Dagur - 22.01.1931, Qupperneq 4
12
ÐAGUE
3. tbl.
Aðalfundur
Akureyrardeildar Kaupfélags Eyfirðinga, verður haldinn í Nýja-
Bíó í kvöld og hefst kl. 81/2 e. m.
Fyrir fundinum liggur viðauki við reglugerð deildarinnar.
Fastlega skorað á deildarmenn að sækja fundinn.
DeildarstjórnirL
Vizka reynsinnnar.
(Niðurl.).
þeir ætla sér að nota hugann til að
hjálpa manninum úti í illviðrinu,
eða lina þjáningar hundsins, sem
flækist um hungraður og hrjáður
af öllum. Ef þér gerið ekkert til
hjálpar þegar þannig stendur á,
hvað gagna þá helgisiðir yðar og
hugleiðingar? Eg veit ekki hvers
vegna þér ættuð að vera að hug-
leiða, ef þér getið ekki miðlað öðr-
um af yðar litla skilningi.
Ef eg mætti ráða yður til ein-
hvers, þá lærið að beita athyglinni
meðan þér eruð ungir. Athugið
skýið sem svífur um himinhvolfið,
hvernig það varpar skugga sínum,
hvar hann iendir, og hver nýtur
forsælunnar, sem hann veitir fyrir
brennandi geislum sólarinnar. At-
hugið hin gullnu kveldský, sem
senda geislaglit sitt á einmana fugl,
sem flýgur heim í náttstað. Lítið á
smáfuglinn, sem setzt á greinina
og hyggur að, hvar hann muni nú
fá næstu máltíð, hvernig hann gef-
ur gætur hverju frækorni og hverj-
um ormi. Athugið mennina, hvern-
ig þeir ganga, haga sér, kjæðast,
tsla, hvernig þeir borða, hvernig
þeir læra, því allt hefir sína þýðingu
fyrir yður, ef þér á annað borð
kunnið að athuga. Pannig hefi eg
fundtð sannleikann og sameinast
honum, þannig hefi eg sigrað. Eg
hefi lært að nota hvert einasta smá-
atvik. Pegar þér borðið vínber,
kingið þér safanum en fleygið hýð-
inu. Hýðið er gagnslaust og þér
fleygið þvf, það skrælnar upp í sól-
skininu og hverfur, en safinn veitir
næringu. Pannig ættuð þér að
gleyma atvikinu en muna lexíuna,
sem það flutti. Lexían mun auka
yður orku til að læra aðra nýja af
öðrum atvikum, þannig safnast
reynslan, sem að síðustu gerir lífið
heilt og fullkomið.
Ef þér eruð vitrir — ekki fyrir
bókalestur, eða tilbeiðslu táknmynda
við ölturu musteranna, þó að allt
þetta geti haft sína þýðingu —heldur
hafið öðlazt þá vizku, sem er ávöxtur
af reynslu, er vaxin upp af skiln-
ingi, af sorg og gleði, þá getið þér
gengið allar götur með hvaða manni
sem er. Eg þekki mann á Englandi,
sem var vanur að koma drukkinn
heim á hverju kvðldi. Einn dag í
viku drakk hann aldrei, af þvf að
barnið hans kom heim úr skólanum
þann dag. Líklega getið þér ekki
skilið hve mikla fórn hann færði
með þessu, þar sem hann var vanur
að vera drukkinn öll önnur kvöld.
Elska hans til barnsins og sá litli
skilningur, sem hann hafði öðlazt,
gaf honum orku til að yfirvinna
hina sterku löngun í vínið. En hvað
gerum við, sem lesum i Hávamálum
Indialands (Bhagavad-Oita) oft á
dag, sem hugleiðum og höfum um
hönd helgisiði, sem við hyggjum
að muni ráða fram úr vandamálum
lífsins? Við erum sennilega grimm-
úðugri við börn okkar og eigin-
konur, heldur en þessi drykkjumað-
ur. Pó þér lesið bókmenntir
veraldarinnar, sökkvið yður niður i
hugleiðslu, tilbiðjið við hvert altari
og færið blómafórnir, þá er þetta
allt til einskis, ef þér kunnið ekki
að koma ástúðlega fram við aðra
menn og elska þá af öllu hjarta.—
Lærið að hafa opin augun. Hvert
lauf, sem fellur frá trjánum, hefir
sína þýðingu, hver fugl, sem flýgur
um geiminn, getur miðlað yður af
gleði sinni, mýkt sinni og orku.
Hvert smáatvik daglega lífsins getur
kennt yður sína lexíu. Ef þér lærið
af lífinu á þennan hátt, þurfið þér
engin drottinvöld til að stinga yður
svefnþorn, engar fræðisetningar til
að fjötra og kúga líf yðar, engin
trúarbrögð til að flækja yður í,
engin ölturu með öllum þeirra tákn-
myndum og guðum, sem gera si-
felldar kröfur til yðar. Pá verðið
þér sjálfir hin heilaga mynd og
hið heilaga musteri. Pess vegna
ættuð þér að beita athygli og læra
af reynslunni, sem ein gefur skiln-
ing. Petta er sá máttur, sem eg
vildi gefa yður, ef nokkuð væri til,
sem nefna mætti gjafir, eg vildi
geta opnað hugi yðar og hjörtu.
