Dagur - 22.01.1931, Blaðsíða 1
D AGUR
(cemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirð-
inga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þðr,
Norðurgötu 3. Talsfmi 112.
Uppsögn, bundin við éra-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XIV
•ár- ■
Akureyri, 22. Janúar 1931.
# » # ■# ••• •
Nýi Þór.
Pess hefir áður verið getið hér i
blaðinu, að Pálmi Loftsson útgerð-
arstjóri ríkisskipanna hefði fyrir hönd
landstjórnarinnar fest kaup á þýsku
skipi, sem kom til Reykjavfkur í
byrjun desember í vetur.
Eins og kunnugt er strandaði
gamli Pór á Húnaflóa síðla árs
1929. Var hann íyrsta björgunar- og
strandvarnarskipið, er íslendingar
eignuðust. Kom hann að miklum
notum, þó ganglítill væri og kola
frekur og yrði því nokkuð dýr í
rekstri.
Skipið, sem Pálmi Loftssön keypti,
átti að vera bjðrgunarskip fyrst og
fremst og taka þannig við hlutverki
gamla Pórs. Skipið er þýzkur togari,
byggður til að stunda veiðar norður
í Hvítahafi og hét áður Senator
Scháfer. En ríkisstjórnin hefir ákveð-
ið, að það skuli framvegis bera
sama nafn og hið gamla björgunar-
skip Vestmannaeyja. í daglegu tali
er það nefnt >nýi Pór«.
Nýi Pór var byggður árið 1922
og tiltölulega lítið notaður. Hann
kostaði 8000 sterlingspund eða um
180 þús. kr., og fylgdu 150 smá-
lestir af kolum með i kaupinu. Er
kaupverðið um helming þess verðs,
er nýtt skip af sömu stærð og gerð
hefði kostað. Breytingar þær, sem
gera verður á skipinu, til þess að
það verði vel nothæft björgunarskip,
er áætlað að kosti 12 þús. kr.
Kolaeyðsla skipsins er tiltölulega
mjög lítil. Pað eyðir nálægt 5 smá-
lestum af kolum á sólarhring með
10 milna hraða á vöku. Til saman-
burðar má geta þess að Óðinn
eyðir 14 smálestum á sólarhring og
gamii Pór eyddi um 8 smál., og
var þó vélin í honum um 100 hest-
öflum kraftminni en í nýkeypta
skipinu. Ætti það því að verða mjög
ódýrt í rekstri. Lfm sömu mundir
og nýi Pór var keyptur, var skip,
sem byggt var á sama tíma, eftir
sömu teikningu og í sömu skipa-
smiðju, selt til Ameríku fyrir 9000
pund sterl. eða rúmum 20 þús. kr.
meira en Pór.
Danskur skipafræðingur frá firm-
anu Brorson & Overgaard, er verið
hefir f ráðum með um byggingu
skipa Eimskipafélagsins, aðstoðaði
P. L. við kaupin á skipinu. Er firma
þetta víðþekkt og álit eins af fær-
ustu starfsmönnum þess mjög mikils
virði. Skipafræðingur þessi hefir
vottað það, að >skipið sé vel og
sterklega byggt og vel við haldið
að öllu leyti bæði innanborðs og
utan«. Ennfremur að vélin og ket-
illinn og allt, sem þeim tilheyrði,
hafi verið »i góðu lagi«, og að
>skipið virðist vera gott sjóskip«.
Endar sérfræðingur þessi álit sitt á
þessa leið:
>Með tilliti til þess, hve skipið
er í góðu standi og með tilliti til
ofannefndra ívilnana verður að telja
verðið: 8000 £, mjög hagkvæmt
fyrir kaupendur«.
