíðahöldin á Ping-
völlum eru þess vitandi að ýmsar
miklar breytingar hafa orðið og
eiga eftir að verða útfrá hátíðinni.
F*eir vita að hinn mikli fjöldi gesta
hefur tekið með sér minningar um
land og þjóð. — Á þann hátt hefur
landið og lifnaðarhættir þjóðarinnar
farið utan i huga og minni gestanna,
sem komu og fóru, og fylgir þeim
út um viða veröld til mismunandi
heimila og staðhátta.*
Frásögnin í Free Press er löng
og ítarleg og ekki kostur að birta
nema þessa kafla úr henni.
F. H. B.
-----o———
RYELS stóra, arlega
úfsala
byrjar Á MORGUN föstudaginn
7. nóvember.
Aldrei í sögu Akureyrar hefir jafn fjöl-
breytt úrval af góðum, fallegum og
nýmóðins vörum verið lagt fram tii
útsölu. — Að nota þetta framúrskar-
andi tækifæri, til að byrgja sig upp,
af góðum og ódýrum vörum, er
stór hagnaður fyrir hvern kaupanda, og
þessvegna sjálfsagt.
Pess skal getið að útsöluvörum verður
ekki skift, eða þœr teknar aftur, og verð
miðað við borgun út í hönd.
Baldvin Ryel.
Verkamannaskófatnaður
úr leðri - ódýr, hlýregsterkur.
Vinmvetlingar
margar tegundir, ódýrari
en áður hefur þekkst hér.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeildin.
TIL SÖLTJ.
Undirritaður hefir til sölu tvö
íbúðarhús á góðum stað i bænum,
húsunum fylgja eignarlóðir, og með
öðru matjurtagarður.
Borgunarskiimálar mjög góðir.
Akureyri 4. nóvember 1930.
Jón Antonsson.
Duglega ng prifna stóiku
vantar til innanhússverka á fáment,
barnlaust heimili hér i bænum.
Ritstj. vísar á.
og
heygrímur
fást í
Lyfjaiiuð flkureyrar.
Sigurður Kristjánsson hefir látið af rit-
stjórn Vesturlands á ísafirði og er nú orð-
inn stjórnmálaritstjóri ísafoldar. Talið er
líklegt að Vesturland sé úr sögunní.