Dagur


Dagur - 27.11.1930, Qupperneq 3

Dagur - 27.11.1930, Qupperneq 3
63. tbl. DAGUR 227 - •••••- Verðlækkun. Seljum bláar þrælsterkar karlm. peysur með 10 % AFSLÆTTI. — Broddstafir á kr. 2. — BRAUNS VERZLUN. Páll Sigurgeirsson. • ♦ •• • •♦• • • • • Leikfélag Akureyrar. Ýmsir bæjarbúar hafa vakið máls á því við okkur, hvort það væri satt, sem heyrst hefir, að Leikfélag Akureyrar ætli ekkert að starfa í vetur. Höfum við svar- að, að það væri satt. Til þess að koma í veg fyrir missagnir þessu máli viðvíkjandi, höfum við, formaður og gjaldkeri félagsins, sem báðir eru kunnugir högum þess, horfið að því ráði að skýra það lítið eitt fyrir almenn- ingi hér í bænum. Á frumv. til fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 1931 var gert ráð fyrir því, að styrkur úr bæj- arsjóði til L. A. lækkaði um helm- ing frá því sem áður var. Þegar stjórn félagsins varð þess vör, sendi hún styrkbeiðni til bæjar- stjórnarinnar og fór fram á, að félagið fengi að halda sama styrk og síðastl. ár, því ef svo færi að styrkurinn yrði lækkaður, sæi það sér ekki fært að halda leikstarf- semi áfram. — Við 2. umræðu fjárhagsáætlunarinnar kom fram breytingartillaga frá einum bæj- arfulltrúa (Ingimar Eydal) um að styrkurinn héldist óbreyttur. Gat tillögumaður þess að þýðing- arlaust væri að samþykkja lægri upphæðina, þar sem hún yrði ekki notuð. Breytingartillagan var felld með eins atkv. mun. Á fundi Leikfélagsins, sem hald- inn var fyrir nokkru síðan út af þessari ráðstöfun meirihluta bæj- arstjórnarinnar, kom fram tillaga frá þeim, sem kunnugast er um starfsemi og ástæður félagsins, um að leggja það niður að fullu og öllu. Sú tillaga féll með eins atkv. mun. Skömmu síðar kom stjórn félagsins saman á fund og komst að þeirri niðurstöðu að ekki gæti komið til mála að halda leikstarf- seminni áfram vegna fjárhags- örðugleika. Jafnframt því að lækka bæjar- styrkinn til félagsins um helming, hefir húsaleigan fyrir leiksýning- ar verið hækkuð að nokkrum mun og er nú orðin nær tvöfallt hærri, en þá félagið hóf starf sitt. Þess er ekki að dyljast að okkur þykir framkoma meirihluta bæjar- stjórnarinnar bera vott um frem- ur lítinn skilning á leikstarfsemi og stinga nokkuð í stúf við það, sem annarstaðar á sér stað. Leik- list hér á landi þolir auðvitað ekki samanburð við útlenda leiklist sem ekki er við að búast, en þó er það svo að list þessi á orðið um allan heim við örðugleika að stríða, en víðast er reynt að halda henni uppi með ríflegum fjárstyrk. Bæj- arstjórn Reykjavíkur hefir sýnt allmikinn skilning í þessu máli og sífelt verið að hækka styrk til leikfélagsins þar. Er hann nú 6000 kr. úr bæjarsjóði og aðrar 6000 fær félagið úr ríkissjóði. Samt sem áður er svo komið fyrir L. R. að það er komið í stórskuld og liggur við borð, að það verði að leggja niður starf sitt vegna fjárskorts. Aðstaðan í Rvík er þó • •••••• •-•••• • •• • •• • •« ólíkt betri en hér, þar sem t. d. í- búar höfuðstaðarins eru 7 til 8 sinnum fleiri en á Akureyri. — Leikfélag Akureyrar hefir nú síð- ast haft 1500 kr. ríkisstyrk, en búast mátti við að hann lækkaði þegar vitað var, að styrkur frá bænum hefði lækkað um helming. Leikfélag Akureyrar var stofn- að fyrir 13 árum af mönnum, sem höfðu áhuga fyrir leikstarfsemi. Á þessum árum, að undanskildu hinu fyrsta, hefir félagið leikið meira og minna á hverjum vetri og reynt að vanda val viðfangs- efna eftir mætti. Hér, eins og ann- arstaðar, hefir kostnaður við leik- sýningar farið síhækkandi, sem meðal annars stafar a f vaxandi kröfum um vandaðan útbúnað á leiksviði o. fl. Félagið hefir leitast við að vanda sem bezt til leiksýn- inga og hefir í því skyni verið sér úti um aðfengna krafta, þá beztu, sem völ var á, og hefir gert meira að því en önnur leikfélög landsins. Fyrir nokkrum árum fékk það aðra beztu leikkonu landsins, frú Guðrúnú Indriðadóttur, í þjón- ustu sína um tíma, og í annað skifti frægan útlendan leikara, Adam Poulsen frá Kaupmanna- höfn. Þá réði félagið Harald Björnsson í tvo vetur til að standa fyrir leiksýningum. Er hann eins og kunnugt er eini karl- maður á landi hér, sem lært hefir og stundað leiklist til hlítar er- lendis. Allt þetta kostaði félagið mikið fé. Félagið hefir verið svo heppið að hafa í þjónustu sinni þann mann, sem talinn er