Pegar á þann hátt var fengin full
trygging fyrir gæðum skipsins, að
það var traust og gott sjóskip,
kolaspart, ketill og vél í bezta lagi,
en á hinn bóginn helmingi ódýrara
en nýtt skip af sömu gerð, ákvað
P. L. að festa kaup á því. Jafnframt
ákvað hann að sigla því sjálfur
heim og mannaði það bæði íslend-
ingum og Pjóðverjum. Við þetta
sparaðist nokkur fjárhæð, því skip-
stjórar voru ekki fáanlegir nema
fyrir mjög hátt kaup. Á leiðinni til
Reykjavíkur hreppti Pór eitthvert hið
mesta fárviðri, er komið hefir hér
við land á síðari árum. í þessu of-
viðri og ósjó varð hið hryggilega
slys fyrir sunnan Iand, er lengi mun
í minnum haft. Flestir þeir togarar,
sem staddir voru á óveðurssvæðinu,
og menn hafa haft spurnir af,
skemmdust meira og minna af
völdum hinna æðandi náttúruafla.
Eitt stórt farþegaskip, Lyra, brotn-
aði mikið og var hætt komið. En
úr þessum hildarleik sigldi Pálmi
Loftsson björgunarskipinu nýja, Pór,
heilu í höfn 2. des. síðastl. Var þá
fengin örugg vissa um það, að álit
þeirra, P. L. og danska sérfræðings-
ins, um að Pór væri hið bezta sjó-
skip, var hárrétt.
Nú víkur sögunni til Morgun-
blaðsmanna. — Pegar rætt var um
kaup á strandferðaskipi fyrir fáum
árum, fullyrti annar ritstj. Mbl., Jón
Kjartansson, að það kostaði ekki
minna en 800 þús. kr. Síðan notaði
Mbl. hina háu tölu, sem J. K. haföi
búið til, sem vopn á móti málinu.
Nú fóru svo leikar, að Páimi Lofts-
son keypti Súðina fyrir óverulegt
brot af þeirri upphæð, er Mbl. hafði
hampað, og beið það því hina
mestu hneisu i þessu máli. Síðan
eru Morgunblaðsmenn í illu skapi
sem von er til og fullir af hefndar-
hug til Pálma Loftssonar.
Ekki var Pór fyr orðinn landfastur
í Reykjavík, en Mbl.menn sendu
vélstjóra einn um borð í ákveðnum
tilgangi. Hver sá tilgangur var, kom
brátt í Ijós. í Mbl. birtist hver róg-
greinin á fætur annari um nýja björg-
unarskipið. Sú ástríða sýnist drottna
í sálarlífi Mbl.manna að ofsækja og
níða allt, er til framfara og farsældar
horfir, en verja og halda hlífiskildi
yfir hverskonar spillingu í þjóðiíf-
inu. Kom hið fyrnefnda meðal ann-
ars í Ijós i dómum blaðsins um Pór.
Honum var í fyrsta lagi fundið það
til foráttu, að hann væri ófær til
björgunarstarfa, því hann gæti ekki
bjargað sjálfum sér í vondu veðri,
og í öðru lagi hefði hann verið ó-
hæfilega dýr. í hverri línu gægðist
fram persónuleg óvild til mannsins,
sem staðið hafði fyrir skipskaupun-
um, og er augljóst að penna Mbl.-
ritaranna stýrir frekar persónulegt
hatur á P. L, heldur en umhyggja
fyrir björgunarmálinu. Pað verður
ekki sagt að aðalmálgagn íhalds-
flokksins færist neitt smáræði í fang,
þegar það hyggst að færa lesendum
sínum heim santiinn um það, að
einmitt paö skipiö, sem komst óskemmt úr
Ofl/iörinu í höín, þegar önnur skip, og
þar á meðal stórt farþegaskip, koma
stórskemmd, sé í raun 08 veru ósjófær
manndrápsbolli. Siik rökfærsla er svo
snauð af viii, að hún hæfir ekki
öðrum en lægstu tegundinni af
mannverum þeim, sem rita i Ihalds-
blöðin.
Að sjálfsögðu stánda Mbl.menn
ekki jafnhraklega að vígi, þegar um
kaupverð skipsins er að ræða. Um
það má vitanlega deila. Pó er margt,
sem á það bendir, að verð skipsins
hafi fremur verið lágt en hátt. Má
þar fyrst nefna ummæli danska sér-
fræðingsins hér að framan, þar sem
hann felur verðið »mjög hagkvæmt
fyrir kaupendur*. Flestir munu líta
svo á, að hann beri fullt svo gott
skyn á slíka hluti eins og fjólufeður
Morgunblaðsins. Dómurslíksmanns
hlýtur að vera óvilhallur, og engin
ástæða til að ætla, að þessi útlendi
sérfræðingur hafi nokkra tilhneig-
ingu eða löngun til þess að striða
Morgunblaðsfólkinu.