Pessa daga, sem eg hefi dvalið í
Benares, hefi eg verið að veita at-
hygli, hvernig fólk hlustar á hina
ýmsu ræðumenn, þar á meðal á
sjálfan mig, og eg hefi tekið eftir
því, hversu lítið það skilur í raun
og veru, ekki aðeins sýna spurn-
ingar þess skilningsleysið, heldur
einnig framkoman öll. Hér er ekki
verið að tala um djúpan skilning,
heldur um það eitt að draga úr
lífsflækjunum, af þvf að sannleikur-
inn er alltaf einfaldur. Sannleikur-
inn veitist aðeins þeim manni, sem
orðinn er einfaldur og blátt áfram,
vegna þess að hann skilur. Sann-
leikurinn nær aðeins til þeirra, sem
lært hafa að nota skilning sinn til
að veita öðrum lið, og til að upp-
ræta misskilning úr hugum þeirra
og hjörtum. Sannleikurinn kemur
aðeins til þeirra, sem ganga veg
lífsins með skilningi.
Pegar eg kem hér aftur næsta
ár, vildi eg óska að þér hefðuð
öðlazt svo skýran skilning, að þér
væruð orðnir sannir félagar mínir.
Eg vildi óska að djúpið milli mfn
og yðar yrði brúað, djúp skilnings-
leysis og vanmáttar að sýna skiln-
ing yðar í daglegu lifi. Á meðan
þér eruð ung, er hinn rétti timi til
að læra einfaldleik og hreinlyndi;
Jörðin SKÓGAR
á Þelamörk er laus til ábúðar í næstu fardögum.
Semja ber við eigandann,
Svanfríði Bjarnadóttur
Hafnarstræti 35, Akureyri.
SI ö k k v i I i ð s s t j ó r i:
Eggert St. Melstað, Oddagötu 3, sími 115.
Varaslökkviliðsstjðri:
Gunnar Guðlaugsson, Lundargötu 10. sími 257.
Ytirflokkstjóri: Flokksstjóri í innbænum:
Gísli Magnússon, Jón Norðfjörð,
Strandgötu 15, sími 25 Lækjargötu 3, simi 67.
Aörir ilokkstjórar:
Halldór Ásgeirsson, Brekkugötu 2, Aðalsteinn Jónatansson, Hafnarstræti
107 B, Friðrik Hjaltalín, Orundargötu 6, Tryggvi Jónatansson, Strand-
götu 39 og Svanberg Sigurgeirsson, Pórunnarstræti.
Brunaboöar:
í innbænum: Sigurður Jónsson, Aðalstræti 20.
Eðvarð Sigurgeirsson, Spitalaveg 15.
I útbænum: Rudolf Brun, Hriseyjargötu 5.
Karl Magnússón, Oilsbakkaveg 1.
Menn eru ámintir um, að tilkynna símastöðinni og slökkviliðinu, ef
eldsvoða ber að höndum og festa upp þessa auglýsingu sér til minnis.
Slökkviliðsstjórinn á Akureyri 12. jan. 1931.
Eggert St. Melstað.
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
A meðan þér eruð ung, verðið þér
að gæta yðar og verja fyrir hjátrú,
kreddum og kennivaldstrú. Lærið
í æsku að vaxa eins og hinn tign-
arlegi pálmaviður og verða tignar-
legir, hreinir og beinir. Hinn eini
sannleikur, hið eina takmark er að
vaxa frá öllum flækjunum til hins
æðsta einfaldleika. Pegar þú hefir
öðazt einfaldleik, þá fæðist hinn
rétti skilningur á sannleikanum, en
þá fyrst náið þér þessum einfald-
leik og sanna skilningi, þegar þér
hafið lært að meta réttilega hvert
einasta atvik, sem gerist i návist
yðar, þanpig að þér lærið lexíuna
sem það flytur, en gleymið atburð-
inum sjálfum. Hin dýrðlega fulb
komnun er yður í sjálfsvald sett.
Kærleikur yðar hreinsast í yðar eig-
in hjörtum, og í yðar eigin huga
þróast yðar sérstaka einstaklings-
eðli. Pá getið þér notfært yður ailt
sem við ber á lífsleið yðar og
byggt hús yðar á svo traustum
grundvelli, að það endist um alla
eflifð. f slíkri byggingu er sann-
eikurinn hornsteinninn.
Bam á Reykjanesi viö ísafjarftar-
djúp féll í sjóftandi pott og beift bana
af.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6.
Prentsmiðja Odda Bjömisonar.