beztur leik- tjaldamálari allra fslendinga, Freymóð Jóhannsson. Hefir hann notið tilsagnar í þeirri grein við Konungl. leikhúsið í Höfn. í haust var stjórn félagsins í samningum við Friðfinn Guðjóns- son prentara í Reykjavík um að koma hingað og leika aðalhlut- verkið í leiknum »ímyndunarveik- in« eftir Moliere, en nú þegar þrengt er að kosti félagsins verð- ur sú fyrirætlun að engu kostnað- arins vegna. Er það þó leitt, því ánægjulegt myndi hafa orðið að njóta hér á leiksviði þessa vinsæl- asta leikara á íslandi, og ekki hefði það spillt ánægjunni, að F. G. er uppalinn hér á Akureyri og byrjaði hér leikstar fsitt fyrir 40 árum, á 1000 ára hátíð Eyfirð- inga. Síðan Leikfélag Akureyi’ar byrj- aði starfsemi sína, hefir það greitt nærfellt 8000 kr. í húsa- leigu til bæjarsjóðs. Hin síðari ár hefir meira en þriðjungur af »brutto«-tekjum félagsins gengið til þess að greiða húsaleigu, Ijós og skemmtanaskatt. Styrkur frá bænum til félagsms hefir yfir all- an starfstíma þess numið 3.700 krónum. Þó féíagið hafi jafnan átt við fjárskort að búa, hefir það þó sýnt ofurlitla Viðleitni þess að styðja fjárhagslega almennt vel- ferðarmál. Það lét af höndum rakna um 2000 kr. til Heilsuhælis- ins í Kristnesi. Nokkrir menn hafa mikið á sig lagt til þess að halda starfsemi fé- lagsins uppi, en ekkert borið úr býtum nema erfiðið og ánægjuna, sem ætíð fylgir ósérplægnu, nyt- sömu starfi. Þessir menn hafa oft lagt á sig næturvökur að afloknu dagsverki. Þeim til athugunar, sem halda að leikstarfið hafi gefið drjúgar tekjur, viljum við upp- lýsa, að borgun til leikenda hefir verið frá 40 til 70 kr. fyrir hvern leik. Á móti þessari upphæð hefir komið: að læra hlutverkin, 20 til 30 æfingar og síðan að leika nokk- ur kvöld. Þó er langt frá að allir, sem leikið hafa, hafi borið þetta úr býtum. Sumir þeirra hafa alls ekhert fengið greitt og venjulega hafa leikfélagsmenn sjálfir orðið fyrir því, eðlilega hafa þeir setið á hakanum, en frekar reynt að greiða utanfélagsmönnum, sem starfað hafa með þeim. Það er því áreiðanlegt, að leikfélagsmenn hafa ekki fitnað af þessum störf- um eða því fé úr bæjarsjóði, sem til Leikfélagsins hefir gengið. Aðrir hafa komizt betur til holda, sem við þá jötu hafa verið. Er þar sjón sögu ríkari. Sýningar Leikfélags Akureyrar hafa af ýmsum verið taldar til hins bezta, sem völ er á til skemmtana hér í bæ. Sérstaklega hafa þær verið sóttar af þroskuðu fólki. Vitanlega kjósa margir heldur misjafnlega hollar bíó- myndir og dansskröll. Þeir um það. Mennirnir eru misjafhlega gerðir að smekk og innræti. En hvað sem um það er, þá er það víst, að margir bæjarbúar hafa notið margra ánægjustunda í leik- húsinu, síðan L. A. tók til starfa. Nú er þeirri ánægju lokið, að sinni. Vel má vera að eitthvað verði fengizt, við leiksýningar hér í bæ framvegis, þó L. A. hætti störf- um. En ef engin ábyrgð fylgir því starfi gagnvart sjálfri leiklist- inni, þá er ekkert gefandi fyrir það. Um slíkt skal engu spáð. Tíminn leiðir það í ljós. Hallgr. Valdeynarsson. Sigtr. Þorsteinsson. -----e- F réttir. Dánardægur. í fyrrinótt andaðist hér í bænum Karl M. Árdal, dóttursonur Páls sál. Árdals skálds. Bar dauða hans skjótlega að höndum. Hann mun hafa verið nálægt þrítugu, vel gefinn og vin- sæll maður. Dómsmálaráðherrann kom heim úr utanför sinni með Islandi á sunnudags- kvöldið. Hefir hann verið bæði I Eng- landi og Danmörku undanfarnar vikur. Grátlegt slys vildi til hér í bænum í fyrradag. Barn á öðru ári datt út um glugga á efri hæð hússins nr. 10 í Að- alstræti og' dó eftir litla stund. Barn þetta átti Freymóður Jóhannsson mál- ai-i og kona hans. Dnikknun. i síðustu viku féll maður út af vélbát af Siglufirði og drukknaði. Hann hét Sigurður Ólafssön, ungur maður, ættaður af Austfjörðum og var vélstjóri á bátnum. Hjónabönd: Ungfrú Hólmfríður Guð- jónsdóttir og Georg Pálsson bókari; ungfrú Anna Halldórsdóttir og Gunn- laugur Markússon verkam., ungfrú Birna Ingimarsdóttir frá Litla-Hóli og Jóhannes Væhle, Norðmaður. Bruni. Fyrir nokkru kviknaði í íbúð- arhúsi frú Margrétar Sigurðardóttur á Grund í Eyjafirði. Slökkviliðið héðan úr bænum fór fram eftir, en er það kom á vettvang, var búið að slökkva eldinn. Skemmdir urðu talsverðar á húsinu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.