Pegar Mbl.menn ætla af göflum
að ganga yfir verðinu á Pór, er
ekki úr vegi að minnast fyrri skipa-
kaupa, sem þeir sjálfir hafa verið
við riðnir. Eitt sinn keypti landið
skip að félaginu Kveldúlfi. Pað var
gamalt flutningaskip, sem nefndist
Borg. Féiagið hafði haft eignarhald
á því lítinn tíma og neytti góðrar
aðstöðu til þess að selja landinu
það fyrir 300 þús. kr. hærra verð
en gefið hafði verið fyrir það. Varð
landið þannig að greiða á aðra
milj. kr. fyrir þetta gamla skip.
Verður áðurnefnd upphæð að teljast
nokkuð rífleg áiagning Súðin og
Pór bæði til samans kostuðu svipað
og þessari álagningu nam. Nú hafa
3. tbl.
sumir þeir sömu íhaldsmenn, er við
fyrnefnda skipssölu voru riðnir, lát-
ið mjög dólgslega yfir því, að Súðin
og Pór skyldu vera keypt, af því
að hvorugt skipið hafi verið nýtt.
En um Borg er það að segja, að
hún reyndist óhæf til flutninga hér
við land og dæmd óhæf til strand-
ferða, Varð því niðurstaðan loks
sú, að Borg var seld úr Iandi fyrir
um tíunda partinn af því, sem
Kveldúlfur hafði fengið fyrir hana
hjá landinu.
Pettageturnú kallast ráðsmennska
í lagi! Svona viðskifti líka fhalds-
broddunum vel, þegar þeir hafa
einhvern hagnað at sjálfir.
íhaldsmenn þykjast vera hneyksl-
aðir yfir því að nýi Pór sé 8 ára
gamall. Sjálfir keyptu þeir gamla
Pór hátt á þritugsaldri árið 1926
fyrir 80 þús. kr. landsfjár og kost-
uðu til aðgerða á honum annari
eins upphæð, og var hann þá orðinn
nálega eins dýr og nýi Pór, þó að
hann væri 20 árum eldri og miklu
kolafrekari og lítt fær til strand-
gæzlu.
Svo ólmir eru Mbl.menn f rógs-
málum sínum um Pór, að þeir full-
yrða að eik sé fura, kopar sé stál
og 90 smálestir af kolum séu 35
smálestir. Hafa þessi öfugmæli f-
haldsmanna verið sönnuð með vott-
orðum skoðunarmanna.
Hvað veldur öllu þessu vitfirrings-
lega rugli Morgunblaðsins? Ekkert
annað en óstjórnleg löngun blaðs-
ins til þess að ófrægja og afflytja
öll verk og ráðstafanir landstjórnar-
innar og allra þeirra, er í hennar
þjónustu starfa. En öll þessi mikla
skriffinska blaðsins og áreynslan,
er henni fylgir, sýnist vera alveg ó-
þörf. f stað hennar gæti í eitt skifti
fyrir öll komið ein yfirlýsing Morg-
unblaðsins um það, að blaðið og
fylgihnettir þess bæru og ætluðu í
framtíðinni að bera fjandsamlegan
hug til allra verka og ráðstafana
stjórnarinnar, hvort sem verkin væru
góð eða ill.
Hlutverk Pórs er fyrst og fremst
björgunarstarfsemi. Búist er við að
skipið verði aðallega á Faxaflóa og
Breiðafirði frá því á haustin og
fram yfir nýjár, en síðan fyrir sunn-
an land fram á vor. En jafnframt því
að aðstoða báta og gæta landhelg-
innar er gert ráð fyrir að skipið
stundi veiðar í hjáverkum sfnum og
þegar það hefir ekki annað að gera
og hefir þvf komið til athugunar,
að Pór selji afla sinn Reykjavíkur-
búum og bændum, er til næst, við
því verði, sem yrði lægra en hið