Dagur - 18.06.1931, Blaðsíða 3
32. tbl.
DAGUB
123
ÚTBOÐ
Eg undirritaður óska eftirtil-
boðum í að byggja einnar hæð-
ar steinhfls, sunnan við verkstæði
mitt á Oddeyri. Uppdrætti og
útboðslýsingu geta menn fengið
í verkstæði mínu og skal skila
tilboðum í lokuðum umslögum
fyrir kl. 12 á hádegi þann 23.
þ. m., til Sveinbjarnar Jónssonar
byggingameistara.
Akureyri, 18. júní 1931.
Steindór /óhannesson,
jámsmiður.
Fréttir.
Veðráttan. Brugðið hefir til rigninga
viða um land á síðustu dögum eftir Iang-
varandi þurka.
íhaldsmenn í Rvik kváðu bera sig illa
yfir kosningaósigrinuin.
Nýlátinn er hér á sjúkrahúsinu Jóhann
Friðfinnsson, faðir Einars byggingameistara
hér í bæ og frú Soffíu konu Júniusar Jóns-
sonar bæjarverkstjóra. Hafði hann mörg
síðustu ár æfinnar dvallð hjá dóttur sinni
og tengdasyni. Jóhann sái. mun hafa ver-
ið kominn yfir sjötugt. Hann lætur eftir
sig ekkju og tvö áðurnefnd börn.
5. bekkingar menntaskólanna beggja,
í Reykjavik og á Akureyri, eru á ferðalagi
í Þingeyjarsýslum. í för með þeim eru
náttúrufræðiskennararnir Ouðmundur O.
Bárðarson og Steindór Steindórsson.
áiengisbruggun varð uppvís í Reykjavik
nýlega. Fór bruggunin fram i bakhúsi
einu á Laugarvegi. Tveir menn voru settir
í varðhaid og er mál þetta nú uudir rann-
sókn.
Sundkennsla hófst hér í bænum i gær
i sundstæði bæjarins. Kennarinn er Ólafur
Magnússon eins og áður.
------o-----
Merkisviðburður.
Leikfélag Reykjavíkur kemwr
hingaö til Akureyrao' og sýnir
sjónleikinn »Hallsteinn og Dóra«
eftir Einar H. Kvaran.
Hver mundi hafa búizt við
slíku? Hver mundi hafa þorað að
vonast eftir slíku nú? En í lönd-
um, þar sem menn líta á leiklist
sem þýðingarmikið menningarmál
— þar sem menn viðurkenna að
dramatiskar bókmenntir eru einn
öruggasti vitnisburðurinn um
mikilhæfi og fegurð þjóðarsálar-
innar — vitnisburður um andleg-
an þroska, en það viðurkenna
menn í öllum menningarlöndum
— þar er það venja að þjóðleik-
hús viðkomandi landa sendi, jafn-
vel árlega, þá beztu eða nokkra
af beztu leikkröftum sínum í leik-
för um landið með þá af sjónleikj-
um sínum, er mest gildi hafa og
þezt hefir tekizt að sýna, til þess
að veita þannig frjóum straum
þessarar andlegu orku út til hinna
fjarlægari staða landsins í því
skynl að hefja og sameina í krafti
andans og listarinnar hina annars
svo ólíku hugi þjóðarinnar. Þetta
hefir ekki þekkst hér á landi, og
enginn getur þó neitað því, að við
eigum fullan rétt á að teljast
meðal menningarþjóða, og enginn
íslendingur mun heldur óska ann-
ars.
Leikfélag Akureyrar hefir starf-
að yfir 30 ár nú. Að vísu hefir
það ekki starfrækt neitt þjóðleik-
hús, en það hefir heldur ekki lagt
í för sem þessa — sem félag —
og víst heldur ekki treyst sér, —
enda víst ekkert sérstakt verið
gert til þess af þjóðinni sem heild.
En nú hefir L. R. ákveðið að hef j-
ast handa í fyrsta sinn og fara
eina reynsluför í áðurnefndu
augnamiði. Förinni er heitið
hingað til Akureyrar, því hér er
eina leiksviðið sem tiltækilegt er
að nota, utan Reykjavíkur, fyrir
þann sjónleik, sem valinn hefir
verið til fararinnar, en hann er
hið nýja leikrit, »Hallsteinn og
Dóra«, eftir vinsælasta rithöfund
okkar íslendinga: Einar H. Kvar-
an. Sjónleik þessum var tekið bet-
ur í höfuðstaðnum en venja hefir
verið um íslenzka sjónleiki og
sýndur nú undanfarið fyrir troð-
fullu húsi hvað eftir annað og
vaxandi hylli bæjarbúa, þrátt fyr-
ir stjórnmálaerjur er fylltu hug-
ina, og glampandi sólskin, er
seiddi fólk burt úr bænum í þús-
undatali. Jafnvel eftir að búið var
að auglýsa leikinn í síðasta sinn
varð að taka hann upp aftur, því
margir höfðu orðið frá að hverfa,
og varð þá enn alveg fullt hús.
Er það einstakt í vorhitum eins
og að þessu sinni í Reykjavík.
Leikarar þeir, sem farið hafa
með hlutverkin í leiknum fyrir
sunnan og sem koma hingað norð-
ur að þessu sinni, eru heldur ekki
af verri endanum. Fyrir utan
Harald Björnsson, formann L. R.
og leikstjóra, koma hvorki meira
né minna en sjálfur Friðfinnur
Guðjónsson, Marta Kalman og
Gunnþórun Halldórsdóttir, sem
öll eru landskunn. Harald þekkja
allir hér af starfi hans undanfar-
in ár. Hann hefir staðið fyrir
sýningum L. R. í vetur og auk
þess leikið sjálfur flest vandasöm-
ustu hlutverkin. Hann fer hér
með hið erfiða og vandasama
hlutverk Hallsteins. Friðfinnur
Guðjónsson hefir leikið flest hlut-
verk allra íslenzkra leikara —
hátt á annað hundrað hlutverk —
og leikið þau: allt-sigrandi; því
hver getur staðist Friðfinn? Eng-
inn. Margir Reykvíkingar elska
hann blátt áfram. Hann fer hér
með hlutverk ófeigs vinnumanns.
Marta Kalman, systir Guðrúnar
Indriðadóttur, hefir leikið fjöl-
mörg af aðalhlutverkum hjá L.
R., einkum nú í seinni tíð og lagt
drjúgan skerf til hlátursefnisins í
leikhúsinu. Hún fer hér með hlut-
verk Gunnhildar ekkjufrúar.
Gunnþórun Halldórsdóttir hefir
leikið bæði gaman og alvöru og
Nytt Kaffihús
undir nafninu
Herðubreið
var opnað í Hafnarstræti 98, föstudaginn 12. júní.
Jazz-Trio Karls Runólfssonar spilar fyrst um sinn
á hverju kvöldi og á sunnud. frá kl. 3.30 til kl. 5 e. h.
JÓM A R ,M A SON,
Herkúles
slátfuvélar.
Það er engin tilviljun að vér höfum selt
— 500 sláttuvélar á fjörum árury —
og að allir sem hafa fengið þessar vélar eru vel ánægðir með þær.
Valið á vélunum veldur þessu.
Herkúles vélarnar bregðast ekki.
Höfum til alla varahluti í vélarnar.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Móelven
vagnar og vagnhjól eru vænst og varanlegust og best búmannseign,
Samb8nd is). samvinnufélaga.
sýnir í »Hallsteinn og Dóra« svo
fagran og göfugan leik, að maður
trúir henni umsvifalaust fyrir
hinum allra kröfuhörðustu hlut-
verkum. Hún fer hér með hlut-
verk Geirlaugar.
Af yngri kynslóðinni koma
Emilía og Þóra Borg og Sigrún
Magnúsdóttir. Um Borg-systurn-
ar væri það eitt nægilegt að benda
á, að þær eru dætur Stefaníu
heitinnar leikkonu og systur Önnu
Borg, sem er í þann veginn að
vinna sér Evrópufrægð sem
helzta leikkona konunglega leik-
hússins í Höfn — nægileg trygg-
ing fyrir því, að hér eru fallegar
og gáfum gæddar leikkonur á
ferðinni. Ungfrú Þóra Borg hefir
þar að auki í þessum leik unnið
hjörtu allra, sem geta fundið til,
með leik sínum í 2. þætti, þar sem
Dóra deyr, en hún leikur Dóru.
Ungfrú Emilía fer aftur með
hlutverk Finnu vinnukonu, og
skilar því með mestu prýði.
Sigrún Magnúsdóttir, hin unga
leikkona Isfirðinga, kom heim í
fyrra frá tveggja ára námi við
leikskóla konunglega leikhússins í
Höfn og hefir starfað með L. R.
í vetur. Hún fer hér með hlutverk
Manga litla, sonar Hallsteins og
Dóru.
Hér er um óvenjulega leiksýn-
ingu að ræða, bæði hvað efni,
leik og allan útbúnað snertir. T.
d. má geta þess að í síðasta þætti,
sem gerist einhverstaðar í tilver-
unni, birtast 3 sýnir af fólks-
fjölda og landslagi. Hefir Frey-
móður Jóhannsson málað tjöldin
og útbúið leiksviðin. Með Detti-
fossi síðast komu þeir Freymóður
Jóhannsson málari og Lárus Sig-
urbj örnsson f ramkvæmdarst j óri
til þess að undirbúa leiksýning-
una hér og koma fyrir tjöldunum.
Með næstu skipum koma svo leik-
ararnir og ljósameistari félags-
ins, Hallgrímur Bachmann, og
verður svo byrjað að leika um
mánaðamótin næstu (júní—júlí).
Þarf ekki að efa, að kapp verð-
ur mikið um aðgöngumiðana.
Þessi för Leikfélagsins ætti að
geta orðið upphaf að nánara
kynni milli þeirra krafta, sem að
leikmennt landsins standa og sem
bera þjóðleikhúsmál vort fyrir
brjósti — upphaf að samvinnu og
samhug. Að þessi för er farin
fyrst nú stafar af því, að á síðast-
liðnu ári varð gagnger breyting á
allri stjórn Leikfélags Reykjavík-
ur, þannig að félagið telur sig
hafa meiri skyldur nú en áður
gagnvart allri þjóðinni.
Akureyringwr.
■ Q---------